Morgunblaðið - 08.08.1998, Side 50
50 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Helgi Ass
vann Agdestein
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Óhirt
svæði
ELDRI borgari hafði sam-
band við Velvakanda og er
hann með fyrirspurn um
hver eigi að sjá um auða
svæðið sem er hjá hinu
glæsilega mannvirki
Stjórnstöðvar Landsvirkj-
unar við Bústaðaveg, þar
sem stytta Ásmundar af
vatnsberanum er. Þetta
svæði er svo illa hirt að
skömm er að, sérstaklega
þar sem þessi fallega
stytta er staðsett þarna. Á
ekki Reykjavíkurborg að
sjá um hirðingu styttunnar
og umhverfis í ki’ingum
hana?
Það er synd að svona
faliegt svæði sé óhirt og
stórbrotið listaverk sé látið
standa þarna í illgresinu.
Slæm símaþjónusta
ÚTVARPSHLUSTANDI
hafði samband við Velvak-
anda og sagðist ekki
ánægður með símaþjón-
ustuna hjá Rás 2. Segist
hann vera utan af landi og
hann hafi reynt að hringja
í rúma klukkustund og það
hafi aldrei verið svarað.
Hver gerir við
sokkabuxur?
ÞURÍÐUR hafði samband
við Velvakanda og hefur
hún áhuga á að vita hvar
hægt sé að fá gert við
nælonsokkabuxur. Þuriður
er í síma 552 4149.
Gott Morgunblað
um verslunar-
mannahelgi
ÉG VAR mjög hrifin af
helgarblaði Morgunblaðs-
ins um Verslunarmanna-
helgina. Vil ég eindregið
hvetja þá sem ekki sáu
blaðið að lesa það því í því
voru t.d. þrjár mjög góðar
greinar. Viðtalsgrein við
Jón Steinar Gunnlaugsson,
stórkostleg grein. Þarna
er rætt við mann með
mjög mikla réttlætis-
kennd. Næsta grein var
eftir Olaf Odd Jónsson og
fjallar hún um kirkjuna,
heimsráð kirkna og hvern-
ig Tuto erkibiskup tjáir sig
um samkynhneigð og að
lokum sniðug og skemmti-
leg grein eftir Pétur Pét-
ursson, þul. Þetta var frá-
bært blað til að lesa fyrir
þá sem heima sátu um
verslunarmannahelgina.
Bryndís Bjarnadóttir.
Þakklæti fyrir
góða þjónustu
ÉG.VIL senda stúlkunum
hjá Tollstjóraembættinu,
þeim Hrafnhildi og Lauf-
eyju, sérstakar þakkir fyi'-
ir einstaklega góða þjón-
ustu og lipurð.
Þ.A.H.
Enn um
spilakvöld
ÉG ER eldri borgari sem
stundar spilamennsku.
Las ég í Velvakanda sl.
fimmtudag kvörtun frá
spilamannaeskju. Vil ég
benda þeim sem sækja
þessi spilakvöld á, að ef
það er ekki ánægt og
finnst eitthvað athugavert
að tala við stjórnanda
spilakvöldanna áður en
kvartað er opinberlega og
þá væri hægt að gera eitt-
hvað í málunum.
Eldri borgari.
Tapað/fundið
Refapels týndist
REFAPELS týndist frá
Hverfisgötu í Reykjavík.
Pelsinn er síður, silfurgrár
með ijósbrúnum hárum
með gráu fóðri, kræktur
að framan með litlum
kraga. Pelsinn var inni í
grárri hlífðarslá. Þeir sem
hafa orðið pelsins varir
hafi samband í síma
5518846 ogvs. 561 8166.
Peysa og eyrnalokk-
ur í óskilum
PEYSA Jager-jakkapeysa
grábrún, er óskilum á hár-
greiðslustofunni Spörtu
síðan 15. maí. Á sama stað
fannst eyrnalokkur 31. júlí.
Upplýsingar I síma
553 1755.
Úr týndist á
Akureyri
UR, litað og silfur, Bulove
Accutron, týndist á Akur-
eyri sl. sunnudag. Urinu
týndi erlend kona sem
stödd er hér á landi og
saknar hún þess mikið þar
sem það er erfðargripur.
Skilvis finnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
552 6970 og tali við Bryn-
hildi.
