Morgunblaðið - 08.11.1998, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.11.1998, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Tékkneskt tónaflóð Morgunblaðið/Árni Sæberg FÓLKIÐ sem flytja mun tékkneska tónlist í Bústaða kirkju í kvöld. TÉKKNESK kammertónlist verð- ur í brennidepli á tónleikum sem haldnir verða í Bústaðakirkju í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20.30. Flutt verða verk eftir þrjú af helstu tónskáldum Tékka, Martinu, Dvorák og Janácek. Eydís Franzdóttir óbóleikari, sem er hvatamaður að tónleikunum, segir þá hafa verið á döfinni í fjögur ár, eða frá því hún kom heim frá Tékklandi, þar sem hún starfaði um tveggja ára skeið í útvarps- hljómsveitinni í Pilzen. ,Allar götur síðan hefur mig dreymt um að efna til tónleika með tékkneskri tónlist hér heima og nú er sá draumur að rætast. Það er synd að þessi tónlist skuli ekki heyrast oftar á tónleikum á Islandi því tékknesk tónskáld eiga hér marga aðdáendur - vonandi kveikir þetta í fólki.“ Flutt verða tvö verk eftir Bohuslav Martinu, Fjórir Madrigal- ar fyrir óbó, klarínett og fagott og Sextett fyrir blásara og píanó. Að sögn Eydísar er hér um afar ólíkar tónsmíðar að ræða, þótt bæði séu verkin frá Parísarárum Martinus. „í París kynntist Martinu ýmsum straumum og stefnum í tónlist sem höfðu áhrif á hann, meðal annars Gjörningur á Kjarvals- stöðum HALLDÓR Ásgeirsson mynd- listarmaður og Snorri Sigfús Birgisson, tónskáld og píanó- leikari, fremja gjörning í dag kl. 17, í tengslum við sýningu sem fléttar saman tvær list- greinar, myndlist og tónlist, á Kjarvalsstöðum. Halldór og Snorri Sigfús vinna þannig saman, að þessar tvær listgreinar móta hvor aðra, en eiga sér þó sjálfstætt líf innan heildarinnar og utan. Verkinu er komið fyrir í miðrými og utandyra við Kjar- valsstaði, en á meðan á sýning- artimanum stendur mun það taka breytingum, þegar gjörn- ingur Halldórs myndar sam- hljóm með frumsaminni tónlist Snorra, Portrett nr. 1-7. djassinum, eins og glöggt má heyra í Sextettinum. í raun undirstrika þessi tvö verk fjölhæfni Martinus sem tónskálds." Sonur slátrarans Antonin Dvorák átti að verða slátrari. Faðir hans rak kjötverslun í litlum bæ skammt frá Prag og þar sem Dvorák var elstur sona hans var honum ætlað að taka við rekstr- inum. Svo varð ekki, „sem betur fer,“ segir Eydís. Dvorák sneri sér þess í stað að tónlistinni, fyrst að hljóðfæraleik og svo tónsmíðum. „Fyrst um sinn samdi hann tónlist í laumi og það var eiginlega ekki fyrr en eftir að hann kynntist Smetana og fór að vinna meira út frá tékk- neskum þjóðlögum að hann hlaut hljómgrunn. Það var svo Brahms sem uppgötvaði hann i tónsmíða- keppni í Austurríki árið 1875. Með þeim tókust vinsemdir og Brahms aðstoðaði Dvorák við að koma sér á framfæri." Biblíusöngvana fyrir sópran og píanó, sem fluttir verða á tónleikun- um, samdi Dvorák meðan hann gegndi rektorsstöðu við tónlistar- háskólann í New York. Eru söngvar þessir þrungnir tilfinningum enda Alla sunnudaga kl. 16 er leiðsögn um sýningarnar þrjár sem nú standa yfir á Kjarvals- stöðum; Northem Factor, ný samdir til minningar um nokkra vini tónskáldsins, auk þess sem fað- ir þess lá fyrir dauðanum á þessum tíma. „Biblíusöngvarnir eru með því fallegasta sem Dvorák samdi um dagana!" Martinu var hringjarasonur og Dvorák slátrarasonur. Leos Janácek var aftur á móti af tónlist- arfólki kominn. 11 ára gamall var hann sendur í klausturskóla í Moróvu, þar sem hann hlaut sína undirstöðumenntun, með höfuðáherslu á söng. Síðar setti hann á laggirnar orgelskóla í Bru- nau, þar sem hann var mjög virkur í tónlistarlífinu. Janácek er þekktastur fyrir óper- ur sínar, þykir eitt heista kynslóð í norrænni bygginga- list, færeysk samtímalist og sýningin myndlist/tónlist. óperutónskáld tuttugustu aldarinn- ar, en samdi einnig fjölda kammer- verka. Sextettinn Æsku, sem leik- inn verður í Bústaðakirkju, samdi Janácek árið sem hann varð sjötug- ur. Rifjar hann þar upp atburði úr æsku sinni. Segir Eydís verkið ákaflega fallegt en snúið í flutningi. Flytjendur á tónleikunum verða, auk Eydísar, Þórunn Guðmunds- dóttir sópransöngkona, Valgerður Andrésdóttir píanóleikari, Hallfríð- ur Ólafsdóttir flautuleikari, Ármann Helgason klarínettuleikari, Kjartan Óskarsson bassaklarínettuleikari, Anna Sigurbjörnsdóttir hornleikari, Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagott- leikari og Rúnar Vilbergsson fagottleikari. Norræn bóka- safnsvika NORRÆNU félögin og Kynning- arfélag bókasafna á Norðurlöndum, ásamt Eystrasaltslöndunum, standa að norrænni bókasafnsviku sem ber yfirskriftina I ljósaskiptunum. Bóka- safnsvikan stendur frá 9.