Morgunblaðið - 08.08.1998, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 Trrmi morgunblaðið
’llitll ÍÍlfl
AiU
SPURT ER
Það er auðvelt að
gera pestó og nú er
rétti tíminn til þess.
Steingrímur Sigur-
geirsson segir hins
vegar mikilvægt að
nota fersk og vönd-
uð hráefni ef útkom-
an eigi að vera góð.
Sælkerinn
Einhver
vinsælasta
pastasósa
Italíu er
án efa pesto, sem á
rætur sínar að rekja
til Lígúría-héraðs og
er stundum kennd
við hafnarborgina
Genúa, eða pesto
genovese. Líkt og
svo margar aðrar
gersemar ítalska
eldhússins er pestó
afskaplega einfaldur
réttur og á færi ______________
flestra að búa til
ljúffenga pestó-sósu. Galdurinn er
að nota fyrsta flokks hráefni. Séu
þau ekki til staðar er hætt við að út-
koman verði harla dapurleg.
Vissulega er hægt að kaupa tilbú-
ið pestó í krukkum í flestum betri
matvöruverslunum. Slíkt verk-
smiðjupestó kemst hins vegar ekki
með tæmar þar sem ferskt pestó
hefur hælana. Sú litla fyrirhöfn, sem
pestó-framleiðsla útheimtir borgar
sig því margfalt. Að auki er hægt að
gera töluvert magn í einu og frysta
má það sem ekki er notað strax eða
geyma í ísskáp í einhvem tíma.
Nú er líka rétti árstíminn til að
huga að pestó-gerð því að mikilvæg-
asta hráefnið, ferskt basil, er tiltölu-
lega auðvelt að fá um þetta leyti.
Ferskt basil er yfírleitt fáanlegt
óniðurskorið í blómapottum í
Heilsuhúsinu og Blómavali og einnig
er það oftast til í pökkum í græn-
metisborði Nýkaupa. Framboðið er
hins vegar ekki stöðugt allt árið
og yfir vetrarmánuðina er jf
ágætt að eiga birgðir af M
frosnu pestói.
Önnur hráefni í pestó
em ólífuolía, furuhnetur,
hvítlaukur, Parmesan-
ostur og salt og pipar.
Pað sama giidir þar að
nota verður bestu fá-
anlegu hráefni. Olían
verður undantekning-
arlaust að vera extra-
virgine, það er olía úr
fyrstu pressun. Jafn-
framt borgar sig að
finna góða, dýrari olíu
en ekki einungis venju-
lega stórmarkaðsolíu. Góð
ólífuoha kostar sitt og ekki
er óalgengt að þurfa að greiða
á annað þúsund krónur íyrir
flösku af fínni ohu við Miðjarðarhaf-
ið. I Kalifomíu greiddi ég nýlega á
þriðja þúsund krón-
ur fyrir 50 cl flösku
af Manzaniilo-olíu
frá Napa. Látið ykk-
ur því ekki bregða
þótt góð olía hér á
landi kosti yfir þús-
undkallinn. Þeim
krónum er vel varið.
Furuhnetur fást
víða og er best að
kaupa þær í verslun-
um þar sem hnetu-
veltan virðist vera
mikil þar sem hnet-
__________ ur þessar verða
fljótt þráar. Bragðið
því á hnetunum áður en þær eru
notaðar. í upprunalegum upp-
skriftum er yfirleitt gert ráð fyrir
Pecorino Romano-osti. Þar sem
hann er ekki fáanlegur hér á landi
ber að nota ferskan Parmesan
(Parmigiano Reggiano), sem fæst í
öllum betri verslunum. Og þá er
hægt að byrja. Það er ekki til nein
ein „rétt“ uppskrift að pestó. Hlut-
föll hráefnanna geta verið mjög
mismunandi eftir því við hvaða
uppskrift er stuðst. Hér er ein sem
hefur reynst mér vel.
Pesto Ferskt basil, um fímm hnef-
ar af laufum, ætti að samsvara um
tveimur blómapottum ef keypt er
ferskt basil. Laufin ættu nokkurn
veginn að fylia matvinnsluvélina.
