Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 09.07.1998, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Ljóska Sjo ui/j, kúpJdy jtnco tetiacirte 4iffedo jd,a?aiia/fétó- arínfi d aZ> ue/zi. rifjcLsteJ/c md5 bötu&/j/r)' bnrtJ Og / eftir. öfLu/n mcb miteiu / rett ui/j~ SmjörL/Sijidum, J um f/'oma oq oecton-) > Aafa. i t&iFTJzæzi;/ öi/efni, ) r cS hejast o. O-tis , ( möt/ of mitlíx. j td/esteróU > þessa? Ferdinand Er Beethoven í keiluspils- Líklega vegna þess að höllinni? Eg efa það... hann samdi ekki keilu- spilstónlist... Ég er viss um að hann væri í keiluspilshöllinni ef hann hefði samið keiluspilstónlist... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Olög Frá Guðmundi Bergssyni: MEÐ lögum skal land byggja en ólögum eyða. Þessi orð höfum við oft vitnað í. Þegar lögin um stjórn fiskveiða voru sett var það til verndar stofn- inum fyrir ofveiði og þeir sem þá áttu skip og báta fengu rétt til að veiða úr sameign þjóðarinnar end- urgjaldslaust (en aðeins rétt til að veiða). A þann veg var þetta hugsað en á þessu hefur orðið stórkostleg breyting. Nú eru menn farnir að selja óveiddan fiskinn í sjónum sem þeir höfðu aðeins rétt til að veiða sjálfir og nýjustu tölur eru nefndar 800 kr. pr. kg. af fiski syndandi í sjónum, sameign þjóðarinnar eins og ráðamenn orða það við viss tæki- færi en þjóðin á greinilega ekkert í heldur er það í eigu manna sem ganga undir nafninu sægreifar manna á meðal (ekki fann ég það nafn á þá). Þannig eru lögin orðin að ólögum ... „með ólögum eyða“. Við því var varað í eina tíð. Við skulum hafa ein lög i landinu Það er augljóst öllum, ef það er rétt að þeir sem fengið hafa leyfi til að veiða úr sameign þjóðarinnar geti selt fiskinn í sjónum sem sína eign að það á ekki við lengur að þjóðin eigi fiskinn. Það er bara lítill hluti af þjóðinni sem á hann. Landkvóti bænda A afloknu þingi voru sett lög um hálendið. Þar var settur kvóti þar sem lönd bænda voru látin ná upp á jökla og landeigendur áttu öll gæði lands, ofan jarðar og neðan. Þetta verða sennilega „landgreifarnir". Enn einu sinni er almenningur rétt- laus, enn er sameign þjóðarinnar tekin af henni. Stytta af Fjalla-Eyvindi Guðni frá Brúnastöðum ætlar að reisa styttu af Fjalla-Eyvindi á Hveravöllum og er það vel við hæfi, hann sem kaus frelsi og fegurð fjall- anna, þó að oft hafi verið þröngt í búi hjá honum og skammdegisnæt- urnar langar og kaldar í vetrarstór- hríðum. Guðni ætti því um leið að setja upp styttu af flokksbróður sín- um Páli frá Höllustöðum með áletr- un um að hann hafi tekið hálendi ís- lands af almenningi á vordögum 1998. Ef við sundurslítum lögin munum við sundurslíta friðinn Við því var varað sem nú virðist stefnt að með kvótalögum til sjós og lands. Það verður örugglega engin sátt um nýju hálendislögin frekar en orðið er um kvótann í sjónum, sem hefur lamað sum byggðarlög á landinu þaðan sem skip hafa verið seld burt með kvóta. Tökum höndum saman Nú þarf almenningur í landinu að taka höndum saman og láta vita af því að hann uni ekki lengur ólögun- um sem sett hafa verið. Látum ekki ólögin elta þjóðina inn í 21 öldina. GUÐMUNDUR BERGSSON, Sogavegi 178, Reykjavík. Heillaður af landi og þjóð Frá Eric Mahan: ÉG HEITI Eric Mahan og fæddist í San Franeisco árið 1966. Ég er al- inn upp í Virginíufylki og nam fjöl- miðlafræði og hef unnið sem blaða- maður í London. Mitt helsta áhuga- mál er tónlist og ég hef samið lög eins lengi og ég man eftir. Ég er lið- tækur söngvari og spila á nokkur hljóðfæri, m.a. gítar, bassa, píanó og trommur. Ég hef orðið fyrir áhrifum alls konar tónlistar en vil þó nefna Bítlana, soul-tónlist Motown-útgáfunnar, tónlist frá 7. og 8. áratugnum sem mína helstu áhrifavalda. Ég kom til íslands í mars sl. á leið til London og varð yfir mig hrif- inn af fegurð landsins og vinsam- legu viðmóti allra sem ég hitti. Lit- ríkur, næstum minimalískur bygg- ingarstíll Reykjavíkur kom mér skemmtilega á óvart. Hreina loftið, fiskurinn og ýmsar séríslenskar mjólkurafurði, eins og t.d. skyr og AB-mjólk, féll mér vel í geð. Heimsborgarabragur Reykjavík- ur gaf mér nýja sýn á hvernig evr- ópskar borgir geta verið og ég fann mjög góðan anda í bænum og sá hve íslendingar hafa mikla tilfinningu fyrir listum, eins og best sést á tísk- unni og viðhorfum fólks. Kjarni málsins er sá að mig lang- ar mikið að koma aftur til íslands, en áður en ég geri það myndi ég vilja eignast pennavini héðan. Mig langar allra mest til að hitta fólk sem hefur áhuga á tónlist, jafnvel sem væri hægt að stofna hljómsveit með. Ef einhver hefur áhuga get ég sent viðkomandi kassettu með nokkrum af lögunum mínum. Ef einhver hefur áhuga á að kynnast mér er hann beðinn að skrifa mér bréf, senda tölvupóst, eða hringja. Ég hef áhuga á að tala við alla, óháð aldri og kyni. Ég vil einnig taka fram að ég hef mikinn áhuga á spíritisma og andlegum málefnum og mér hefur verið sagt að margir Islendingar séu sama sinnis. Kærar kveðjur, ERIC MAHAN, P.O. Box 6145 Leesburg, Virginia 20178, USA Cattybrook@aol.com Tel: (703) 777-2613 Fax: (703) 771-4113 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.