-15. nóvem- ber. Yfirskrift verkefnisins er „Norræn fyndni“ og er markmið þess að kynna sameiginlega norræna fyndni sem birtist í bókmenntum okkar og frásagnarlist. Sameiginleg opnunaruppákoma verður á öllum Norðurlöndunum. Slökkt verður á rafmagnsljósum, en um leið tendrað á kertum, og lesinn sami texti á sama tíma, alls staðar hjá velflestum þátttökusöfnum, mánudaginn 9. nóvember. Á íslandi verður opnun- ardagskráin kl. 18. Þá verður lesið upp úr skáldsögu Frans G. Bengts- son, Ormur rauði. Auk 1.000 norrænna bókasafna taka 38 bókasöfn í Eystrasaltsríkj- unum þátt. Þangað fer skemmti- krafturinn íslenski, Skari skrípó, sem fulltrúi norrænnai- fyndni. Hver deyr flottast? í Iðnó HVER deyr flottast?, er yfir- skrift Leikhússports, keppni í spuna, í Iðnó næstkomandi mánudag kl. 20.30, en leikhús- sport verður í Iðnó annan hvern mánudag. í leikhússporti spila leikarar og áhorfendur stóran þátt í sýningunni og geta haft áhrif á útkomu keppninnar. Áhorfend- ur eru leikstjórinn og keppend- umir skrifa handritið jafnóð- um. Keppnin byggir á sömu lögmálum og bamaleikurinn „Hver deyr flottast?" Kepp- endum í leikhússporti er skipt í tvö lið sem dæmdir em af áhorfendum og þremur dómur- um sem veita stig fyrir frammistöðuna. Gjaman em þekktar persónur úr þjóðlífinu í hópi keppenda. Keppendur reyna svo eftir megni að ganga í augun á dómuram með því að „deyja sem flottast" eða leysa úr þeim aðstæðum sem áhorf- endur leggja fyrir þá. Leikhús- sport gengur því út á frjóa og snögga hugsun. Miðaverð er 1.000 kr. Hans Christi- ansen sýnir á Selfossi Selfoss. Morgimblaðið. HANS Christiansen opnaði sýningu í Gallerí Garði á Sel- fossi, föstudaginn 5. nóvember. Hans er fæddur í Hveragerði árið 1937 og hefur starfað við kennslu. Hans hefur sótt námskeið í Myndlistar- skóla Reykja- Hans víkur, Mynd- Christiansen lista- Og handíðaskól- anum og einnig í Akademiet for fri og merkantil Kunst í Kaupmannahöfn. Hans hefur haldið rúmlega 30 einkasýningar og einnig tekið þátt í samsýningum. Hans starfrækir nú gallerí á heimili sínu, Breiðumörk 8 í Hveragerði. Sýning Hans Christiansen í Galleríi Garði stendur yfir til 26. nóvember. Ljósmynd/Guðmundur Ingólfsson FRÁ sýningu, sem fléttar saman tvær listgreinar: myndlist/tdnlist, á Kjarvalsstöðum. Nonæn hvað ei nú það? Verið velkomin á Norræna bókasainaviku sem hefst mánudaginn 9. nóvember kl. 18:00. - Kynnið ykkur dagskrá vikunnar á næsta bókasafni. Velkomin á bókasafnið Amtbókasafnið á Akureyri Amtbókasafnið á Stykkishólmi Borgarbókasafii Reykjavíkur Aðalsafn Bústaðasafn Gerðuberg Seljasafn Sólheimasafn Bamaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri Bókasafii Bessastaðahrepps Bókasafh Bolungarvíkur Bókasafn Eyrarsveitar Bókasafn Fjölbrautarskólans v/Ármúla Bókasafh Suðurhlíðaskóla Bókasafh Flataskóla Bókasafn Glerárskóla Bókasafn Grunnskólans í Ólafevík Bókasafn HafnarQarðar Bókasafn Héraðsbúa, Laufekógum Bókasafn Kópavogs Bókasafn Kvennaskólans í Reykjavík Bókasafh Laugagerðisskóla Bókasafn Seltjamamess Bókasaíh Setbergsskóla Bókasafn Verslunarskóla íslands Bókasafh Vestraannaeyja Bókasafh Þorlákshafnar Bæjar- og faéraðsbókasafnið á Akranesi Bæjar- og héraðsbókasafnið á ísafirði Bæjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi Ártúnsskóli Grunnskólinn á Blönduósi Héraðsbókasafn Austur Skaftafellssýslu Héraðsbókasafh Kjósarsýslu Héraðsbókásafin Rangæinga Menntaskólinn v/Suhd Skólabókasafh Austurbæjarskóla Skólabókasafh Fellaskóla Skólabókasafn Varmalandsskóla Skólasafn Hvassaleitisskóla Skólasafn Valsársskóla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.