2-3 hvítlauksgeirar
100 gr furuhnetur
150 gr Parmesan
um það bil 3 dl ólífuolía
salt og pipar
Aðferð: Hreinsið basil, þerrið.
Myljið hnetur í matvinnsluvél, bætið
basil og hvítlauk saman við. Næst er
Parmesan bætt saman við og saltað
og piprað. Þá er matvinnsluvélin
sett á lægsta hraða og olíunni bætt
við hægt og sígandi. Nú er hægt að
bera sósuna fram eða setja á krukk-
ur og geyma. Athugið að ef ekki á að
nota sósuna strax er æskilegt að
setja hana strax á ílát (til dæmis
gamlar sultukrukkur) og loka fyrir
þar sem pestóið missir lit ef það er
lengi í snertingu við súrefni. Fyllið á
krukkurnar með olíu ef þarf.
Þetta er sígild pasta-sósa og
hentar vel með spagettí, tagliatelle
eða linguine-pasta. Hana er gott að
nota eina og sér með pasta, eða þá
ásamt grænmeti, fiski (t.d. smá-
lúðu) eða öðru sem manni dettur í
hug. Pestó á einnig vel við kartöfl-
ur og er tilvalið með kartöflu-
gnocchi.
Þessa grunnuppskrift má útfæra
á óendanlega vegu. Nota má aðrar
kryddjurtir en basil, t.d. steinselju
eða óreganó. I Toskana er steinselja
gjarnan notuð og þá einnig valhnet-
ur í stað furuhnetna.
16. HVAÐ heitir listaverkið á myndinni, eftir hvern er það
og hvar stendur það?
Hvað er þursabit?
MENNING - LISTIR
1. Hvað heita íslensku keppend-
urnir í hinum vinsæla spurn-
ingaþætti Kontrapunktur, sem
sýndur hefur verið í sjónvarp-
inu að undanförnu?
2. Hvað merld „da capo“ í tónlist?
3. Árið sem Johann Sebastian Bach
lést fékk hann aftur nokkuð sem
hann hafði misst. Hvaða ár dó
hann og hvað hafði hann fengið
aftur skömmu áður?
SAGA
4. Hvenær hófst hernám Breta á ís-
landi og hvenær lauk því form-
lega?
5. Hver mælti hin fleygu orð og við
hvaða tækifæri: „Eigi skal
höggva“?
6. Af hverju ákváðu Bandaríkja-
menn á síðustu stundu að varpa
kjarnorkusprengju á Nagasaki
frekar en á Kokura, sem var
upphaflega skotmarkið?
LANDAFRÆÐI
7. Hvað heitir fjallshryggurinn
milli Eyjafjallajökuls og Mýr-
dalsjökuls?
8. Hvert er þriðja stærsta haf í
heimi?
9. Hvað heitir hæsti tindur
Færeyja?
ÍÞRÓTTIR
10. Ungur íslenskur knattspyrnu-
maður gerði nú í liðinni viku at-
vinnumannasamning við erlent
félagslið. Hver er maðurinn,
hvaða lið er það sem hér um
ræðir og hvaða íslendingar eru
þar fyrir?
11. Hvar og hvaða ár var HM í
knattspyrnu haldin þar sem
snillingurinn Pele vakti fyrst
heimsathygli?
12. Ein fræknasta frjálsíþróttakona
Islands varð nýlega að hætta
við þátttöku á alþjóðlegu frjálsí-
þróttamóti vegna þursabits.
Hvað heitir íþróttakonan, hvar
var mótið haldið og hvað er
þursabit?
ÝMISLEGT
13. Hver voru Hero og Leander og
hver urðu örlög þeirra?
14. Hvar í mannslíkamanum mynd-
ast adrenalín?
15. Hver sló golfkúlu fyrstur manna
á tunglinu og hvað eru margar
golfkúlur þar svo vitað sé?
