Morgunblaðið - 08.11.1998, Blaðsíða 64
-í
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYK.IAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
HÚSIÐ skíðlogaði þegar slökkvilið kom á vettvang rétt eftir kl. 8 í gærmorgun.
*
Bátasmiðjan Osey í Hafnarfírði eyðilagðist í stórbruna
Tjónið er talið verða
yfír 100 milljónir króna
„PAÐ var sárt að horfa upp á fyrirtækið brenna
til kaldra kola,“ segir Daníel Sigurðsson, emn
eigenda vélaverkstæðisins og heildsölunnar Os-
eyjar hf. í Hafnarfírði sem gereyðilagðist í mikl-
um eldsvoða í gærmorgun. Daníel, sem hefur
verið að byggja fyrirtækið upp á síðustu ellefu
árum, segir að tjónið sé líklega vel yfír eitt
hundrað milljónir kr. Fyrirtækið vinnur að ný-
smíði á fjórum bátum og skemmdist einn þeirra
mikið í eldsvoðanum. Slökkvistarfí var lokið um
kl. 11 og hófst þá björgun verðmæta úr húsinu.
Vaktmaður hjá Securitas gerði lögreglu í
Hafnarfirði viðvart um brunann laust fyrir kl. 8 á
laugardagsmorgun. Þegar Slökkviliðið í Hafnar-
íírði kom að skíðlogaði í öllu húsinu, sem er um
2.000 fermetra skemma. Fengin var aðstoð frá
Slökkviliðinu í Reykjavík þannig að á staðnum
voru fjórir slökkvibílar auk þriggja tankbíla frá
Holræsagerðinni og alls börðust 36 menn við eld-
hafíð. Lögreglan lokaði Hvaleyrarbraut fyrir um-
ferð þar sem gaskútar voru í byggingunni og
höfðu að minnsta kosti fjórir þeirra sprungið áð-
ur en slökkvilið kom á staðinn.
„Það er skelfileg sjón að sjá þetta brenna
svona. Þarna er allt ónýtt. Inni í húsinu er 50
tonna stálbátur sem við vorum að smíða og áttum
að afhenda í desember. Það er ekki víst að mikið
tjón hafi orðið á honum en þó er ljóst að lúkarinn
er ónýtur. I húsinu voru önnur verkefni í gangi
og auk þess urmull af tækjum og tólum. Tjónið er
vel yfir 100 milljónir kr.,“ sagði Daníel.
Mikil verðmæti í húsinu
Húsið, sem stendur við Hvaleyrarbraut 32 og
34, er gamalt, en búið var að gera viðamiklar
endurbætur á því á síðustu árum. Daníel sagði að
mikil verðmæti væru fólgin í húsinu og þeim
tækjum sem í því voru.
Slökkvilið réðst strax til atlögu við eldinn í
sunnanverðu húsinu þar sem hann var mestur.
Þar voru flestir gaskútanna og náðist að kæla þá
niður þannig að fleiri sprengingar urðu ekki.
Þorsteinn Hálfdánarson, staðgengill slökkviliðs-
stjóra í Hafnarfirði, sagði að nóg vatn hefði verið
á staðnum en vont veður hefði sett strik í reikn-
inginn. Við sunnan- og vestanvert húsið voru þrír
30 tonna bátar sem verið var að smíða. Slökkvi-
liði tókst að verja þá gegn ágangi eldsins. Tvo
bátanna var verið að smíða fyrir Feng í Ólafsvík,
þriðji báturinn átti að fara til Rifs og sá fjórði til
Grundarfjarðar.
Daníel kvaðst vonast til þess að unnt verði að
byggja fyrirtækið upp á nýtt. 30 starfsmenn eru
hjá Osey og þar að auki var fyrirtækið verktaki í
ýmsum verkefnum. Alls höfðu að öllu jöfnu 45
manns vinnu hjá fyrirtækinu. „Við ætlum að hefj-
ast handa strax eftir helgi og ég geri ekki ráð fyr-
ir því að neinn missi vinnuna. Við þurfum að koma
okkur upp aðstöðu til þess að geta haldið áfram
með þessi stóru verkefni okkar,“ sagði Daníel.
