Morgunblaðið - 06.08.1998, Page 63

Morgunblaðið - 06.08.1998, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 63 Bókað í borgarráði Fjallað um skipan borgarfulltrúa ALFREÐ Þorsteinsson, borgarfull- spurn hennar í upphafi fundar til trúi Reykjavíkurlista, telur að Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti minni- hluta sjálfstæðismanna, sé með um- fjöllun um skipan mála meðal aðal- og varamanna Reykjavíkurlista að draga athygli frá þeirri staðreynd að hún sé oddviti minnihluta þrátt fyrir að henni hafi verið hafnað í prófkjöri innan flokksins. í bókun Alfreðs í borgarráði segir enn fremur að samkvæmt eðlilegum leikreglum hefði- Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson sem varð í 2. sæti í próf- kjörinu átt að taka við fyrsta sæti. Sú niðurstaða að Inga Jóna skuli hafa verið skipuð oddviti sé í hróp- legu ósamræmi við vilja flokks- manna í Sjálfstæðisflokki. Staðgengill borgarstjóra I fyrri bókun Ingu Jónu segir að persónulegar ávirðingar Alfreðs séu ekki svara verðar en rétt sé að fram komi vegna orðalags í bókun- inni, þar sem segir „nú síðast í dag“ að þar muni vera átt við fyrir- Heimsmet til styrktar börnum með krabbamein STEFNT er að því að setja heims- met á salatbarnum Hjá Eika í Póst- hússtræti 13 föstudaginn 7. ágúst. Ætlunin er að framreiða stærsta salatrétt sem matreiddur hefur ver- ið hér á jörð. Seldir verða 200 g skammtar úr réttinum ásamt Egils Kristal og brauðhleif - hollustan í fyrirrúmi - og mun allt fé sem þannig safnast renna óskert til barna með krabba- mein. Búnaðarbanki íslands hf. verður fjárgæsluaðili átaksins og mun fulltrúi hans hafa yfirumsjón með innheimtu fjárins. Salatrétturinn verður tilbúinn og til sýnis á gangstéttinni fyrir fram- an salatbarinn Hjá Eika kl. 11.30 en sala hefst kl. 12.00. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra mun kaupa fyrsta skammtinn og að auki hjálpa til við söluna. Margir góðir gestir auk Ingibjargar hafa boðað komu sína, segir í fréttatilkynningu. Eftirtaldir aðilar, auk Búnaðar- banka íslands hf., styrkja ofan- greint átak: Islenskir garðyrkju- bændur gefa allt salat í réttinn, heildverslun Karls K. Karlssonar gefur salatsósur, Bergplast smíðaði skálina og Blikksmiðjan Alur undir- stöðu hennar - báðir aðilar án end- Sigrúnar Magnúsdóttur formanns borgarráðs, sem stjórnaði fundi, um hvort hún gegndi störfum borg- arstjóra í fjarveru borgarstjóra. Þeirri fyrirspurn hafi verið svarað neitandi. I síðari bókun Alfreðs er bent á að í upphafi fundar hafi Inga Jóna gert fyrirspurn utan dagskrár um hvort formaður borgaiTáðs gegndi starfi borgarstjóra. Sú fyrirspum væri sömu ættar og aðrar upphróp- anir sama borgarfulltrúa um stöðu aðal- og varaborgarfulltrúa R-list- ans. Tekið er fram að Sigrún Magn- úsdóttir er formaður borgarráðs og stýrir fundi í fjarveru borgarstjóra. í síðari bókun Ingu Jónu segir að tillaga borgarráðsfulltrúa Reykja- víkurlista sem samþykkt var með atkvæðum meirihlutans hafi verið svo hljóðandi: „Borgarráð sam- þykkir að fela borgarstjóra fundar- stjórn á fundum borgarráðs." Sam- þykktin feli augljóslega í sér að þar sé átt við embætti borgarstjóra og segi ekkert um varafundarstjóra. urgjalds, ölgerðin Egill Skalla- grímsson hf. gefur drykkinn Egils Kristal, Bikarbox hf. gefur ílát und- ir réttina sem seldir verða, Ekran hf. gefur allt pasta í salatréttinn og Ferskir kjúklingai' ehf. gefa kjötið. TAL opnar í Kringlunni TAL opnaði laugardaginn 25. júlí sl. GSM-verslun í Ki-inglunni. Verslun- in, sem er á 1. hæð við hliðina á Byggt og búið, er önnur verslun TALs en í maí sl. opnaði fyrirtækið verslun og þjónustumiðstöð í Síðu- múla 28. Verslun TALs í Ki-inglunni býður upp á mikið úiTal af GSM-farsímum ásamt fylgihlutum. Öll þekktustu vörumerki í GSM-símum hér á landi er á boðstólum. Einnig er þar seld öll þjónusta TALs, hægt að velja góð símanúmer