Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 01.10.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998 29 að sjá drauminn rætast, að ein- hverju leyti. Eg hlýt að búa yfir sterkum innri vilja enda breytist líf manns til muna frá fimm ára aldri til sextán, að ekki sé talað um sterk utanaðkomandi áhrif, þrýsting af ýmsu tagi.“ Mikko viðurkennir að ekki hafi allir tekið sig trúanlega þegar hann sagðist fimm ára gamall ætla að verða hljómsveitarstjóri að atvinnu. Skyldi engan undra - drengurinn stóð varla fram úr hnefa. Sennilega hafa Tarzan-tilburðir blaðamanns ekki heldur verið teknir alvarlega. Það er önnur saga. „í ellefu ár sveiflaði ég tónsprot- anum í svefnherberginu mínu, hvergi annars staðar, sem var að vissu leyti erfitt þar sem ég hafði ekki hugmynd um hvort ég fengi nokkurn tíma tækifæri til að láta ljós mitt skína. Ég fékk snemma á tilfinninguna að ég hefði hæfileik- ana til að takast þetta starf á hend- ur en óttaðist að fá ekki tækifærið. Það er lítils virði að vera svefnher- bergishljómsveitarstjóri á heims- mælikvarða!" En þar kom að því - Mikko fékk tækifærið. Það var ekki minni mað- ur en Jorma Panula prófessor, svo- nefndur meistari meistaranna í Finnlandi og lærifaðir manna á borð við Esa-Pekka Salonen, Jukka-Pekka Saraste, Sakari Oramo og Osmo Vánska, sem greiddi götu hans. „Panula er að nafninu til sestur í helgan stein en heldur annað veifið meistaranám- skeið við Síbelíusarakademíuna í Helsinki, þar sem hann kenndi lengst af, meðal annars fyrir unga nemendur. Þetta var árið 1995 og ég komst inn á námskeiðið þar sem ég hafði stundað fiðlunám við aka- demíuna um fjögurra ára skeið.“ Allir nemendurnir á námskeiðinu fengu fimm mínútur til að munda tónsprotann fyrir framan bekkinn og æfingamar í svefnherberginu hafa bersýnilega borgað sig því í kjölfarið bauð Panula Mikko að ger- ast einkanemandi sinn. Draumurinn var að rætast. í eitt ár var Mikko undir hand- leiðslu meistarans, hafði hann út af fýrir sig. Þá fékk pilturinn inn- göngu í hljómsveitarstjóranám við Síbelíusarakademíuna. Raunar þurfti Panula að koma að því máli þar sem Mikko hafði ekki náð til- settum aldri. Sama ár hófst hljóm- sveitarstjóraferill hans í Finnlandi og frá og með síðasta ári hefur Mikko Franck starfað á alþjóða- vettvangi. Eitt ár í akademíunni Algengt er að menn ljúki prófi í hljómsveitarstjórnun frá Síbelí- usarakademíunni á fjórum árum - ef þeir ljúka því á annað borð. Mikko lét eitt ár duga. Er það ekki óvenjulegt? „Jú, það er óvenjulegt, í þeim skilningi að flestir gefa sér lengri tíma í námið en ég. Annars hef ég ímugust á orðinu „venjulegur", það sem er „venjulegt" fyrir einn getur verið í hæsta máta „óvenjulegt“ fyr- ir annan. Einstaklingar þroskast og læra mishratt - mikill hraði virðist einfaldlega henta mér. I þeim skiln- ingi var þetta eina ár í akademíunni því „venjulegt" í mínu tilfelli." Mikko tekur skýrt fram að þótt hann hafi fengið prófskírteini sitt tiltölulega ungur að árum sé hann hvergi nærri hættur að læra - það geri hann aldrei. „Ég læri hverja einustu sekúndu sem ég er að stjórna, á æfingum, á tónleikum. Ég læri hverja einustu sekúndu sem ég dreg andann. Ég læri á starfið, á líf- ið. Þó ég sitji ekki lengur á skóla- bekk þýðir það ekki að ég sé full- numa - enginn er fullnuma! Ef menn telja sig vera það, hafa þeir einfaldlega rangt íyrir sér. Það er upphafið að endinum. Það gera allir mistök. Sjálfur geri ég fullt af mis- tökum - en það er vegna þess að ég er mannlegur en ekki vegna þess að ég er 19 ára.