Morgunblaðið - 08.11.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1998 43^-
MINNINGAR
+ Málfríður Guð-
steinsdóttir var
fædd í Reykjavík
12. júlí 1931. Hún
andaðist á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur
30. október síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Guð-
steinn Eyjólfsson,
kaupmaður í
Reykjavík, og kona
hans Guðrún Jóns-
dóttir.
Árið 1951 giftist
Málfríður eftirlif-
andi eiginmanni
sínum, Ólafi Diðrikssyni múr-
arameistara, f. 23. apríl 1929,
og eignuðust þau fiinm börn.
Þau eru: Diðrik, f. 16. desember
1951, kvæntur Björk Kristjáns-
Okkur langar til að minnast vin-
konu okkar, Málfríðar Guðsteins-
dóttur. Kynni okkar hófust haustið
1946 þegar við hófum nám í
Kvennaskólanum í Reykjavík.
Strax fyrsta veturinn var stofnað til
vináttu sem ekki hefur borið
skugga á í 52 ár, en síðan þá höfum
við verið saman í saumaklúbbi.
Æskuheimili Lillu, eins og hún var
kölluð af fjölskyldu og vinum, var á
Laugavegi 34, hún var yngst í stór-
dóttur, f. 9. nóvem-
ber 1948; Helga, f.
13. janúar 1953, gift
Jóni Friðriki Jóns-
syni, f. 12. apríl
1953; Rúnar Steinn,
f. 27. apríl 1956,
kvæntur Steinunni
Ástu Helgadóttur, f.
12. desember 1957;
Sigurður, f. 26.
ágúst 1957, kvænt-
ur Ragnheiði K. Ni-
elsen, f. 21. júlí
1959; og Ólafur, f.
16. febrúar 1963,
kvæntur Kristínu
Þorleifsdóttur, f. 9. október
1964.
títför Málfríðar fór fram í
kyrrþey frá Bústaðakirkju 5.
nóvember.
um systkinahópi og bjó við gott at-
læti en barn að aldri varð hún fyrir
þeirri miklu sorg að missa móður
sína. Hún var góður félagi, hrein-
skilin og skemmtileg. Okkur er það
minnisstætt, að á æskuheimili
hennar var plötuspilari sem var
ekki mjög algengt á þeim árum og
fannst okkur mikill fengur í því.
Hún var íþróttakona góð og æfði
bæði handbolta og sund á unglings-
ánmum. Að loknu Kvennaskóla-
prófi 1950 stundaði hún nám í Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur, hún hafði
þá þegar kynnst Ólafi Diðrikssyni
múrarameistara sem varð lífsföru-
nautur hennar. Með dugnaði og
samheldni byggðu þau sér fallegt
og gott heimili í Langagerði 98 þar
sem þau bjuggu lengst af, þau eign-
uðust fimm mannvænleg börn, sem
ólust upp við kærleika foreldranna.
Lilla var listfeng og allt lék í hönd-
um hennar og svo var hún snilling-
ur við matargerð. Garðurinn við
hús þeirra bar henni fagurt vitni,
en þar ræktaði hún og hlúði að
gróðri á þann veg að aðdáun vakti.
Otal minningar eigum við um gleði-
stundir á heimili þeirra enda voru
þau hjónin höfðingjar heim að
sækja.
Eftir að börnin stálpuðust fór hún
út á vinnumarkaðinn og starfaði við
saumaskap hjá TM-húsgögnum þar
sem handbragð hennar hefur notið
sín vel. Nú í sumar hætti hún störf-
um og nýverið fluttu þau í þægilega
íbúð sem hentaði þörfum þeirra vel
og vonir stóðu til að geta notið ævi-
kvöldsins saman en þá veiktist hún
og lést eftir stutta en stranga
sjúkrahúslegu 30. október.
Við í saumaklúbbrium og makar
okkar kveðjum góða vinkonu með
miklum söknuði. Við þökkum ára-
tuga vináttu og samfylgd og biðjum
góðan Guð að blessa og styrkja Óla,
börnin og fjölskyldur þeirra á sorg-
arstundu.
Blessuð veri minning Málfríðar
Guðsteinsdóttur.
Saumaklúbburinn.
MALFRIÐUR
GUÐSTEINSDÓTTIR
KRISTIN BJARNEY
ÓLAFSDÓTTIR
+ Kristín Bjarney
Ólafsdóttir
fæddist á Dynjanda
í Grunnavíkur-
hreppi í Norður-ísa-
ljarðarsýslu 21.
febrúar 1922. Hún
lést á Landspítalan-
um 2. september
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Akraneskirkju
11. september.
Elsku Stína frænka.