Dýrahald
Perla
er týnd
PERLA kötturinn okkar
hvarf frá Heiðarhjalla í
Kópavogi þann 25. júlí sl.
Perla á heima í Fagra-
hjalla 9. Ef einhver hefur
séð hana eða veit hvar hún
er er hann vinsamlegast
beðinn að hringja í síma
564 2963 eða 553 0078.
SKAK
Pmsjón Margeir
Pútiirssun
STAÐAN kom upp á
breska meistaramótinu
sem nú er að ljúka í Torqu-
ay. Keith Arkell (2.455) var
með hvítt, en Nigel Short
(2.660) hafði svart og átti
leik.
21. - Bxd4! 22. exd4 -
Rxd4 23. Da3 - Hxel 24.
Hxel - Rf3+
25. Khl -
Rxel 26. Da7
De7 og
hvítur gafst
upp því hann
hefur tapað
tveimur peð-
um og er þar
að auki í
krappri vörn.
Fyrir síð-
ustu umferð-
ina stóð
Short afar
vel að vígi, en
staðan var
þessi: 1.
Short 8V4 v.
af 10 mögulegum, 2. Sadler
7V4 v„ 3.-5. Peter Wells,
Hebden og Miles 7 v.
HOGNI HREKKVISI
£r hcfnrv ertrv cxS SL&st ? ''
Víkveiji skrifar...
SKAK
ílausdul, Noregi,
1.—9. ágúst
MINNINGARMÓT UM
ARNOLD J. EIKREM
Þriðja mdtið í norrænu VISA-bikar-
keppninni 1998-99 stendur nú yfir.
Helgi Áss Grétarsson er í öðru sæti.
YNGSTI stórmeistari okkar ís-
lendinga, Helgi Áss Grétarsson, tek-
ur nú þátt í minningarmóti um
norska skákfrömuðinn Arnold J.
Eikrem, sem haldið er í
Gausdal í Noregi. Mótið
er hluti af norrænu bik-
arkeppninni sem VISA
stendur fyrir. Sex um-
ferðum _ er lokið og er
Helgi Áss í öðru sæti
með 5 vinninga. Hann
vann góðan sigur á
sterkasta stórmeistara
Norðmanna, Simen Ag-
destein, í sjöttu umferð,
en Simen reyndist ís-
lenskum skákmeisturum
oft erfiður ljár í þúfu hér
á árum áður.
Áskell Om Kárason
tekur einnig þátt í mót-
inu og hefur staðið sig mjög vel. Eina
tapskák hans var gegn Simen Ag-
destein. Hann er með 4 vinninga í
5.-11. sæti. Röð efstu manna:
1 Jonny Hector SM 6 v.
2 Helgi Áss Grétarsson SM 5 v.
3-4 Heikki Westerinen SM,
Ralf Ákesson SM 414 v.
5- 11 Simen Agdestein SM,
Thorbjöm Hansen,
Florian Mossakowski,
Yaire Kraidman SM,
Kevin Richardson,
Gausel Einar SM,
Áskell Örn Kárason 4 v.
Simen Agdestein, 28 ára, er mjög
þekktur í Noregi, ekki bara sem
sterkasti skákmaður Norðmanna frá
upphafi heldur lék hann einnig með
norska landsliðinu í knattspymu.
Hann þui-fti að leggja skóna á hilluna
vegna meiðsla og hellti sér þá út í nám
í félagsfræði. Síðasta ár dvaldi hann í
Ástralíu við rannsóknir á því sviði.
Helgi Áss tefldi mjög skynsamlega
gegn honum, fór rólega af stað en
lagði síðan agn fyrir Agdestein sem
hann gat ekki staðist. Helgi hafði síð-
an mjög góðar bætur fyrir peð þegar
Norðmaðurinn lék af sér skákinni:
Hvítt: Helgi Áss Grétarsson
Svart: Simen Agdestein
Hollensk vörn
1. d4 - e6 2. Rf3 - d5 3. c4 - c6 4. e3
- Bd6 5. Bd3 - f5 6. 0-0 - Rh6 7. b3 -
De7 8. Re5 - 0-0 9. f4 - b6 10. Bb2 -
Bb7 11. Rd2 - Rd7 12. Hcl - Rf6 13.
cxd5 - Rxd5 14. Rdc4 - Bc7 15. De2
- a5 16. a3 - Hac8 17. Rf3 - Rg4 18.
h3 - Rgf6 19. Rce5 - Bd6 20. Rc4 -
Bb8 21. Hc2 - Rd7 22. g3 - R5f6 23.
