Morgunblaðið - 06.08.1998, Qupperneq 64
64 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
BRUÐHJÓNIN Edda Lind Ágústsdóttir og Bjarni Sigurður Ásgeirs-
son með dóttur sína, Rannveigu Báru.
Brúðkaup og skírn í
Fitjakirkju í Skorradal
Grund. Morgunblaðið.
NYLEGA voru gefin saman í
hjónaband í Fitjakirkju í Skorra-
dal Edda Lind Ágústsdóttir og
Bjarni Sigurður Ásgeirsson í
Hvammi í Skorradal. Jafnframt
var lítil dóttir þeirra skírð og
hlaut hún nafnið Rannveig Bára.
Sr. Sigríður Guðmunsdóttir
framkvæmdi athöfnina.
Jörðin Hvammur í Skorradal
tilheyrir Fitjasókn og voru þetta
því öll sóknarbörn hinnar fá-
mennu Filjasóknar sem hin ald-
argamla Fitjakirkja þjónar.
Rannveig Bára er yngsti íbúi
Skorradalshrepps og var annað
bamið sem fæðst hefur í sveit-
inni á árinu. r
Fjölmenni var í brúðkaupinu
en aðstaða á Fitjum til slíkra at-
hafna er hin ákjósanlegasta.
Það færist mjög í vöxt að
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Torfi Ásgeirsson efstur í síðustu
vikukeppni sumarbrids
Elleftu spilavikunni lauk sunnu-
dagskvöldið 2. ágúst. 26 pör spiluðu
Mitchell og urðu þessi pör efst
(meðalskor var 216):
NS
Gylfi Baldursson - Ásmundur Pálsson 272
Birna Stefnisd. - Aðalsteinn Steinþórsson 250
Erlendur Jónsson - Sigtryggur Sigurðsson 245
Guðrún Jóhannesd. - Bryndís Þorsteinsd. 232
AV
Jón Hjaltason - Steinberg Eíkarðsson 259
UnaAmadóttir-KristjánJónasson 249
Guðlaugur Sveinsson - Magnús Sverrisson 248
Rafn Thorarensen - Hafþór Kristjánsson 247
Eftir sunnudagstvímenninginn
var spiluð útsláttarsveitakeppni því
að fíestir áttu frí frá vinnu daginn
eftir. Ellefu sveitir voru skráðar til
keppni. Eftir 4 umferðir spiluðu til
úrslita sveitir Baldurs Bjartmars-
sonar (Páll Þór Bergsson, Ragnar
Hermannsson, Ásmundur Pálsson
og Gylfi Baldursson, auk Baldurs)
kirkjulegar athafnir séu fram-
kvæmdar í hinni vinalegu aldar-
gömlu kirkju en þetta var annað
brúðkaupið og þann 26. júlí fór
þriðja skírnin fram í kirkjunni á
þessu sumri. Þá létu hjónin Birgir
Hauksson, skógarvörður á
Hreðavatni, og kona hans, Gróa
Erla Ragnarsdóttir, skira son
sinn sem hlaut nafn afa síns,
Haukur. Haukur Kristjánsson,
læknir frá Hreðavatni, hélt nafna
sínum undir skírn en sr. Brynjólf-
ur Gíslason í Stafholti skírði.
Til gamans má geta þess að
faðir brúarinnar, Eddu Lindar,
er Ágúst Árnason, skógarvörð-
ur í Hvammi. Fitjar er orðið
skógræktarbýli og er því vel við
hæfi að skógræktarmenn noti
þá aðstöðu sem til staðar er á
Fitjum.
og sveit Unu Árnadóttur (Kristján
Jónasson, Albert Þorsteinsson og
Auðunn R. Guðmundsson, auk
Unu). Sveit Baldurs hafði betur og
sigraði þar með keppnina.
Torfi Ásgeirsson vann viku-
keppnina að þessu sinni. Annars
varð vikustaða efstu manna svona:
Torfi Ásgeirsson 90
Eggert Bergsson 80
Steinberg Rikarðsson 72
Gylfi Baldursson 65
Ragnheiður Nielsen 62
Halldóra Magnúsdóttir 60
Eysteinn Einarsson 54
Lárus Hermannsson 54
Torfi hlýtur í vikuverðlaun
þriggja rétta kvöldverð fyrir tvo á
LA Café.
Gylfi Baldursson er áfram efstur
í heildina og er hann heldur að auka
forskot sitt á toppnum. Jón Steinar
Ingólfsson fylgir honum þó ennþá,
en ólíklegt er að aðrir blandi sér í
baráttuna um efsta sætið á stigalist-
anum. Heildarstaða efstu spilara er
svona:
Gylfi Baldursson 389
Jón Steinar Ingólfsson 347
Vilhjálmur Sigurðsson jr. 283
Bestu þakkir sendi ég öllum sem heiðruðu mig
á áttrœðisœfmœli mínu 31. júlí sl.
Lifið heil!
