Morgunblaðið - 13.11.1998, Page 12

Morgunblaðið - 13.11.1998, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Opinn fundur menningarmála- nefndar Sjálfstæðisflokksins Morgunblaðið/Kristinn BJÖRN Bjarnason segir að í nýju útvarpslögunum sé gert ráð fyrir því að menntamálaráðherra geti stuðlað að stafrænum útsendingum enda sjái ráðandi ljósvakafjölmiðlar ekki hag sinn í því að koma þeim á fót. Menning í þágu byggðastefnu FUNDARMENN á opnum fundi menningannálanefndar Sjálfstæð- isflokksins í fyrrakvöld voru sam- mála um það að uppbygging menn- ingarmiðstöðva á landsbyggðinni gæti orðið áhrifaríkur þáttur í byggðastefnunni og að kanna ætti hvort ekki ætti að gera hana að kosningamáli Sjálfstæðisflokksins í komandi Alþingiskosningum. Fjölbreyttara framboð heima fyrir á ýmiss konar menningu gæti bæði orðið til þess að draga úr löngun fólks til að flytja af lands- byggðinni til menningarmiðstöðv- arinnar á höfuðborgarsvæðinu og til þess að styrkja ferðaþjónustu. Björn Bjamason menntamála- ráðherra kynnti á fundinum það sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið í verk í menningarmálum á kjörtímabilinu og áhersluatriði næstu ára. Hann tók undir það að hluti af því fé sem nú fer til byggðamála ætti að renna til menningarstarfsemi á landsbyggð- inni. Þess utan taldi hann að eink- um ætti að leggja áherslu á þrennt í menningarmálum. I fyrsta lagi að nýta möguleika upplýsingatækn- innar, í öðru lagi uppbyggingu Listaháskólans og í þriðja lagi staf- ræna tækni í sjónvarps- og út- varpsútsendingum. Stafrænar útsendingar bylting Bjöm sagði að í nýjum útvarps- lögum yrði gert ráð fyrir því að menntamálaráðherra gæti stuðlað að rekstri stafrænna fjölmiðla, enda sæju ráðandi ljósvakafjöl- miðlar ekki hag sinn í því að koma slíkum rekstri af stað þar sem þeir sætu nú þegar að bestu útsending- arrásunum. Hann sagðist telja að stafrænar útsendingar myndu gjörbylta fjölmiðlaheiminum. Prófkjör sjálfstæðismanna á Reykjanesi Kosið á morgun PRÓFKJÖR sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi fer fram á morgun, laugardaginn 14. nóvem- ber. Á fundi sem yfírkjörstjóm í Reykjaneskjördæmi átti með fram- bjóðendum 28. október sl. var dregið um röðun þeirra á prófkjör- seðlinum. Röðun þeirra verður þannig: Ámi R. Árnason, Kópa- vogi, Gunnar I. Birgisson, Kópa- vogi, Markús Möller, Garðabæ, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Hafn- arfirði, Kristján Pálsson, Reykja- nesbæ, Stefán Þ. Tómasson, Hafn- arfírði, Jón Gunnarsson, Kópavogi, Hólmfríður Skai-phéðinsdóttir, Sandgerði, Árni M. Mathiesen, Hafnarfirði, Helga Guðrún Jónas- dóttir, Kópavogi, og Sigríður Anna Þórðardóttir, Mosfellsbæ. „Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri né færri. Kjósa skal með því að láta tölustaf frá einum upp í sex fyrir framan nöfn fram- bjóðenda í þeirri röð sem óskað er að þeir skipi endanlega á fram- boðslista," segir í fréttatilkynn- ingu. Kjörfundur hefst klukkan 10 Kjörfundur hefst 14. nóvember kl. 10 og lýkur kl. 21. Kosið verður á 11 stöðum í kjördæminu: 1. Hlé- garði, Mosfellsbæ, fyrir Mosfells- bæ, Kjalarnes og Kjós, 2. Sjálf- stæðishúsinu, Austurströnd 3, 3. hæð, Seltjamarnesi, 3. Sjálfstæðis- húsinu, Hamraborg 1, 3. hæð, Kópavogi, 4. Garðatorgi 7, Garða- bæ, 5. Iþróttamiðstöðinni, Bessa- staðahreppi, 6. Víðistaðaskóla, Hafnarfírði, 7. Verkalýðshúsinu, Grindavík, 8. Sjálfstæðishúsinu, Hólagötu 15, Njarðvík, og Vestur- braut 17, Keflavík, 9. Miðhúsum, Suðurgötu 19, Sandgerði, 10. Sam- komuhúsinu, Garði, og 11. Glað- heimum, Vogum. Kjörfundi lýkur kl. 21 og þá verður opið hús í Félagsheimili Kópavogs. Talning atkvæða fer fram í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2. Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í Félagsheimili Kópa- vogs. Fyrstu tölur verða lesnar upp kl. 21.05. Góð aðsókn að sýningu landslagsarkitekta AÐSÓKN að sýningu Félags landslagsarkitekta í Ráðhúsi Reykjavíkur hefur verið góð að sögn Reynis Vilhjálmssonar for- manns félagsins, en sýningin var opnuð síðdegis á laugardag í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Á sýningunni eru sýnishorn af verkum íslenskra landslagsai-ki- tekta síðustu 45 árin eða allt frá því Jón H. Björnsson hóf störf hér á landi fyrstur íslenskra landslags- arkitekta. Þetta er jafnframt fyrsta sýningin sem haldin er eingöngu á verkum landslagsarkitekta hér á landi. Markmið sýningarinnar er fyrst og fremst að kynna starfsvettvang landslagsarkitekta og benda á gildi góðrar umhverfíshönnunar, segir Reynir og tekur fram að 40 manns séu í félaginu hér á landi. Enn fleiri séu hins vegar að læra landslags- arkitektúr. „Þetta er því ört vax- andi starfsgrein,“ segir Reynir. Sýningin stendur til 18. nóvember næstkomandi. Morgunblaðið/Kristinn SÝNINGIN spannar sögu landslagsarkitektúrs á íslandi síðustu 45 ár- in. Hér má sjá hvernig sýningin er sett upp en teikningar og plön eru hengd á skilrúm og texti fyrir neðan útskýrir það sem þar má sjá. fslendingar í hnattferð með Heimsklúbbi Ingólfs HÓPUR íslendinga, sem nú er í heims- reisu með Heims- klúbbi Ingólfs, er um þessar mundir á ferð frá Suður-Afríku áleiðis til Ástralíu og er Sydney næsti áfangastaður. Ferðafólkið hitti í fyrradag nánustu aðstoðarmenn Nel- sons Mandela, for- seta Suður-Afríku, en forsetinn, sem boðist hafði til að hitta hópinn sjálfur, forfallaðist á síðustu stundu. Ingólfur Guð- brandsson, farar- stjóri hópsins, tjáði Morgunblaðinu að hópurinn hefði í vikutíma notið sum- arblíðu og fegurðar á ferð sinni um Suð- ur-Afríku og m.a. heimsótt Góðrarvon- arhöfða og farið blómaleiðina svo- nefndu til Höfða- borgar. „Heimsókn í þinghús Suður-Af- ríku í Höfðaborg og bústað og einka- skrifstofu Nelsons Mandela forseta verður að telj- ast hápunktur ferðalagsins til þessa,“ sagði Ingólfur, „og þar samstarfsmaður hans, og Patric Tariq Mellet, en hann veitir forstöðu upplýsingaskrifstofu forsetaembættisins." Mandela forfallaðist Hann hélt erindi fyrir liópinn um stjórnmál landsins og þær breytingar sem orðið hafa í landinu eftir að aðskilnaðar- stefnuni lauk. Ingólf- ur sagði forsetann hafa boðist til að taka á móti hópnum í eigin persónu, „en hann forfallaðist á síðustu stundu svo aðstoðarfólk hans tók á móti okkur í staðinn með virkt- um.“ I hópi ferðalang- anna er meðal ann- arra Margrét Mar- geirsdóttir, sem skrifaði bókina Suð- ur-Afríka, paradís ferðamannsins. „Það var von Margrétar að geta afhent Nel- son Mandela forseta bókina eigin hendi en þess í stað skrifaði hún hon- um stutt bréf með heillaóskum frá íslandi." FERÐALANGAR í hnattferð með Heimsklúbbi Ingólfs ræddu við nánustu aðstoðarmenn Nelsons Mandela forseta Suður-Afríku í Höfðaborg. Frá vinstri: Margrét Margeirsdóttir, Ahmed Katrada, Patric Tariq Mellet og Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Heimsklúbbsins. Hittu nánustu aðstoðar- menn Mandela forseta var okkur ákaflega vel tekið af sem var þjáningabróðir Mand- nánustu samstarfsmönnum for- ela og sat í fangelsi með hon- setans, þeim Ahmed Kathrada, um í 27 ár og er nú nánasti Kjördæmisþing• Fram- sóknar á Reykjanesi Efstu menn kosnir á morgun EFSTU menn á lista Framsóknar- flokksins á Reykjanesi, sem koma til með að leiða listann í alþingis- kosningunum í vor, verða kjörnir á aukakjördæmisþingi flokksins á morgun. Nokkuð ljóst þykir að al- þingismennirnir Siv Friðleifsdóttir og Hjálmar Ái-nason, sem voru í fyrsta og öðru sæti listans síðast, verða þar áfram. Þau sem þegar hafa lýst því yfír að þau sækist eftir næstu sætum á listanum eru auk Sivjar og Hjálm- ars, Drífa Sigfúsdóttir, Ólafur Magnússon, Páll Magnússon, Unn- ur Stefánsdóttir og Þorsteinn Njálsson. Hægt er að bjóða sig fram alveg fram að þinginu og því kunna fleiri nöfn að bætast við. í síðustu alþingiskosningum var Drífa í þriðja sæti og Unnur í fjórða. Reiknað er með að hinir frambjóðendurnir sæki fast að þeim. Ólafur er formaður umhverf- issamtakanna Sól í Hvalfirði. Páll er fyrrv. bæjarfulltrúi í Kópavogi og Þorsteinn og bæjarfulltrúi í Hafnar- firði. Á milli 400 og 500 manns eiga at- kvæðisrétt á kjördæmisþinginu. Það fer fram í íþróttahúsinu í Kaplakrika í Hafnarfírði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.