Morgunblaðið - 06.08.1998, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.08.1998, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Fulltrúar Evrópusambandsins rannsaka ruslahauga við Orahovac Heimildum um fjölda- morð ber ekki saman Reuters LJÓSMYNDARI festir verksuminerki á filmu við þoriiið Orahovac. Fulltrúar Evrópusambandsins gátu ekki staðfest að um fjöldagraflr væri að ræða. Vín, Belgrad, Brussel, Orahovac. Reuters. EVROPUSAMBANDIÐ sendi fulltrúa til bæjarins Orahovac í gær að rannsaka fjöldagrafir, sem sagðar eru vera þar. Sú ferð er far- in í kjölfar fréttar austurríska dag- blaðsins Die Presse um að tvær fjöldagrafir með rúmlega 500 lík- um hefðu fundist í grennd við bæ- inn Orahovac. Talið var að meiri- hluti líkanna væri af bömum. Sænska dagblaðið Expressen hafði eftir íbúum í Orahovac að 200 þorpsbúar hefðu látist í átökum í júlí og þorri þeirra væri grafínn á ruslahaugum þorpsins. Was- hington Post sagði einnig fréttir af grunsamlegum fjöldagröfum í Ora- hovac í gær. Þar væru mun fleiri grafnir en tala látinna í bardögun- um segði til um. Blaðamaður Die Presse var leiddur að ruslahaug sem sagður var geyma tvær fjöldagrafir. Jarð- ýtur höfðu verið notaðar til þess að ryðja yfír hauginn en sjá mátti rotnandi lík ofan á honum. Heima- menn sögðust hafa talið 567 lík, þar af 430 af bömum. Serbneskar hersveitir og skæm- liðar Frelsishers Kosovo börðust um yfírráð yfír Orahovac í júlí. Serbar fóm með sigur af hólmi en um 20 þúsund manns flúðu átökin. Chris Hill, erindreki Bandaríkja- stjómar, segir áhyggjuefni hversu mikil eyðilegging blasi við í Kosovo-héraði en hann skoðaði verksummerki í Orahovac fyrr í vikunni. Sendiherrar í höfuðstöðvum Atl- antshagsbandalagsins í Bmssel munu ráða ráðum sínum á óform- legum fundi á morgun. Hjá NATO er verið að leggja lokahönd á áætl- anir vegna hugsanlegra aðgerða til þess að koma á friði í Kosovo. Hemaðarbandalagið hefur hins vegar ekki verið beðið um að skakka leikinn í Kosovo-héraði. Frelsisher Kosovo skipu- lagður í Svíþjóð? Morgunblaðið. Kaupmannahöfn. EINN helsti leiðtogi Frelsishers Kosovo-Albana (KLA) talar reiprennandi sænsku með skánskum hreim. Þegar Richard Holbrooke, sérlegur sendimaður Bandaríkjastjómar, heimsótti Kosovo í júní fundaði hann með Lum Haxhiu, sem að sögn Svenska Dagbladet bjó í Málmey í fimmtán ár. Þar er stór nýlenda landa hans og allt bendir til að baráttan fyrir sjálfstæði Kosovo hafi verið skipulögð þar að hluta. Forystumenn Frelsishersins létu lengi vel ekki uppi hverjir þeir væm og tengsl þeirra við pólitíska leiðtoga Kosovo-Albana em óljós. Þegar Holbrooke kom í heimsókn sína fundaði hann með fulltrúum Frelsishersins. Þá lét Haxhiu taka myndir af sér með sendimanninum og varð þar með fyrstur Frelsishersleiðtoga til að stíga fram í sviðsljósið. Tvítugur að aldri lét Haxhiu til sín taka í óeirðum í Kosovo 1981, ári eftir -lát Títós. Baráttumálið þá var að Kosovo yrði viðurkennt sem sjálf- stætt lýðveldi innan Júgóslavíu, en þær kröfur voru barðar niður. Það er sama krafa og Kosovo- Albanir hafa uppi núna og tók Haxhiu á móti Holbrooke með þeim orðum að gesturinn kæmi sautján áram of seint. Eftir óeirðinar 