Morgunblaðið - 09.07.1998, Qupperneq 68
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
OPIN KERFIHF
m
HEWLETT
PACKARD
fltargmifybifrifr
<0>
S3.Lausnir
Nýherja iyrir
Lotus Notes
Premlum Partner
www.nyherii.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sophia
hittir
dætur
sínar
SOPHIA Hansen og dætur hennar,
Dagbjört og Rúna, hittust í einrúmi
í fjóra og hálfan tíma í gær í tyrk-
nesku fjallaþorpi og að sögn Sigurð-
ar Péturs Harðarsonar, stuðnings-
manns Sophiu, var stefnt að því að
þær myndu hitt-
ast aftur í dag
klukkan hálfníu
að tyrkneskum
tíma og vera
saman allan dag-
inn.
Samkvæmt úr-
skurði Hæsta-
réttar í Ankara
frá því í fyrra á Sophia umgengnis-
rétt við dætur sínar í júlí og ágúst á
hverju ári, en í fyrra var umgengnis-
réttur hennar brotinn.
Sophia kom í gærmorgun til
þorpsins Divrig þar sem Halim A1
hefur dvalist að undanfórnu, og í
fylgd með henni voru lögfræðingur
hennar, Hasip Kaplan, og jafnframt
lögfræðingur Halims.
Þær mæðgur fóru saman frá
verustað Halims AI á herragarð
bæjarstjórans í Divrig þar sem þær
dvöldu undir hervemd.
Bæði grétu og hlógu
Sigurður Pétur segir að vel hafi
farið á með þeim, þær hafi bæði
grátið og hlegið saman. Hann segir
að þær Dagbjört og Rúna skilji enn-
þá íslensku.
„Sophia var til dæmis að segja
þeim frá því að hún hefði komið með
ýmislegt handa þeim, hangikjöt og
flatkökur til dæmis. Þá sagði Dag-
björt allt í einu á tyrknesku:
„Komstu með ost.“ Þá sagði Sophia
á íslensku: „Já, ég kom með ost.“
Dagbjört svaraði á íslensku: „Já,
það er gott, mig langaði svo í ost.““
Sigurður Pétur þakkar íslenskum
stjórnvöldum og Stefáni Hauki Jó-
hannessyni, skrifstofustjóra í utan-
ríkisráðuneytinu, að tekist hafi að
koma á fundi Sophiu og dætra
hennar, og segir að hann hafi unnið
frábært starf.
Færeyskur fískibátur strandaði f Skerjafírði
Jötunn dró
bátinn á flot
FÆREYSKUR 138 tonna fískibát-
ur með átta manna áhöfn, Jens
Kristian Svabo, strandaði á Löngu-
skeijum i Skerjafirði á áttunda
tímanum í gærkvöldi en losnaði
tæpum þremur tímum síðar með
aðstoð hafnsögubátsins Jötuns.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þór Magnússyni, deildarstjóra hjá
björgunardeild Slysavarnafélags-
ins, urðu litlar skemmdir á bátn-
um og áhöfn hans var aldrei talin
í hættu.
Báturinn hefur verið að lúðu-
veiðum með línu vestur af Islandi
að undanförnu. Skipverjar ætluðu
að landa í Hafnarfírði í gær en
urðu frá að hverfa þar sem ekki
var aðstaða til að taka við aflan-
um og bryggjupláss takmarkað.
Var báturinn því á leið til Reykja-
víkur þar sem honum hafði verið
útveguð löndun í dag.
Áhöfn óttaðist að Ieki hefði kom-
ið að bátnum við strandið, en tveir
kafarar sem köíúðu niður að hon-
um f gærkvöldi komust að þeirri
niðurstöðu að skemmdir væru litl-
ar. Rétt eftir klukkan tíu tókst að
koma bátnum á flot og sigldi hann
sfðan fyrir eigin vélarafli til
Reykjavíkur í fylgd Jötuns.
Morgunblaðið / Golli
13 ferðamanna
leitað á Vatnajökli
Þoka, snjókoma og slæmt færi á jöklinum
BJÖRGUNARSVEITIR frá Höfn í
Hornafirði og Egilsstöðum hófu upp
úr klukkan hálftíu í gærkvöldi leit að
tólf norskum ferðamönnum og ís-
lenskum leiðsögumanni þeirra, sem
tilkynnt hafði verið um klukkan 20
að væru týndir á Vatnajökli. Upp úr
klukkan hálfeitt í nótt komust björg-
unarsveitir til samferðamanna fólks-
ins, sem höfðu haldið kyrru fyrir í
snjóbfl, en þrettánmenningarnir
voru enn ófundnir um eittleytið.
Fólkið lagði af stað á vélsleðum frá
Kverkfjöllum um kl. 18 í gær og var
ferðinni heitið á Skálafellsjökul.
Snjóbfll var með í fór og barst hjálp-
arbeiðni frá honum er Ijóst var að
vélsleðafólkið hafði orðið viðskila við
bflinn en þá var hann enn nálægt
Kverkfjöllum. Sautján manns voru í
snjóbflnum og tveir vélsleðar fylgdu
honum enn, en fólkið sem varð við-
skila við bflinn var á tíu sleðum.
