Morgunblaðið - 28.08.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1998 49
VALDEMAR K. Jónsson raeð 20 punda hæng úr
Stallmýrarfljóti í Ytri-Rangá.
Silungsveiði
SOgð 1
MJÖG lífleg veiði er nú víða á
vatnasvæði Hvítár og Ölfusár í
Árnessýslu. Par er einkum sil-
ungsveiðin sem er nú í blóma,
sjóbii-tingur er byrjaður að
ganga af krafti og í Tungufljóti
við Geysi eru menn óðum að
uppgötva nýtt og skemmtilegt
svæði með vænum staðbundn-
um urriða. Alls hafa rúmlega
200 laxar veiðst í Ölfusá við Sel-
foss sem er allgott, en laxveiði
hefur dalað að undanfórnu og
þar geta menn nú keypt lax-
veiðileyfi á þusundkall.
Að sögn Ágústar Morthens í
Veiðisporti á Selfossi hefur sil-
ungasvæðið í Tungufljóti komið
skemmtilega upp að undan-
fömu. Veitt er frá fossinum
Faxa, sem er mjög neðarlega í
fljótinu og upp undir Geysi og
taldi Ágúst það vera 4-5 kíló-
metra langt svæði. Veitt er með
tíu stöngum, en framan af sumri
var svæðið lítið nýtt. „Það er að
breytast núna og fyrir stuttu
var hérna í búðinni hjá mér
maður sem hafði fengið þrettán
fiska, frá 1,5 og upp í 5 punda.
Annar var með sex fiska, 1,5 til
2,5 punda og fleiri hafa verið
með góða veiði. Mest hefur
veiðst á spón og maðk, en ég
veit af mönnum sem hafa fengið
veiði á flugu, þannig að hún gef-
ur líka,“ sagði Ágúst.
Voli vaknar
Sjóbirtingur er nú farinn að
ganga af krafti í Vola. „Þetta er
gott núna, á mánudaginn var t.d.
veiðimaður á miðsvæðinu sem
fékk tuttugu sjóbirtinga, 1,5 til 5
punda fiska og einn 5 punda lax
að auki. Þetta var mest veitt á
maðk. Veiðimaður í ósnum um
líkt leyti setti í marga en náði
aðeins þremur, en þeir voru allir
vænir, allt að 5 pund. Á efsta
svæðinu var og mikið af fiski, en
einhverra hluta vegna tók hann
afar illa þar,“ sagði Ágúst.
blóma
GUÐBRANDUR Einarsson
með 20 punda hænginn
sinn úr Stallmýrarfljóti-
í Ytri-Rangá.
Af öðrum svæðum er það að
segja, að lítil veiði hefur verið á
Snæfoksstöðum, fvrir viku voru
aðeins átta laxar komnir á land,
en á hinn bóginn hafa menn séð
talsvert mikið af laxi þar síðustu
daga.
Eins og að ofan var getið,
hafa veiðst rétt yfir 200 laxar í
Ölfusá við Selfoss og er almenn
ánægja með það eystra. Mjög
góð sjóbirtingsveiði hefur verið
samhliða að undanfórnu og hafa
menn verið að fá upp i 8-10
fiska. Menn hafa einnig fengið
fín skot frá Hrauni og Eyrar-
bakka.
Rólegt hefur verið á Tanna-
staðatanga og frá Laugarbökk-
um, sem eru fyrstu veiðisvæði
Ölfusár neðan Sogs. Slangur af
laxi hefur þó veiðst á tanganum
og nokkrir laxar á Laugarbökk-
um. Á báðum stöðum reytist
sjóbirtingur á land, en er það
eina sem veiðist suma daga.
Hópþjálfun Gigtarfélagsins
HÓPÞJÁLFUN Gigtarfélags ís-
lands byrjar aftur eftir sumarfrí
þann 14. september og eru allir vel-
komnir að vera með. Reynslan sýnir
að hreyfing og rétt þjálfun er gigt-
arfólki, og í raun öllum, afar mikil-
væg, segir í fréttatilkynningu.
I boði eru mismunandi hópar. Má
þar nefna létta leikfimi, og vatnsleik-
fimi. Auk þess er boðið í fyrsta skipti
upp á jóganámskeið, sem aðallega
eru ætluð einstaklingum með gigt.
Markmiðið er að bjóða upp á leik-
fimi fyrir alla, líka þá sem lítið geta
og vilja fara rólega af stað. Þjálfun-
in fer fram á mismunandi tímum
dags og ættu allir að geta fundið
tíma sem hentar.
