Morgunblaðið - 08.08.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.08.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ 1 úuuúViúuVúlVuvVuui. vuv\\V\\ Morgunblaðið/Kristján YNGSTU börnin eru mun duglegri að nota reiðhjólahjálma en þau eldri en nauðsynlegt er að verja höfuðið með því að nota hjálm. Könnun á notkun reiðhjólahjálma Yngstu börnin nota hjálmana í KÖNNUN sem gerð var á notkun reiðhjólahjálma í bæjarfélögum á Norðurlandi, kom fram að hjálma- notkun meðal yngstu þátttakend- anna er mjög góð og nær undantekn- ingarlaust nota þau hjálm. Má það m.a. þakka ýmsum félögum, eins og Kiwanisklúbbum sem gefa 6-7 ára börnum hjálma ár hvert. Sigurbjöm Gunnarsson, umferð- aröryggisfulltrúi Norðurlands ásamt vinnuskólum nokkurra bæjarfélaga stóð fyrir könnuninni í sumar og var hún framkvæmd á Akureyri, Dalvík, Húsavík, Ólafsfirði, Sauðárkróki og Siglufirði. I könnuninni kemur einnig fram að meira beri á hjálmaleysi þegar of- AKSJÓN Laugardagur 8. ágúst 21.00 ^Sumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Ákureyringa í ferðahug. Sunnudagur 9. ágúst 21.00 Þ-Sumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Ákureyringa í ferðahug. Mánudagur 10. ágúst 21.00 Þ-Sumarlandið Þátt- ur fyrir ferðafólk á Akureyri og Akureyringa í ferðahug. TIL SÖLU 11 tonna plastbátur smíðaður 1987. Báturinn selst án veiðiheimilda en með veiðileyfi. Báturinn er í mjög góðu ástandi. Upplýsingar í símum 462 6493 og 852 8293. ar er farið í aldursstiganum og al- gengt að 30-40% 6-13 ára barna noti ekki hjálm og eru flest þeirra á aldr- inum 11-13 ára. Sé farið enn ofar í aldursstiganum sést að þeir sem vit- ið eiga að hafa fyrir þeim yngri eru þó sýnu verstir, að sögn Sigurbjöms. Aðeins um 6-25% þeirra nota hjálm. Gctum gert betur Þó svo hjálmanotkun hafi aukist frá því sem áður var sýnir þessi könnun að við getum enn gert betur. Að sögn Sigurbjöms em það ekki einungis yngstu notendur reiðhjóla sem eiga að nota hjálma heldur einnig þeir sem komnir em á aldur. Slys, hvort heldur sem em umferð- arslys eða óhöpp, gera ekki greinar- mun á aldri notandans. Aron á sundæfingu HUNDURINN Aron lék á als oddi er hann fékk létta sundæf- ingu í fjörunni við Strandgötu á Akureyn í gær. Þau Eva og Veigar Árni skemmtu sér einnig vel og hentu spýtnabút í sjóinn aftur og aftur sem Aron taldi ekki eftir sér að sækja, um leið og hann æfði sitt hundasund af krafti. Bifreiðastjórar Hafið bílabænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið. Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Jötu, Hátúni 2, Reykjavík, Hljómveri og Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri, Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri. Verð kr. 200. Orð dagsins, Akureyri TIL SÖLU eignarhlutur í iðnfyrirtæki Til sölu er eftirfarandi úr þrotabúi Guðmundar Gíslasonar, kt. 260653-2109: Eignarhlutur að nafnverði kr. 300.000 í einkahlutafélaginu Plastviðgerðum ehf, kt. 631296-2709, Kaldbaksgötu 4, Akureyri. Um er að ræða 60% eignarhluta í félaginu, en það rekur sérhæft verkstæði, sem annast viðgerðir á plasthlutum einkum í bila. Tilboð sendist undirrituðum, sem jafnframt veitir upplýsingar, fyrir 15. ágúst 1998. Áskilinn er réttur til að taka