Morgunblaðið - 13.11.1998, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 13.11.1998, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Hin sanna nútímatónlist Morgunblaðið/Kristinn HILMAR Jensson: „Ef við náum til fimm áheyrenda erum við ánægð- ir, - okkur er alveg sama um þá tuttugu og fimm sem ganga út.“ ÚTGÁFUFYRIRTÆKIÐ Smekk- leysa er umsvifamikið fyrir þessi jól og á meðal þess sem fyrirtækið gef- ur út er röðin Frjálst er í fjallasal með tilraunakenndri djasstónlist. Tvær plötur eru komnar út í röðinni og þrjár væntanlegar. Umsjónar- maður útgáfunnar fyrir hönd Smekkleysu er Hilmar Jensson, sem einnig kemur við sögu á plötun- um; leikur inn á fjórar þeirra. Út eru komnar í röðinni diskur- inn Kjár með spuna þeirra Skúla Sverrissonar og Hilmars Jenssonar, Traust með fyrirmælaverki eftir Hilmar í flutningi hans, Kjartans Valdimarssonar, Matthíasar M.D. Hemstock og Péturs Grétarssonar. Þriðja platan í röðinni verður plata Teenu Palmer, þar sem ýmsir gest- ir koma við sögu, þá er ráðgerður diskur með hijómsveitinni Kerfli, sem skipuð er þeim Hilmari, Óskari Guðjónssyni, Eyþóri Gunnarssyni og Matthíasi. Síðastur í röðinni verður diskur með upptökum frá síðustu tónleikum Leos Smiths hér á landi i síðustu heimsóknhans. Hilmar Jensson segir að Ás- mundur Jónsson hjá Smekkleysu hafí komið til sín og beðið að sjá um plöturöð þar sem kortlagt yrði það sem hefur verið að gerast í tilrauna- kenndum djassi á Islandi. Hann segir að sér hafí ekki litist nema miðlungi vel á verkið til að byrja með, „enda hefur lítið verið að ger- ast á því sviði nema ég hafí komið þar nærri og því er eins og ég sé að hampa sjálfum mér þegar ég er á nær öllum plötunum sem koma út í röðinni", segir Hilmar og kímir. Eins og getið er var fyrstur í röð- inni diskurinn Kjár sem þeir Skúli Sverrisson og Hilmar tóku nokkru áður en hugmyndin um útgáfuröð- ina varð til. Úpptökurnar eru frá því á síðasta ári, en þeir Hilmar og Skúli tóku upp spuna og Skúli vann áfram ytra. Platan númer tvö á sér öllu lengri sögu, því það var upphaflega fyrir- mælaverk sem Hilmar skrifaði fyrir sig, Skúla og Matthías fyrir fímm árum, en hefur tekið miklum breyt- ingum, er á diskinum orðið verkefni þeirra fjögurra, Hilmars, Kjartans, Matthíasar og Péturs. Heilmikið á seyði í tilraunatónlist Þriðji diskurinn í röðinni, upptök- ur með söngkonunni Teenu Palmer og ýmsum gestum, sker sig helst úr fyrir það að Hilmar kemur þar ekki við sögu. Hann er meðal liðsmanna Kerfils, sem getið er, og í hljómsveit Leos Smiths auk þeirra Matthíasar og Péturs. Framundan eru síðan tónleikar til að kynna útgáfuna í Iðnó á þriðjudag þar sem flestir listamenn- imir koma fram. Hilmar segir að þótt ekki sé ýkja mikið að gerast í tilraunadjassi sé heilmikið á seyði í tilraunatónlist almennt og fyrir það sé kannski lag að gefa þessa diska út núna. „Það er svo mikið af fólki sem er að gera eitthvað nýtt og/eða hefur áhuga á að heyra eitthvað nýtt. Það er ekki síst fyrir þróunina í dans- og tölvu- tónlist þar sem menn nota nýstár- leg hljóð og hljóma og þegar takt- urinn er síðan tekinn úr kannast fólk samt sem áður við það sem fram fer. Einnig má nefna ambient- hreyfinguna, en margt