Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 43
það stærsti hópur þeirra sem vitað
er um í heiminum.
Samkvæmt Ramsar-sáttmálanum
um verndun votlendis, sem íslend-
ingar hafa undirritað, og skilgrein-
ingu alþjóðlega fuglavemdarráðs-
ins, em svæði talin hafa alþjóðlegt
verndargildi ef 1% eða meira af ein-
hverjum stofni vatnafugla nýtir þau
í lengri eða skemmri tíma. Eyja-
bakkasvæðið hefur því ótvírætt
verndargildi á heimsvísu.
e) Spendýr. Hreindýr hafa nýtt
sér Eyjabakkasvæðið til beitar,
einkum seinni part sumars, og virð-
ast nú sækja þangað um miðsumar í
auknum mæli. Samkvæmt júlítaln-
ingum áranna 1992-97 vora að með-
altali 38% allra hreindýra á Snæ-
fellsöræfum austan Snæfells, en að-
eins um 9% á árunum 1979-91.
Nokkur tófugreni eru á jöðrum
Eyjabakkasvæðis. Eyjabakkasvæð-
ið er verulegur hluti afréttarinnar
„Undir Fellum", þar sem sauðfé
Fljótsdælinga gengur á sumrum. I
tveimur talningum í ágúst 1975 og
1977 voru skráðar 110 og 118 kind-
ur á svæðinu. Beitargildi þess gróð-
urlendis sem færi undir vatn hefur
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
áætlað að svari til 1.280 ærgilda,
miðað við 2,5 mánaða beit.
f) Jökulgarðar (jarðfræðiminjar).
Eyjabakkajökull hefur nokkram
sinnum hlaupið fram á síðustu 110
áram, og vanalega ýtt upp mikilfeng-
legum jökulgörðum (endamórenum)
í þeim hlaupum. í hlaupinu 1890
gekk jökullinn lengst fram, og skófl-
aði þá upp votlendisjarðvegi í allt að
20 m háa hryggi, sem kallaðir era
Hraukar, en þá er aðallega að fínna á
bogalínu austur frá Eyjafelli. Fram-
an við þessa hrauka hefur jarðvegur-
inn á nokkrum stöðum lagst í felling-
ar, sem líkjast vatnsöldum, og ná allt
að Vz km fram á sléttuna, en styttast
smám saman og fara lækkandi.
Þessar einkennilegu jökulöldur eiga
ekki sinn líka hér á landi, og líklega
ekki heldur í öðram löndum. Þær
myndu hverfa í Eyjabakkalónið.
(Jökulgarðar þessir hafa verið sér-
staklega rannsakaðir af próf. Emmy
Todtmann frá Hamborg.)
h) Söguminjar. Tveir gangna-
mannakofar: Hálskofi og Eyja-
bakkakofí (Bergkvíslakofi) fara á
kaf í lónið, og jafnvel rúst Sjónar-
hólskofa, ef vatnsborð verður hækk-
að við Hraunavirkjun.
2. Snæfell
Hið mikla og fagra útsýni af Snæ-
felli, þar sem Eyjabakkasvæðið er
eitt helsta djásnið, myndi bíða mik-
inn hnekki við Fljótsdalsvirkjun,
einkum framan af sumri, þegai- lítið
er í lóninu. Ef sá hluti virkjunaráætl-
unar verður framkvæmdur, að veita
Hafursá, Hafursárkvísl og Laugará,
29. Ólympíuleikarnir
í eðlisiræði
Dagskrá dagsins 9.7.
Lokaathöfn Ólympíu-
leikanna fer fram í dag
í Háskólabíói. Þar fá
tííii&fðíVítiÍt keppendur að vita um
árangur erfiðis síns í
keppninni og að taka við viðurkenningar-
skjölum fyrir þátttökuna. Heimilistæki
gefa samtals um 100 gull-, silfur- og
bronsverðlaunahöfum vörur frá CASIO í
verðlaun og fulltrúi Landsbankans ávarp-
ar hátíðina fyrir hönd stuðningsaðila.
í kvöld halda þátttakendur og starfsmenn
til Hótel Arkar í Hveragerði þar sem
keppendur leggja sjálfir til skemmtiatriði
frá heimahögum sínum. Á morgun flýgur
hver til síns heima, reynslunni ríkari úr
náttleysi íslenska sumarsins eftir lær-
dómsrík og vel samin verkefni.
