Morgunblaðið - 06.08.1998, Side 76

Morgunblaðið - 06.08.1998, Side 76
Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPIN KERFIHF Tfipl hewlett mL/ÍM PACKARD MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKIAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ríkisreikningur kominn út Erlendar skuldir lækkuðu um 6,5 milljarða ERLENDAR skuldir ríkissjóðs lækkuðu á síðasta ári um 6,5 millj- arða. Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs lækkaði milli ára um 14,8 milljarða og lækkuðu heildarskuldir ríkisins um 2,8 milljarða. Lánsfjárþörf ríkissjóðs var nei- kvæð um 0,5% af vergri Iandsfram- leiðslu, en í því felst svigrúm fyrir ríkið til að greiða niður skuldir. Rík- issjóður hefur ekki skilað lánsfjáraf- gangi um mjög langt árabil. Þetta kemur fram í ríkisreikningi fyrir ár- ið 1997, sem kom út í gær. Rfldssjóður rekinn með tekjuafgangi í fyrsta sinn í 13 ár Ríkissjóður var rekinn með 0,7 milijarða afgangi á síðasta ári, sam- anborið við 8,7 milljarða halla á síð- asta ári. Afkomubatinn er því 9,4 milljarðar. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1984 sem ríkissjóður er rekinn með afgangi. Tekjur ríkis- sjóðs jukust milli ára um 5,5%, en útgjöld lækkuðu um 1,7%. Megin- skýringin á lækkun útgjalda er færsla á rekstri gnmnskólans til sveitarfélaganna. Á síðasta ári hækkuðu útgjöld til sjúkrahúsa og sjúkrastofnana aftur á móti um 2,2 milljarða. Risnukostnaður rfkisins lækkaði milli ára um 18,1 milljón og ferða- kostnaður lækkaði um 73 milljónir. Samtals nam ferða- og risnukostn- aður ríkissjóðs 1,9 milljörðum á síð- asta ári. ■ Afkoman batnaði/39 Tjörn Fjölskyldu- og húsdýragarðsins Fólk er varað við að busla berfætt SUNDMANNAKLÁÐI hefur í fyrsta sinn verið greindur hér á landi og hefur verið sett upp við- vörunarskilti við tjörnina í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum vegna þessa. Kláðann orsaka litl- ar lirfur sem koma úr sniglum í vatninu en lifa annars í fuglum. Jens Magnússon læknir á Heilsugæslustöðinni í Grafarvogi fékk til sín á einum degi í fyrra þijú börn sem öll höfðu sams kon- ar útbrot og höfðu öll verið að vaða í Ijöminni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum skömmu áður. Málið barst til Karls Skírnissonar dýrafræðings á Tilraunastöðinni á Keldum sem eftir rannsókn á vatnabobbum úr tjörninni hefur komist að því að um er að ræða svokallaðan sundmannakláða. Kláðanum valda sundlirfur Schistosoma-fuglablóðagða sem lifa í blóðrás fugla. Þegar sundlirfuraar taka upp á því að bora sig inn í gegnum húð manna, tekur ónæmiskerfí mannsins til starfa og kláðabóla myndast í kringum staðinn þar sem sundlirf- an freistaði inngöngu. ■ Mjög óþægilegur/6 Morgunblaðið/Arnaldur KALLA þurfti út mikið lið til að hreinsa upp olíu sem lak úr tanki. Sæbrautinni lokað vegna olíuleka WíSKRÁ OLIA lak úr olíutanki á bensín- stöð Shell á horai Sæbrautar og Langholtsvegar í gærkvöldi og þurfti að loka Sæbraut meðan olían var hreinsuð upp auk þess sem Langholtsvegi var lokað rétt fyrir ofan gatnamótin. Að sögn Jóns Viðars Matthías- sonar varaslökkviliðsstjóra til- kynnti vegfarandi um lekann til Slökkviliðs Reykjavíkur rúmlega átta í gærkvöldi. Vegna rigningar dreifðist olían mikið og skapaði slæm bremsuskilyrði þannig að lá við árekstrum áður en svæðinu var lokað. Auk slökkviliðsins unnu bfl- ar frá Shell og Hreinsitækni við að hreinsa olíuna upp og fenghm var búnaður frá Reykjavíkurhöfn til að háþrýstiþvo svæðið, sem að sögn Jóns Viðars hreinsar malbikið bet- ur og dýpra en annar búnaður. Jón Viðar segir að rétt áður en slökkviliði hafí verið gert viðvart hafi verið fyllt á oli'utankinn og líklega hafi verið fyllt of mikið á hann en olían hafi Iekið úr yfir- fallsröri á tanknum. -------------------- Morgunblaðið/Ami Sæberg ÞORBJÖRG Kristjánsdóttir, líffræðingur í Fjölskyldugarðinum, setur upp aðvöranarskilti við vaðtjörnina. Stóraukin sala * Ríki ESB hafa náð samkomulagi um samningsumboð vegna Schengen-viðræðna Núverandi samstarf að mestu óbreytt verði SAMKOMULAG hefur náðst milli Frakklands og annarra aðildarríkja Evrópusambandsins um umboð til .ar viðræðna við Island og Noreg um aðlögun ríkjanna að breyttu Schengen-vegabréfasamstarfi. Nið- urstaðan felur í grófum dráttum í sér að stefnt er að því að viðhalda að mestu leyti því samstarfi við Is- land og Noreg, sem kveðið er á um í núgildandi samstarfssamningum frá 1996. Þróist vegabréfasamstarf- ið hins vegar áfram verði að taka sérstaka ákvörðun um aðild ríkj- anna tveggja að nýjum þáttum þess. Samkomulag náðist í Brussel Samkomulag um samningsum- boðið náðist á fundi nefndar fasta- fulltrúa aðildarríkja ESB í Brussel, COREPER. Það hefur ekki hlotið formlegt samþykki aðildarríkjanna, þar sem engir ráðheiTaráðsfundir eru haldnir í sumarleyfi stofnana ESB. Samningsumboðið fer því til jg» skriflegrar samþykktar hjá ríkis- stjórnum aðildarríkjanna. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru íslenzk og norsk stjórnvöld sæmilega sátt við samn- ingsumboðið. Það er mun ná- kvæmara og þrengra en upphaflega var áformað og gefur því samninga- mönnum ESB minna svigrúm. Heimildarmenn Morgunblaðsins segja þetta bæði kost og galla. Til dæmis sé nú kveðið skýrar á um að nýir samningar skuli byggjast á samstarfssamningunum frá 1996, en Island og Noregur vilja breyta sem fæstu frá þeim samningum. Aftur á móti sé nú þegar byrjuð sú viðleitni að skilgreina nákvæmlega að hvaða þáttum samstarfsins Is- land og Noregur geti átt aðild og hverjum ekki. Samstarfsráð og „hattaskipti“ Búizt er við að í þeim þáttum vegabréfasamstarfsins, sem Island og Noregur munu eiga aðild að, verði aðgangur ríkjanna að ákvarðanatöku svipaður og sam- kvæmt núverandi samstarfssamn- ingi. Þau muni m.ö.o. eiga seturétt á fundum allra nefnda og ráða, þar á meðal á fundum ráðherraráðs ESB þegar það fjallar um málefni vegabréfasamstarfsins. Ráðherrar Islands og Noregs munu þó form- lega ekki sitja á sjálfum ráðherra- ráðsfundinum, heldur munu ráð- herrar ESB „skipta um hatta“ þegar Island og Noregur taka sæti á fundum og fundirnir breytast í fundi samstarfsráðs um Schengen- málefni. Ekki er frá því gengið hvort ís- land og Noregur fá rétt til þátttöku í fundum hinnar valdamiklu nefnd- ar, COREPER. Fái ríkin tvö rétt til að sitja fundina á meðan Schengen-málefni eru rædd, þykir a.m.k. fullvíst að þeir verði ekki kallaðir COREPER-fundir, heldur rætt um einhvers konar samstarfs- ráð. Frakkland, og raunar fleiri ríki ESB, leggja mikla áherzlu á að skapa ekki varasamt fordæmi með því að leyfa ríkjum utan Evrópu- sambandsins að sitja fundi í svo mikilvægum stofnunum sambands- ins. íslenzk og norsk stjórnvöld telja að samningsumboðið geti orðið grundvöllur viðunandi samninga við ESB. Samningaviðræður munu að öllum líkindum hefjast í septem- ber og stefnt er að því að Ijúka þeim á árinu. Nýr samstarfssamn- ingur getur þó ekki hlotið formlegt samþykki ríkja ESB fyrr en Amst- erdam-sáttmálinn, sem kveður á um innlimun Schengen-samnings- ins í stofnsáttmála ESB, hefur gengið í gildi. Búist við að gildistaka verði eftir aldamót Vegna nauðsynlegrar undirbún- ingsvinnu, t.d. uppsetningar tölvu- kerfa, er ekki búizt við að samning- urinn taki formlega gildi gagnvart íslandi og Noregi fyrr en um eða eftir aldamót. Þá verður aflagt vegabréfaeftirlit á landamærum með fólki, sem ferðast til eða frá öðrum ríkjum Schengen-samstarfs- ins en um leið hert eftirlit með fólki, sem kemur frá ríkjum utan Schengen-svæðisins. á kjúkling’um SALA á kjúklingabringum slær öll sölumet í sumar, en sala á ferskum kjúklingum hófst fyrir þremur ár- um. Síðan þá hefur söluaukningin verið stöðug, en verð á kjúklingi hefur haldist óbreytt frá árinu 1989. Bjarni Ásgeir Jónsson, eigandi Reykjagarðs og formaður Félags kjúklingabænda, segir að ferskur kjúklingur komi sem hrein sölu- aukning inn á markaðinn þar sem enginn samdráttur hafi orðið í sölu frysts kjúklings. Bjarni segir að kjúklingabændur séu nú að ná fram betri nýtingu á útungun, framleiðslu og slátrun en áður, sem auk þess hafi þau áhrif að ekki hafi komið til verðhækkana. Kjúklingabringur innihalda auk þess einungis tæplega 1% af fitu. Mest hefur söluaukningin orðið 400% á kjúklingum milli júlí í ár og júlí í fyrra. Var það í Nóatúni. ■ Sala á/20 ------+++----- Hlekktist á í lendingu við Mývatn LÍTILLI einkaflugvél hlekktist á í lendingu á flugyellinum í Reykjahlíð við Mývatn. I vélinni voru tveir þýskir flugmenn, en þá sakaði ekki. Atvikið átti sér stað í gærkvöld um kl. 19.30. Að sögn lögreglu sprakk eitt dekk vélarinnar og flugmenn- irnir misstu hana út í kant. Engar skemmdir urðu á vélinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.