Morgunblaðið - 01.10.1998, Side 50
50 FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
SÝNISHORNIS er OPIN SIÓN-
varpsrás sem þú færð
sjálfkrafa aðgang að þegar þú
tengist breiðbandinu.
í Sýnishominu eru kynntar þær
stöðvar sem í boði eru á Breiðvarpinu. Hver stöð er
send út opin í heilan mánuð í senn og þannig gefst
góður tími til að kynna sér efni hennar.
SÝNISHORNIÐ
Synishorn
í OKTÓBER
l í október verður hin vin-
i sæla kvikmyndarás TNT
Classic Movies kynnt í Sýnishorninu en hún
sendir út bíómyndir allan sólarhringinn á
Breiðvarpinu.
Hrekkjavökuhelgi!
Síðustu helgina í október verður TNT undirlögð af mörgum
frægustu hryllingsmyndum kvikmyndasögimnar, allt ffá
Dr. Jekyll and Mr. Hyde til Poltergeist.
Myndir úr lífi Hollywood
Á hverjum miðvikudegi í október verða sérstakir þættir
tileinkaðir gömlu Hollywoodstjömunum þar sem þekktir
leikarar á borð við Liam Neeson og Jodie Foster fjalla um
líf og myndir Clark Gable, Bette Davis, James Cagney o. fl.
Gamanmyndir
Á mánudögum og miðvikudögum í október em sýndar
sígildar gamanmyndir sem engu hafa tapað af róman-
tískum sjarma sínum.
TNT er fjölbreytileg kvikmyndarás fyrir
fólk á öllum aldri.
'T KOSTNAÐARMAT
-iggja daga frá fvi að 1?aS’
„Saaarmat á iokafrágang
tnband í gjaldfr)álst þjónustunumer. 800 7474-
20.000 HEIMHIEIGA ÞESS NÚ KOST
AÐ TENGJAST BREIÐBANDINU OG
MUNU ÞÚSUNDER HEIMILA BÆTAST
VIÐ Á NÆSTU MÁNUÐUM.
Hrxngdv STRAX
OG KYNNTU frfill MÁUDI
mn 7474
Opið til kL 22 á kvöldin og 17 um helgar
FRÉTTIR
‘ Morgunblaðið/Ásdís
FRÁ vinstri: Aðalsteinn G. Helgason og Kristján Helgason úr Breiðholtsskóla, Bragi Reynisson og Björgvin
Benediktsson úr Engidalsskóla og Guðmundur Þórsson og Adam Fannarsson frá Grunnskólanum á Tálknafirði.
Engidalsskóli sigraði í
hjólreiðakeppni grunnskóla
EN GIDALSSKÓLI í Hafnarfirði
sigraði í hjólreiðakeppni grunn-
skóla sem lauk við Perluna í
Reykjavík laugardaginn 26. sept-
ember sl. Átta skóiar höfðu
áunnið sér rétt til þátttöku í úr-
slitakeppninni en einn mætti ekki
vegna veikinda keppenda.
I öðru sæti varð lið Grunnskói-
ans á Tálknafirði, en Breiðholts-
skóli í Reykjavík hafnaði í 3. sæti.
Keppendur eru nemendur í 8.
bekk en voru enn í 7. bekk þegar
forkeppnin fór fram á sl. vori.
AIls tóku um 4.000 börn þátt í
keppninni víðs vegar um Iandið.
Sigurliðið úr Engildalsskóla var
skipað þeim Björgvini Benedikts-
syni og Braga Reynissyni.
Umferðarráð, lögreglan um
allt land, sveitarfélög og Bind-
indisfélag ökumanna standa að
þessari keppni sem er árviss við-
burður.
Arétting vegna
fréttar um GPS-tæki
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu
23. september síðastliðinn, um að
GPS-eigendur geti lent í vanda í
ágúst 1999, hefur R. Sigmundsson
sent frá sér eftirfarandi athuga-
semd. Fyrirtækið er umboðsaðili
fyrir GPS-tæki af gerðinni Garm-
in:
„Tvöþúsund-vandamálið svokall-
aða mun ekki hafa nein áhrif á
starfsemi GPS-tækja frá Garmin.
Garmin hefur gert ráð fyrir þessu
vandamáli frá upphafi og því munu
þau starfa eðlilega eftir árið 2000.
Tæki sem byggja á tvítalnakerfi
munu sýna 00 fyrir það ár, 01 fyrir
2001 o.s.frv.