Rfe5 - g6 24. b4! - axb4 25. Rxd7 -
Rxd7 26. axb4 - Bc7 27. e4 - Hfe8
28. Hel - fxe4 29. Bxe4 - Dxb4 30.
Ba3 - Da4 31. Dd3 - Kg7 32. Bb2 -
Rf6 33. Hal - Db5 34. Ha7! - Hb8
35. Bg2 - Rd5 36. He2 - He7?
37. Ba3!
Vinningsleikur því eins og fram-
haldið ber með sér er 38. Bxe7 ekki
aðalhótun hvíts í stöðunni. Svarta
drottningin er í ennþá meiri vand-
ræðum en hrókurinn.
37. - Hf7 38. Hb2 - Rxf4
Eina leiðin til að frelsa drottning-
una úr prísundinni.
39. gxf4 - Dh5 40. Re5 - Hxf4 41.
Bxc6 - Bxe5 42. dxe5 - Dxh3?
Örvænting eða skákblinda?
Svarta staðan var hvort eð var gjör-
töpuð eftir 42. - Hf7 43. Hf2!
43.Dxh3 og Agdestein gafst upp.
Hannes og Helgi á
Lost Boys-mótinu
Stórmeistararnir Hannes Hlífar
Stefánsson og Helgi Olafsson taka nú
þátt í afar sterku og fjölmennu skák-
móti í Antwerpen í Hollandi. Mótið
heitir því einkennilega nafni „Lost
Boys“-skákmótið. Nafnið er dregið af
heiti fyrirtækisins sem skipuleggur
mótið.
Þegar sex umferðum er lokið er
Hannes í 2.-7. sæti með 5 vinninga
og Helgi fylgir fast á
eftir með 4‘/2 vinning í
8.-14. sæti. Alls taka 400
skákmenn þátt í mótinu,
sem skipt er í þrjá riðla.
Islensku stórmeistar-
arnir tefla í efsta flokki
þar sem keppendur eru
120. Eins og áður segir
er mótið mjög sterkt.
Þannig eru t.d. sex
keppendur með yfir
2.600 skákstig. Röð
efstu manna er þessi að
loknum sex umferðum:
1 Jeroen Piket 5!4 v.
2-7 Hannes H. Stefáns-
son, Zurab Azmaiparas-
hvili, Boris Avrukh, Michael
Gurevich, Arthur Kogan, Rafael
Leitao 5 v.
8-14 Helgi Ólafsson, Raj Tischbier-
ek, Loek van Wely, Igor Sorkin,
Matthias Roeder, Joel Lautier, Ivan
Sokolov 4!4 v. o.s.frv.
í sjöundu umferð hefur Helgi hvítt
á móti franska stórmeistaranum Joel
Lautier og Hannes hefur svart á móti
tvítugum stórmeistara frá Israel,
Boris Avrukh.
Góð frammistaða Lilju
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tek-
ur nú þátt í skákmóti í Svíþjóð sem
eingöngu er skipað konum. Hún hef-
ur svo sannarlega staðið íýrir sínu á
mótinu og er með þrjá vinninga þeg-
ar fimm umferðir hafa verið tefldar.
Átján skákkonur taka þátt í mót-
inu og eru allar nema tvær með al-
þjóðleg skákstig. Lilja er önnur
þeirra. Hún virðist þó vera á góðri
leið með að komast inn á stigalistann,
því frammistaðan í fyrstu fimm um-
ferðunum er upp á 2.236 skákstig.
Efstar á mótinu eru:
1 Svetlana Agrest (2185) 4 v.
2-5 Johanna Paasikangas (2165),
Silvia Buervenich (2170),
Renata Henc (2195),
Ilze Rubene (2165) 3!/2 v.
6 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 3 v.
Bragi byrjar vel á Spáni
Fimm íslendingar taka nú þátt í
skákmóti á Spáni. Þeir byrja mótið
vel og t.d. er hinn ungi og efnilegi
skákmaður Bragi Þorfinnsson með
fullt hús eftir fyrstu þrjár umferðirn-
ar. Hinir eru ekki langt undan og
mótið er rétt að byrja, þannig að enn
getur allt gerst:
Bragi Þorfinnsson 3 v.