af því sem við Skúli erum að gera skarast við þá gerð tónlistar. Margt af því fólki sem ég hef rætt við varðandi plöt- una okkar Skúla verður steinhissa þegar það heyrir að við séum úr djassgeiranum, enda koma flestallir sem helst fást við þessa tónlist í dag úr rokki eða pönki eða eru beinlínist aldir upp fyrir framan tölvuna." -Eftir því sem þeir Skúli Sverris- son og Hilmar þróa tónlist sína áfram fækkar þeim leikmönnum sem ná að fylgja þeim eftir, líkt og þegar djasstónlistarmenn tóku kúrsinn frá áheyrendum sínum með frjálsa djassinum á sínum tíma. Hilmar segir að vel megi vera að þessi staðhæfíng fái staðist, en að sínu mati hitti þeir þar fyrir marga nýja áheyrendur. „Það er kannski erfítt að viðurkenna það eftir að hafa eytt síðustu tíu til fimmtán ár- um í að stunda formið, en ég er alltaf að missa meiri áhuga á djass- inum og hef í raun engan metnað í að vera djassmúsíkant lengur. Eg hef gaman af að spila djass, sérstaklega frumsaminn, en djass í þeim skilningi að spila gamla „standarda" er eins og að fá sér konfekt, það er gott að smakka en á ekki að vera sífellt í kassanum. Áhugi minn á frjálsum djassi hefur meira að segja lent í aftursætinu, að minnsta kosti tímabundið, vegna gríðarlegs áhuga á því sem við Skúli erum að gera og má heyra á Kjá.“ Tenging langl aftur í timann Sé nógu langt farið skarast „ambient“-tónlist, framsækinn djsss og nútímatónlist og Hilmar segir að þangað stefni hann sem stendur og reyndar megi segja að þeir Skúli séu staddir þar. „Viðbrögð frá fólki út um allan heim benda til þess að við séum komnir það langt að ekki skipti máli hvað tónlistin nefnist; þeir sem ekki þekkja til okkar hafa ekki hugmynd um að við séum djassarar að upplagi." í ljósi ofangreinds vaknar sú spuming hvort tónlistin sem heyra má á Kjá sé þá ekki hin sanna nú- tímatónlist sem fléttar saman helstu strauma úr nútímanum. „Ég held að það sé ekki fært ann- að fyrir fólk sem hefur alist upp við aðang að öllum þessum ólíku tólist- arstefnum, eins og mín kynslóð. Við höfum aðgang að tónlist úr öllum geiram í óheyiálegu magni og mað- ur þyrfti að vera mjög lokaður og hrokafullur ef maður léti ekki þessi áhrif leka í gegnum sig í músíkina." Fyrr á öldum skipti öllu að vera að gera eitthvað nýtt og tónskáld fyrri tima vöktu litla athygli: fólk flykktist í tónleikasali til að heyra nýja tónlist en í dag streyrnir það að til að heyra gamla tónlist. Álíka hef- ur verið að gerast í djassinum og margir lagt mikla áherslu á að hluta á og spila gamlan djass. Hilmar segir að það sé ekki síst fyrir það að megnið af nýrri tónlist, „ef mönnum þá tekst að gera eitthvað nýtt“, krefjist einbeitingar, það þarf að hafa fyrir því að hlusta og skilja, en fólk vilji orðið hafa sem minnst fyrir hlutunum: „Það er gott og blessað í hófi, það þurfa allir að hvíla hugann, en mér finnst það mjög óheillavæn- leg þróun að það er alltaf verið að leita að skyndibita, hvort sem það er í lífí eða listum." Ungt fólk sem tekur til við tón- listarnám áttar sig snemma á því að það sem þykir framúrstefna í dag hefur flest áður verið prófað í tón- listinni; fyrr á öldum vora uppi framsækin tónskáld með hugmynd- ir sem þykja í meira lagi