“ Mikko kveðst auðvitað hafa getað framlengt dvöl sína í Síbelíusaraka- demíunni um þrjú ár. En til hvers? „Ég hefði ekki verið neitt betur undir starfið búinn að þeim tíma loknum. Gallinn við skólastofur er nefnilega sá að maður lærir ekkert um hinn harða heim atvinnu- mennskunnai’. Hefði ég beðið í þrjú ár hefði ég því farið á mis við alla þá reynslu sem ég hef öðlast á undan- förnum tveimur árum.“ Allt snýst þetta um áskoranir og Mikko er sannfærður um að hann þrífist best á þeim - því stærri áskoranir, þeim mun betra. „Flest- um verkum sem ég stjóma á tón- leikum er ég að stjóma í fyrsta sinn - en einhvern tíma verður allt fyrst. í mínum huga er það líka engin trygging fyrir árangri að hafa stjórnað verki fimmtíu sinnum áð- ur. Ef maður er ekki gagnrýndur fyrir sömu hlutina aftur, þá er maður bara gagnrýndur fyrir ein- hverja aðra.“ Hjá Mikko hafa hlutirnir gerst hratt á stuttum ferli. Hann viður- kennir það en sér engin vandamál því samfara. „Ef mér fyndist líf mitt vera að þróast með óæskileg- um hætti myndi ég grípa í taumana. Á því leikur ekki vafi. Ég er hins vegar ákaflega ánægður, gæti varla liðið betur. Það eru for- réttindi að vera treyst fyrir þessu starfi 19 ára að aldri, að hafa bæði hæfileikana og tækifærið. Draum- urinn hefur ræst!“ Það er ekki ofsögum sagt að Mikko sé einn eftirsóttasti ungi hljómsveitarstjóri heims um þessar mundir. Hann hefur stjórnað öllum helstu hljómsveitum í heimalandi sínu, Konunglegu sænsku filharm- óniuhljómsveitinni, Sinfóníuhljóm- sveit Jerúsalem, hollensku út- varpshljómsveitinni og mörgum fleiri. Fyrr á þessu ári þreytti hann frumraun sína í Bandaríkjunum. Af næstu verkefnum hans má nefna uppfærslu á Töfraflautu Mozarts og Töfradrykk Donizettis í Finnsku óperunni, Carmen eftir Bizet í Konunglegu óperunni í Stokkhólmi og La Traviata eftir Verdi í Norsku óperunni. Þá mun Mikko koma fram sem gestastjórn- andi í Noregi, Svíþjóð, Belgíu, Ástralíu og Japan næsta árið, eða svo. í mörg horn að líta „Það er í mörg horn að líta og fyrir vikið er ég sjaldan heima hjá unnustu minni í Helsinki. En þannig er þetta. Ég gæti aldrei hugsað mér að vera njörvaður nið- ur á einum stað. Það er svo fróð- legt að kynnast nýjum stöðum, nýju fólki og nýrri menningu, í nánast hverri viku. Mér finnst ég alltaf vera fróðari eftir dvöl á nýj- um stað, ekki bara um þann stað og menninguna þar, heldur líka um menningu minnar eigin þjóðar, mig sjálfan. Mikil vinna þýðir líka að mér vegnar vel, ef mér gengi illa fengi ég ekkert að gera. Eg er meira að segja kominn í þá stöðu að geta valið og hafnað - mér ber- ast fleiri tilboð en ég get tekið.