Morgunblaðið - 08.11.1998, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
www.mira.is
Ármúla 7, sími 553 6540,
Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), sími 5546300.
Navico Axis RT-1200
25W vatnsvarin VHF báta- og skipataistöd
55 sjórásir og 16 forritaniegar einkarásir
Vatnsheldni samkvæmt IP66/IP67
www.lstel.ls
««9». WStK 37
M*« siíuttéilii ti(0® »«wiki«wiítk
S.. S!8i8-2®!fiiÐ
RKEPPNI
<5g> TOYOTA
jj?;:lu 't&Míig-i
F eg u r ð - Freisi
Sí í/'vli rj. i»*V
Va ''V.þIV'/íV'.
fliAVí-'í'íií'í' 1 Í'W-
%?. 10\i/
iVi'.i-iíjtV.sÍSTiÍu-
f0! :?■:
f,l’ .íf, -/■//;
0T{ %•■■
m mA
wA <»S Hry,f
Þ** W"iV rfMr,
iw-ii'rí jjrfR f. <»r'. tí
/'ffn fiV'f
ICELANDIC
Models
.7
Dagbók frá Damaskus
Allra þjóða kvikindum ægir saman
1 skólanum og blandast ágætlega
MÉR fínnst konur sýnilegri
hér en víða í arabalönd-
um. Þær eru meira utan
veggja heimilisins. Þá meina ég
ekki endilega að þær séu allar í
háum trúnaðarstöðum, það veit ég
ekki enn. En þær sjást oftar á
veitingastöðum, stundum tvær
þrjár saman og engir eiginmenn
sjáanlegir svo langt sem augað
eygir. Og piltar og stúlkur hér
virðast umgangast af mesta frjáls-
ræði þótt ég vænti að þar sé sið-
semin í hávegum höfð.
Nú er ég að upplagi forvitin um
fólk og því er á við heilan sjón-
varpsþátt um samskipti kynjanna
að sjá ungan strák og stelpu sitja
tvö og ein á veitingahúsi, vera að
drekka djús eða jafnvel bjór og
það er engin frænka nærstödd.
Horfa á þau tala saman: um hvað
eru þau að spjalla? Um væntan-
legt brúðkaup. Hvað þau vilja hafa
í íbúðinni sinni, hvað þau vilja
eignast mörg böm.
I gær var ég svo sallaheppin að
sitja nærri einu svona ungu pari
þegar ég var eins og guðsengill að
fá mér kapútsínó og þau voru
bæði að drekka bjór, sem er rétt
að taka fram að er ekki sterkur, í
mesta lagi 3,5%.
„Ég veit ekki hvort þú elskar
mig,“ sagði hún og horfði á allt
nema hann. „Þú hringdir ekki í
gær. Ætlarðu þá að verða svona
þegar við erum gift? Ferðu bara
út með strákunum að drekka bjór
eða arak og reykja vatnspípu eða
spila bagammon og ég sit heima
alein?“
Hún hafði hækkað röddina og
kærastinn hennar vildi alls ekki að
Konur eru sýnilegri
í Damaskus og sjást
óhikað á veitingastöð-
um og án siðgæðis-
varða skrafa ung-
menni hvert við annað.
Og áhyggjur þeirra
eru ósköp ámóta og
við þekkjum: hver
elskar hvern nógu
mikið? skrifar
Jóhanna Kristjóns-
dóttir eftir að hafa
gert smáúttekt
á mannlífinu.
nærstaddir heyrðu hvað hann
segði. Svo ég náði ekki svari hans.
En hún hækkaði sig enn og sagð-
ist ekki sætta sig við svoleiðis líf.
„Það er gamaldags," hreytti hún
út úr sér og fékk sér aðra sígar-
ettu.
Ég er ekki með á tæru hvernig
þetta endaði en undir lokin hefur
hann sjálfsagt sannfært hana um
hvílíkur fyrirmyndar eiginmaður
hann kæmi til með að verða og
hún ætti því að vera glöð og góð.
Svo leiddust þau í burtu og ég
varð mikið fegin að vandamálin
með ástina og allt það virtist leyst
í bili a.m.k.
I bekknum mínum ægir saman
fólki af ýmsu þjóðerni, þar eru Ar-
menar, Rússar allmargir, tveir
Kínverjar, ein pólsk-rússnesk ný-
gift Sýrlendingi, Frakkar, Banda-
ríkjamenn, Hollendingar og Italir
og nokkrir bandarískir Sýrlend-
ingar sem hafa ekki lært móður-
málið til hlítar og vilja gera á því
bragarbót. Einn tyrkneskur
íranskur Kúrdi og ekki sá glað-
lyndasti sem ég hef hitt, segist
aldrei hafa lært neitt í arabísku og
fer þó einna léttast með það af
okkur öllum að skrifa. A hinn bóg-
inn getur hann varla stunið upp
orði ef doktor Hazem vill fá hann
til að segja sér frá starfsemi sagn-
orða. Um daginn var próf í staf-
setningu og vildi svo til að ég sat
við hliðina á honum og naut góðs
af færni hans. Dr. Hazem sagði
ekki orð og sá þó að við vorum
beinlínis að svindla.
Yfirleitt er þetta kátt og hresst
fólk. Við spjöllum saman utan
skólatíma og menn bera saman
bækur sínar og allir eru reiðubúnir
að hjálpa öllum. í kvöld ætlum við
flest á tónleika í AI Azem-höllinni.
Við vitum ekki hverjir troða þar
upp en síðan gæti verið útlit íyrir
arkadrykkju fram eftir nóttu þar
sem frí er í skólanum á morgun.
Maður í mislitum sokkum
eftir Arnmund S. Backman
UPPSELT Á ALLAR SÝNINGAR í NÓVEMBER
Sala hafin á desembersýningan
3. - 4. - 5. - 10. - 11. - 12. DESEMBER
um
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