Morgunblaðið - 08.08.1998, Page 22
22 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Lewinsky segir af ástar-
fundum með Clinton
Reuters
MONICA Lewinsky kemur til alríkisddmshússins í Washington á miðvikudag.
Vitnisburður Monicu
Lewinsky fyrir rann-
sóknarkviðdómi um
meint ástarsamband
við Bill Clinton markar
tímamót í sögu banda-
ríska forsetaembættis-
ins, því þótt Lewinsky
sé fráleitt fyrsta konan
sem sögð er hafa átt
vingott við forseta
Bandaríkjanna er hún
sú fyrsta sem ber vitni
um það í tengslum við
rannsókn á meintu mis-
ferli forseta.
TVEIR heimildamenn, sem
kunnugir eru framburði Mon-
icu Lewinsky frammi fyrir
rannsóknarkviðdómi í Washington
á fimmtudag, tjáðu fréttastofu
CNN að Lewinsky hefði sagt frá því
að hún hefði átt á annan tug ástar-
funda við Bill Clinton Bandaríkja-
forseta á eins og hálfs árs tímabili
er hófst í nóvember 1995, er hún var
starfsstúlka í Hvíta húsinu.
Heimildamenn CNN sögðu
einnig að Lewinsky hefði borið að
forsetinn hefði rastt við hana um
ýmsar leiðir til að halda ástarsam-
bandi þeirra leyndu. En hún neitaði
því að forsetinn hefði nokkurn tíma
beinlínis beðið hana að segja ósatt í
eiðsvömum vitnisburði í máli sem
Paula Jones höfðaði á hendur for-
setanum fyrir meinta kynferðislega
áreitni.
Clinton neitaði því í eiðsvarinni
yfirlýsingu í máli Jones að hann
hefði átt í ástarsambandi við Lewin-
sky. Máli Jones var síðar vísað frá
dómi. Lewinsky er fráleitt fyrsta
konan sem talin er hafa átt náin
samskipti við forseta Bandaríkj-
anna. En hún er sú fyrsta sem ber
vitni um meint samband í tengslum
við rannsókn á meintu misferli for-
setans.
Kenneth Starr, sérstakur sak-
sóknari, hefur kallað saman rann-
sóknarkviðdóminn til þess að graf-
ast fyrir um hvort grundvöllur sé
fyrir ákæru á hendur forsetanum
fyrir tilraunir til meinsæris. Einnig
beinist rannsóknin að því hvort
Clinton hafi átt í ástarsambandi við
Lewinsky. Bæði Clinton og Lewin-
sky hafa opinberlega neitað því að
svo hafi verið, en eftir að Starr
komst að samkomulagi við Lewin-
sky um að hún nyti friðhelgi og yrði
ekki lögsótt féllst hún á að bera
vitni um ástarsamband við forset-
ann.
Tilteknar athafnir
CNN hafði ennfremur eftir heim-
ildamönnum sínum í gær að Lewin-
sky hefði gefið í skyn við kviðdóm-
inn að hún hefði tekið þátt í tiltekn-
um kynferðislegum athöfnum sem
forsetinn liti ef til vill ekki á sem
kynferðisleg samskipti. Að sögn
New York Times áttu þessi sam-
skipti sér stað í lítilli einkaskrifstofu
forsetans skammt frá opinberri
skrifstofu hans.
Lewinsky kann að verða kölluð
aftur fyrir rannsóknarkviðdóm St-
arrs, en ekki hefur verið ákveðið
hvenær það verður. Clinton mun
bera vitni fyrir kviðdómnum 17.
ágúst í Hvíta húsinu. Framburður
hans verður sendur beint um sjón-
varpsrás til dómshússins þar sem
kviðdómendur sjá hann. Verður
þess vandlega gætt að utanaðkom-
andi aðilar geti ekki hlerað eða náð
sjónvarpssendingunni.
Lewinsky kom til alríkisdóms-
hússins í Washington á fímmtudag í
fylgd lögmanna sinna, en þeir gerðu
samkomulagið við fulltrúa Starrs.
Fréttamenn, sem voru fjölmennir
við dómhúsið, segja hana hafa virst
rólega en alvarlega. Er inn kom
fékk Lewinsky að nota lyftu, sem
venjulega er aðeins notuð af dómur-
um, til að fara upp á þriðju hæð, þar
sem rannsóknarkviðdómurinn situr.
í Hvíta húsinu reyndu forsetinn
og aðstoðarmenn hans að láta sem
ekkert væri, að því er CNN sagði í
gær. Talsmaður hússins sagði að
Clinton væri ekki með hugann við
framburð Lewinskys. „Hann er í
góðu skapi,“ sagði Barry Toiv, að-
stoðarfréttafulltrúi hússins.
CNN hefur eftir „heimildamönn-
um sem þekkja til rannsóknar St-
arrs“, að á rannsóknarstofu Alríkis-
lögreglunnar, FBI, í Washington sé
í þann mund að ljúka frumrannsókn
á dökkbláum kvöldkjól sem Lewin-
sky lét saksóknara í té. Beinist
rannsókn FBI að því hvort í kjóln-
um sé að finna lífræn efni sem bera
megi saman við erfðaefni forsetans
og renna þannig stoðum undir að
samskipti hans við Lewinsky hafi
verið af kynferðislegum toga.