jafnframt því sem starfsfólk fyrirtækisins leiðbeinir viðskiptavinum um notkun GSM- síma og veitir ráðgjöf varðandi val á GSM-símum og þjónustuleiðum TALs. Sérstök áhersla er lögð á að leiðbeina þeim sem litla eða enga kunnáttu hafa á GSM-tækninni en vilja kynna sér þessa nýju fjar- skiptatækni. I tilefni opnunarinnar er boðið upp á sérstakt tilboð á nýjum og fullkomnum GSM-farsímum frá Motorola Slim Lite ásamt hleðslu- tæki, leðurtösku og TALsímakorti fyrir 14.900 kr. A |/i|rrio anhalH ^ ^ Q\Jt mIUÍ Ævintýra- land í Hrútafirði GOÐ aðsókn hefur verið að sum- arbúðunum Ævintýralandi í Hrútafirði í sumar. Krakkar á aldrinum 6-11 ára hafa fengið að spreyta sig í Ieiklist, grímugerð, tónlist, íþróttum og hesta- mennsku. Leikarar, myndlistar- fólk og tónlistarfólk hafa lagt sitt af mörkum til að gera sumarbúð- irnar sem skemmtilegastar, segir í fréttatilkynningu. Framundan eru námskeið í kvikmyndagerð og tónlist. í lok ágúst verður haldið námskeið fyr- ir unglinga á aldrinum 12-14 ára. Afmælishátíð Holta- garða hefst í dag IKEA, Bónus og Rúmfatalagerinn halda upp á 4 ára afmæli í dag, fimmtudag, og fram yfir helgi. Fyrirtækin í Holtagörðum, IKEA, Bónus og Rúmfatalagerinn, halda í dag og fram yfir helgi upp á þriggja ára veru sína í Holtagörð- um með pomp og prakt. Mikið verður í boði fyrir alla fjölskylduna og margt verður til skemmtunar. Ásamt fjölmögum skemmtiatriðum og uppákomum verða verslanirnar í Holtagörðum fullar af nýjum vör- um á sérstöku afmælistilboði. Mikið verður af uppákomum og skemmtunum íýrir fjölskyldufólkið. Sem dæmi má nefna verða leiktæki fýrir börnin, hoppkastali, trampólín o.fl. Afmæliskaka verður borin fram um hádegi. Fallhlífastökkvarar munu koma niður af himnum ofan kl. 17.00, ef veður leyfir. Hrói höttur og félagar munu koma í heimsókn kl. 17.00 í dag, fimmtudag, og á laugardaginn. Einnig verður Göönk, lukkudýr IKEA, á staðnum sem mun ærslast í krökkunum. Lukkulykill veitir aðgang að vinningi Með Morgunblaðinu í dag fylgir Lukkulykill IKEA, sem getur veitt viðskiptavinum aðgang að glæsileg- um vinningi. Þeir geta komið með lykilinn í IKEA-verslunina 6.-16. ágúst og prófað hvort hann er sá rétti. I boði eru 100 vinningar, sófi, fataskápur, borðstofuborð, rúm, tölvuborð, matar- og kaffistell, sængurver, borðklukka, borðlamp- ar og rammar. Opnunartímar Holtagarða verða lengri en venjulega fyrstu afmælis- dagana, en opið verður frá kl. 10-22 á fimmtudaginn, 10-19.30 á föstu- daginn, 10-17 á laugardaginn og 12- 17 á sunnudaginn. Bónus verður opnað kl. 12.00 á virkum dögum. Námstefna um breytinga- skeið kvenna KONUM gefst tækifæri til að taka þátt í námstefnu um breytinga- skeið kvenna. Námstefnan er á vegum Sálfræðistöðvarinnar sem mörg undanfarin ár hefur staðið fyrir fræðslu um þetta efni. Nám- stefnan fer fram mánudaginn 10. ágúst kl. 20 í fyrirlestrasal Nor- ræna hússins. Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal, sem eru sérfræð- ingar í klínískri sálfræði, hafa um áratuga skeið veitt konum sálfræði- meðferð og haldið ýmiss konar námskeið. Á námstefnunni fjalla þær um persónulega stöðu kvenna á þessu lífsskeiði og áhrif á sálræna líðan, segir í fréttatilkynningu. Anna Inger Eydal, íslenskur sér- fræðingur í kvensjúkdómum, kem- ur af þessu tilefni til landsins. Anna rekur einkastofnun í Lundi í Sví- þjóð, en hún hefur langa reynslu af meðferð og fræðslu iýrir konur miðjum aldri. Skráning og nánari upplýsingar eni í Sálfræðistöðinni milli kl. 11-12 frá 5. ágúst. Síóast var uppselt - Takmarkaóur fjöldi Pallar Vaxtamótun 20/20/20 Stöðvaþjálfun Pallahringir Tækjasalur Teygjur Fræósla Fitumæling Markmióssetning Útitímar BodyPump Leióbeinandi: Védís Grönvold, íþróttakennari Aukaktloin i fjúka af í Skranmg i sima: 5613535 LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ FROSTASKJOLI 6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.