Annar mikilvægur atburður
verður 22. ágúst á næsta ári eins
og fyrrnefnd grein í Morgunblað-
inu fjallaði um eða svokallað „GPS
week number rollover“. Þá munu
vikuteljarar sem GPS tækin nota í
kerfínu breytast úr 1023 í 0. Þetta
mun ekki hafa áhrif á Garmin-tæk-
in þó að þau verði í notkun meðan
breytingin verður.
GPS-kerfið er starfrækt af
bandarískum stjómvöldum. Þau
bera ábyrgð á nákvæmni og við-
haldi kerfisins, þar með töldum
vandamálum vegna ársins 2000 og
svokölluðu „GPS week number
rollover“.“
Vitni óskast
RANNSÓKNARDEILD lögreglunn-
ar í Hafnai-firði óskar eftir vitnum að
hörðum árekstri sem varð á gatna-
mótum Álftanesvegar og Hafnar-
fjarðarvegar við Engidal sunnudags-
kvöldið 27. september um kl. 20.30.
Jeppi og rauð fólksbifreið lentu
saman á gatnamótunum og biður
lögreglan í Hafnarfirði þá sem sáu
áreksturinn að hafa samband vegna
málsins.
-------------
Handverks-
markaður á
Eiðistorgi
KVENFÉLAGIÐ Seltjöm á Sel-
tjarnarnesi stendur fyrir handverks-
markaði laugardaginn 3. október frá
kl. 10-17.
Um 50 aðilar víðsvegar af landinu
sýna og selja fjölbreytta nytjalist.
Kvenfélagið verður með kaffi- og
vöfflusölu.
-----♦-♦-♦---
LEIÐRÉTT
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
Landsst. 5998100119 VIII
I.O.O.F. 5 * 1791018 = 9.0*
Hjálpræðis-
herinn
Kírkjustræti 2
Kl. 20.30 lofgjörð og bæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferðir sunnud. 4. okt.
Frá BSÍ kl. 10.30 Búrfell í
Grímsnesi. Gengiö á Búrfell frá
Kattahrygg og y-fir fjallið. Komið
niður hjá Krókhólum.
Skælingar við Eldgjá
2.-4. okt. Vígsluferð í Skæl-
inga. Skoðunarferð um Skæl-
ingasvæðið og Eldgjá. Endurnýj-
að gangnamannahús f Skæling-
um vígt. Gist í Hólaskjóli. Þátt-
taka tilkynnist á skrifstofu Úti-
vistar. Hægt er að fara á eigin
bílum í Hólaskjól.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MORKINNI6 -SlMI 568-2533
Laugard. 3. október kl. 9.00
Árbókarslóðir: Hagavatn o.fl.
Einstakt tækifæri til að kynnast
haustfegurð óbyggðanna ofan
Blskupstungna undir leiðsögn
Gfsla Sigurðssonar blaða-
manns og höfundar árbókar FÍ
1998, en bókin fjallar um þetta
svæði. Farið m.a. að Hagavatni
og hluta Línuvegarins niður í
Haukadal. Hagavatnssvæðið er
komið í fréttirnar vegna fram-
hlaups skriðjöklanna þar. Verð
2.800 kr. Brottför frá BSÍ, austan-
megin og Mörkinni 6.
Sunnudagsferðir 4. október
kl. 10.30, Selvogsgatan,
gömul þjóðleið og kl. 13.00
Þingvellir ( haustlitum og
hellaskoðun í Gjábakka-
lirauni, fjölskylduferð.
KENNSLA
Myndlistaskóli Margrétar
Ný og fjölbreytt námskeið fyrir
alla aldurshópa. Upplýsingar og
innritun í síma 562 2457.
Laufey Sæunn
TrygKvadóttir Kjartansdóttir
Myndavíxl
MEÐ grein Sæunnar Kjartansdóttur,
Hin tilgátan um átröskun, sem birtist
í blaðinu í gær, birtist fyrir mistök
mynd af Laufeyju Tryggvadóttur
faraldsfræðingi. Sú mynd átti að birí>
ast með grein Laufeyjar, Annar val-
kostur en einn miðlægur gagna-
grunnur, sem birtist sl. þriðjudag.
Morgunblaðið biður þær velvirð-
ingar á mistökunum.
Hagavatn
I grein í Morgunblaðinu í gær um
framhlaup og mögulegt flóð úr Lang-
jökli sunnanverðum misritaðist nafn
Hagavatns og var það nefnt Haga-
fellsvatn. Leiðréttist það hér með.