Starr situr á niðurstöðum rann-
sóknarinnar. Haft hefur verið eftir
heimildamönnum að hvorki Janet
Reno dómsmálaráðherra né Louis
Freeh, yfirmanni FBI, verði greint
frá niðurstöðunum. Rannsakendur
fundu ekki umræddan kvöldkjól
þegar þeir leituðu í íbúð Lewinsky í
Washington fyrr á þessu ári þar eð
hún hafði geymt kjólinn í íbúð móð-
ur sinnar í New York.
Mikil þolraun
Lewinsky var í sex og hálfa
klukkustund að segja kviðdómend-
um frá samskiptum sínum við for-
setann og svara spumingum sak-
sóknara þar um. New York Times
hefur eftir aðstoðarmanni Lewin-
sky að þetta hafi verið henni mikil
„þolraun". „Hún var spurð mjög
nákvæmra spuminga um mikil
einkamál sem erfitt er að tala um
opinberlega," sagði aðstoðarmaður-
inn.
Þá hefur verið haft eftir einum
vina Lewinsky að hún hafi kviðið
því í marga mánuði að til þessa
kynni að koma. Þegar hún hafi verið
að undirbúa sig sl. miðvikudags-
kvöld fyrir vitnisburðinn á fimmtu-
dag hafi hún sagt: „Það sem ég ætla
að gera á morgun er nokkuð sem ég
vildi að ég þyrfti aldrei að gera.“
Clinton hefur aldrei greint opin-
berlega frá samskiptum sínum við
Lewinsky, umfram það að neita því
að þau hafi verið af kynferðislegum
toga. Á fimmtudaginn létu sumir
ráðgjafa forsetans reiði sína í Ijósi
vegna þess sem gekk á fyrir utan al-
ríkisdómshúsið, þar sem Lewinsky
bar vitni. „Ég hef óbeit á þessu öllu
saman,“ hafði New York Times eftir
einum þeirra. „Ég hef óbeit á ykk-
ur, ég hef óbeit á okkur." Svo bar
óbeitin hann ofurliði og vegna
skorts á orðum bætti hann einfald-
legavið: „Oj.“
Þótt ráðgjafar forsetans vildu
sem minnst gera úr atburðum dags-
ins höfðu þeir samband við frétta-
menn á fimmtudagskvöldið til að
leita fregna af vitnisburði Lewin-
sky. í Hvíta húsinu hafa menn
aldrei gefið annað í skyn opinber-
lega en að hún hafi verið góður
starfskraftur. New York Times seg-
ir þó að kvisast hafi að menn hafi
haft áhyggjur af því að hún væri
skotin í forsetanum.
Lögmaður í borginni Indianapol-
is, sem hefur starfað fyrir
Demókrataflokkinn, sagði í viðtali á
fimmtudag að hann hefði verið beð-
inn að hafa auga með Lewinsky á
góðgerðarsamkomu 23. október
1996 og gæta þess að hún „yrði ekki
forsetanum til skammar". Sagði
lögmaðurinn, John J. Sullivan, að
vinur sinn í Hvíta húsinu hefði beðið
sig um þetta á þeim forsendum að
Lewinsky hefði verið nýhætt störf-
um í Hvíta húsinu og þar hefðu
menn áhyggjur af því að hún væri
óánægð.
Sullivan rifjaði upp að vinur sinn
hefði sagt um Lewinsky: „Við erum
ekki viss um hvort hún gengur með
einhverjar grillur um samband við
forsetann. En hún er alltaf að
dúkka upp á svona samkomum."
Sullivan kvaðst hafa fylgst með
Lewinsky og séð hana faðma forset-
ann. „Og hann faðmaði hana á móti.
Svo sagði hann við hana: Hvað seg-
irðu gott? Hún sagði: Allt gott.
Hann sagði: Hvemig kanntu við þig
í nýju starfi? Og hún sagði: Mjög
vel. Hann sagði: Ég óska þér góðs
gengis. Það var allt og sumt.“
„Stórviðburður" Riveras
Bandarískir fjölmiðlar hafa
greint nákvæmlega frá framgangi
þessa máls frá því það kom fyrst
upp á yfirborðið í janúar sl. Rann-
sóknin á kjól Lewinsky hefur ekki
síst orðið tilefni tíðra vangaveltna
fréttaskýrenda. Washington Post
greindi frá því í gær, að sl. þriðju-
dagskvöld hefði kunnur tíðindamað-
ur NBC-sjónvarpsins, Geraldo Ri-
vera, sagt frá því sem hann kallaði
„stórviðburð". Fullyrti hann í sjón-
varpsþætti sínum að niðurstöður
rannsóknar FBI á kjólnum væru
,jákvæðar“, og hafði eftir „heim-
ildamanni sem er nátengdur forset-
anum“.