hvaða boði sem er eða hafna öllum. Akureyri, 6. ágúst 1998. Arnar Sigfússon hdl. Skipagötu 16, Akureyri, simi 462 5919, fax 461 1444 Engar beinar flugferðir frá Akureyri í haust Gífurlegiir áhugi á borgarferðum EKKI verður boðið upp á borgar- ferðir til Evrópu í beinu flugi frá Akureyri á hausti komanda, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Ferðaskrifstofumar Örval-Út- sýn og Samvinnuferðir-Landsýn hafa boðið upp á slíkar ferðir í beinu flugi frá Akureyri undanfarin ár. Ásdís Árnadóttir hjá Samvinnu- ferðum-Landsýn á Akureyri sagði að eins og málin stæðu í dag yrði ekki boðið upp á beint flug frá Akureyri á þessu hausti frekar en í fyrra haust. Ástæðan væri fyrst og fremst sú að ekki væri hægt að fá flugvélar til verkefnisins. Áður hafði ferðaskrif- stofan boðið upp á beint flug frá Akureyri til Dublinar. Aldrei meiri eftirspurn „Hins vegar hefur aldrei, í þau rúm 20 ár sem ég hef starfað hér, verið meiri eftirspum eftir haust> ferðum í beinu flugi frá Akureyri og einmitt nú. Fólk á Akureyri og ná- grannasveitarfélögunum hefur mikið spurt eftir slíkum ferðum, eða 500- 600 manns,“ sagði Ásdís. Anna Guðmundsdóttir hjá Úrval- Útsýn á Akureyri sagði að ferða- skrifstofan hefði boðið upp á borgar- ferðir í beinu flugi til Edinborgar, Glasgow og Newcastle á undanfóm- um árum og þegar mest var hefðu verið farnar sex ferðir frá Akureyri sama haustið. „Þátttaka í þessar ferðir hefur verið góð en vandamálið er hversu erfítt er að fá flugvélar í þessi verk- efni. Við bjóðum upp á borgarferðir í áætlunarflugi frá Keflavík og ekki er hægt að raska því flugi með milli- lendingu á Akureyri. Þær leiguvélar sem hægt er að fá era mjög stórar og óhagstæðar og auk þess er mjög dýrt að millilenda á Akureyri.“ Ásdís sagði að hjá Samvinnuferð- um-Landsýn yrði reynt að koma til móts við það fólk sem hefði áhuga á borgarferðum til Dublinar í haust á annan hátt. „Við eram að reyna að semja við flugfélögin sem fljúga til Akureyrar um ódýrt fargjald til Reykjavíkur og ódýra gistingu þar. Einnig eru uppi hugmyndir um að bjóða upp á rútuferðir héðan, sem færa þá að nóttu til beint til Kefla- víkur.“ Mikil aukning milli ára Anna sagði að Akureyringar og nærsveitamenn hafi verið duglegir að ferðast á árinu og aukningin í sölu ferða verið töluverð milli ára. „Það er mikið af tilboðum í gangi og einnig virðist vera meira um peninga í umferð. Haust- og vetrarbækling- urinn verður kynntur nú um helgina og þá byrjar fjörið aftur,“ sagði Anna, sem reiknar með að Kanarí- eyjar, skíðaferðir og borgarferðir verði vinsælastar. Ásdís hafði sömu sögu að segja og sagði að mjög mikið hafi verið að gera á skrifstofunni og þá sérstak- lega síðustu 2-3 vikur. „Það hefur verið mikið að gera í sölu sólarlanda- ferða og fólk er að fara með nánast engum fyrirvara. Tíðafarið hefur haft sitt að segja og með þessum mikla áhuga á haustferðunum er fólk að leita leiða til að bæta sér upp sumarið.