Morgunblaðið - 08.11.1998, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Rússland
hefur séð
það svartara
Rússar eru sagðir þolgóð og nægjusöm
þjóð sem þekkir þrengingar og matarskort
vel. En efnahagserfiðleikanna sér ekki að-
eins stað í buddunni, þeir ýta undir spill-
ingu þótt þeir veiki tæplega lýðræðið, að
mati viðmælenda Urðar Gunnarsdóttur
sem var nýlega stödd í Moskvu.
Morgunblaðið/UG
RÚSSNESK æska gengur fram hjá grafhýsi Lem'ns við Kremlarmúrana í Moskvu. Framtíðin er vissulega
ekki björt en samt var engan vonleysissvip að sjá á þessum ungu andlitum.
Flokkakerfið í
ALEXEI Podberjozkín
RÚSSAR eru þolgóð og
kaldhæðin þjóð. Á síðustu
mánuðum hafa þeir gengið
í gegnum miklar þrenging-
ar, stjómarkreppu og efnahagsöng-
þveiti, og við blasir erfíður vetur. En
jieir bera höfuðið hátt, rifja upp
þrengingatímabil í sögu rússnesku
þjóðarinnar, enda sagan hluti af
reynsluheimi hennai-, og draga svo
dár að öllu saman. Hver dagur ber
nýjan bankabrandara í skauti sér,
hvort sem verðið á brauði í búðunum
hefur hækkað eða gengi rúblunnar
lækkað.
„Rússland hefur séð það svart-
ara,“ er jafnan viðkvæðið í Rúss-
landi, hvort heldur er á meðal stjórn-
málamanna, embættismanna eða
fólksins á götunni. Fólks, sem segist
þeirrar trúar að Rússland muni hafa
betur í baráttunni við kreppudraug-
inn og segist trúa því að ástandið
versni ekki frekar, þrátt fyrir
hrakspár hagfræðinga. Reyndar
segir Olga, sem var að kaupa notuð
gönguskíði handa syni sínum, að hún
þori hreinlega ekki að hugsa um
framtíðina. Enn sem komið er geti
hún og eiginmaðurinn lifað af laun-
unum en enginn viti hversu lengi.
Það er hálfóraunverulegt að
ímynda sér að matarskortur kunni
að verða útbreiddur er líður á vetur-
inn. Nú er haust og nægur matur í
hillum verslana og á markaðstorg-
um. Víst eru viðskiptavinimir fáir og
haga innkaupunum öðravísi en áður
en á yfirborðinu lítur allt vel út. I
Moskvu era framkvæmdir í fullum
gangi og þeir sem áður hafa heim-
sótt borgina hafa á orði hve gífurleg-
ar breytingar til batnaðar hafi orðið
þar á örfáum árum.
Það sama á hins vegar ekki við um
borgir og bæi utan höfuðborgarinn-
ar, þar sem skorturinn er víða mikill
og niðurníðslan óskapleg. Munurinn
á Moskvu og mörgum stöðum utan
hennar er svo mikill að í raun væri
líklega réttast að tala um tvær þjóð-
ir. Dæmi um þetta er Murmansk,
sem undirrituð heimsótti ekki alls
fyrir löngu, þar sem leifar sovéttím-
ans, hálftómar hilltu-, bláfátækt fólk
og skelfilega niðurnídd húsin eru í
hróplegu ósamræmi við Moskvu, þar
sem aðeins ein Lenínstytta stendur
eftir til marks um sovéttímann, í
ljóma vestrænna Ijósaskilta.
Hvað eftir annað hafa menn talið
að nú hlyti þolinmæði rússnesku
þjóðarinnar að vera á þrotum en þol-
gæði hennar er engu líkt. Efnahags-
þrengingarnar nú, sem menn hafa
nú þegar fundið óþyrmilega fyrir
hafa heldur ekki orðið til þess að fólk
flýi örbirgðina. Rússneska þjóðin
þraukar, jafnvel þótt ekki sé um
langan veg að fara yfír til allsnægt-
anna. Fátæktin í Kirjálahéruðunum
við finnsku landamærin, hefur ekki
hrakið íbúana yfír til Finnlands. Hún
gerði það ekki þegar hungrið var
sem mest eftir valdatöku bolsévíka
fyrr á öldinni og gerir það ekki núna,
segja menn.