“ Mikko er eftirsóttur, um það er ekki að villast. Samt hafa heyrst raddir sem óttast að hann hafi stig- ið of snemma á svið. Sjálfur lærifaðir hans, Panula, hefur meira að segja sínar efasemdir. I viðtali við ritið Welcome to Finland 1998 skorar hann á menn að gjalda var- hug við æskudýrkun. Hún stafi oft aðeins af gróðahyggju. Tekur hann Mikko sem nærtækt dæmi: „Þegar umboðsmaður í Lundúnum gerði hosur sínar grænar fyrir honum virti hann orð mín að vettugi og gekk honum á hönd. Ég óttast að foreldrar hans hafi þar átt þátt í máli. Nú þiggur hann svimháar upphæðir fyrir að stjórna og litlar hljómsveitir hafa ekki lengur efni á honum. En hvar í ósköpunum á hann að æfa sig?“ Mikko er kunnugur röddum af þessu tagi og kveðst fólki þakklát- ur fyrir að hafa áhyggjur af sér. „Yfirleitt snýst þessi gagnrýni um aldur minn, frægðarfýsn og að ég sé leiksoppur umboðsmanna minna í Lundúnum. í fyrsta lagi fer ekk- ert á milli mála í samstarfi mínu við umboðsmenn mína að það er ég sem ræð ferðinni. Þeir vinna fyrir mig, ekki ég fyrir þá. Ég vel og hafna tilboðum, ekki þeir, til þess hafa þeir enga heimild og engan áhuga, ef því er að skipta.“ I annan stað kveðst Mikko þess fullviss að aldur sinn skipti engu máli. „Ég gæti litið á þessa gagn- rýni sem móðgun en geri það ekki. Hljómsveitarstjóri er ráðinn til að stjórna tónlistarflutningi og taka ábyrgð á starfi hljómsveitar það og það skiptið. Það gildir einu hvort hann er nítján ára eða níræður, hann verður að sinna skyldum sín- um. Hvernig honum tekst upp velt- ur á hæfni hans, gæðum hljóm- sveitarinnar og samvinnu þessara aðila. Aldur kemur málinu ekkert við!“ í þriðja lagi bendir Mikko á, að hann hafi alla tíð reynt sitt ýtrasta til að halda sér frá sviðsljósinu. Hann veiti til að mynda aldrei við- töl í heimalandi sínu og sárasjaldan á öðrum stöðum. „Þegar ég veiti viðtöl, eins og þetta, geri ég það í virðingarskyni við hljómsveitir, til að vekja athygli á tónleikum, ekki til að vekja athygli á mér. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að ég er í aðstöðu til að verða „stjarna", eins og það er kallað, en hef bara ekki áhuga á því. Tónlistin er mín- ar ær og kýr!“ I fyrrnefndu viðtali segir Jorma Panula að Mikko eigi á hættu að brenna út, þar sem hann ráðist svo snemma til atlögu við helstu verk tónbókmenntanna. Hvað hefur hann um það að segja? „Auðvitað eiga allir á hættu að brenna út á einhverju stigi ferils- ins, sama hvaða starf þeir stunda. Það er mér Ijóst. Einmitt þess vegna legg ég áherslu á að ofbóka mig ekki, gæta þess að taka mér alltaf gott frí inn á milli. í lok þessa árs mun ég til dæmis taka mér al- gjört frí í rúman mánuð, þótt verk- efni hafi staðið til boða. Ég kann nefnilega að meta þörfina fyrir hvíld, þannig og aðeins þannig, get ég haldið mér í toppformi. Þar fyr- ir utan liggur mér ekkert á - tím- inn er nægur!“ Afslöppun og flug I ljósi þessa kemur ekki á óvart að eftirlætis tómstundaiðja Mikkos sé að slappa af. „Þegar ég er ekki í vinnunni nýt ég þess að draga and- ann, það dugar mér, þó það hljómi kannski undarlega." Mikko kveðst einnig vera félags- lyndur og metur stundirnar sem hann á með fjölskyldu sinni og vin- um í Finnlandi mikils. Þá hefur hann gaman af að hitta nýtt fólk og kanna nýjar lendur - líta í kringum sig, upplifa. Mikko hefur líka hafið flugnám. „Ég get vel ímyndað mér að flugið eigi eftir að verða snar liður í afslöppun minni í framtíðinni. Það er varla hægt að hugsa sér betri aðferð til að dreifa huganum frá hljómsveitarstjórnuninni. Það stoð- ar lítt að hugsa um sinfóníur, þegar maður svífur um loftin blá.