1981 var talið að Haxhiu hefði lent í fangelsi um langa hríð. Þegar myndirnar af Haxhiu flugu um heiminn kom fram fólk í Svíþjóð sem hélt því fram að það bæri kennsl á hann. Því er nú haldið fram að hann hafi í raun komið til Svíþjóðar þegar 1981 og sest að í Málmey, þar sem hann var móðurmáls; kennari meðal landa sinna. I sænskum skrám kemur nafn hans hvergi fyrir, svo leitt er að því líkum að hann hafi frá upphafi notað annað nafn í samskiptum við sænsk yfirvöld til að halda því leyndu hver hann væri. Þegar flóttamannabylgja frá fyrrum Jú- góslavíu skall yfir árið 1992 streymdu margir Kosovo-Aiban- ar til Svíþjóðar. Flestir þeirra settust að í Málmey, og myndað- ist þar stærsta sænska nýlendan þeirra. Talið er að margir þeirra hafi haft samband við landa sína heima fyrir og þarna á milli vom tíðar ferðir. Leitt er að því getum að Frelsisherinn hafi að ein- hverju leyti verið skipulagður í Svíþjóð. Haxhiu flutti heim aftur 1996 og um það leyti fór að bera á vopnuðum átökum og skærum á svæðinu. Vitað er að Kosovo-Alb- anir erlendis safna fé til vopna- kaupa, sem vestrænar stjórnir reyna að hindra. Carl Bildt fyrr- um fulltrúi Evrópusambandsins í Bosníu segist hafa orðið fyrir vonbriðgum með að ESB hafi ekki tekið fastar á málum í Kosovo, því nú stefni í aðra flótta- mannabylgju. Nú óttast margir að í Kosovo stefni í jafngrimmi- legt stríð og Bosníustríðið, sem lauk með friðarsamningunum í Dayton árið 1995. Burmasljórn gefur Suu Kyi aðvörun Vöruð við að yfír- gefa heimili sitt Bangkok. Reuters. HERSTJÓRNIN í Burma varaði í gær Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjómarandstöðunnar og friðarverð- launahafa Nóbels, við að yfirgefa heimili sitt í höfuðborginni Rangoon á laugardag til að hitta stuðnings- menn sína. Þann dag verða 10 ár lið- in frá því að herinn bældi niður upp- reisn lýðræðissinna í landinu. Talsmaður stjórnarinnar sagðist telja „óráðlegt" fyrir Suu Kyi að fara á fund stuðningsmanna sinna utan höfuðborgarinnar. Hann sagði fréttamönnum að „skuggaöfl", sem ógnuðu öryggi og stöðugleika í land- inu, sætu um líf fólks eins og Suu Kyi í þeim tilgangi að skapa ringul- reið í landinu. Hún þyrfti því að óska leyfis stjórnvalda, sem myndu taka málið til athugunar. Herstjórnin hef- ur hert öryggisgæslu við heimih Suu Kyi síðastliðna viku, eftir að endi var bundinn á sex daga mótmælasetu hennar í bíl sínum. Nokkrir stuðn- ingsmenn og sendimenn erlendra ríkja hafa þó fengið að heimsækja hana. Talið er að þúsundir manna hafi látið lífið þegar herinn bældi niður uppreisn lýðræðissinna 8. ágúst 1988. Enn er ekki ljóst með hvaða hætti Lýðræðisbandalagið, flokkur Suu Kyi, mun minnast uppreisnar- innar. Fréttaskýrendur telja að landflótta stjórnarandstæðingar muni standa fyiir mótmælum er- lendis, en ólíklegt þykir að til átaka komi í Rangoon. Ofbeldisverk ógna sam- komulagi á N-Irlandi Belfasl. The Daily Telegraph. LEIÐTOGAR stjórnmálaflokka sem tengjast öfgahópum sambandssinna á N-írlandi vöruðu á þriðjudag við því að hætta væri á að samkomulag- ið, sem kennt er við föstudaginn langa, sé í voða tilkynni leiðtogar írska lýðveldishersins (IRA) ekki fljótlega „að stríðinu sé lokið“ og