nýstárleg- ar enn þann dag í dag. Hilmar segir og að þeir félagar geri sér grein fyr- ir þessu og þannig sé nafnið á plöt- unni þeirra Skúla eldgamalt ís- lenskt nafn þótt það hljómi fyrir flestum sem nýtstárlegur tilbúning- ur. „Við vildum sýna með heitinu að það væri tenging langt aftur í tím- ann. Við höfum verið að hlusta á tónlist úr öllum áttum í áraraðir og eram þess mjög meðvitaðir að það sem við eram að gera er hvorki svo fráhrindandi né sérlega framsækið á þeim kvarða," segir Hilmar og að- spurður hvort ekki sé hætt við því að fólk gefist upp þegar þeir félagar eru á hvað mestu flugi á tónleikum svarar hann því til að mestu skipti þeir sem eftir sitja. „Þegar við Skúli vorum að byrja að spila saman á sínum tíma eftir námið úti streymdi að hópur vina sem við höfðum þekkt hér heima, gamlir meðspilarar og vinir úr djassinum. Þessi hópur hef- ur farið sífellt minnkandi, en á tón- leikum okkar í Tjarnarbíói um dag- inn var allt fullt af nýjum andlitum, fólki sem er að pæla í framsækinni tónlist. Vissulega er tískubylgja í gangi þar sem margir keppast við það að vera öðravísi eða sýnast öðruvísi, en ef við náum til fímm áheyrenda erum við ánægðir, okkur er alveg sama um þá tuttugu og fimm sem ganga út.“ Skondnar skyndimyndir Samkvæmt þessu er ekki rétt að aldurinn færist yfir smátt og smátt, hann hvelfist yf- ir á einstökum augna- blikum. Hverfulleikinn hefur mörg andlit í þessari bók en lýsingar aldrei orðmargar (At- hugasemd, Gamalt lof- orð, Delete). Myndmálið er frum- legt og sótt í margar áttir. Fylgja er sex línu ljóð, myndríkt og með tilvísanir í a.m.k. fjögur ólík myndsvið: „fylgja“, „bjálki“, „for- Halldóra Thoroddsen fyndin og kom fram upp úr 1970. Tepru- skapur víðs fjarri þegar elskendur (Fiðluspil í fjarska) eru „alein á bleika skýinu" eftir að hafa verið „með hendur og varir / á klassískum / slitflötum atlotanna“. Þegar best lætur skrúfast stíll og myndmál saman í leifturmynd af ör- skotsstund sem á sinn hátt er fáránleg og hlægileg: Nýjar hljómplötur • SÓL í eldi er með nýjum lögum Heimis Sindrasonar við texta þekktra ljóðskálda, eins og Tómas- ar Guðmunds- sonar, Davíðs Stefánssonar, Jóns Óskars og Ara Harðarson- ar. Á plötunni er einnig uppruna- leg útgáfa af Hótel Jörð í flutningi Heimis og Jónasar frá 1966 og lagið Söknuður af plötunni Fagra veröld. Meðal söngvara eru Egill Ólafs- son, Diddú, Sigríður Beinteinsdótt- ir, Guðrún Gunnarsdóttir, Klara Ósk, Ari Jónsson og Björgvin Hall- dórsson. Útgefandi er Heimir Sindrason. Útsetningar og upptökustjóri var Stefán S. Stefánsson með aðstoð Jónasar Þóris. Japis sér um dreif- ingu. Verð 1.999 kr. BÆKUR Ljófl HÁRFÍNAR ATHUGASEMDIR eftir Halldóru Thoroddsen. Þursaútgáfan 1998 - 44 bls. KALDHÆÐNISLEG sjálfskoð- un kemur víða fram í þessari stuttu ljóðabók, án nokkurrar biturðar eða eymdarhjals. Ljóðin eru mörg kankvís og sýna atburði og persón- ur í nýstárlegu ljósi. Dauðinn í far- angrinum er stef við allt sem streymir endalaust fram: eins og hárfín athugasemd reisti sig upp úr makkanum að því er virtist þrungið eldmóði eitt grátt hár rit', „Iitningur“. Einhverjum kynni að þykja hér of margt lagt undir en jiessum lesanda sýnist myndmálið ganga