Þjálfunin fer fram í húsi GI, Ár-
múla 5 og vatnsþjálfunin í Sjálfs-
bjargarlaug í Hátúni. Skráning og
nánari upplýsingar á skrifstofu GÍ.
Þjónustu-
vefur fatl-
aðra á
Netinu
SVÆÐISSKRIFSTOFA málefna
fatlaðra á Reykjanesi opnaði form-
lega þjónustuvef á veraldarvefnum
miðvikudaginn 26. ágúst s.l. Vefn-
um er ætlað að koma til móts við
þarfir fatlaðra sem og aðstand-
enda þeirra sem hafa aðgang að
Netinu og miðla nauðsynlegum
upplýsingum um starfsemi skrif-
stofunnar og málefni fatlaðra al-
mennt. Einnig er um að ræða upp-
lýsingagrunn fyrir aðrar stofnanir,
fyrirtæki og almenning, segir í
fréttatilkynningu.
Meðal efnis á vefnum eru um-
sóknareyðublöð um ýmsa þjónustu
sem Svæðisskrifstofa veitir. Þeir
sem vilja sækja um störf hjá
Svæðisskrifstofu geta lagt inn at-
vinnuumsókn á Netinu. Frá vefn-
um er hægt að senda tölvubréf til
Svæðisskrifstofu og koma á fram-
færi ábendingum. Einnig er á
vefnum yfirlit yfir þær starfsstöðv-
ar sem eru reknar á vegum Svæð-
isskrifstofu.
Á vefnum er jafnframt að finna
ítarlegar upplýsingar um starf-
semi Svæðisskrifstofu og upplýs-
ingar um lög og reglugerðir sem
Svæðisskrifstofa starfar sam-
kvæmt. Enn fremur hefur verið
sett upp síðusafn um málefni fatl-
aðra, bæði innlent og erlent, svo
og tengingar m.a. við opinberar
stofnanir og sveitarfélög.
Slóð vefsins er http://
www.smfr.is Almennt netfang:
smfr@smfr.is
í TILEFNI síðasta sýningardags Árbæjarsafns á þessu sumri verður
mikið um að vera á sunnudag.
Síðasti sýning-
ardagur Ar-
bæjarsafns
SÍÐASTI sýningai-dagur Árbæjar-
safns á þessu sumri verður nú á
sunnudag. Af því tilefni verður mik-
ið um að vera á safninu. Haust-
markaður verður haldinn þar sem
seldar verða kartöflur og grænmeti
úr matjurtagörðum safnsins. Létt-
sveit Harmóníkufélags Reykjavíkur
spilar fyrir dansi á Torginu frá kl.
14.
Auk þess verður hefðbundin dag-
skrá, handverkfólk verður við störf í
ýmsum húsum og Dillonshús býður
upp á Ijúffengar veitingar. Leik-
fangasýningin er opin og við Korn-
húsið eru leikföng fyrir börnin. Að-
gangur er ókeypis fyrir börn að 18
ára aldri, ellilífeyrisþega og ör-
yrkja. Almennur aðgangseyrir er
kr. 300.
Frá A-Ö
■ HLJÓMSVEITIN Reggae on Ice
leikur í Sjallanum Akureyri laugar-
dagskvöld.
■ INGÓLFSCAFÉ Föstudags-
kvöld spilar hljómsveitin Síðan
Skein Sól með Helga Björns
fremstan í flokki. Laugardagskvöld
DJ Gummi Gonzales þeytir skífurn-
ar föstudags- og laugardagskvöld.
■ KRIN GLUKRÁIN í aðalsal
fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld leikur
hljómsveitin í hvítum sokkum.
Hljómsveitina skipa þeir Guðmund-
ur Rúnar og Hlöðver Guðmunds-
son. I Leikstofunni föstudags- og
laugardagskvöld leikur Rúnar Guð-
mundsson.
■ LÓNAKOT, SKAGAFIRÐI Dú-
ettinn Cantabile, Gunnar Tryggva-
son, hljómborðsleikari og Herdís
Ármannsdóttir söngkona, heldur
dansleik í Tjaldi galdramannsins
laugardagskvöld.
urvivor
Verðkr. 5.990.
Big Student Pack
Verðkr. 5.990,-
Verðkr. 4.990.
Super Break
Verðkr. 3.500.
VERSLANIR
Fosshálsi 1 - S. 577-5858 - Skeifunni 19 - S. 568-1717