BOMRG
Jarðvegsþjöppur og hopparar
Gæði á góðu verði!
Skútuvogi 12A, s. S68 1044.
ásamt upptakakvíslum Hölknár,
Grjótár og Sauðár, inn í miðlunarión
eða göng, verður Snæfell umkringt
stíflum og skurðum í hálfhring að
norðanverðu og aðgengi að fjallinu
stórlega skert, íyrir utan þau hrika-
legu lýti, sem af þessum mannvirkj-
um myndu leiða. Þetta hæsta fjall
landsins utan jökla, sem margir telja
eitt hið fegursta og tignarlegasta hér
á landi, og er auk þess í hugum Aust-
fírðinga umvafið sérstökum
helgiljóma, yrði þá saurgað og sví-
virt. Þangað gæti enginn litið nema
hugsa með hryllingi til skammsýni
og tillitsleysis mannanna.
3. Jökulsárfossar og gljúfur
í Jökulsá í Fljótsdal er mikið
fossaval. Af jökulsám landsins er það
líklega aðeins Jökulsá á Fjöllum sem
býr yfir meira fossaskrúði, enda fell-
ur áin um 600 m á um 30 km vega-
lengd. Á bilinu frá Kleif í Fljótsdal
upp að Eyjabökkum era um 15 foss-
ar og fossasyrpur. Nokkrii- þessara
fossa era í tölu hinna stærstu og veg-
legustu hér á landi, svo sem Faxfoss
(um 20 m) og Kirkjufoss (um 30 m).
Fossunum hafa verið gerð ýtarleg
skil í jólablaði Austra 1990 og í 16. og
17. hefti Glettings, þar sem birtar
eru litmyndir af þeim. (Af Faxa bh-t-
ist vegleg kápumynd á ársskýrslu
Orkustofnunar 1989.) Eftir virkjun
yrðu efri fossamir varla til lengur, og
þeir neðri ekki nema svipur hjá sjón.
Á tveimur stöðum myndar Jök-
ulsá nokkurra km löng og allt að 70
m djúp gil eða gljúfur. Neðra gilið
er í botni Norðurdals og er ákaflega
fagurt og með ríkulegum gróðri,
m.a. teygir birkiskógurinn Kleifar-
skógur sig ofan í það, og fossar era
ofantil í því. (Kápumynd á Glettingi
16.) Efra gilið endar í Kh’kjufossi.
Við virkjun Jökulsár myndu þessi
árgil breyta veralega um svip.
4. Aðrar ár
a) Keldá og Sauðár. I Keldá era
margir fagrir en lítt þekktir fossar,
sumir í mjög gróðurríku og fógra
umhverfi (Keldárgili/Þorgerðar-
staðaskógi). Við ármót Keldár og
Ytri-Sauðár eru háir og tignarlegir
fossar í báðum ánum. Allir þessir
fossar myndu breytast veralega ef
Sauðái-veita í Eyjabakkalón yrði
framkvæmd.
b) Hafursá og Laugará. I Haf-
ursá er snotur foss, og í Laugará
era tveir undurfagrir fossar: Slæðu-
foss og Stuðlafoss. Þessir fossar
myndu hverfa við Fljótsdalsvirkjun,
skv. núverandi áætlun.
c) Grjótá og Hölkná. Grjótá
leggur til mest af vatni Þuríðar-
staðadalsár (Þuru), en í henni eru
nokkrir fossar. í Hölkná er einn
myndarlegur foss í Hölknárgili í
„Hölknárdal".
5. Hraunasvæðið
í öllum áætlunum um Fljótsdals-
virkjun síðan um 1980 hefur verið
gert ráð fyrir að veita upptakakvísl-
um Keldár og Sauðár ytri og fremi
(sem falla í Keldá), vestur í Eyja-
bakkalón, með tilheyrandi skurðum
og stíflum. í síðustu tillögum um
Hraunavirkjun er ráðgert að mynda
„Keldárlón“, um 8 km2, er tengjast
myndi Eyjabakkalóni, þannig að
fyrirhugað vatnsborð beggja yrði
um 670 m y.s. Þetta lón myndi kaf-
færa Folavatn og gróðurlendið um-
hverfis það, eða um 5 km2 af algrónu
landi. Ef Hraunavirkjun verður
framkvæmd hefur hún áhi’if á marg-
ar ár í Fljótsdal, Skriðdal og á Suð-
urfjörðum, og fjöldi fagurra fossa
verður vatnslítill eða hverfur, þar á
meðal Strútsfoss í Strútsá, sem er
einn af hæstu fossum landsins,
Hofsárfossar í Hofsdal o.fl.