upp. Stíllinn minnir á margt hjá þeirri kynslóð sem kölluð var Vor í Berlín ó eins og fuglar í runnum skemmtigarðsins klæðsviptingamir Ingi Bogi Bogason Nýjar bækur • FURSTINN er eftir Niccoló Machiavelli og er nú endurútgef- inn. Ásgrímur Albertsson þýddi bókina og samdi skýringar og efír- mála. I kynningu segir: „Bókin er leið- arvísir handa furstum og hvernig halda skuli völdum og auka þau, hvaða brögðum beri að beita og hvaða sögulega lærdóma sé hægt að draga. Um leið sýnir hún einkar vel hugsunarhátt og aðferðir vald- hafa gegnum aldimar, enda er hún eitt frægasta stjórnmálaint allra tíma.“ Höfundurinn var áhrifamaðm- í Flórens í byijun 16. aldar, en var sviptur embættum og áhrifum þeg- ar Medici ættin komst til valda árið 1512. Þá skrifaði hann þessa bók, en fyrstinn af Medici sýndi henni lítinn áhuga og hún kom ekki út fyrr en að höfundinum látnum. Nú er hún orðin klassík. • GLÆPUR og refsing eftir Fjodor Dosjojevskí er nú endurút- gefin. Ingibjörg Haraldsdóttir þýddi bókina. I kynningu segir: „Svið þessarar mögnuðu skáldsögu rússneska skáldjöfursins er Pétursborg á ár- unum upp úr 1860, ört vaxandi stórborg iðandi af mannlífi. I miðd- epli er einfarinn Raskolnikof, tötr- um búinn stúdent með stór- mennskudrauma, sem hann vill íyr- ir hvern mun gera að veraleika. Spennan, mannlýsingarnar og heimssýnin sameinast um að gera Glæp og refsingu að einhverri eftir- minnilegustu sögu allra tima.“ • ILMURINN - saga af morðingja eftir Patrick Suskind er endurút- gefin. Kristján Árnason þýddi bók- ina. í kynningu segir: „Þetta er sagan af Jean-Baptiste Grenouille, einum snjallasta og andstyggilegasta manni sögunnar. Hann er snillingur í ilmvatnsgerðarlist, en útskúfaður úr mannlegu samfélagi og einsetur sér að skapa þann ilm sem vekur ást og hylli. En til þess þarf hann að myrða...“ • ÓBÆRILEGUR léttleiki tilver- unnar eftir Milan Kundera er end- urútgefin. Friðrik Rafnsson þýddi bókina. „Sagan fjallar um þau heila- skm-ðlækninn Tómas og Teresu konu hans, listmálarann Sabínu og elskhuga hennar Franz, um ástir þeirra og angist þegar Rússar gera innrás í Prag í ágúst 1968. Þetta er örlagasaga þessa fólks, en einnig saga Evrópu á miklu umbrota- skeiði. Skáldsagan er ýmist fyndin, sorgleg, heimspekileg eða erótísk, jafnvel stundum allt í senn. Þetta er eitt af meistaraverkum samtíma- bókmenntanna," segir í kynningu. Útgefandi bókanna er Mál og menning. Hver bók kostar 1.990 kr. --------------------- Söng-leikir á Höfn SÖNGSKEMMTUNIN Söng-leikir verður í Hafnarkirkju, Höfn í Hornafirði, mánudaginn 16. nóvem- ber kl. 20.30. Það eru þau Ingveldur Yr Jóns- dóttir sópransöngkona og píanóleik- arinn Gerrit Schuil sem flytja munu lög úr söngleikjum, kvikmyndum og leikritum. Efnisskráin inniheldur lög úr íslenskum leikritum, s.s. Of- vitanum og Deleríum búbonis, söngleikjunum Showboat, Söngva- seið, Cabaret, Chorus line og Galdrakarlinum í Oz. Einnig flytja þau syrpu af lögum eftir Kurt Weill og Georg Gershwin. -------♦-*-♦----- Sýningum lýkur Gallerí Stöðlakot SÝNINGU Steinþórs Marinós Gunnarssonar, Haf og land, lýkur nú á sunnudag. Stöðlakot er opið daglega frá kl. 14-18.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.