Morgunblaðið - 06.08.1998, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ______________
AÐSENDAR GREINAR
Stórt skref til að
tryggja alþjóðleg
mannréttindi
RÍKI heims gei'ðu
nýlega með sér samn-
ing um að setja á stofn
alþjóðlegan glæpa-
dómstól. Honum er
ætlað að draga fyrir
rétt þá sem grunaðir
eru um alvarlegustu
glæpi gegn mannkyn-
inu, þ.e. þjóðarmorð,
stríðsglæpi og stór-
felld brot á alþjóðleg-
um mannréttindasátt-
málum. Allt frá lokrnn
seinni heimsstyrjald-
arinnar hefur verið
unnið að því að stofna
slíkan dómstól en á
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
Róm, sem lauk 17. júlí sl., tókst
loks að gera hálfrar aldar draum
að veruleika.
Stofnun alþjóðlega glæpadóm-
stólsins er mikið fagnaðarefni þeim
sem vinna að mannréttinda- og
mannúðarmálum. Hingað til hefur
ekki verið starfandi dómstóll sem
dæmir einstaklinga fyrir brot á al-
þjóðlegum mannréttindasáttmál-
um enda þótt nokkrum sinnum hafi
verið settir á fót sérstakir dómstól-
ar til að dæma fyrir stríðsglæpi í
einstökum löndum.
Refsa verður fyrir glæpina
Tuttugasta öldin er vafalaust
blóðugasta öld mannkynssögunn-
ar. Aldrei fyrr hafa jafn margir
týnt lífi í styrjöldum og verið fram-
in jafn ægileg grimmdarverk gegn
eins mörgum og einmitt á þeirri
öld sem nú er að líða.
Þeir sem gerst hafa sekir um
stríðsglæpi og önnur stóríelld
Stofnun alþjóðlega
glæpadómstólsins er
mikið fagnaðarefni
þeim, segir Sigrún
—
Arnadóttir, sem vinna
að mannréttinda- og
mannúðarmálum.
mannréttindabrot hafa þó sjaldn-
ast þurft að svara til saka fyrir
gjörðir sínar. Samkvæmt alþjóða-
lögum hefur hvert og eitt ríki
heims borið ábyrgð á því að hinir
seku væru dregnir til ábyi’gðar. A
því hefur verið mikill misbrestur
því ríkisstjórnir hafa látið hjá líða
að sækja brotamennina til saka,
náðað þá eða gefíð þeim gi-ið. Nýi
alþjóðadómstóllinn mun hins vegar
hafa vald til að sækja brotamenn til
saka án þess að leita fyrst eftir
samþykki viðkomandi ríkisstjóm-
ar, þ.e. að því tilskildu að hún eigi
aðild að dómstólnum.
Reynslan sýnir að stríðsglæpir
og brot á mannréttindum aukast
stig af stigi þegar hinir seku geta
verið þess fullvissir að þeim verði
ekki refsað fyrir glæpi sína. Rauða
kross hreyfingin hefur því um
langt skeið verið málsvari þess að
stofnaður sé alþjóðlegur glæpa-
dómstóll enda er það eitt megin-
hlutverk Rauða la’ossins að að-
stoða fórnarlömb styrjalda. Fjöl-
mörg önnur frjáls félagasamtök
hafa unnið að því að dómstóllinn
yrði að veruleika og er óhætt að
segja að alþjóðasamþykktin um
hann sé stór sigur íyrir starf
þeirra.
Betur má ef duga skal
Um leið og mannúðar- og mann-
réttindasamtök fagna þeim merka
áfanga sem náðist í Róm er ástæða
til að minna á að ríki heims stigu
ekki skrefíð til fulls í þeirri sam-
þykkt sem þar var
gerð. Enn á eftir að
gera samþykktir dóm-
stólsins þannig úr
garði að þær taki til
þeirra margvíslegu
óhæfuverka sem
heimurinn hefur orðið
vitni að á þessari öld.
Rauði krossinn hef-
ur m.a. bent á að sam-
þykktir dómsins ná
ekki nægilega yfír þá
glæpi sem framdir eru
í innanlandsstyrjöld-
um en um þessar
mundir era flest
stríðsátök milli ein-
stakra hópa innan sama lands en
ekki á milli eins eða fleiri í-fkja. A
undanförnum árum hafa verstu
ódæðisverkin einmitt verið framin í
innanlandsófriði og borgarastyrj-
öldum. í samþykktunum er ekki
gert ráð fyrir að hægt sé að láta þá
svara til saka sem komið hafa af
stað hungursneyð í innanlands-
ófriði, ráðist á óbreytta borgara
eða notað vopn sem hafa verið
bönnuð með alþjóðalögum. Jafn-
framt era undanþáguákvæði sem
heimila ríkjum að koma í veg fyrir
að þegnar þeirra verði sóttir til
saka fyrir stríðsglæpi í sjö ár eftir
að þau hafa gerst aðilar að dóm-
stólnum.
Til framdráttar mann-
réttindum og friði
Þrátt fyrir þessa annmarka er
samþykktin um alþjóðlegan glæpa-
dómstól eitt mikilvægasta skrefið
sem stigið hefur verið til að tryggja
mannréttindi og frið á þessari öld.
Það er lofsvert að íslensk stjórn-
völd hafa verið í fararbroddi þeirra
ríkja sem vildu gera hinn nýja
dómstól eins sjálfstæðan og öflug-
an og unnt er. Með þessu hafa
stjórnvöld hérlendis sýnt að þau
láta ekki sitt eftir liggja við að
vinna brýnum mannúðar- og
mannréttindamálum brautargengi.
Alþingi á þó enn eftir að fullgilda
sáttmálann fyrir Islands hönd og
vil ég hér með hvetja til þess að
það verði gert sem fyrst.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Rauða kross íslands.
AFI/AMMA
allt fyrir minnsta barnabarnið
ÞUMALINAs. 551 2136
íslensk framleiðsla
síðan 1972
EÐAL-
PÚSSNING
MARGIR LITIR
■■
■I steinprýði
STANGARHYL 7, SÍMI 567 2777
Sigrún
Árnadóttir
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 47
4