Við höfum mikla löng-
un til að skrifa um þig minningar-
grein en gátum það ekki strax. Þú
vildir ekki fara strax, þú áttir svo
margt eftir að gera hér. Hvað þú
barðist fyrir lífinu og varst svo
ótrúlega dugleg og ekki hefði mann
órað fyrir því að þú værir að fara ef
við hefðum ekki vitað hvað hún
varst mikið veik. Þú ert og verður
alltaf hetja, hetja frá Dynjanda í
Jökulfjörðum og Hornströndum. Á
æskuslóðunum vildir þú svo sann-
arlega vera, elsku frænka. I Furu-
fjörðinn fórst þú gangandi yfir
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir; í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur vh’kum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útninninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
Skorarheiði, en á
Dynjanda bjugguð þið
Bubbi ykkur skjól sem
var ykkar Paradís. Að-
eins einu sinni tókst
okkur, fjölskyldunum í
Tungu, að heimsækja
ykkur í fellihýsið á
Dynjanda. Þvílík gleði
að sjá ykkur taka á
móti okkur, þið bein-
línis ljómuðuð af
ánægju yfir því að
loksins værum við
komin á hestunum að
Dynjanda.
Það er svo dýrmætt
fyrir okkur sem eftir erum að hafa
átt perlu eins og þig, Stína frænka.
Við mótumst af þeim sem í kringum
okkur eru og þú ert ein af þeim sem
hefur geislað hlýju og kærleika sem
aldrei verður frá okkur tekin, enda
fædd inn í yndislega kærleiks- og
faðmlagaætt. Ég vildi að allir væru
eins heppnir og við.
Við hugsum lengra aftur þar sem
þú í ljósmóðurstörfum þínum fórst
langar leiðir í snjó og brjáluðum
veðrum til að hjálpa konu við barns-
I
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tœkifœri
r.atiiim.iaiiaiii
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, sími 568 9120
burð. Þú sagðir okkur að stundum
hefðir þú farið viku til hálfum mán-
uði áður til að hjálpa til og sárast
hefði verið að horfa upp á þegar lítið
sem ekkert var til á barnið, stund-
um bara ein flík.
Oft voru ljósmóðurstörfin þér ör-
ugglega erfið en gáfu þér ómælda
gleði, því almættið vakti yfir þér og
öllum þínum störfum.
í farveru þinni, þegar þú sinntir
konum og börnum, hugsaði Bubbi
um börnin ykkar og heimilið ásamt
sinni góðu systur,.Ónnu Bjarnadótt-
ur o.fl. og þeim fórst það vel úr
hendi eins og annað. Þakka þér fyr-
ir, elsku frænka, að taka á móti
bömunum okkar því þú hafðir svo
góðar og hlýjar hendur og huga
sem hjálpuðu til við að lina þraut-
irnar.
Elsku Bubbi, Svavar, Lóló, Kiddý
og fjölskyldur. Við vottum ykkm-
innilega samúð við missi eiginkonu,
mömmu og ömmu. Umhyggjan og
góðsemi hennar lifir í ykkur öllum
og við vitum að við hittum hana síð-
ar. Guð veri með ykkur.
Linda og Guðni, Tungu.
Ólöf Samúelsdóttir.
SuðurlandsbrautlO
108 Reykjavík ♦ Símí 553 1099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - eiariig um helgar.
Skreytiugar fyrir öll tilefni.
0 ÚTFARARÞJÓNUSTAN EHé
Stofnað 1990
Persónuleg þjónusta
Sími; 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@itn.is
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
t
Þökkum öllum þeim, sem sýnt hafa okkur
ómetanlega samúð og vináttu við andlát og
útför dóttur minnar, eiginkonu, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
GUÐFRÍÐAR STEFÁNSDÓTTUR
frá Akrakoti,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim, sem
önnuðust hana.
Anna Pálmey Hjartardóttir,
Erlendur Sveinsson,
Þorgerður Erlendsdóttir, Kristján Skúli Sigurgeirsson,
Júlíana B. Erlendsdóttir, Guðbjörn Bjömsson,
Sveinn Erlendsson, Soffía Sæmundsdóttir,
Hugborg Erlendsdóttir, Einar Sigurjónsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát elskulegs
bróður okkar,
BENEDIKTS SKÚLASONAR,
Kaupmannahöfn,
síðast til heimilis
í Stillholti 8, Akranesi.
Bergljót Skúladóttir,
Einar Skúlason,
Laufey Skúladóttir,
Ingibjörg Skúladóttir,
Þorbjörg Skúladóttir,
Sigríður Skúladóttir,
Skúli Ragnar Skúlason.
r
+
Hjartanlega þökkum við þeim, er sýnt hafa
okkur samúð og vináttu við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
SÓLEYJAR SVEINSDÓTTUR
frá Deplum í Fljótum,
Gránufélagsgötu 22,
Akureyri.
Guðrún Tómasdóttir, Sigurður Þórðarson,
Sigursveinn Tómasson, Anna Jónsdóttir,
Sigríður Tómasdóttir,
Anna Tómasdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför elskulegs föður okkar, fóstur-
föður, tengdaföður, afa og langafa,
ÓSKARS J. SIGURÐSSONAR
frá Búlandi,
Vestmannaeyjum,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Björg S. Óskarsdóttir, Peter Kvaran,
Guðmundur Ó. Óskarsson, Ágústa Sigurðardóttir,
Magnús Matthiasson, Guðlaug Þ. Guðmundsdóttir,
Ragnheiður Matthíasdóttir, Guðmundur Brandsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum hlýhug vegna andláts,
JÓHANNESARJÓHANNESSONAR
listmálara,
Háteigsvegi 42,
Reykjavík.
Fjölskylda hins látna.