tryggi jafnframt að meðlimir sínir taki ekki þátt í ofbeldisverkum líkt og þeim sem framin hafa verið á síð- ustu vikum af hópum sem klofið hafa sig frá IRA. David Ervine, leiðtogi Framsækna sambandsflokksins (PUP), sem tengsl hefur við öfgahópinn UVF, sagðist telja hættu á að ef einn einasti maður tapaði lífi sínu vegna aðgerða klofningsaflanna úr IRA myndu UVF og aðrir slíkii- hópar hefja sína her- ferð á nýjan leik, en UVF hefur verið í vopnahléi síðan 1994. Jafnframt er óttast að aðgerðir klofningshópanna hafi aukið enn þrýsting á David Trimble, forsætis- ráðherra á N-írlandi og leiðtoga stærsta flokks sambandssinna, og að hann muni mæta mikilli andstöðu innan eigin flokks ef hann svo mikið sem íhugar að hleypa fulltrúum Sinn Féin, stjórnmálaarms IRA, inn í væntanlegt ráðuneyti sitt. Grísk stjórnvöld gagnrýnd GRÍSKIR slökkviliðsmenn náðu í gær tökum á skógareld- um sem brunnið hafa stjórn- laust undanfama fjóra daga í grennd við Aþenu. Stjómvöld í Grikklandi hafa verið gagnrýnd harðlega fyrir að hafa ekki gripið í taumana og komið í veg fyrir að fjöldi heimila yrði eld- inum að bráð. „Ríkisstjórnin er stórslys,“ sagði í fyrirsögn á forsíðu blaðsins Vradini í gær. Önnur blöð tóku undir gagn- rýni á stjómvöld sem voru sögð vanhæf og hafa bragðist skyld- um sínum við að bregðast við náttúruhamfórunum. Jarðskjálfti orsök hruns? TALIÐ er hugsanlegt að jarð- skjálftakippur, sem hafi verið svo vægur að hans hafi ekki orðið vart, hafi valdið hruni námuganga í Austumíki fyrir um þrem vikum. Tíu náma- menn grófust undir. Yfirmaður námaöryggisdeildar efnahags- ráðuneytisins sagði þetta vera einn þeirra möguleika sem ver- ið væri að rannsaka í leitinni að orsökum slyssins. Fjölmiðlar hafa gagnrýnt austurrísk stjói-nvöld harðlega fyrir skort á skipulagi við björgunarstörf og seinleg viðbrögð við slysinu. Sex lík fundin í Berlín SEX lík fundust í gær í rústum fjölbýlishúss sem hmndi í Berlín á þriðjudag. Björgunar- menn höfðu verið að störíúm í fyrrinótt í von um að finna ein- hvern á lífi í rústunum. Talið er að gasleki hafi valdið spreng- ingunni. Þriggja íbúa hússins, sem vom 21, er enn saknað. Rætt um A-Tímor STÓRT skref var stigið í áttina að því að lausn fyndist á deil- unni um Austur-Tímor í gær, þegar utanríkisráðherrar Indónesíu og Portúgals náðu samkomulagi í New York um að hefja viðræður um framtíð Austur-Tímor, sem byggjast myndu á tillögum sem stjórn Indónesíu hefur lagt fram um sjálfstjórnarréttindi til handa hinni fyrrverandi portúgölsku nýlendu, sem Indónesar hafa haldið hernuminni síðan 1976. Havel á batavegi VÁCLAV Havel, forseti Tékk- lands, er á batavegi eftir að hafa orðið fyrir lífshættulegum hjartsláttartruflunum á þriðju- dag, að því er læknar hans greindu frá í gær. Sögðu þeir forsetann farinn að neyta fastrar fæðu og tek- inn til við lest- ur. Hann væri enn haldinn lungnabólgu, sem greindist á þriðjudag, en hún færi minnk- andi. Meðlimir rokkhljómsveit- arinnar Rolling Stones sendu Havel blóm og óskir um bata í gær, og einnig bámst honum góðar óskir frá kvikmyndaleik- stjóranum Milos Forman og tónlistarmanninum Lou Reed. Havel
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.