Morgunblaðið - 01.08.1998, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Fyrirhugað að framkvæmdir við snjóflóðavarnir á fsafírði hefjist næsta vor
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
VARNARGARÐURINN er mikið mannvirki og verður 13 til 16 metrar á hæð, um 40 metr-
ar á breidd og 700 metrar á lengd. Um varnargarðinn miðjan verða göng en skíðasvæði Is-
fírðinga er fyrir ofan svæðið.
'ú ■
Morgunblaðið/Arnaldur
VERÐI garðurinn byggður er áætlað að flytja Seljalandsbæinn en talið er að það myndi
kosta um 20 til 30 milljónir króna að verja hann sérstaklega. Á myndinni er dóttir Magna,
Marta Hlín, og dóttir hennar, Magna Rún Rúnarsdóttir.
Leiðigarður verður
mikið mannvirki
HJÁ Ríkiskaupum voru nýlega
opnuð tilboð í hönnun á snjó-
flóðavarnargarði við Seljaland á
Isafirði. Fimm fyrirtæki buðu í
hönnunina og var það Forverk
ehf. í Reykjavík sem bauð Iægst
um 5 milljónir króna en ekki hef-
ur verið ákveðið hvaða tilboði
verði tekið. Heildarkostnaður við
framkvæmdina er áætlaður um
350 milljónir króna og er fyrir-
hugað að þær hefjist næstkom-
andi vor.
Um svokallaðan Ieiðigarð er að
ræða en honum er ætlað að beina
hugsanlegu snjóflóði frá byggð
hjá Seljalandi. Hann er mikið
mannvirki og mun verða um 13
til 16 metrar að hæð, um 40
metrar á breidd og ná 700 metra
upp með Seljalandshrygg.
Neðri endi garðsins mun liggja
upp frá Seljalandsbænum og er
ráðgert að flytja hann burt.
Verði hann látinn standa þarf að
breyta hönnun garðsins en sú
framkvæmd er talin kosta um 20
til 30 milljónir króna. Þá verða
göng um garðinn miðjan en veg-
urinn upp að skiðasvæði Isfirð-
inga liggur upp dalinn.
Að sögn bæjarsljóra ísafjard-
arbæjar, Halldórs Halldórssonar,
á framkvæmdin eftir að fara í
umhverfis- og fornleifamat.
Hann segist hins vegar vona að
garðurinn rísi.
„Það er ósk okkar að þessi
garður rísi enda höfum við lagt
talsverða fjármuni í uppbygg-
ingu á götum, vatnsveitu og
lögnum í hverfínu sem nú er á
hættusvæði. Þá er það einnig
réttur þeirra íbúa sem þarna búa
að öryggi þeirra sé tryggt og að
eignir þeirra verði ekki verðlaus-
ar. Til viðbótar vantar okkur
byggingarland og Seljalands-
hverfíð er talið heppilegur kost-
ur. Þá er einnig mjög aðgrunnt
fyrir neðan hverfið og það því
hentugt til uppfyllingar,“ sagði
Halldór.
Magni Guðmundsson fram-
kvæmdasljóri býr ásamt konu
sinni, Svanhildi Þórðardóttur, í
Seljalandsbænum. Hann er mót-
fallinn því að garðurinn verði
byggður.
„Eg er andvígur því að þessi
varnargarður rísi og víst er að
hann verður mikið lýti á staðn-
um. Auk þess tel ég enga þörf
fyrir hann og einungis verið að
kasta hundruðum milljóna króna
á glæ. Hérna er þekkt bæjar-
stæði frá árinu 1200 og aðeins til
ein heimild um snjóflóð en það
kom hér árið 1947 og tók með
sér útihús. Það festist lítill snjór í
hlíðinni hérna fyrir ofan auk
þess sem það er náttúrlega vörn
af Seljalandsmúlanum og gilinu
sem áin rennur um en þessi atriði
virðast ekki vera tekin til greina
af þeim sem gefa forskriftina að
hönnun garðsins."