Hann segir að engar tryggingar bæti alfarið
tjón af þessu tagi. „Ég heid að tryggingar hafi
samt verið í ágætu lagi,“ sagði Daníel.
Heimssýningin í Hannover árið 2000
Kostnaðurinn gæti
numið 200 milljónum
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segist vonast eftir að
kostnaður Islands af þátttöku í
heimssýningunni í Hannover árið
2000 verði ekki meiri en 200-250
(,-rnilljönir króna. Á næstunni verður
settur á stofn samráðshópur sem
verður falið að undirbúa þátttöku
íslands.
Gert er ráð fyrir að 40 milljónir
gesta komi á heimssýninguna í
Hannover, en um 8 milljónir komu á
heimssýninguna í Lissabon, sem
lauk fyrr á þessu ári. Halldór sagði
, fiestar þátttökuþjóðirnar gerðu
ráð fyrir að kostnaður við þátttök-
una í Hannover yrði 2,5-8 sinnum
meiri en kostnaður af þátttökunni
við sýninguna í Lissabon. Kostnað-
ur Islands væri óviss þar sem
ákvarðanir hefðu ekki verið teknar
um hvernig Island stæði að málum,
en stefnt væri að því að kostnaður-
inn yrði ekki meiri en 200-250 millj-
ónir. Gert væri ráð fyrir að íslensk
fyrirtæki tækju þátt í sýningunni í
Hannover.
Halldór sagði að í samráðsnefnd,
sem skipuð yrði á næstunni, yrðu
fulltrúar ráðuneyta, atvinnulífs,
Rannsóknarráðs og Útflutnings-
ráðs.
Halldór sagði að Þýskaland væri
afar mikilvægt viðskiptaland fyrir
ísland og mikilvægt að efla enn
frekar tengsl landanna. Þema sýn-
ingarinnar væri maðurinn, náttúr-
an og tækni. Þarna gæfist tæki-
færi til að kynna stefnu íslands í
nýtingu náttúruauðlinda, bæði að
því er varðar sjávarfang og endur-
nýjanlegar orkulindir, auk ferða-
mála og sölu á afurðum okkar.
Einnig gæfist tækifæri til að koma
á framfæri tækniþekkingu Islend-
inga.
Morgunblaðið/Júlíus
Leyniskjöl
í ævisögu
Steingríms
FULLTRÚAR Bandai-íkja-
stjórnar á íslandi lögðu allt kapp
á að milda afstöðu Framsóknar-
flokksins til Bandaríkjanna vor-
ið 1956 eftir að Alþingi hafði
samþykkt ályktun um brottfór
vai-narliðsins. Beittu þeir meðal
annars hálfopinbenim sjóðum
Þjóðaröryggisráðsins sem ætl-
aðir voru til baráttu gegn
kommúnisma í heiminum til að
styrkja skoðunarferð Steingríms
Hermannssonai-, sem þá var
ungur verkfræðingur og sonur
formanns Framsóknarflokksins,
um Bandaríkin þar sem hann
hugðist kynna sér rafvæðingu
dreifbýlisins. Þetta kemui- fram í
leyniskjölum af bandaríska þjóð-
skjalasafninu sem gerð eru opin-
ber í væntanlegri ævisögu Stein-
gríms, og kaflabrot birtast úr í
B-blaði sunnudagsblaðs Morg-
unblaðsins.
Leynd aflétt af leyniskjölum
í bókinni kemur jafnframt
fram að í kjölfar stjórnarmynd-
unar Hermanns Jónassonar
með þátttöku Alþýðubandalags-
ins síðar um sumarið 1956 var
styrkurinn dreginn til baka.
Valur Ingimundarson sagn-
fræðingur fékk leynd aflétt af
áðurnefndum leyniskjölum og
lét Degi B. Eggertssyni höfundi
ævisögunnar þau í té. Fleiri
skjöl á þjóðskjalasafni Banda-
ríkjanna lúta að Steingrími og
bregða þau birtu á það ná-
kvæma eftirlit sem haft var
með einstaklingum og athafna-
mönnum á Islandi í algleymi
kalda stríðsins og vitnar Dagur
til þeirra í bókinni.
■ Beint/Bl