“ En hlustar hljómsveitarstjórinn aldrei á tónlist í frístundum sínum? „Jú, mikil ósköp. Ég er í raun alæta á tónlist en hlusta mest á dægurtónlist, popp, danstónlist. Þá sjaldan ég dreg fiðluna fram fer ég á veitingahús til að spila djass eða danstónlist.“ Aldrei klassík? „Nei, ekki í frístundum. Klassík- in á hug minn allan þegar ég er í vinnunni, þar fyrir utan vil ég gera eitthvað annað. Þekkirðu einhvern lækni sem er alltaf að skoða sjúk- linga í frístundum?" Tónleikarnir í kvöld leggjast vel í Mikko. Hann ber Sinfóníuhljóm- sveit íslands vel söguna, hún hafi á að skipa færu og harðduglegu fólki. Það kann hann að meta. Þá hafi samstarfið verið með miklum ágætum. „Það er gott að vinna með SI og þó ég viðurkenni fúslega að æfingar veiti mér yfirleitt meiri ánægju en tónleikar eru forsend- urnar fyrir góðum tónleikum svo sannarlega fyrir hendi.“ Lloyd Webber og Judith Ing- ólfsson TONLEIKARNIR í kvöld eru í Gulu röðinni en einkenni henn- ar eru voldug hljómsveitarverk. Alls verða sex tónleikar í röð- inni í vetur. 5. nóvember stjórnar Rico Saccani, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Islands, tónleikum með sellókonsert Edwards Elgars og verkinu Plánetumar eftir Gustav Holst. Einleikari verður Julian Lloyd Webber en auk hans kemur kórinn Vox Feminae fram á tónleikunum. Einar Jóhannesson klar- ínettuleikari og Unnur Svein- bjarnardóttir víóluleikari verða einleik- arar í Konsert fyrir klarínettu og víólu á tón- leikum 3. des- ember. Auk- inheldur eru á efnisskrá Þriðja sinfón- ía Roberts Schumanns og verk Atla Heimis Sveinssonar, Flower Shower. Hljómsveitar- stjóri verður Stephen Mosko. Gestir Sinfóníunnai- á tónleik- um í Hallgrímskirkju 4. febrúar verða Mótettukór Hallgríms- kirkju undir stjóm Harðar Áskelssonar og Bjöm Steinar Sólbergsson orgelleikari. Flutt verða Requiem og Orgelkonsert eftir Jón Leifs og Sinfónía nr. 6 eftir Anton Brackner. Hljóm- sveitarstjóri verður En Shao. 4. mars mun Edda Erlends- dóttir flytja Píanókonsert nr. 27 eftir Mozart ásamt hljómsveit- inni en auk þess verða 31. sinfón- ía sama tónskálds og Þriðja sin- fónía Felix Mendelssohns leikn- ar. Tónsprotinn verður í höndum Ricos Saecanis. Lokatónleikar Gulu raðarinn- ar verða haldnir 15. apríl og mun Petri Sakari, fyrrverandi aðal- hljómsyeitarstjóri SI, stjóma þeim. Á efnisskrá era Sinfónía nr. 10 eftir Dmitrij Sjostakovitsj, svíta úr óperanni Vikivaka eftir Atla Heimi Sveinsson, þar sem Signý Sæmundsdóttir syngur einsöng, og Fiðlukonsert nr. 1 eftir Sergei Prokofieff en þar mun Judith Ingólfsson koma í fyrsta sinn fram með Sinfóní- unni. Hún vann, sem kunnugt er, til fyrstu verðlauna í Alþjóðlegu fiðlukeppninni í Indianapolis á dögunum. Judith Ingólfsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.