6. Gönguleiðir
Gönguleiðin milli Fljótsdals og
Lóns, yfir Eyjabakkajökul, með við-
komu í skálum Ferðafélags Fljóts-
dalshéraðs við Snæfell og Geldinga-
fell, er nú orðin ein vinsælasta
gönguleið landsins. Ljóst er að
Fljótsdalsvirkjun myndi hafa vera-
leg áhrif á hana, sérstaklega á leið
yfir jökulinn, þar sem Eyjabakkalón
myndi blasa við sjónum. (Ferða-
skrifstofa sem skipuleggur og selur
gönguferðir á þessari leið hefur ný-
lega lýst yfir að hún muni hætta því
ef til virkjunar kemur.) Að sjálf-
sögðu spillist einnig gönguleiðin upp
á Snæfell og umhverfis það, að
ógleymdri hinni fögru gönguleið upp
með Jökulsá, til fossaskoðunar o.fl,
7. Áfok og landbrot
Eyjabakkalón er tiltölulega
grannt og víðfeðmt, og myndi að lík-
indum tæmast í flestum áram seinni
hluta vetrar. Ef snjóalög era ekki
því meiri gæti orðið umtalsvert áfok
af jökulleir úr lónbotninum, einkum
til austurs og norðurs. Þar sem
hæsta vatnsborð lónsins liggur á
jarðvegi og grónu landi, má ætla að
geti orðið veralegt landbrot af völd-
um vatns og íss, og jafnvel uppblást-
ur út frá bökkum.
8. Efnistaka, úrgangur
Ráðgert er að grjótnám í Eyja-
bakkastíflu fari aðallega fram við
stíflustæðið austan Jökulsár, þar sem
allþykkt stuðlabergslag yrði brotið
upp. Jökulraðningur í þéttiefni yrði
tekinn á ýmsum stöðum í nágrenni
stíflnanna. Fyrirhugað er að nema
steypuefni niðri í Fljótsdal, á Melum
innan við Bessastaðaá, og hefur þar
verið opnuð náma og harpað efni.
Grjótmulningur úr göngunum er
ekld talinn nothæfur sem byggingar-
efni, og verður honum komið fyrir í
lægðum nálægt aðkomugöngum.
9. Vegir og raflínur »
Uppbyggður vegur hefur þegar
verið lagður inn Fljótsdalsheiði, að
Laugarfelli, og bílfærar slóðir þaðan
í ýmsar áttir. Framlengja verður
þennan veg að stíflustæðinu ef til
virkjunar kemur, og áfram austur á
Hraun, vegna Sauðárveitu. Haustið
1991 óskaði verktakinn (Hagvirki
hf.) eftir því að leggja fullkominn bíl-
veg inn Norðurdal og gegnum Kleif-
arskóg, til að tengja saman vinnu-
búðir og vinnusvæði við Öxará (Að-
komugöng III). Þessari hugmynd
var mótmælt af ýmsum aðilum, og -
mun Náttúruverndarráð einnig hafa
lagst gegn henni. Vegur inn dalinn
að austanverðu er hins vegar talinn
koma til greina. Þá var fyrirhugað að
leggja bráðabirgða-raflínu um Norð-
urdal upp að vinnslusvæðunum. Gert
var ráð fyrir að tengja núverandi
„Byggðalínu“ við Fljótsdalsvirkjun,
með 132 Kv línu, sexfaldri, á um 20
m háum járngrindastaumm, með 30
m breiðum þverslám, og leggja hana
út miðjan Fljótsdal. Þessu var mót>
mælt af stjóm NAUST og Fljótsdæl-
ingum í júlí 1991. (Að öðra leyti verð-
ur hér ekki fjallað um raflínur er
tengjast þessari virkjun.)
Höfundar eru líffræðingar.
Kcerar þakkir tilfjölskyldu okkar og allra, sem
glöddu okkur með gjöfum, skeytum og heimsókn-
um á gullbrúðkaupsdegi okkar 17. júrú sl.
Guð blessi ykkur öll, sem gjörðu okkur daginn
ógleymanlegan.
Inga Asgrímsdóttir
og Páll Pálsson frá Borg,
Hraunbœ 103, Reykjavík.