Magnús Guðbjörnsson.
Léttir
meöfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyrirliggjandi.
Góö varahlutaþjónusta.
undan timanum
i 100 ár.
fyrir
steinsteypu.
Ármúla 29. sími 553 8640
FYRIRLIGGJINDI: GÚLFSLfPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPOR - DJELUR
STEYPUSIGIR - HRJERIVÉLIR - SIGIR8LÖÐ - Viilui Iramleiísla.
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þulan Himna-
ríkishurð
ÞORGERÐUR hafði sam-
band við Velvakanda og er
hún að leita eftir hvort ein-
hver kunni þessa þulu. Var
þulan kölluð Himnaríkis-
þula:
Himnaríkishuró var knúð
um háttatíma
allir góðir englar hrutu
yndislegra drauma nutu.
Þeir sem kannast við
þessa þulu eru beðnir að
hafa samband við Þorgerði
í síma 464 4234.
Keðjubréf
MOSFELLINGUR hafði
samband við Velvakanda
og sagðist hann hafa fengið
svokallað „keðjubréf* í
pósti til sín. Segir hann að
sér þyki þetta mjög ógeð-
felld bréf. í bréfinu er sagt
að þetta sé „gæfubréf* og
Mosfellingur beðinn að
senda þetta bréf til 20 aðila
innan 96 tíma. Geri hann
það ekki megi hann búast
við að ienda í alis konar
ógæfu og eru nefnd nokkur
dæmi um þá ógæfu sem
fólk hafi orðið fyrir sem
fari ekki eftir þessum fyr-
irmælum. MosfeHingur
spyr hvers konar gæfúbréf
þetta séu sem boði ekkert
nema ógæfu sé ekki farið
að fyrirmælum þess. Telur
Mosfellingur ábyrgðar-
hluta að vera að senda fólki
svona bréf, margir séu hjá-
trúarfullir og taki þetta al-
varlega. Skorar Mosfeli-
ingur á alla sem fá svona
bréf að iáta þau beint í
ruslið, þetta sé ekkert ann-
að en ruslpóstur sem ekki
eigi að taka mark á. Svona
sendingar eigi að stoppa af.
Sóðalegur frétta-
flutningur
ÉG VIL kvarta yfir sóða-
legum fréttaflutningi á
Rás 2 í útvarpinu. I hádeg-
isíréttum nýlega var verið
að segja frá að í Alsír
hefðu 40 manns verið
skornir á háls. Þarna er
verið að tala um lifandi
fólk og hryllilegt hvernig
sagt var frá þessu. Þessu
er varpað yfir fólk þegar
það situr til borðs með
börnum. Það hlýtur að
vera hægt að segja frá
þessu á smekklegri hátt.
Hlustandi.
Spilakvöld öllum
til ánægju
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi:
„Það er alltaf verið að aug-
lýsa spilakvöld hjá eldri
borgurum og í þeim aug-
lýsingum eru allir boðnir
velkomnir. En það eru
ekki allir velkomnir á þessi
spHakvöid. Margir eldri
borgarar vilja sækja þessi
spHakvöld vegna féiags-
skaparins en ef þeir eru
ekki nógu góðir spilamenn
verða þeir oft að hrökklast
frá og þora ekki að mæta
aftur vegna yfirgangs
þeirra sem stundað hafa
þessi íþrótt iengi. Þeir fá
ónot og skammir fyrir að
kunna ekki spilið nógu vel.
En þessi spilakvöld eiga að
vera afþreyng og skemmt-
un fyrir eldri borgara en
ekki eins og hörð atvinnu-
mennska. Það þarf að
stoppa það af að nokkrir
einstaklingar geti ráðskast
með þetta og leyfa öllum
að vera með sér til
skemmtunar.
Spilamanneskja.
Tapað/fundið
Gullarmband
týndist
ENN auglýsi ég eftir gull-
armbandi sem ég týndi 23.
maí sl. við íþróttahöllina á
Akureyri í von um að kon-
an sem fann það sjái þessa
auglýsingu. Vinsamlegast
hringdu í Auði í síma
462 2854.
Russel-bakpoki
í óskilum
BLÁR Russel-bakpoki
með fatnaði og myndum
fannst í Hljómskálagarðin-
um sl. þriðjudag. Upplýs-
ingar í síma 586 1268.
Gleraugu í rauðu
hulstri týndust
GLERAUGU í rauðu
hulstri týndust líklega á
svæðinu við Gullfoss
sunnudaginn 26. júlí. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 482 1046.
Dýrahald
Ugla er fundin!
KISAN okkar hún Ugla
sem við höfum lengi aug-
lýst eftir og leitað að er
fundin. Við viljum þakka
öllum sem tóku þátt í leit-
inni með okkur kærlega
fyrir. Sérstakar þakkii- til
Velvakanda.
Uglumamma.
