Morgunblaðið - 13.11.1998, Page 1

Morgunblaðið - 13.11.1998, Page 1
259. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Tareq Aziz segir Bandarikj amenn eiga sök á því hvernig komið er í íraksdeilunni Talið æ ólíklegTa að friðsamleg lausn finnist Washington, Bagdad, New York. Reuters. BANDARÍKIN sendu í gær enn meiri liðsafla til Persaflóa vegna yf- irvofandi hernaðarátaka við írak. Var m.a. um að ræða tólf B-52 sprengjuflugvélar og tólf F-117 or- ustuþotur en William Cohen, varn- armálaráðherra Bandaríkjanna, varaði Iraka við því í gær að yrði tekin ákvörðun um hernaðaríhlutun mættu þeir eiga von á „umfangs- miklum" loftárásum á höfuðborgina Bagdad. Hvöttu stjórnvöld í Kanada, Bretlandi og Þýskalandi ríkisborg- ara sína til að yfirgefa Irak við fyrsta tækifæri vegna hernaðar- átaka sem gerast líklegri með degi hverjum. Lítill sáttatónn í Irökum Lítill sáttatónn var í Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráðherra íraks, sem í gær hélt blaðamannafund í Bagdad þar sem hann sagði að Irakar hefðu allt frá lokum Flóabar- daga fyrir sjö og hálfu ári sýnt vopnaeftirliti Sameinuðu þjóðanna (UNSCOM) samstarfsvilja en að það hefði enn ekki orðið til þess að SÞ aflétti viðskiptabanni á írak. Kvað hann ástæðuna þá að Banda- ríkin kærðu sig einfaldlega ekki um að banninu yrði aflétt. Sagði Aziz að Irakar hefðu misst trúna á að því yrði nokkurn tíma aflétt, UNSCOM setti ávallt nýjar og nýjar hindranir í veginn og hagaði sér á allan hátt óheiðarlega. Irakar hefðu á þessum forsendum slitið samstarfi við UNSCOM. „Það verður ekki um friðsamlega lausn á þessari deilu að ræða nema Bandaríkin samþykki í grundvallaratriðum að viðskipta- banninu verði aflétt." Bandaríkjamenn gerðu hins veg- ar lítið úr þessum orðum og sagði James Rubin, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, að tilraunir Aziz til að kenna Bandaríkjamönn- um um þá alvarlegu stöðu sem kom- in er upp í vopnaeftirlitsdeilunni væru dæmdar til mistakast „alger- lega og örugglega". Bætti Joe Lockhart, talsmaður Hvíta hússins, því við að ummæli Aziz sýndu al- gera einangrun fraka. Annan ekki á leið til íraks A fréttamannafundi sínum sagði Aziz að írakar væru ekki mótfallnir því að Kofi Annan, framkvæmda- stjóri SÞ, beitti sér fyrir lausn á deilunni en sagði að írakar myndu ekki sjálfir leita ásjár hans. Sögðu fulltrúar SÞ að öryggisráð SÞ væri mótfallið því að senda Annan til Bagdad og er Annan sjálfur ekki spenntur iyrir slíkri för, en í febrú- ar tókst honum á síðustu stundu að afstýra átökum með því að eiga við- ræður við Saddam Hussein, forseta íraks, í Bagdad. Benti Joe Lockhart á að ekki yrði um samningaviðræður að ræða við íraka, þeir yrðu einfaldlega að hlíta einróma skilaboðum alþjóðasamfé- lagsins og taka aftur upp samstarf við UNSCOM. Fögnuðu talsmenn Bandaríkja- stjórnar yfirlýsingu átta arabaríkja í gær þar sem þau sögðu íraka bera ábyrgð á þeirri stöðu sem nú væri komin upp vegna þess að þeir hlíttu ekki kröfum SÞ. Var í yfirlýsing- unni jafnframt tekið fram að Irakar yrðu einnig að bera ábyrgð á þeim afleiðingum sem af þessari deilu kynnu að hljótast. Reuters BIÐRAÐIR mynduðust þegar farið var að dreifa gasgrímum til íbúa ísraels vegna hættunnar á að Irakar svari árásum bandamanna með því að gera Israel að skotmarki sínu með efnavopnaskotflaugum. Meðganga eykur gáfurnar MEÐGANGA virðist auka gáfur kvenna og hugsanlega til frambúðar. Hefur það kom- ið í ljós við rannsóknir á dýr- um, að kynhormónarnir, sem mikið er af meðan á með- göngu og brjóstagjöf stendur, efla þær heilastöðvar, sem fást við nám og minni. Kom þetta fram á ráðstefnu taugasérfræðinga í Los Ang- eles og að því er segir í blað- inu Los Angeles Times er kvenheilinn svo næmur fyrir breytingum á hormónamagni, að þess sjást merki meðan á tíðum stendur í mánuði hverj- um. Það voru þó fyrst og fremst áhrif hormónanna á nám- og minnisstöðvar heil- ans, sem vöktu athygli. Með myndum hefur verið sýnt fram á, að fjöldi svokall- aðra taugagriplna, sem flytja boð á milli taugafrumna, tvö- faldaðist við meðgöngu og brjóstagjöf og svo var líka með