Skyggni á jöklinum var mjög slæmt,
þoka og snjókoma og færi erfitt.
Fólkið var vel búið og fararstjór-
inn með fjarskiptatæki en öll fjar-
skipti voru dottin út á jöklinum þeg-
ar Morgunblaðið talaði við Lands-
stjórn björgunarsveitanna í kringum
miðnætti í nótt. Flugvél Landhelgis-
gæslunnar fór af stað frá Reykjavík
til að reyna að koma á fjarskipta-
sambandi á ný en átti erfitt með að
athafna sig vegna ókyrrðar.
Eftir að jeppi björgunarmanna frá
Höfn var kominn að snjóbflnum
komst fjarskiptasamband á skamma
stund. Vonaðist fólkið í snjóbílnum
til þess að þrettánmenningarnir
hefðu snúið við til skála Jöklarann-
sóknafélagsins í Kverkfjöllum og
voru björgunarmenn á leið þangað
upp úr klukkan eitt I nótt.
Jöklar hf., dótturfyrirtæki SH, kaupa 8,15% í SÍF
Liður í arðbærum inn-
lendum fjárfestingum
JÖKLAR hf„ dótturfyrirtæki Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna, hafa
keypt 8,15% af heildar útistandandi
hlutafé Sölusambands íslenskra fisk-
framleiðenda. Nafnverð hlutarins er
64,6 milljónir króna og miðað við
gengi síðustu daga sem hefur verið í
kringum 5 er kaupverðið liðlega 320
milljónir ki-óna. Gengi bréfanna var
5,41 í gær. Jöklar hf. eru þar með
einn af stærstu hluthöfum í SÍF.
Eftir að Jöklar hf. seldu skip sitt
fyrir hálfu öðru ári hefur það verið
tilgangur félagsins að fjárfesta í
innlendum fyrirtækjum sem tengj-
ast sjávarútvegi og sjá um eign sem
SH átti í innlendum hlutafélögum.
„Þessi kaup eru liður í þessum fjár-
festingum, SÍF er vaxandi fyrii-tæki
með góða fjárhagsstöðu og arðbær-
an rekstur," sagði Bjami Lúðvíks-
son, framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs SH, en hann er einnig fram-
kvæmdastjóri Jökla hf.
Aðrar afurðir og
aðrir markaðir
„Okkur er uppálagt að haga fjár-
festingum fyrh- Jökla þannig að
keyptir séu hlutfr í fyrirtækjum sem
eru skyld SH, þ.e. framleiðslufyrir-
tæki sem styðja við útflutning okkar
eða öðrum fyrirtækjum sem tengjast
starfsemi Sölumiðstöðvarinnar. Sölu-
miðstöðin eða erlend dótturfyrirtæki
hennar sjá hins vegar um fjárfesting-
ar í erlendum fyrirtækjum."
Bjarni segir ekki óeðlilegt að
fjárfesta í fyrirtæki í sömu atvinnu-
grein og SH en kosturinn sé sá að
SIF sé með aðrar afurðir sem selj-
ist að nokkru leyti á öðrum mörkuð-
um en afurðir SH. „Sveiflan er ekki
alltaf sú sama í saltfískinum og
frystum afurðum þannig að minnki
tekjur af frystum afurðum vonumst
við til að hafa hagnað af eign okkar í
SIF,“ segir Bjarni ennfremur.
Hann segir Jökla hf. ekki eiga svo
mikla eign nema í Útgerðarfélagi
Akureyringa, aðrir hlutir sem Jökl-
ar eiga séu mun minni. Bjarni sagði
ekki afráðið hvort aðrar breytingar
á eignasamsetningu Jökla fylgdu í
kjölfar kaupanna í SIF.
Jöklum var boðinn umræddur
hlutur til kaups af Kaupþingi.
Þýskri skútu bjarg-
að til hafnar í Eyjum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
HEIMAEY VE kom til hafnar í
Eyjum síðdegis í gær með þýska
skútu í togi. Fjögurra manna
áhöfn er á skútunni. Hafði hún
Ient í vandræðum austur af Eyj-
um á þriðjudag.
Sigurður Georgsson, skipstjóri
á Heimaey, sagði í samtali við
Morgunblaðið að skútan hefði
verið í Skaftárdýpi er skipið kom
að henni um klukkan þrjú í fyi’r-
inótt. Að hans sögn missti skútan
skrúfuna um hádegi á þriðjudag
og einnig fór eitthvað úr mastr-
inu og seglbúnaður varð óvirkur.
Sigurður sagði að leiðindaveður
hefði verið, vestan 5 til 7 vindstig
og talsverð hreyfing og skipverjar
hefðu því ekki haft nein tök á að
bjarga sér sjálfir til lands. Heima-
ey tók hana því í tog og tók ferðin
til Eyja þrettán tíma.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ÁHÖFNIN á skútunni við
komuna til Eyja.