“ Morgunblaðið/Kristján Uppsagnir hjá Snæfelli í Hrísey Tónleikar í Akur- eyrarkirkju KAMMERSVEIT Kaupmanna- hafnar heldur tónleika í Akureyrar- kirkju á morgun, sunnudaginn 9. ágúst, kl. 17. Á efnisskránni eru verk eftir tónskáld frá barokktím- anum. Flutt verður verkið Pottaseiður eftir Mist Þorkelsdóttur sem hún samdi 1997 fyrir Kammersveitina að beiðni Steens Lindholms sembal- leikara. Verkið er nú frumflutt á Is- landi. Kammersveitin var stofnuð fyrir 25 árum og hefur haldið tónleika víða um heim. Kammersveitin hefur tvisvar áður haldið tónleika á Is- landi. Á Akureyri er sveitin á veg- um Norrænu upplýsingaskrifstof- unnar á Akureyri. -------------- Messur Flestum boðin endurráðning NÆR öllu starfsfólki Snæfells hf. í Hrísey, sem sagt var upp störfum fyrr í sumar, hefur verið boðin end- urráðning hjá fyrirtækinu að sögn Magnúsar Gauta Gautasonar fram- kvæmdastjóra. Alls var 44 starfs- mönnum sagt upp og 41 boðin end- urráðning. Vegna aukinna umsvifa í físk- vinnslu félagsins í Hrísey er stefnt að því að gera breytingar á vinnu- fyrirkomulagi þar og því þótti óhjá- kvæmilegt að segja starfsfólki upp störfum. „Við höfum gert því starfsfólki sem boðin hefur verið endurráðning ákveðið tilboð um vinnufyrirkomulag og samning þar að lútandi. Við bíðum hins vegar eftir viðbrögðum frá starfsfólkinu og Verkalýðsfélaginu Einingu,“ sagði Magnús Gauti. Unnið á tveimur vöktum í fyrirliggjandi breytingum á vinnufyrirkomulagi er gert ráð fyr- ir tveimur vöktum, annars vegar frá kl. 7-15 og hins vegar frá kl. 15-19. í Hrísey er m.a. rekin pökk- unarstöð á vegum Snæfells, þar sem fiski er pakkað í neytendaum- búðir fyrir erlendar verslunarkeðj- ur. Verkefni við pökkun hafa aukist mjög í sumar og hefur fyrirtækið vart annað eftirspum. Ekki náðist í Björn Snæbjöms- son, formann Verkalýðsfélagsins Einingar. AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón- usta í Akureyrarkirkju sunnudag- inn 9. ágúst kl. 21. Ferðafólk sér- staklega velkomið. Séra Birgir Snæbjörnsson messar. GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðs- þjónusta verður í kirkjunni sunnu- daginn 9. ágúst kl. 21. Séra Hannes Örn Blandon þjónar. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Laug- ardagur 8. ágúst, bænastund kl. 20- 21. Sunnudagur 9. ágúst, „Sunnu- dagaskóli fjölskyldunnar" kl. 11.30. Bibh'ukennsla fyrir alla aldurshópa. Ester Jakobsen og Vörður Trausta- son prédika. Léttur hádegisverður á vægu verði kl. 12.30. Sunnudags- kvöld kl. 20, samkoma, mikill og léttur söngur. Jesús gefur líf, líf í fullri gnægð. Ester og Vörður predika. Barnapössun fyrir börn yngri en 6 ára. Allir velkomnir. Kaffisala á Hólavatni KAFFISALA verður í sumarbúðum KFUM og K á Hólavatni á morgun, sunnudaginn 9. ágúst, og hefst kl. 14.30 og stendur til kl. 18. í sumar hafa tveir hópar drengja, tveir hópar stúlkna og einn hópur unglinga dvalið á Hólavatni undir stjórn sr. Hildar Sigurðardóttur, sr. Jóns Ármanns og Salóme Garðars- dóttur. Venja er að starfinu ljúki með kaffisölu, sem er mikilvægur þátt- ur þess. Kaffisalan er liður í fjár- öflun sumarbúðanna og gefur hún einnig velunnurum starfsins og öðrum tækifæri til að koma að Hólavatni, skoða sumarbúðirnar sem eru í fallegu umhverfi, hittast og talast við. Kaffisalan hefur oft verið mjög vel sótt og greinilegt að margir líta á það sem fastan þátt að aka Eyja- fjörðinn á sunnudagseftirmiðdegi í ágúst og fá sér kaffi á Hólavatni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.