Spillingin mesti vandinn
Margir eru þeirrar skoðunar að
mesti vandinn sem blasir við Rúss-
um sé spillingin. Hægt væri að eyða
mörgum dögum í að telja upp hvera-
ig hennar sér stað. Hvernig frétta-
menn þiggja fé frá stjómmálamönn-
VEIKINDI Borísar Jeltsín
Rússlandsforseta hafa
beint athyglinni að því hve
ómótað hið pólitíska kerfi
er. Flokkakerfið er í mót-
un, nú eru fyrir ótalmargir
smáflokkar með háleit
nöfn sem gefa litla hug-
mynd um hvað býr að baki.
Margir eru þeir stofnaðir í
kringum einn mann, t.d.
flokkur Viktors
Tsjernómyrdíns, fyrrver-
andi forsætisráðherra, og
hafa loðnar og óskýrar
stefnuskrár upp á að
bjóða. Hins vegar stofnaði
valdamesti maður Rúss-
lands, Borís Jeltsín, aldrei
stjórnmálaflokk, og segir
það líklega meira en mörg
orð um rússneska pólitík þar sem
menn hafa forðast að tengjast um
of ákveðnum flokkum. Enda hafa
stjórnmálin einkennst um of af
hagsmunapoti, þar sem hver reynir
að tryggja sér og sínum sem mest á
meðan færi gefst.
Nú þykja stjómmálamenn hins
vegar sýna aukna ábyrgð, um það
beri vitni nýstofnaðir flokkar og
flokkar í fæðingu. Ekki em þó allir
sannfærðir um að flokkarnir eigi
langan líftíma fyrir höndum,
áhrifamaður í rússneskum sljóm-
málum lýsti því yfir að flestir
myndu þeir deyja drottni sínum
þegar að Ioknum kosningum.
Greinileg hreyfing er inn að
miðjunni, í átt að jafnaðarmennsk-
unni. „Stjórmnálamennirnir horfa
til Evrópu og vonandi er um meira
en hreina tækifærismennsku að
ræða, að menn telji ekki eingöngu
að jafnaðarmannastimpillinn tryggi
þeim sjálfkrafa sigur," segir Alían
Rousso, yfirmaður Camegie-rann-
sóknarstofnunarinnar.
Einn þeirra sem sækja í átt að
miðjunni er Alexei Podbeijozkín,
formaður Andlegu arfleifðarinnar,
fiokks sem verið hefur í kosninga-
bandalagi með kommúnistum. Pod-
beijozkín er varaformaður þing-
nefndar sem fer með erlend við-
skipti og er talinn rísandi sljarna á
vinstri væng stjórnmálanna. Hann
segist kristilegur sósíalisti og sver
um fyrir að fá að koma fram í þáttum
þeirra. Hvernig umferðarlögreglan
sektar menn á staðnum, hvort sem
þeir hafa brotið af sér eður ei.
Hvernig skólastjórinn byggir hús
fyrir sig og nánustu ættingja á sama
tíma og kennararnir fá ekki borguð
iaun.
Vítalí Popov, yfirmaður lögreglu-
skólans í Moskvu, kennir breyting-
unni yfir í markaðskerfi um spilling-
una, hún sé til marks um skort á
skýrum eignarrétti. „Ég hef aldrei
kynnst öðru eins og nú. I gamla daga
gerðu menn hver öðrum greiða, nú
berjast menn bara við að hagnast
sjálfír án nokkurs tillits til náungans.
Einna verstir eru embættismennirn-
ir sem hafa allt of frjálsar hendur um
túlkun óskýrra laga. Fjölmargir
embættismenn eru í beinum tengsl-
um við glæpahópa og þeir, svo og
af sér kommúnistastimpilinn. Pod-
beijozkfn og flokksmenn hans segj-
ast byggja á hugmyndafræði jafh-
aðarmennskunnar og séu ekki eini
flokkurinn um það. Hins vegar
reynist það þrautin þyngri að út-
skýra fyrir kjósendum hvað felist í
slíkri stefnu, ekki síst vegna þess
að miðstéttin sé vart til í Rússlandi.
Segir Podbeijozkín gríðarlega
vinnu liggja í því að móta hug-
myndafræði og stefnu fiokks og þá
ekki síður að koma henni á fram-
færi við fjöhniðla, sem krefjist
hárra greiðslna fyrir að taka viðtöl
við stjórnmálamenn.
