Morgunblaðið - 08.11.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.11.1998, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ reikninga eða hjálpa til á annan hátt,“ segja þau. Björn, eiginmaður Amdísar, byrjar að vinna hjá fyrirtækinu árið 1961, fyrst við lagerstörf og út- keyrslu en síðai’ við sölumennsku og innkaup. „Þá fyrst fékk móðir okkar aðstoð við þessa þætti,“ segir Ágúst. „Síðar kemur föðursystir okkar Hanna Armann til starfa í íyrirtækinu. Nú var hún móður okkar til aðstoðar við sölu álnavör- unnai’. Síðar tók hún við innkaupun- unum af henni en Hanna starfaði við fyrirtækið til ársins 1994.“ Félag íslenskra stórkaupmanna beitti sér fyrir því um 1970 að reisa sérhæfða heildsölubyggingu við Sundahöfn. „Ljóst var að ef fyrir- tækið átti að geta vaxið og dafnað þá þurfti að stækka húsnæði þess. Það var því ákveðið að taka þátt í þessari uppbyggingu. Árið 1973 flutti fyrirtækið inn í 600 fermetra húsnæði í Sundaborginni og þótti okkur það mikið gímald en fyrir- tækið hélt áfram að stækka og nú erum við í húsnæði sem er vel á þriðja þúsund fermetrar." Árið 1971 taka þau systkini til starfa hjá fyrirtækinu. Arndís byrj- aði í sölumennsku við hlið móður sinnar og Hönnu frænku. „Þetta ár fórum við Bjöm í fyrsta skipti á vömsýningu í Bellacenter í Kaup- mannahöfn," segir Ai-ndís. „Náðum við mjög hagstæðum samningum við ýmis fyrirtæki sem þar sýndu og seldu tískufatnað fyi-ir herra, döm- ur og böm. Við þessa samninga jókst mjög framboð okkar á fatn- aði.“ Ágúst kom í byi’jun árs 1971 frá London og tók til starfa hjá fyrir- tækinu við bókhald og fljótlega tók hann við fjármálunum og stjórnun. „Heilsu fdður okkar var farið að hraka og þegar við flytjum inn í Sundahöfn er faðir okkar að mestu kominn út úr rekstrinum og móðir okkar hættir fljótlega eftir það,“ segir Ágúst. Innkaupaferðir til Hong Kong „Við byrjum að fara í innkaupa- ferðir til Hong Kong árið 1976. Björn sá um þau innkaup og var hann líklega einn af þeim fyrstu hér á landi til að versla þar. Við höfðum keypt fatnaðinn inn frá Evrópu en erlendu fyrirtækin vom í auknum mæli farin að láta framleiða fatnað- inn í Hong Kong. Með því að versla beint við framleiðendurna gátum við fengið fatnaðinn á mun hag- stæðara verði en áður. Og þrem árum síðar byrjar kona mín, Ánna María Kristjánsdóttir, að vinna hjá fyrirtækinu en hún er hjúkmnarfræðingur að mennt. Fljótlega tók hún við heimilisdeild- inni ásamt Hönnu.“ Eftir að Heildverslun Ágústs Ár- mann flytur inn í Sundaborg hefst samstarf heildsalanna í húsinu með því að stofnað var fyrirtæki sem kallaðist Frum. Fyrirtækið keypti stóra tölvu og sá um alla tölvu- vinnslu fyi’ir heildverslanirnar svo og banka- og tollamál, einnig var útkeyrsla sameiginleg. „Þannig gátum við sparað mikinn kostnað," segir Ágúst. „Þróunin hefur þó leitt til þess að þessi starfsemi er komin inn í fyrirtækin aftur nema hvað við erum í samstarfi við Heildverslun Jóhanns Ólafssonar um tölvumál en nýlega skrifuðum við undir samning um tölvukaup fyi’ir fyrirtækin. Á undanförnum árum höfum við