■!H0A6n|jjn>|jA
-eu9x e jeuoss>|ijg sjieg gojs6ng g|A jnpuejs uossbujoi snu6E[j\| jjije jnQ!SJi|njOcl '91 'QS ge
-j|A oas jn|n>y|o6 jqIjcI nu rue jec| ue ‘eun|n>jj|06 njsjAj 0|S pjedeijg ueiv 'SL 'ejjei(eujAu 6jeiu
| yj 'U!l 6|s ung udjAS igeu>|>|njp uueg je6ec| ue 'jbuujs jbKsujjs? ||) punsnnen J|jA njjou ijjbalj
e jjuAs jspueei 'iunu6gs iun>|S!j6 j jnpue>(S|e ruoA jspuesn 6o ojsh '9 J 'J6i6j!|s ege !SO|>(S9fjq
'B'lu ‘ujn>(gsJO lunsLuA je jbjbjs 6o jnjeiejcj jjo '|>|eqpfLU ] Hisigjijs 6o jn>jjSA jn6s|!puÁ)s js
pec| ue ‘sjiqesjncj bu6sa Q9[d!As! guj|eiM j iudds>! j n>jgjjJ9ri 9!A ejjaeq ge qjba jujopesog epA
'Zl '8961 QOfc(jAs | 'jj 'uoss6ne|uun9 jbujv 6o uoss6jsg lugna jijAj njs jec| us '|pue|6ug
e uoiiog g|A 6u|uujes igjs6 ussuqofgno ublus jngg '0J 'jnpujjejejjæis '6 'jeqspueipui -g
•sipqngjgALULug '/ 'LunfÁxs U||nq jba ejnxox '9 'JBuosn|jnjs bjjous gjosjeipue njOA „BA66gq
[e>js |6g“ 'Q 'e6u|pus|S| 6o euueujeötuepueg i.ihlu Lunu6u|uujesjBpujSAjsq gscu jj>6J j|nf
! b6s|lujoj >jne| 6o ot6J elu 'OJ tsjpy ipueisj e ejsjg lubujsh 'V 'Jnjje euiuofs gi6usj ecj igjeq
6o 0SZJ 9M? jss| uubh '8 'ijeqddn pjj su|s>jjsa ejniq uege>|jeLUje e>|ejjnpus ge Lun hjsauoj
j næuuuAg z 'uossied ujq jngjeq>uu 6o uosseugp ssuueqpp 'Jijj^psugp jsjöjbiai bujj ' jugAS
Hvað er Herhalife ?
Magnús Jóhannsson læknir svarar spurningum lesenda
Spuming: Hvað er Herbalife og
hvert er hollustugildi þess? Hafa
langtímaáhrif á neytendur verið
könnuð til hlítar? Er vitað um eft-
irkvilla? Er skaðlaust eða jafnvel
hollt fyrir böm og unglinga að
neyta efnisins?
Svar: Herbalife er bandarískt fyr-
irtæki sem hefur starfað síðan um
1980 og framleiðir vörur sem ætlað
er að bæta heilsu fólks, m.a. hjálpa
því að grennast. Fyrirtækið fram-
leiðir mikinn fjölda af vörum sem
heita ýmsum nöfnum og innihalda
vítamín og steinefni, oftast í blönd-
um með ýmiss konar efnum úr
jurta- eða dýraríkinu. Þessar vörur
eru svo margar og margvíslegar að
erfitt er að fjalla um þær í einu
lagi. Margar af þeim eru eflaust
ágætar sem fjölvítamín og stein-
efnabiöndur en innihalda oftast
jurtir sem flestar eru meinlausar
en sumar er lítið vitað um eða þær
eru umdeildar. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Lyfjaeftirliti ríkisins
Hjálp við að
grennast
hefur hér á landi verið heimiluð
sala á rúmlega 20 vörutegundum
frá Herbalife. Hlutverk Lyfjaeftir-
litsins í þessu samhengi er að
reyua að tryggja að ekki séu hér á
markaði vörur sem líkindi eða
grunsemdir eru um að geti skaðað
heilsu neytendanna. Af þessum
ástæðum hefur ekki verið leyfð hér
á landi sala vörutegunda frá Her-
balife sem innihalda hina umdeildu
kínversku jurt ma huang. Ma hu-
ang er gamalþekkt kínversk lækn-
ingajurt sem einnig er þekkt sem
Efedra, Mormónate og Brighamte.
