Morgunblaðið - 06.08.1998, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 33
LISTIR
ERLEM)AR BÆKUR
Spennusaga
Janet Evanocivh: „Three to Get Deadly“.
St. Martins Paperbacks. 321 síða.
ELMORE Leonard og Carl Hiaasen
hafa engan einkarétt á gamansömum
spennusögum með skrautlegum persónum
og spaugilegum samræðum. Nýjasta saka-
málasaga Janet Evanovich jafnast á við það
besta sem þeir hafa samið. Hún hefur skrif-
að fjórar bækur og þær fjalla allar um
mannaveiðarann Stephanie Plum sem alin
er upp í Trenton í New Jersey og þekkir
þar alla mæta vel, hyskið jafnt sem góð-
borgarana (ef sh'kir finnast þar). Nýjasta
sagan heitir „Four to Score“ og kom fyrir
skemmstu út í Bandaríkjunum en sú sem
ég las um daginn var gefin út í vasabroti í
júlí síðastliðnum og heitir „Three to Get
Deadly“. Það var unaðslegur skemmtilest-
ur. Evanovich gefur þeim Leonard og Hi-
aasen ekkert eftir þegar kemur að því að
plotta með furðulegar kringumstæður og
ennþá furðulegii persónur glæpaveraldar-
innar.
Oðlingurinn Mo
Svo virðist sem Janet Evanovich nefni
bækurnar sínar eftir texta í þekktu
rokklagi sem hún gerir smávægilegar
breytingar á. Sú fyrsta hét „One For the
Money“ og sú næsta „Two for the Dough“.
„Three to Get Deadly“ segir af
því þegar einhver elskulegasti
sjoppueigandi veraldarsög-
unnar hverfur daginn sem
hann á að mæta fyrir dómi
sakaður um að bera á sér ólög-
legt vopn, þ.e. skammbyssu.
Hann fékk lausn gegn trygg-
ingu, sem hann útvegaði sér
hjá þar til gerðu tryggingafé-
lagi í hverfinu, og stakk af.
Mannaveiðarinn Stephanie Pl-
um (svo sem alkunna er úr
bandarískum hasarmyndum
sjá amerískir mannaveiðarar
um að þeir sem fengið hafa
lausn gegn tryggingu mæti ör-
ugglega fyrir rétti svo trygg-
ingaféð endurheimtist) er sett
í máhð nokkuð gegn vilja sínum því sjoppu-
eigandinn, kallaður Mo, er hinn mesti
öðlingur og þeh- eru fáir sem vilja hjálpa
henni að góma hann. Af og til
sést til kallsins í Trenton en
hann rennur alltaf úr greipum
Stephanie og eftir því sem líð-
ur á rannsóknina kemst hún að
hinum furðulegustu hlutum
varðandi Mo, er vai'pað gætu
skugga á gljáandi ímynd hans
sem valmennis Trentons núm-
er eitt. Sumt er hreint og beint
hryllilegt eins og þessir fjórir
dópsalar í hverfinu sem finnast
grafnir undir gólfinu í sjoppu
hans.
Hversdagshetja
íbófahasar
Janet Evanovich er einkar
lagið að gera hið daglega líf að-
alsöguhetju sinnar gi-átbroslegt og jafnvel
hlægilegt. Trenton er samkvæmt lýsingum
hennar borgarhluti sem má sá muna sinn
fífil fegri og það sama má eiginlega segja
um Stephanie Plum. Hún er nánast algjör
viðvaningur sem mannaveiðari, ekur um á
Nissan-jeppa sem er sífellt að bila (annað
en Buickinn hennar gamli), hefur ekki hug-
mynd um hvernig hún á að fara að því ef
þeir sem hún ætlar að færa á lögreglustöð-
ina ei-u með uppsteyt, ég tala ekki um ef
þeir skjóta á hana úr haglabyssum, er fíkill
í skyndimat og þyngdin sýnir það, á hæfi-
lega bilaða fjölskyldu sem hún borðar
stundum hjá og skilur ekki af hverju Mor-
elli, gamall skólabróðir sem vinnur hjá
morðdeildinni, reynir ekki við hana af meiri
einurð.