verið að bæta við okkur vöruflokk- um eins og íþróttavörum en við er- um umboðsaðilar fyrir Puma, Champion og Converse. Þá höfum við verið að stækka herradeildina hjá okkur en nú flytjum við inn al- klæðnað fyrir herra meðal annars frá 4 You, Gabba og Steven svo eitt- hvað sé nefnt. Við höfum bætt við okkur ýmsum nýjum kvenfata- merkjum eins og Vila, Clah’e og Fransa. Einnig höfum við aukið við barnafatalínuna en við erum með allan klæðnað á nýfædd börn og upp í unglingaaldur fyrir utan skó. Fatnaður frá Lego, Joha og Claire Kids er nú vinsælastur. Fyrir tólf árum byrjuðu þau að vera með vörusýningar fyrir við- skiptavini sína. „Við köllum þetta mini-messu,“ segja þau. „Við fáum Morgunblaðið/Ásdís SYSTKININ ásamt mökum, en þau stýra fyrirtækinu, f.v. Björn K. Gunnarsson, Arndís Ármann, Anna María Kristjánsdóttir og Ágúst Ármann. SANNKALLAÐ FJÖL- SKYLDUFYRIRTÆKI Eftir Hildi Einarsdóttur AGÚST Ármann heildversl- un var stofnuð árið 1946 og er því með elstu heild- verslununum á landinu sem enn eru starfandi. Faðir systk- inanna Ágústs og Amdísar, Magnús Ármann og kona hans Margrét stofnsettu heildverslunina ásamt föðurbróður Magnúsar, Ágústi Ár- manni sem þá hafði verslunarleyfi. Á þessum árum keyptu menn sér svokallað borgarabréf sem veitti þeim heimild til verslunarreksturs. Ágúst hafði keypt slíkt bréf árið 1919 þá tuttugu og fimm ára gamall. Að sögn þeirra systkina Ágústs og Arndísar sem nú eru í forsvari fyrir heildversluninni ásamt mökum hófst reksturinn á innflutningi á kvenfatnaði frá Ameríku, kápum, kjólum og ýmsu fíneríi sem selt var í kvenfataverslunum í Reykjavík. Síðar fóru þau að flytja inn vefnað- arvöru einkum frá Suður-Evrópu. Einnig fluttu þau inn bátavélar og ýmsar aðrar vörur sem þau fengu leyfi fyrir. Á þessum árum var afar erfitt að fá innflutningsleyfi og seld- ist nánast allt sem flutt var inn. Magnús þekkti vel til innflutnings- verslunar því hann hafði starfaði í mörg ár hjá heildversluninni Nath- an og Olsen þar sem hann sá um innflutninginn. Á þessum upphafsárum var heild- verslun Ágústs Ármann til húsa í tveim litlum risherbergjum á Klapparstíg 38. í risinu bjuggu einnig þau Magnús og Margi’ét ásamt bömum sínum þeim Ágústi og Amdísi. Húsið átti Ágúst, fóður- bróðir Magnúsar, ásamt systur sinni, Katrínu Maríu, en þau bjuggu á miðhæðinni. Árið 1949 féll Ágúst frá og ári síð- ar kom Andrés Bjamason, sem þá var símritari, til starfa hjá fyrirtæk- inu í hlutastarf. Sá hann um erlend- ar bréfaskriftir. Málin þróast þannig að Andrés verður síðar meðeigandi í fyrirtækinu og starfar þar í fullu starfi til ársins 1985. Verkaskiptingu eigendanna var þannig háttað að Magnús sá um fjármál og verðút- reikninga. Andrés hafði erlendar jafnvel fram undir morgun. Það var ekki í ófá skiptin sem móðir okkar svaf ekki neitt alla nóttin heldur brá sér í bað í morgunsárið og var tilbú- in að taka á móti viðskiptavinunum þegar skrifstofan var opnuð klukk- an níu. Álnavaran var aðalsöluvaran Árið 1960 voru innflutningshöftin afnumin og stór hluti af þeim vörum sem foreldrar okkar