Ma huang inniheldur efedrín sem
er gamalt örvandi lyf sem er að
hverfa af sjónarsviðinu, einkum
vegna aukaverkana (ógleði, svefn-
leysi, skjálfti, hækkaður blóðþrýst-
ingur, hjartsláttartruflanir o.fl.).
Efedrín er hér á landi einungis í
einni hóstamixtúru (lyfseðilsskyld)
sem er ætluð til skammtímanotk-
unar. Sumir virðast halda að
efedrín sem kemur úr ma huang sé
meinlausara en annað efedrín, en
það er byggt á misskilningi. Til að
svara spumingum bréfritara eins
afdráttarlaust og hægt er þá má
segja að hollustugildi vítamína og
steinefna í hæfilegu magni sé ótví-
rætt. í sumum tilvikum ríkir
óvissa um jurtimar, langtímaáhrif
og hugsanlegir eftirkvillar hafa
ekki verið rannsakaðir á fullnægj-
andi hátt. Telja má víst að þær
vörutegundir sem leyfðar hafa ver-
ið hér á landi séu skaðlausar fyrir
fólk á öllum aldri en um hollustu er
ekki hægt að fullyrða vegna skorts
á rannsóknum.
Um fyrirtækið Herbalife og vör-
ur þess hafa lengi staðið deilur.
Deilur þessar og tortryggni era af
margvíslegum toga og byggjast
m.a. á sérkennilegri markaðssetn-
ingu, djörfum fullyrðingum sölu-
manna um vísindaleg vinnubrögð,
verkanir og lækningamátt vörann-
ar, efasemdum um hollustu sumra
efnanna sem notuð era (m.a. ma
huang) og gífurlegum auðæfum
aðaleiganda fyrirtækisins (Mark
Hughes). Sölumenn halda því
fram að gerðar hafi verið rann-
sóknir á verkunum þessara vöra-
tegunda í Bandaríkjunum og Bret-
iandi en það vekur tortryggni að
engar niðurstöður slíkra rann-
sókna hafa verið birtar í þekktum
læknisfræðitímaritum. I gagna-
granninum MEDLINE, en þar er
að finna næstum allt sem kalla má
bitastætt í læknisfræðirannsókn-
um síðan 1966, er aðeins ein rit-
gerð um Herbalife. Hún er á rúss-
nesku, frá árinu 1994 og í henni
era ekki niðurstöður rannsókna.
Það vekur einnig reiði og tor-
tryggni margra (hérlendis og er-
lendis) að ef einhver gagnrýnir
Herbalife eða framleiðslu þess
grípa sölumenn fyrirtækisins
gjarnan til persónuníðs til að gera
gagnrýnandann og málflutning
hans tortryggilegan. í bandarísk-
um tímaritum hefur því verið
haldið fram nýlega að nú halli svo
undan fæti hjá Herbalife að dagar
fyrirtækisins hljóti senn að vera
taldir. Þessu til stuðnings var bent
á að salan í Bandaríkjunum hafi
dregist mjög saman síðustu 10 ár-
in, í Frakklandi hafi salan minnk-
að úr 97 milljónum bandaríkjadala
á árinu 1993 í 12 milljónir árið
1996 og í Þýskalandi úr 159 millj-
ónum 1994 í 54 milljónir 1996.
Ekki skal lagður neinn dómur á
þetta hér en þó að salan hafi
minnkað er hún greinilega ennþá
álitleg.
•Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggur á bjarta.
Tekið er á móti spurningum á virkum
dögum milli klukkan 10 og 17 ( sfma 569
1100 og bréfum eða símbréfum merkt:
Vikulok, Fax 5691222.