Morgunblaðið - 13.11.1998, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
UM FÁTT hefur
verið meira rætt að
undanfómu en stefn-
una í stóriðjumálum og
náttúruspjöll á hálend-
inu af völdum virkjana-
framkvæmda. Við Is-
lendingar búum við
þær aðstæður að í
landinu eru miklir
möguleikar til vist-
vænnar orkunýtingar í
vatnsföllum og háhita-
svæðum sem gjarnan
er með réttu vitnað til
sem undirstöðu fram-
tíðar atvinnuuppbygg-
ingar. Sem betur fer er
þetta vafalaust satt og
rétt, en hitt ber hins vegar að hafa i
huga að þessir möguleikar eru eng-
an veginn óþrjótandi og því skiptir
miklu máli hvernig þeir eru nýttir.
Oftast er horft til stóriðju í þessu
sambandi og jafnvel til útflutnings
á orku um sæstreng. Mér finnst
hins vegar of lítið rætt um valkosti í
þessu sambandi. Lítil og vistvæn
. fyrirtæki eru ekki síður atvinnu-
skapandi en fá fyrirtæki og stór.
Staða Reykjaness
Hér í Reykjaneskjördæmi eru
miklir möguleikar til vistvænnar
orkuvinnslu og raunar má segja að
óvíða sé slík þróun jafnlangt komin
AFI/AMMA
allt fyrir minnsta barnabarnið
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13, sími 551 2136.
og hér á suðvestur-
horninu þegar á það er
litið að öll hús eru hit-
uð upp með vistvænni
orku. En hvað ber
framtíðin í skauti sér
fyrir okkur Reyknes-
inga í þessu efni og
hvemig eigum við að
nýta okkar vistvænu
orku?
Ylræktarver
Nýlokið er stækkun
álversins í Straumsvík
en áform um risaálver
á Keilisnesi blunda um
sinn ofan í skúffu.
Væri nú ekki ráð að
taka fram gömlu hugmyndirnar um
ylræktarver á Reykjanesi og stilla
þeim valkosti upp á móti Keilis-
nesálverinu og bera saman atvinnu-
sköpun, mengunaráhrif og efna-
hagslega þýðingu? I þessu sam-
bandi er fróðlegt að geta þess að
lýsing í gróðurhúsum sem gerir þar
fært að lengja ræktunartíma ým-
issa tegunda, allt upp í það að gera
ræktun þeirra mögulega allt árið
um kring, hófst í tiltölulega smáum
stíl fyrir nokkrum árum hér á landi.
Hefur þetta framtak skapað rúm-
lega 120 ný störf við ylrækt og í
tengdum greinum.
Bláa lónið
Um 150 þúsund erlendir ferða-
menn heimsóttu Bláa lónið á síð-
asta ári og mikil uppbygging á sér
þar stað svo hægt verði að taka á
móti ennþá fleira fólki og veita því
betri þjónustu. Gert er ráð fyrir að
taka þá aðstöðu í notkun að hluta í
apríl á næsta ári. Hvernig lítur slík
uppbygging út í samanburði við ál-
ver eða aðra stóriðju að því er varð-
ar atvinnusköpun og öflun gjald-
eyris?
Vistvænn valkostur
Hér að framan hefi ég rætt
möguleika okkar kjördæmis í vist-
vænni atvinnusköpun. Slíkn- val-
kostir eru ekki síðri annars staðar á
landinu og þá ætti ávallt að bera
saman við aðra og mengandi kosti í
atvinnuuppbyggingu. Með þessu er
Við eigum, segir
Unnur Stefánsdóttir,
að leggja meiri áherslu
á vistvæna atvinnu-
möguleika.
ég ekki að leggjast gegn stóriðju,
hún getur átt rétt á sér, en það má
ekki einblína á hana eins og mér
finnst gert um of nú um sinn. Við
eigum vissulega mikla orku, en hún
er ekki óþrjótandi og við þurfum að
vanda okkur í því hvernig við notum
hana. Við þurfum ekki heldur að
flýta okkur nein ósköp, orkulindirn-
ar fara ekkert frá okkur og við eig-
um að nýta þær eftir því sem við
þurfum sjálf á að halda í okkar eigin
atvinnuuppbyggingu. Þess vegna
þarf að vanda allar ákvarðanir í
þessu efni. Þær ákvarðanir sem við
tökum í dag um stóriðju og virkjan-
ir munu setja mark sitt á ásýnd
landsins og þjóðlífið allt um langa
framtíð. Er það sú ásýnd sem við
viljum skila í arf til afkomenda okk-
ar?
