Morgunblaðið - 08.08.1998, Side 10

Morgunblaðið - 08.08.1998, Side 10
10 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SÖFNUN UPPLÝSINGA UNDIRBÚNINGUR RANNSOKNAR Ættartala rannsóknar- | J|v* | hópsins sH ff? IMi ♦ititil t tmtt Ákveðinn sjúkdómur leggst í ættir. Áhugi er fyrir hendi á að rannsaka þennan sjúkdóm og hvernig hann erfist og sett er upp rannsóknarverkefni. Læknir (samstarfslæknir) sér um að kynna rannsóknina fyrir væntaniegum þátttakendum og kanna vilja þeirra til þátttöku. Séu þeir fúsir til að taka þátt undirrita þeir yfirlýsingu um samþykki sitt. Tekin er saman ættartala og því næst taka læknirinn og samstarfsmenn hans blóðsýni og skrá upplýsingar um heilsufar hvers og eins. Heilsufarsupplýsingar Blóðsýni Samstarfslæknar eða fólk sem starfar í þeirra umboði sjá um að aðskilja persónuupplýsingar f rá rannsóknargögnunum. Nú er lögð áhersla á að þeir, sem ætla að rannsaka sjúkdóminn og greina þá erfðaþætti sem valda (Islensk erfðagreining), hafi ekki aðgang að persónuupplýsingum þátttakenda. Þá kemurTölvunefnd til skjalanna. Tilsjónarmenn hennar búa til dulmálslykil sem setur persónunúmer í stað nafns og kennitölu. Blóðsýni og heilsufars- upplýsingar sem berast íslenskri erfðagreiningu eru merkt númerum sem hægt er að tengja hinni tilbúnu ættartölu. Dulmálslykillinn er innsiglaður og einungis Tölvunefnd hefur aðgang að honum. Dulkóðuð ættartala Dulkóðaðar heilsufarsupp- lýsingar og blóðsýni Tölvunefnd gerði athugasemd við, að starfsfólk ÍE vann að sýnatöku og hafði einnig aðgang að persónuupplýsingum þátttakenda. Tölvunefnd leggur til að sjálfseignarstofnun annist rekstur þjónustumiðstöðvar ÍE í Nóatúni 17 IE býðst til að afsala sér boð- valdi yfír starfsmönnunum íslensk erfðagreining hefur lagt til að yfirstjórn þjónustumið- stöðvarinnar í Nóatúni 17 verði í höndum þriggja manna stjórnar. --7--------------------------------------------------------------■ IE býðst til að afsala sér boðvaldi yfír starfsfólkinu en hyggst áfram greiða laun þess og annan kostnað. Tölvunefnd telur tillög- urnar ekki tryggja nauðsynlega nafnleynd við erfðarannsóknir ef starfsfólk á launum hjá IE vinni með nafngreind gögn og legg- ur til að sjálfseignarstofnun verði komið á fót um reksturinn. Ómar Friðriksson fjallar um ágreining Tölvunefndar og IE. TÓLVUNEFND hefur hafnað tillögum íslenskrar erfðagreiningar hf. að nýju skipulagi þjónustu- miðstöðvar ÍE og hóps samstarfs- lækna um erfðarannsóknir í Nóa- túni 17. Telur nefndin þær engan veginn til þess fallnar að tryggja nauðsynlega persónuvemd við erfðarannsóknir á mönnum. Hefur ÍE eingöngu starfsleyfí til að vinna með nafngreind gögn í Nóatúns- stöðinni til 1. október nk. Læknar geta veitt starfsmönn- um umboð til sýnatöku Þjónustumiðstöð rannsóknar- verkefna (ÞR) ÍE í Nóatúni er að- skilin frá rannsóknarstarfsemi ÍE í Lynghálsi, þó hún sé rekin á kostn- að ÍE. Starfsmenn stöðvarinnar eru á launum hjá ÍE en um 70 sam- starfslæknar ÍE um ýmsar erfða- rannsóknir geta notfært sér aðstöð- una í Nóatúnsstöðinni við undirbún- ing