Morgunblaðið - 08.11.1998, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 08.11.1998, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Brandara- karlar í geimnum MANNKYNIÐ heldur áfram að sigrast á sjálfu sér og metin eru slegin eitt af öðru. Júrí Gagarín var fyrstur út í geiminn. Neil Armstrong var fyrstur til tunglsins. Nú síðast voru geimfararnir í Discovery fyrstir til að koma fram í spjallþætti Jay Leno. Geimhetjan John Glenn, sem er 77 ára, reyndi að vera skemmtilegur og sagði brandara um bindi svífandi um geiminn en hafði engan veginn við _1Í yfirmanni geimskutlunnar, Curt Brown, sem er 35 árum yngri og fór á kostum. I eitt skiptið var hann spurður af Leno: „Lætur Glenn öldungadeOdar- þingmaður stöðugt dæluna ganga um hversu erfitt þetta hafi verið í gamla daga, hversu þröngt, hversu lítið, hversu heppnir þið ungu menn- irnir eruð?“ „Reyndar ekki,“ svaraði Brown. „Hann er ekki alltaf að því - aðeins þegar hann er vakandi." Veldu það sem er gott Þú getur valið úr 21 sjónvarpsstöð og 17 útvarpsrásum [ sérblaði Morgunblaðsins, Dagskrá, færðu hvergi betra yfirlit yfir dagskrá útvarps og sjónvarps og getur vaiið það sem þér finnst gott. f blaðinu eru einnig fréttir, myndir og umfjöllun um þættina, kvikmyndirnar og fólkið sem kemur við sögu. Dagskránni er dreift með Morgunblaðinu annan hvern miðvikudag og á helstu bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Hafðu Dagskrána alltaf við hendina. Kemur út á miðvikudapinni fntfJtmMðMfe | 4F í allri sinni mynd! ERLENDAR Árni Johnsen skrifar um nýjan geisla- disk vísnasöngvarans James Durst Söngsmiður sendir söng heim til Islands Á NÝJUM diski bandaríska þjóð- laga- og vísnasöngvarans og söngs- miðsins James Durst syngur hann lög frá ýmsum löndum á tungum viðkomandi landa og þar á meðal er eitt lag íslenskt. James Durst var hér á landi í tónleikaferð fyrir 27 árum og þá kenndi undirritaður James sönginn Sofðu unga ástin mín. Á hinum nýja diski James Durst syngur hann á máli Víetnam, ensku, dönsku, íslensku, söngva frá Chile, Kína, Tyrklandi, Þýskalandi, Indónesíu, Israel og Grikklandi, en öll lögin frá þessum löndum eru sungin á málum landanna. Síðan 1965 hefur James Durst haldið tónleika í 38 löndum, en hann hefur sungið á alls 16 tungu- málum. James hefur lagt kapp á að syngja fyrir bæði börn og full- orðna. Hinn nýi diskur James Durst heitir My Country is the World. Á diskinum eru mörg fal- leg lög í vönduðum flutningi, en auk þess að syngja leikur James sjálfur á gítar. Meðal laga á disk- inum er fallegt bandarískt lag eft- ir Pete Seeger, angurvært lag frá Víetnam, dönsk hefðbundin ball- aða í þjóðlagastíl, Sofðu unga ást- in mín sem er mjög vel flutt hjá James á íslensku, rólegur Chile- slagari, kínverskt lag með ljóð- rænni melódíu og fjarrænum blæ sem fylgir gjarnan þarlendri tón- list, en í stuttu máli sagt er kín- verski söngurinn fallegur ástar- söngur. Þá er tyrkneskt lag, brúð- kaupssöngur á hebresku, þýskt þjóðlag, grískur ástarsöngur sem jafnframt er sunginn á ensku, en reyndar syngur James oft hluta laganna á ensku og í diskumslag- inu eru viðkomandi textar á upp- runalegum tungumálum auk ensku. Hver veit hvað það er sem við köllum ást? heitir gríski ástar- söngurinn. Einnig er barnagæla frá Indónesíu, trúarlegur söngur um borgarhliðin tólf, friðarsöngur og söngur James sem heitir Ég er mín eigin litla þjóð. James Durst hefur í hyggju að koma til Islands á næstunni og halda tónleika, en sem fyrr segir var hann hér á landi síðast 1971. James syngur Sofðu unga ástin mín bæði á íslensku og ensku, gamla þýðingu á fyrsta erindinu en eigin þýðingu á tveimur síðari erindunum: Sleep, my darling baby, sleep. Rain is gently falling. Mother will your treasures keep. Hidden where the shadows creep. Hush thee, my baby, night for rest is calling. Secrets hide ‘neath darkness wings. Hewy is my dreaming Oft I’ve seen black desert sand as brings Death to the meadow and, green growing things Silent, the deadly glacial beckons screaming. Slumber now and waken late Quiet, peaceful sleeping Life, her son-ow soon vill relate As sure as day will meet its fate Often one loves, only missing, losing and weeping. Ford fýsilegastur TIMARITIÐ People hefur tilnefnt Harrison Ford kynþokkafyllsta mann ársins 1998. Leikarinn, sem er 56 ára gamall, skýtur þar með yngri mönnum ref fyrir rass, en í sam- keppni við hann voru menn eins og Brad Pitt, George Clooney, Harrison Denzel Washington og p0rd John F. Kennedy jr. Aðeins einn annar miðaldra maður komst á listann, en það er að honum er gamla James Bond- stjarnan, Sean Conn- ery, sem þykir alltaf jafn sætur þótt hárin gráni. Harrison Ford sagði í viðtali um til- nefninguna að hann geti nú ekki séð að persónur þær sem hann hafi túlkað á hvíta tjaldinu séu eitt- hvað sérstaklega kyn- þokkafullar. En Ijóst ekki eru allir sammála í því máli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.