Podberjozkín er ekki sá eini sem
hefúr eða stefnir að því að rjúfa
tengslin við kommúnistaflokkinn,
því Gennadí Seleznjov, forseti
dúmunnar og fleiri leggja nú aukna
áherslu á sjálfstæði sitt.
Rousso segir Ijóst að næsti forseti
verði ekki eins valdamikill, enginn
vilji stjórnarskrána eins og hún sé,
og hann er ekki einn um þá skoðun.
„Fólk sér að það stenst ekki lengur
að einn maður hafi jafnmikil völd
og Jeltsín hafði. Nú þegar eru
menn farnir að leita leiða við að
minnka völd forsetans sem er af
hinu góða. En það býður heim
hættunni á illa ígrunduðum ákvörð-
unum.“
Þegar spáð er í spilin fyrir næstu
forsetakosningar hafa margir fund-
ið að því að átakanlegur skortur sé
ýmsir stjórnmálamenn og fjár-
glæframenn, reyna með öllu móti að
hindra setningu laga sem tekið gætu
á spillingunni. Lög gegn spillingu og
skipulagðri glæpastarfsemi hafa
beðið afgreiðslu í þinginu í þrjú ár og
engin lög eru til um brot á skattalög-
um. En þegar stöðugleiki kemst á í
efnahagnum leiðir það til þess að það
dregur úr afbrotum. Nú eru heilu
þættir markaðskerfisins rotnir í
gegn.“
Popov er ómyrkur í máli þegar
talið berst að stjómmálamönnum,
sem hann segir hugsa fyrst og fremst
um að tryggja eigin hagsmuni á þeim
fjórum árum sem þeir sitji á þingi,
því fæstir þeirra nái endurkjöri og
því verði að nýta tímann sem best.
Allt of mörg dæmi séu um þingmenn
og aðstoðarmenn þeirra sem hafí
komist í kast við lögin.
mótun
á sterkum frambjóðendum.
Fylgi þeirra sem helstir
séu nefndir til sögunnar,
Júrí Lúsjkov, borgarstjóri í
Moskvu, og Alexander
Lebed, sé ákaflega tak-
markað og mikil andstaða
við báða; Lúsjkov sæki vin-
sældir sínar nær eingöngu
til Moskvu og margir geti
ekki sætt sig við að fyrr-
verandi herforingi, Lebed,
kunni að stjórna landinu,
maður sem auk þess hafi
ekki sýnt neinn árangur
sem héraðsstjóri. „Kannski
skýtur einhver Kwasni-
ewski upp kollinum í lok
kosningabaráttunnar, “
segir Podbeijozkín vé-
fréttalegur á svip og vísar
þar til kosningasigurs Aleksanders
Kwasniewskis, fyrrverandi komm-
únista, í Póllandi fyrir þremur ár-
um. Sjálfur hefur Podberjozkín og
hinn nýi flokkur hans verið nefndur
í tengslum við forsetakosningamar,
þótt óvíst sé hvort hann ætli sjálfur
fram.
Þeir sem næstir hafa staðið for-
setanum hafa misst völd. Eitt fyrsta
alvarlega merkið um upplausn í liði
forsetans var brotthvarf Sergeis
Jastrembskís, talsmanns Jeltsíns
síðsumars. Eru margir stjórnmála-
skýrendur og stjórnmálamenn
þeirrar skoðunar að ætli menn sér
að eiga einhveija von um sigur i'
forsetakosningum verði þeir að
halda sig eins langt frá forsetanum
og kostur er.
Átökin á milli forsetans og
dúmunnar, og síðar veikindi hans,
hafa sett mark sitt á rússnesk
stjórnmál. Þau hafa dreift athygli
þeirra sem hefðu þurft að veita
allri orku sinni í að stýra landinu í
gengum þann ólgusjó í efnahags-
málum sem það hefur verið í und-
anfarna mánuði.
Niðurstaðan er valdabarátta
sem hefur og mun seinka því að á
Iaggirnar komist stöðugt flokka-
kerfi þar sem menn leggja fram
mótaða stefnu til lausnar á vanda-
málum Rússlands til lengri tíma.
En þróunin í þá átt er engu að síð-
ur hafin.