Svartur fressköttur
týndist
SVARTUR ft'essköttur
með hvíta og bleika ól með
tveimur bjöHum týndist úr
Seljahverfi íyrir rúmri
viku. Gæti hafa tekið sér
far með bíl eða tjaldvagni.
Ef einhver getur gefið upp-
lýsingar vinsamlega hafið
samband í síma 557 3097.
TVEIR litlir sætir kassa-
vanir kettlingar fást gef-
ins. Upplýsingar í síma
552 0834.
Kettlingar óska
eftir heimili
TVEIR kettlingar, 8 mán-
aða og vel upp aldir, óska
eftir heimili vegna fiutn-
ings eiganda. Upplýsingar í
síma 565 0780 og 893 3101.
Blár páfagaukur
í óskilum
BLÁR páfagaukur er í
óskilum í Boðagranda.
Upplýsingar í síma
562 2771.
Kettlingur í óskilum
LÍTILL kettlingur, 4-5
mánaða, svartur með hvít-
ar loppur og hvítan kvið,
er í óskHum í Hafnarfirði.
Kettlingurinn fannst við
Lyngberg. Upplýsingar í
síma 565 2722.
Hlutaveita
ÞESSAR glaðlegu stúlkur heita Sunna Örlygsdöttir, Ragn-
hildur Gunnarsdóttir, Mist Hálfdanardóttir og Elín Þórsdótt-
ir. Þær efndu til hlutaveltu og söfnuðu 1.484 krónum og létu
þær renna til Rauða kross íslands.
ÞESSIR duglegu strákar, Gunnar Ásgeir Ásgeirs-
son og Birkir Eyþór Ásgeirsson, héldu hlutaveltu
og söfnuðu kr. 1.237 og létu þær renna til Rauða
kross Islands.
Víkverji skrifar...
FJÖGURRA bíla árekstur varð á
Hringbrautinni á þriðjudag.
Sem betur fer urðu ekki alvarleg
meiðsli á fólki en eignatjón varð
umtalsvert. Ástæðan fyrir þessu
óhappi var sú að gæs gekk út á veg-
inn og fremsti bíllinn nauðhemlaði
og bílarnir sem á eftir komu gátu
ekki stansað í tæka tíð. Eflaust hef-
ur ökumaðurinn hemlað ósjálfrátt
því eftir á að hyggja hefði verið
betra að fórna gæsinni. Hún hefði
hvort sem er endað ævina á helgar-
matseðlinum hjá einhverjum veiði-
manni ef að líkum lætur.
XXX
TALSVERT hefur verið rætt
um hraðamælingar lögreglunn-
ar að undanförnu og sýnist sitt
hverjum um það átak sem i gangi
hefur verið. Vinur Víkverja lenti í
því á dögunum að vera gripinn fyrir
of hraðan akstur við Selfoss. Hafði
hann ekki áttað sig á því að hraðinn
hafði verið lækkaður úr 70 í 50 kíló-
metra á þessum kafla og því fór
sem fór.
Það er hins vegar athyglisvert að
umræddur ökumaður var í bílalest
þar sem allir bílar óku á sama
hraða. Hins vegar var hann sá eini
sem stöðvaður var og sektaður. Sú
spurning vaknar auðvitað hvort
leyfilegt er að taka einn brotlegan
en sleppa hinum? Víkverji hélt að
allir ættu að vera jafnir fyrir lögun-
um, í þessu sem öðru. Gaman væri
að fá svör við því.
XXX
KNATTSPYRNUVERTÍÐIN
er vel á veg komin og stutt í
það að nýir meistarar verði krýnd-
ir. Það hefur vakið undrun Vík-
verja hversu reglur um leikmanna-
skipti eru orðnar frjálslegar. Svo
virðist sem lið geti sótt leikmenn
til útlanda að vild. Er þetta sér-
staklega áberandi hjá liðum sem
standa höllum fæti, s.s. Val. Verð-
ur fróðlegt að sjá hvernig Val reið-
ir af eftir nýjustu leikmannakaup-
in.
Hitt er ljóst að Arnór Guðjohnsen
ætlar að reynast félaginu happa-
fengur. Arnór er greinilega í hörku-
formi og markið sem hann gerði á
móti Þrótti á dögunum telst tví-
mælalaust vera á heimsmælikvarða.
Ef enskur leikmaður hefði gert
svona mark í heimsmeistarakeppn-
inni á dögunum hefði það verið
fyrsta frétt í öllum sjónvarpsstöðv-
um. Nú er það spurningin hvort
landslið okkar getur verið án krafta
Arnórs eins vel og hann spilar um
þessar mundir.
XXX
AÐ brá ýmsum þegar þeir
heyrðu fyrstu fréttir Ríkisút-
varpsins á fimmtudaginn. í yfirliti
frétta var komist þannig að orði að
kviknað hefði í tunglinu þá um nótt-
ina! Þegar fréttin var lesin kom hið
sanna svo í ijós, það hafði kviknað í
skemmtistaðnum Tunglinu.