taugatraðirnar, sem eru taugafrumunum til styrktar. Voru rannsóknirnar gerðar á kvenmúsum og við þessar að- stæður voru þær djarfari, for- vitnari og duglegri en ella. Þær réðu betur en áður við ýmsar þrautir, urðu á færri mistök og svo virtist sem þessi aukna geta væri varanleg. Allt á útopnu „Þegar líða tekur á með- gönguna er heilinn í kvendýr- um ekki ólíkur leikfangaverk- smiðju í jólaösinni," sagði einn sérfræðinganna, Craig H. Kinsley. „Þar er allt á útopnu. Verið að taka við pöntunum og búa sig undir enn meira pantanaflóð." Jeltsín átti fund með forsætisráðherra Japans Stjórn norsku miðflokkanna í vanda Hætti við kvöldverðar- boð á síðustu stundu Slitnar upp úr fj árlagaviðræðum Moskvu. Reuters. HEILSUFAR Borís Jeltsíns, for- seta Rússlands, var sem fyrr aðal- umræðuefnið að loknum tveggja klukkustunda löngum fundi hans með Keizo Obuchi, forsætisráð- herra Japans, í Kreml í gær en þangað hefur Jeltsín ekki komið í tvær vikur. Þótti forsetinn stirður í hreyfingum og afar þrútinn í andliti og hélt hann aftur til sveitaseturs síns að fundinum loknum í stað þess að mæta í opinberan kvöld- verð Obuehi til heiðurs, eins og áætlað hafði verið. „Þetta hefur ekkert með heilsu hans að gera,“ sagði talsmaður Kremlar og bætti því við að Jeltsín liði ágætlega. Ónafngreindur heim- ildarmaður úr sendinefnd Japana bar hins vegar brigður á þetta og sagði fjarveru Jeltsíns hafa komið þeim að óvörum. „Það er alls ekki satt að það hafi verið fyrirfram ákveðið að Jeltsín kæmi ekki.“ Á sama tíma og Jeltsín hélt heim á leið staðfesti Gennadí Ku- lík, aðstoðarforsætis- ráðherra Rússlands, að stjórnvöld í Moskvu hygðust senda form- lega beiðni til Evrópu- sambandsins um 500 milljóna bandaríkja- dala aðstoð, 35 millj- arða ísl. kr., til mat- vælakaupa. Á fundi sínum ræddu Jeltsín og Obuchi um deilur ríkj- anna vegna Kúrileyja, sem Japanir gera kröfu til. Hafa þessar deilur m.a. komið í veg fyrir formlegan friðarsamning milli Rússa og Japana vegna seinni heimsstyrjald- arinnar. Talsmaður Obuchis sagði hins vegar í gær að fundur- inn hefði verið afar gagnlegur og að Jeltsín hefði lýst vilja sínum til að hraða gerð friðar- samnings, og að mark- miðið væri nú að leysa landamæradeilur ríkj- anna fyrir árið 2000. Jeltsín verður að fara varlega í að af- henda Japönum yfirráð yfir Kúríleyjunum, sem ' Sovétherir hertóku í stríðslok 1945, á ný vegna and- stöðu á rússneska þinginu en Jap- anir hafa hins vegar boðið umtals- verða efnahagsaðstoð á eyjunum sem hugnast mjög stjórnvöldum í Moskvu. Ósló. Reuters. SLITNAÐ hefur upp úr samninga- viðræðum norsku ríkisstjórnarinnar við Verkamannaflokkinn um fjárlög næsta árs en áður höfðu viðræður stjórnarinnar við Hægriflokkinn og Framfaraflokkinn siglt í strand. Sagði Einar Steensnæs úr Kristi- lega þjóðarflokknum að fjárlaga- gerðinni yrði haldið áfram. Tillit yrði tekið til þeirra krafna flokk- anna sem komið hefðu fram við við- ræðurnar og reynt að leggja fram frumvarp sem minnihlutastjórn miðflokkanna gæti fengið sam- þykkt. Að öðrum kosti blasir við stjórnarkreppa. „Vandinn verður leystur en ég veit ekki hvernig,“ sagði Steensnæs í samtali við norska dagblaðið Aftenposten í gærkvöldi. Ástæða þess að viðræðurnar við Verkamannaflokkinn sigldu í strand er fyrirhugaðar foreldragreiðslur stjórnvalda til þeirra er kjósa að vera heima hjá börnum sínum, en Verkamannaflokkurinn hafnar slík- um hugmyndum. Hins vegar slitnaði upp úr við- ræðunum við hægriflokkana vegna þess að of mikið bar í milli hvað varðar skatta og ríkisútgjöld. Hægriflokkurinn og Framfara- flokkurinn krefjast þess að mun meira verði dregið úr útgjöldum ríkisins en stjórnin er reiðubúin að fallast á, auk þess sem flokkarnir eru ósáttir við fyrirhugaðar skatta- hækkanir. Stjórnin hefur aðeins á að skipa 42 þingsætum af 165 á norska þing- inu og hefur því reitt sig á stuðning hægiáflokkanna á því eina ári sem hún hefur setið. Nú bendir hins veg- ar margt til þess að fjárlögin verði til að fella stjórnina, eins og margir spáðu er hún tók við völdum. Borís Jeltsín

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.