Höfundur er leikskólastjóri
í Kópavogi
Grænir
valkostir
Unnur
Stefánsdóttir
Caritas safnar
fyrir Reykjalund
FLESTUM er sam-
eiginlegt, hvort sem
horft er þröngt í eigin
barm eða vítt til samfé-
lagsins í heild, að
tryggja sér og sínum
öi-yggi, nýta hug og
hönd. Maðurinn lifir
ekki á brauði einu sam-
an. Hugvit hans hefur,
sem betur fer, þróast í
fleiri farvegi en þá,
sem að brautstriti lúta,
svo mikilvægir sem
þeir þó eru. Hann leit-
ast við að þróa líf sitt
til fegurðar og fyllingar
um listir, tónlist, bók-
menntir, byggingalist
og leiklist, o.s.frv. Þegar upp er
staðið rís þó maðurinn hæst í líkn
við samferðafólkið, til dæmis lækn-
isfræði eða ræktun náungakær-
leika. Við njótum svo margs vegna
örlætis fólks sem hefur verið og er
tilbúið að láta gott af sér leiða.
Sl. október leitaði Reykjalundur
til landsmanna eftir hjálp. Það er
því sérstakt gleðiefni, að á komandi
aðventu hefur Caritas Island (hjálp-
arstofnun kaþólsku kirkjunnar)
ákveðið að verja sinni árlegu að-
ventusöfnun til að styrkja endur-
hæfinguna á Reykjalundi. Upp-
byggingin á Reykjalundi og það
gagnmerka og þarfa starf sem þar
er unnið hefur verið og er til hjálpar
svo mörgum sem þarfnast endur-
hæfingar og heilsubótar. Við fáar
stofnanir hérlendis stendur þjóðin í
jafn mikilli þakkarskuld og við það
margþætta starf sem unnið hefur
verið á Reykjalundi í röska hálfa
öld.
Það eru ófáir ein-
staklingar sem endur-
hæfingin á Reykjalundi
hefur bjargað, í
svartasta skammdeg-
inu þegar myrkrið hef-
ur verið mest, byggt
upp þegar þeir vora að
bugast, andlega og lík-
amlega. Komið með
hækkandi sól, vaxandi
birtu, vísað veginn til
vors og gróanda, og
slíkt verður aldrei full-
þakkað.
Efnt verður til
styrktartónleika
Kristskirkju við
Landakot, sunnudag-
inn 15. nóvember kl. 17, þar sem
landskunnir listamenn koma fram
Sunnudaginn 15. nóv-
ember verða styrktar-
tónleikar í Kristskirkju
við Landakot. Sigríður
Ingvarsdóttir hvetur
fólk til að sækja
tónleikana.
og gefa vinnu sína. Caritas-sunnu-
dagurinn verður 29. nóvember og
fer söfnunin fram í öllum kaþólsk-
um kirkjum. Einnig verða seld jóla-
merki. Gíróreikningur Caritas er
0900-196002.
Höfundur starfar hjá Sotheby's og
er formaður Caritas Island.
Sigríður
Ingvarsdóttir
KRINGMN
...fyrir
/Ifgreiðslutími:
Món. - fim. frá
Fös. frá
Lau. frá
10.00 til 18.30
10.00 til 19.00
10.00 til 18.00
Skóverslanir
Bossanova
Hagkaup
RR - skór
Sautján
Skæói
Steinar Waage
Snyrtivöruverslcmir
Aveda
Body Shop
Clara
Evita
Hagkaup
Hygea
Krista
Úra- og skartyripaverslanir
Accessorize
Demantahúsiö
Jens
Leonard
Meba
Silfurbúöin
cUski4VÖri4verslanír
Accessorize
Blues
Cara
Centrum
Cha*Cha
Cosmo
Deres
Fantasía
Gailabuxnabúöin
Hagkaup
Kókó
Monsoon
Morgan
Oasis
Olympia
Polarn & Pyret
Sautján
Selena
Smash
Stefanel
Vero Moda
<RINGMN