rannsókna. Læknarnir geta veitt einstökum starfsmönnum Þjónustumiðstöðvarinnar umboð til að meðhöndla sjúkragögn, safna blóðsýnum og annast samskipti við þátttakendur í sérhverri rannsókn. Engar rannsóknir fara fram í Nóatúnsstöðinni heldur er þar unn- ið að söfnun upplýsinga og töku blóðsýna, frágangi gagna vegna undirbúnings rannsókna ÍE og frá- gangi dulkóðaðra lista yfir þá ein- staklinga sem rannsóknimar ná til áður en gögnin eru send dulkóðuð til ÍE á Lynghálsi. Tryggt á að vera að ekki sé hægt að tengja saman persónugreind gögn samstarfs- læknanna og ópersónugreind gögn ÍE nema með notkun dulmálslykils. Tveir tilsjónarmenn Tölvunefndar annast eftirlit með að fylgt sé skil- málum Tölvunefndar í hvívetna og búa til dulmálslykla með persónu- númerum í stað kennitölu og nafna þeirra einstaklinga sem rannsókn- imar ná til (svokölluð dulkóðun). Samkomulag er á milli Tölvunefnd- ar og ÍE um að ÍE greiði laun til- sj ónarmannanna. I stuttu máli má segja að vinnu- ferlið við undirbúning rannsókna í Nóatúnsstöðinni felist í því að sam- starfslæknar senda lista með nöfn- um sjúklinga í þjónustumiðstöðina. Þar em listarnir dulkóðaðir og fara síðan í svokallaða ættrakningu, þar sem gerð eru asttartré sem einnig era dulkóðuð. ÍE samtengir kóðaða sjúklingalistann við kóðaðan ætt- fræðigrunn og þannig verður til svokallaður þátttakendalisti sjúk- linga og ættingja þeirra vegna um- ræddrar rannsóknar. Þátttakenda- listinn er aftur afkóðaður í Þjón- ustumiðstöðinni og þá er búinn til listi með kennitölum sem er afhent- ur viðkomandi samstarfslækni. Hann hefur nú undir höndum upp- lýsingar sem geta gefið vísbending- ar um hvernig viðkomandi sjúk- dómur leggst í ættir o.s.frv. Við- komandi einstaklingum er þvínæst sent bréf þar sem rannsóknarverk- efnið er kynnt og vilji þeirra kann- aður til þátttöku. Þeir sem sam- þykkja að taka þátt í rannsókninni koma í þjónustumiðstöðina eða til viðkomandi læknis, undirrita yfir- lýsingu þar um, gefa blóðsýni og heilsufarsupplýsingar. Tölvunefnd hefur sett strangar reglur um með- höndlun þessara upplýsinga og dulkóðun þeirra. Ber samstarfs- ÞAÐ kom forsvarsmönnum ís- lenskrar erfðagreiningar (IE) á óvart að Tölvunefnd hafnaði til- lögum að nýju skipulagi á starf- semi Þjónustumiðstöðvar rann- sóknaverkefna IE í Nóatúni 17, að sögn Jóhanns Hjartarsonar, lög- fræðings hjá IE. „Við töldum þetta vera mjög vel rökstuddar tillögur en þær voru upphaflega settar fram af tilsjónarmönnum sem hafa fylgst með þessari starf- semi frá upphafi og eru best að sér um hvernig tryggja megi full- komið öryggi þessara gagna,“ segir Jóhann. Jóhann sagði að það formskil- yrði Tölvunefndar að það fólk sem starfar í þjónustumiðstöðinni mætti ekki vera á Iaunaskrá hjá ÍE hefði komið forsvarsmönnum ÍE mjög á óvart, enda hafi stjórn- endur IE í raun og veru ekkert yfir því að segja. „Það kom skýrt fram í bréfi okkar til Tölvunefnd- ar að við ætluðum að afsala okkur algerlega boðvaldi yfir þessu fólki og það væri forsenda þess að þessi stöð hefði starfsleyfi. Það lækni eða starfsmönnum