Um það bil klukkustundu síðar
hafi sjónvarpsstöðin sent öllum
fréttamönnum sínum tilkynningu
þar sem þeir voru varaðir við að
feta í fótspor Riveras. „Fréttastofa
NBC hefur ekki fengið staðfestar
upplýsingar og mun ekki greina frá
þeim upplýsingum sem komu fram í
þætti Riveras um niðurstöður rann-
sókna."
Rivera sagði í þætti sínum að
New York Times myndi ef til vill
staðfesta upplýsingarnar um rann-
sóknina „eftir um það bil þrjá
stundarfjórðunga". Nokkru síðar
var hringt í hann frá blaðinu og í
kjölfarið tilkynnti hann í þættinum
að blaðið myndi ekki segja frá
þessu. )rAð minnsta kosti ekki á
morgun."
Fulltrúi NBC tjáði Washington
Post að sjónvarpsstöðin gerði ekki
athugasemd við fullyrðingar River-
as. Tilkynningin til fréttamannanna
hefði verið send út „vegna þess að
við óttuðumst að ef þetta yrði tekið
úr samhengi gæti þetta undið óvið-
ráðanlega upp á sig“.
í þætti sínum kvöldið eftir sagði
Rivera að hann hvikaði hvergi frá
fyrri fullyrðingu, „alveg sama hvað
einhver náungi á Washington Post
kann að skrifa á morgun“.
Vegið að
bandarísk-
um fem-
ínistum
París. Reuters.
EINN ötulasti málsvari
franskrar tungu hefur fundið
sér nýjan óvin í endalausu
stríði sínu gegn hnignun
frönskunnar. Franska vísinda-
akademían, sem gætir móður-
málsins líkt og þjóðargersem-
ar, hefur nú boðið bandarísk-
um femínistum birginn.
Maurice Druon, ritari aka-
demíunnar, kvartaði í grein í
dagblaðinu Le Figaro yfir
þeirri tísku að kvengera starfs-
heiti, og sagði hann þetta vera
bandaríska afbökun sem væri
tekin að berast inn í frönsku í
gegnum Quebec-fylki í Kan-
ada, þar sem meirihluti íbúa á
frönsku að móðurmáli.
I greininni sagði Druon
meðal annars að ensk/banda-
ríska hefði náð að menga
frönskuna með orðum á borð
við „primetime“ og „look“. Nú
hefði ensk/bandarískunni tek-
ist að spilla franskri málfræði
„með því að gera út frá
Quebec“.
„Vitum við hvar þessi kven-
gerving starfsheita hófst?“
spyr Druon. „Svo sannarlega
ekki í Kanada, heldur í Banda-
ríkjunum." Akademían hefur
beitt sér einarðlega gegn til-
hneigingum til að kvengera
starfsheiti, en ríkisstjóm sósí-
alista hefur hins vegar verið
hlynnt slíkum breytingum.
Þannig hafa starfsheitum
ráðherra, sem eru konur, verið
breytt í kvenkynsorð, þótt hið
hefðbundna franska orð fyrir
ráðherra sé, líkt og hið ís-
lenska, karlkyns, samkvæmt
reglum málfræðinnar. Fleiri
starfsheitum hjá hinu opinbera
hefur verið breytt á þennan
hátt.
Tyrkland
Segja ekki
fót fyrir
rannsókn
Ankara. Reuters.
LÖGMAÐUR Tansu Ciller, fyrr-
verandi forsætisráðherra Tyrk-
lands, og eiginmanns hennar, sem
er kaupsýslumaður, sagði á
fimmtudag að enginn fótur væri
fyrir rannsókn á fjárreiðum hjón-
anna.
„Tilgreindar ástæður rannsókn-
arinnar eru byggðar á röngum
upplýsingum og fela í sér staðhæf-
ingar sem jaðra við róg“, segir í yf-
irlýsingu sem lögmaður hjónanna
sendi frá sér í gær. Saksóknari í
Ankara hóf fyrr í vikunni rannsókn
á fjárreiðum þeirra, í kjölfar birt-
ingar skýrslu frá fjármálaráðu-
neytinu þar sem þau eru sökuð um
spiHingu.
í skýrslunni er fullyrt að Ciller
hafi látið hjá líða að telja fram
eignir að andvirði rúmlega 113
milljóna íslenskra króna í yfirlýs-
ingu sem hún flutti tyrkneska
þinginu. Rannsóknin tekur vænt-
anlega nokkra mánuði og gæti leitt
til réttarhalda.
Eiginmaður Tansu, Ozer Ciller,
var í maí dæmdur til að greiða fjár-
sekt fyrir að villa um fyrir rann-
sóknarnefnd á vegum þinsins, með
því að leggja fram fölsuð skjöl
varðandi eignir þeirra í Bandaríkj-
unum. Talið er að fyrirtæki og fast-
eignir, sem hjónin eiga í Tyrklandi
og Bandaríkjunum, séu hundruða
milljóna króna virði, að því er tyrk-
neskir fjölmiðlar hafa greint frá.