Jón Viktor Gunnarsson 2H v.
Bergsteinn Einarsson 2/2 v.
Jóhann H. Ragnarsson 2 v.
Arnar Gunnarsson 2 v.
Atkvöld verður haldið hjá Taflfé-
laginu Helli mánudaginn 10. ágúst.
Fyrst vei'ða tefldar 3 hraðskákir þar
sem hvor keppandi hefur 5 mínútur
til að ljúka skákinni og síðan þrjár at-
skákir, með 20 mínútna umhugsun.
Mótið fer fram í Hellisheimilinu í
Þönglabakka 1 í Mjódd, efstu hæð.
Mótið hefst kl. 20.00.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn Hellis (kr. 200 fyrir 15 ára
og yngri), en kr. 500 fyrir aðra (kr.
300 fyrir 15 ára og yngri). Sigurveg-
arinn fær máltíð fyrir tvo hjá Pizza-
húsinu. Þá hefur einnig verið tekinn
upp sá siður að draga út af handahófi
annan keppanda, sem einnig fær
máltíð fyrir tvo hjá Pizzahúsinu. Þar
eiga allir jafna möguleika, án tillits til
árangurs á mótinu.
Á síðasta atkvöldi, sem haldið var í
júlí, sigraði Daði Öm Jónsson, hlaut
5 vinninga. Gunnar Björnsson varð í
öðru sæti með 4'Æ vinning.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
FERÐALÖGUM um landið
undanfarnar vikur hefur það
vakið athygli Víkverja að svokölluð
handverkshús hafa sprottið upp eins
og gorkúlur, nánast í hverju þorpi
og hverri sveit. Víkverji heimsótti
nokkur þeirra og finnst þau þjóðleg
og skemmtileg viðbót við aðra verzl-
un og þjónustu á landsbyggðinni.
Fyrir ferðamenn er mjög til bóta að
geta gengið að frumlegum og „ekta“
smíðisgripum í smáverzlunum af
þessu tagi í stað þess að þurfa að
leita uppi handverksfólkið sjálft eða
láta sér nægja minjagripaskranið í
kaupfélögunum. Víða mátti sjá fal-
legt keramik, vandaðan útskurð og
tóvinnu, þótt auðvitað sé innan um
sitt af hverju, sem ekki er gert af
mikilli kunnáttu eða smekk. En þeir,
sem komið hafa handverkshúsunum
á fót, eiga hrós skilið.
VÍKVERJA fannst einkum og
sér í lagi skemmtilegt að sjá
hvernig til hefur tekizt á Grund í
Svarfaðardal, en þar hefur gamla
samkomuhúsið, eða Þinghúsið eins
og Svarfdælingar kalla það, fengið
nýtt hlutverk sem kaffi- og hand-
verkshús. Þar mátti fá rammís-
lenzkar veitingar með kaffinu og
handverkið var fallegt.
XXX
VARFAÐARDALSHREPPUR
sameinaðist í vor nágrannasveit-
arfélögunum, Dalvík og Árskógs-
strönd. Enn hefur nýja sveitarfélag-
ið ekki hlotið nafn. I skoðanakönn-
un, sem haldin var samhliða sveitar-
stjórnarkosningunum, hlaut nafnið
Árdalsvík, sem á að vera samsett úr
nöfnum allra sveitarfélaganna
þriggja, reyndar flest atkvæði.
Fleirum en Víkverja finnst þetta
einkar bjánaleg nafngift og nú segja
gárungarnir að fari svo að Ólafs-
fjörður og Hrísey bætist í hópinn,
eins og upphaflega var áformað,
verði sveitarfélagið að heita Óár-
dalsvíkurey!
XXX
VÍKVERJI vill að síðustu hrósa
sundlauginni á Dalvík, sem er
ein sú glæsilegasta á landinu. Þar
er frábær aðstaða fyrir börn, pott-
ar, buslupollar, rennibrautir, fossar
og bunur. Aðstaðan fyrir þau allra
yngstu er með ágætum - jafnvel í
karlaklefunum má finna barnastóla
og skiptiborð. Sumar sundlaugar á
höfuðborgarsvæðinu mættu taka
sér þetta til fyrirmyndar.
Helgi Áss
Grétarsson