Hann segir að framkvæmdin
hafi ekkert verið kynnt. „Fram
til þessa hefur framkvæmdin
ekkert verið kynnt utan þess að í
mars var lagt fram deiliskipulag
um Tungusvæðið og þar var
garðurinn lauslega teiknaður inn
á. Ég hef heyrt annars staðar frá
að flytja eigi húsið mitt, verði
garðurinn byggður, en frekar
myndi ég láta rífa það. Hér á
húsið heima, og hefur gert frá
árinu 1910,“ sagði Magni í sam-
tali við Morgunblaðið.
Fram til loka árs árið 2000 er
áætlað að verja um 2 milljörðum
króna til snjóflóðavarna á ís-
landi, samkvæmt upplýsingum
frá Framkvæmdasýslu ríkisins.
Stærstu verkin eru varnargarðar
fyrir ofan Neskaupstað, en hann
mun kosta um 600 milljónir
króna, og fyrir ofan Seyðisfjörð
sem áætlað er að kosti um 750
milljónir króna.
Þá er ráðgert að varnargarður
við Siglufjörð kosti um 250 millj-
ónir, leiðigarðurinn við ísafjörð
350 milljónir og garður ofan Pat-
reksfjarðar um 70 milljónir
króna en flestar framkvæmdirn-
ar bíða enn ákvörðunar heima-
manna eða Ofanflóðasjóðs.
Fljótandi veitinga-
staður á Lagarfljót
Ný brú yfir Berserks
eyrará í Hraunsfirði
Vaðbrekku, Hrafnkelsdal - Lagar-
fljótsormurinn ehf. á Egilsstöðum,
sem stofnað var í mars síðastliðnum
til að reka fljótandi veitingastað á
Lagarfljóti, er að vinna að því að
kaupa skip sem er innréttað sem
veitingastaður til að staðsetja á
Lagarfljóti og reka í því veitinga-
stað.
Bjarni G. Björgvinsson lögfræð-
ingur og Alfreð Steinar Rafnsson
skipstjóri stjórnarmenn í Lagar-
fljótsorminum fóru nýlega til
Þýskalands og Svíþjóðar til að
skoða skip sem eru í svipuðum
rekstri þar. I Vanersborg við
Vanersvatn norðan Gautaborgar í
Svíþjóð skoðuðu þeir félagar skip
sem Benedikt Vilhjálmsson á Egils-
stöðum, sem einnig er stjórnarmað-
ur í Lagarfljótsorminum, fann á síð-
asta vetri og þykir henta vel í þetta
verkefni. Benedikt er upphafsmað-
ur þessarar hugmyndar og hefur
haft augastað á þessu skipi frá því
áður en Lagarfljótsormurinn ehf.
var stofnaður.
Skipið, sem heitir Frida, er sex
ára gamalt, 38 metra langt, rúmir 7
metrar á breidd, ristir um 1 metra
og er 85 tonn að heildarþyngd.
Frida tekur 80 manns í sal undir
þiljum og 30 til 40 manns á efra þil-
far sem lokað er að mestu leyti og
hægt að loka alveg. Skipið gengur
12 mílur við 90% álag, kemst þess
vegna á einni klukkustund upp í
Hallormsstað, en er um einn og
hálfan klukkutíma þá leið á þægi-
legu dóli.
í rekstur
á næsta ári
Stefnt er að því að skipið komi til
landsins á vetri komanda og fari í
rekstur næsta sumar, en áður en
svo verður þarf að hnýta ýmsa lausa
enda. Til dæmis eru engar reglur til
á Islandi um skip er aðeins sigla á
fljótum og vötnum. I sumar ganga
þó í gildi EES-reglur um það atriði.
Mikið fyrirtæki er að flytja skipið
hingað, það er ekki hægt að sigla
því vegna þess að það er ekki byggt
til að sigla því á opnu hafí. Þess
vegna verður að flytja það með öðru
skipi sem verður að taka á leigu sér-
staklega til verksins, síðan verður
að flytja það á flutningavagni frá
Reyðarfirði uppá Lagat'fíjót, Vanda
verður vel til allrar skipulagningar
vegna flutningsins vegna þess að
skipið vegur alls 84 tonn eins og áð-
ur sagði.