Stephanie er sumsé eins og fólk er flest,
hversdagshetja að fást við allt það amstur
sem hversdagslífið plagar mann með, en að
auki eltist hún við óþokka því í sannleika
sagt er hún meira hörkutól en hún lætur
uppi. Hún er þó ekki eins og kollegi hennar,
kallaður Ranger, goðsagnaleg vera í henn-
ar augum sem er eins konar sambland af
Rambó og Batman. En hún er klárari en
vinkona hennar, Lúlú, uppgjafamella sem
langar að læra mannaveiðarafagið.
Allar spretta þessar persónur og miklu
fleiri ljóslifandi fram á síðum „Three to Get
Deadly“ og gera söguna að hinni bestu
skemmtilesningu auk þess sem spumingin
um mannorð Mos verður æ áleitnari og
meira spennandi eftir því sem á söguna líð-
ur.
Arnaldur Indriðason
Sj oppueigandinn
elskulegi og
mannaveiðari hans
Janet
Evanocivh
Hádegistónleikar í
Hallgrímskirkju
Á fimmtudagstónleikunum í Hall-
grímskirkju leikur Friðrik Vign-
ir Stefánsson, organisti í Grund-
arfirði á orgelið í hádeginu og
heQast tónleikarnir kl. 12.
Á efnisskrá hans er fyrst hin
þekkta Prelúdía í D-dúr eftir
Buxtehude. Þá leikur hann 6
sálmaforleiki úr Litlu orgelbók-
inni, m.a. „Jesú, heill míns
hjarta“, „í dauðans böndum
Drottinn á“, „Kom, Guð, skapari,
helgur andi“ og „Hver sem ljúfan
Guð lætur ráða“. Að lokum leik-
ur hann „Tokkötu" í G-dúr eftir
Dubois og „Sortie“ í Es-dúr eftir
Lefébure-Wély.
Friðrik lauk burtfararprófi frá
Tónskóla Þjóðkirkjunnar vorið
1988 og hefur síðan verið org-
anisti og kórstjóri Setbergs-
prestakalls í Grundarfirði og
skólastjóri tónlistarskólans þar.
Laugardaginn 8. ágúst kl. 12
leikur Englendingurinn David M.
Patrick sem er organisti við
Fauske kirkju í Norður-Noregi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
FRIÐRIK Vignir Stefánsson
hélt nýlega tónleika í Stykkis-
hólmskirkju.
Á efnisskrá hans verða sýnishorn
af þeim verkum sem hann mun
síðan leika á aðaltónleikum helg-
arinnar í Hallgrímskirkju sunnu-
daginn 9. ágúst kl. 20.30.
ANITA Hedin, textfllistamaður frá Sviþjóð, sýnir ásaumaðar myndir í
galleríi Handverks & hönnunar.
s
Asaumaðar myndir í galleríi
Handverks & hönnunar
ANITA Hedin, textíllistamaður
frá Kalmar í Svíþjóð opnar sýn-
ingu á ásaumuðum (applikeruð-
um) myndum í galleru Handverks
& hönnunar að Amtmannsstíg 1,
föstudaginn 7. ágúst kl. 16.
Anita notar efni og þráð í
myndverk sín og sækir hugmynd-
ir sínar mikið í náttúruna.
„Hún litar sjálf efnin og nær
vel að nálgast allan litaskalann.
Segja má að hún máli með nálinni
því myndirnar líkjast málverkum
úr fjarlægð," segir í kynningu.
Anita hefur hlotið menningar-
verðlaunin í Kalmar og haldið
margar sýningar í Svíþjóð. Verk
hennar eru í eigu margra opin-
berra aðila í Svíþjóð.
Sýningin stendur til 22. ágúst
og er opin alla virka daga nema
mánudaga frá kl. 11-17 og laug-
ardaga frá kl. 12-16. Aðgangur
er ókeypis.
Sumar
útsölunni
á garðhúsgögnum
og grillum
lýkur um helgina!
Smáratorgi 1
200 Kópavogi
510 7000
Skeifunni 13
108 Reykjavík
568 7499
Norðurtanga 3
600 Akureyri
462 6662
Reykjavíkurvegi 72 Holtagörðum
220 Hafnarfjörður v/Holtaveg
565 5560 104 Reykjavík
588 7499