höfðu verið að versla með fóru á frílista. Á þessu sama ári kaupa foreldrar okkar sér íbúð og var þá hægt að flytja skrif- stofurnar upp í ris en jarðhæðin var tekin undir lager. Á þessu tímabili var álnavaran aðalsöluvara fyrir- tækisins. Keypt var inn í 50 og 100 metra ströngum. Kaupmennirnir sem þau skiptu við keyptu ekki nema 5-10 metra hver úr strangan- um. Þurfti því að handmæla efnið og vefja því upp á nýjan stranga. Breyttist eldhúsborðið hjá okkur því í mælingaborð á kvöldin og féll þetta starf oft í okkar hlut,“ segja þau systkini. „Á þessum árum byrja þau að flytja inn bamafatnað og Tauscher-sokkabuxur sem voni nýjung sem náði strax gífurlegum vinsældum.“ Það verður aftur breyting á hús- næðisskipan tveim árum síðar þeg- ar systir Magnúsar sem hafði búið á miðhæðinni á Klapparstígnum flyst bui-tu. Var þá ákveðið að taka allt fjölskylduhúsið eins og þau 'kalla húsið á Klapparstígnum undir verslunameksturinn. Á þessum ár- um fara þau að flytja inn ýmiss konar heimilisvöru, eins og dúka, handklæði og púða. Þau breikka hjá sér kvenfatalínuna auk þess sem þau flytja inn ýmsa fylgihluti eins og hanska og slæður. Þau hefja innflutning á undirfatnaði meðal annars frá hinu þekkta fyrir- tæki Triumph. Einnig byrja þau að kaupa inn herrafatnað, eins og skyrtur og sokka. Ágúst og Arndís sem þá voru unglingar hjálpuðu til í fyrirtækinu. „Um leið og við kom- um heim úr skólanum vorum við látin sendast, fara með vörur eða vmsmpn/fflviNNuuF Á SUNNUDEGI ► Ágúst Már Ármann er fæddur 1948 í Reykjavík. Hann lauk prófi úr Verslunarskóla íslands árið 1969. Ágúst var við nám og störf í London árið 1970 en þar starfaði liann hjá fram- leiðslufyrirtækinu Silhouette. Ágúst er kvæntur Önnu Maríu Kristjánsdóttur sem sér um heimilisvörudeild Ágústs Ármann ehf. og eiga þau tvö börn. ► Arndís Ármann er fædd 1943 í Reykjavík. Hún er gagnfræð- ingur frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar árið 1960. Arndís vann í Verslunarbanka Islands á árunum 1961-1965. Maki Arndísar er Björn K. Gunnarsson, sölustjóri hjá Ágústi Ármann ehf. Þau eiga þrjú börn. FJÖLSKYLDUHÚSIÐ á Klapparstíg, teikning eftir Sigfus Halldórsson. bréfaski-iftir með höndum og Mar- grét sá um innkaup og sölu á vörun- um. Á þessum árum átti Magnús við veikindi að stríða en sinnti samt sínu starfi. „Það hvíldi því mikið á móður okkar,“ segir Ágúst. „Hún var í rauninni einn aðal drifki-afturinn í fyrirtækinu þótt hún hefði aldrei komið nálægt viðskiptum fyrr en hún fór að starfa í heildversluninni. Móðir okkar var afar nákvæm, hjá henni stóð allt eins og stafur á bók.“ Nokkrum árum síðar var ákveðið að færa heildverslunina á jarðhæð hússins á Klapparstíg en það hús- næði hafði verið leigt út. Til glöggv- unar lesendum má geta þess að veitingastaðurinn Pasta Basta er nú þar til húsa. Á jarðhæðinni var út- búin aðstaða fyrir skrifstofu og söludeild. „Þó leið ekki á löngu þar til húsnæðið var orðið svo þröngt að ekki var hægt að taka upp vörur nema á kvöldin og var þá unnið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.