Kostnaðaráætlun vegna skipa-
kaupanna liggur fyrir og gerir hún
ráð fyrir að heildarkostnaður við
kaup á skipinu og flutningur á því
uppá Lagarfljót nemi um 35 millj-
ónum króna. Horfur með fjármögn-
un eru góðar, meðal annars er nú-
verandi eigandi skipsins tilbúinn að
gerast eignaraðili að fyrirtækinu,
og ýmsir möguleikar aðrir hafa ver-
ið skoðaðir í stöðunni.
Ekki hefur enn neitt verið ákveðið
um hafnargerð vegna komu skips-
ins við Lagarfljót. Hafnargerðin á
hins vegar ekki að vera flókið mál
vegna þess að skipið ristir aðeins 1
metra.
Að sögn Bjarna og Alfreðs skoð-
uðu þeir mörg skip og komu líka í
skipasmíðastöð sem smíðar skip
þessarar gerðar, og sáu þeir mörg
álitleg skip sem hentuðu þessum
rekstri. Einnig er möguleiki á að
smíða nýtt skip. Þeir félagar voru
þó sammála um að Frida væri væn-
legasti kosturinn í stöðunni. Á
kynningarfundi sem Bjarni og Al-
freð héldu heimkomnir kynntu þeir
fyrir hluthöfum og öðru áhugafólki
stöðu málsins og voru tiltölulega
bjartsýnir á að þessi rekstur gæti
orðið að veruleika íyrir næsta sum-
ar.
Stykkishólmi - Síðustu vikur hef-
ur verið unnið að gerð nýrrar
brúar yfír Berserkseyrará í
Hraunsfirði. Það er brúarvinnu-
flokkur Vegagerðarinnar, undir
sfjórn Hauks Karlssonar, sem
annast verkið.
Berserkseyrará hefur ekki
verið að tefja brúargerðarmenn-
ina, því hún hefur ekki látið sjá
sig allan þann tíma sem fram-
kvæmdirnar hafa staðið. Farveg-
urinn er þurr og hefur varla
komið dropi úr lofti þennan tíma.
En áin er ekki alltaf svona fyrir-
ferðarlítil. Jón Fornason frá
Haga í Aðaldal er einn af þeim
sem vinna við brúargerðina.
Hann segir að eldri brúin, sem
nú er búið að fjarlægja, hafí ver-
ið byggð árið 1963 og þá hafí
verið verksfjóri frændi hans
Hugi Jóhannesson. Þá voru ekki
sömu aðstæður og nú og meiri
fyrirferð í ánni. Þegar langt var
komið að slá upp fyrir brúnni og
átti að fara að steypa hana þá
gerði mikið vatnsveður og vöxtur
hljóp í ána, það mikill að hún
þreif með sér brúaruppsláttinn
og sementið og varð að byrja upp
á nýtt. Þeir eru nú að fínna í far-
veginum áhöld og sement frá
þeim tíma. Nýr vegur verður
lagður beggja vegna að brúnni.
Næsta verkefni brúarvinnu-
flokksins bíður hans svo á Barða-
strönd.
Stórholt 4a, Akureyri
Þetta fallega,
vel staðsetta
einbýlishús,
ca 90 m2, er til
sölu. Verð kr.
7.900.000.
Nánari upplýsingar veitir: Grétar Haraldsson hrl.,
Dynskógum 5, Reykjavík - Sími 5573703.
:______________________________:___________
Morgunblaðið/Gunnlaugur
BRÚARVINNUMENNIRNIR Pálmar Guðjónsson og Jón Fornason hafa
í fjöldamörg sumur unnið við brúargerð. Það eru um 30 ár síðan Pálm-
ar réð sig fyrst í brúarvinnuflokk og fá sumrin hafa dottið úr og Jón
byijaði hjá frænda sinum, Huga Jóhanuessyni, í kringum 1960 en gerði
hlé á þeim störfum um tfma. Nú eru þeir ásamt félögum sínum að
byggja brú yfir Berserkseyrará, sem hefur ekki látið sjá sig í sumar.
I
í
t
(
I
■I
(
«
I
l
M
I
«
{
1
«
1
I
«
\
i
I
I
(
I
+