með um- boð hans að dulkóða allar þessar upplýsingar skv. ákveðnum reglum áður en gögnin era send með dul- málsnúmerum til ÍE vegna erfða- rannsókna sem þar fara fram. Dulkóðunin fer öll fram í þjónustu- var ekki gert ráð fyrir að það yrði gefið almennt starfsleyfi fyrir stöðina heldur átti að gefa leyfi fyrir hvert verkefni fyrir sig, þannig að sérhver samstarfslækn- ir gæfi stjórn og starfsmönnuin stöðvarinnar sérstakt umboð til að fara með þessi gögn á sína ábyrgð og stjórnin hefði boðvald yfir starfsmönnunum en við kæm- um þar hvergi nærri,“ segir hann. Jóhann leggur áherslu á að skilið hafi verið algerlega á milli starfsemi ÍE á Lynghálsi og starf- seminnar í Nóatúni. „Hingað koma engar nafntengdar upplýs- ingar og hafa ekki gert um langt skeið,“ segir hann. Efasemdir um tillögu um sjálfseignarstofnun Að sögn Jóhanns munu stjórn- endur fyrirtækisins nú skoða alla möguleika í stöðunni. Tölvunefnd hafi bent á þann kost að sett verði á fót sjálfseignarstofnun um starf- semi þjónustumiðstöðvarinnar. Stjórnendur IE hafi ákveðnar efa- semdir um að það sé skynsamleg miðstöðinni fyrir atbeina tilsjónar- manna Tölvunefndar, sem geyma dulmálslykilinn. Samstarfslæknar bera ábyrgð á varðveislu gagna Allar heimildir sem Tölvunefnd hefur veitt til þeirra rannsókna sem unnar eru í samstarfi við ÍE byggj- ast á því meginatriði að samstarfs- læknar fyrirtækisins beri ábyrgð á varðveislu og trúnaði allra gagna um sína sjúklinga og ábyrgist að engin persónutengd eða persónu- tengjanleg gögn berist öðrum og óviðkomandi aðilum. Þeir megin- skilmálar sem Tölvunefnd hefur sett um vinnuferli með umrædd gögn eru að rannsóknargagna sé gætt sem sjúkragagna í samræmi við gildandi lög um réttindi sjúk- linga, læknalög og reglugerðir um sjúkraskrár. Að rannsóknargögn hjá IE séu með öllu án persónuauð- lausn og eigi erfitt með að átta sig á kosti hennar. Nokkur óvissa ríki um sjálfseignarstofnanir í lagalegum skilningi, þær hafi gjarnan verið settar á fót um líkn- arfélög, sjóði, skóla o.fl. en ekki um starfsemi á borð við þá sem fram fer í þjónustumiðstöðinni í Nóatúni. Aðspurður um þýðingu þeirrar vinnu sem fram fer í þjónustumið- stöðinni í Nóatúni fyrir starfsemi ÍE sagði Jóhann að verkefnin í Nóatúni skiptu miklu máli fyrir rannsóknir IE og samstarfslækna fyrirtækisins. Þessi starfsemi í Nóatúni skiptijió ekki sköpum um það hvort IE geti haldið rann- sóknum sínum áfram. Hann bend- ir á að allar rannsóknir ÍE fari fram í húsnæði fyrirtækisins í Lynghálsi og eingöngu með ónafntengd gögn. Engar rann- sóknir færu fram í Nóatúni held- ur ætti undirbúningur og söfnun gagnanna sér stað þar fyrir hinar eiginlegu rannsóknir IE. „Þarna er komið algert járntjald á milli,“ segir Jóhann. Dunhagi 19 Opið hús um helgina Til sölu falleg 3ja-4ra herbergja íbúð á 2. hæð. Magnús og Nanna taka á móti áhugasömum kaupendum um helgina milli kl. 17 og 19. A_ _ Jóliaim Hjartarson lögfræðingur IE um skilmála Tölvunefndar / Járntjald á milli IE og starfseminnar í N óatúni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.