350 lögregluþjónar
falla árlega
Og glæpunum fjölgar, þótt nor-
rænir lögreglumenn, sem starfa í
samvinnu við rússnesku löggæsluna,
segi að hættulegra sé að vera á ferli í
miðborg Stokkhólms að kvöldlagi en
í Moskvu, enda hafi rússneska lög-
reglan náð árangri í bráttunni gegn
ofbeldisglæpum. Jafnhliða fjölgun
glæpa, ekki síst skipulagðrai- glæpa-
starfsemi, fækkar dómstólunum
vegna fjárskorts. Dæmi eru um að
dómstólarnir eigi ekki pappír til að
skrifa á og tölvur eru afar sjaldséð
sjón, segir Nikolaj Pavlov, sérfræð-
ingur í hegningarlögum við lögreglu-
skólann.
Lögreglan fer ekki varhluta af
spillingunni og þar eins og annars
staðar er unnið við erfiðai- aðstæður,
fjöldi manns um hvern síma og tölvu,
og undir hælinn lagt hvort löggæslu-
mennirnir fá laun. Því freistast sum-
ir tO að verða sér úti um fé, t.d. með
því að sekta menn fyrir litlar eða
engar sakir.
„Fjölmiðlar hamast í lögreglunni
og segja hana spillta. Það þykir mér
óréttlátt. Þótt vissulega séu dæmi
um spillingu gerum við okkar besta í
hættulegu starfi. Gleymið því ekki að
árlega deyja 350 rússneskir lög-
regluþjónar við störf. Það eru ýmsir
áhrifamiklir aðilar sem vilja veikja
lögregluna og hafa góðan aðgang að
fjölmiðlum til að sverta okkur. En
það jákvæða við þetta óskaplega
ástand," segir Popov og glottir, „er
að við verðum okkur úti um reynslu
sem við getum selt fyrir dollara.“
Stefnir tæpast
lýðræðinu í voða
Kreppunnar sér merki alls staðar.
Sjónvarpsmaðurinn Lev Bruni
kveðst þeirrar skoðunar að hún
skaði t.d. tjáningarfrelsið. Blaða-
menn hljóti að hugsa sig tvisvar um
áður en þeir skrifi eitthvað sem
kunni að reita yfirmenn þeirra og þá
sem þeim tengist til reiði. Líklega
skili enginn fjölmiðill hagnaði og þeir
sem fái greidd laun fá „svartar“
greiðslur, sem hafi einnig áhrif á um-
fjöllun þeirra.
Sú spurning skýtur aftur og aftur
upp kollinum, hvort lýðræðinu í
Rússlandi sé hætta búin af krepp-
unni. Flestir stjórnmálaskýrendm-
virðast þeirrar skoðunar að það
standi nægilega styrkum fótum til að
þola það áfall sem efnahagskreppan
er. Þeir eru einnig til sem telja að
hún sé óhjákvæmilegur fylgifískm-
lýðræðisumbóta, þær séu í eðli sínu
sársaukafullar.
Rússneski blaðamaðurinn Nikolaj
Meinert er ekki eins bjartsýnn á
framtíðina. Meinert liggur ekki á
skoðunum sínum, segir Rússland
vera „stórt sálfræðilegt vandamál.
Þetta er í fyrsta sinn sem til er rúss-
neskt ríki, lýðræðisríki. Hvað er
það? Eitt svarið við því er að það sé
tvískipt, í Moskvu og svo allt utan
hennar. Vandamálin eru endalaus og
ástandið skelfilegt.
Þolgóðir og nægjusamir
Svona er ástandið í upphafi vetrar.
Uppskera haustsins var með
minnsta móti, kreppan rýrði eignir
fólks, hundrað þúsunda hafa misst
vinnuna og sumir segja að einn
nauðsynlegasti þáttur þess að á
komist eðlilegt ástand í Rússlandi,
miðstéttin, sé dauður. í bili að
minnsta kosti
Nágrannar Rússa í Eystrasalts-
ríkjunum eru þó þeirrar skoðunai- að
horfurnar séu ekki biksvartar,
minna á að enn hafi tiltakanlega fáir
Rússar haft kynni af vestrænum lífs-
gæðum og að þeir séu í eðli sínu
nægjusamir. Fjöldi fólks, t.d. í
Kirjálahéruðunum, þekki skortinn
og fátæktina mætavel, og muni vafa-
laust komast í gegnum þetta erfíð-
leikaskeið. En hvert framhaldið
verður, hvort ástandið versnar og þá
hve mikið, skal ósagt látið. „Efna-
hags- og stjórnmálaöngþveitið í
Rússlandi er byrjunin á einhverju,"
sagði lettneskur embættismaður,
„ég veit bara ekki hverju."