Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 7

Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 7 Mögnuð saga um einn fremsta lækni ítala á 16. öld sem var nafni sjálfs Kólumbusar og fann rétt eins og hann sína Ameríku þegar hann fór að rannsaka l kveniíkamann. Frá þeirri dýrkeyptu uppgötvun segir í þessari spennandi sögu V sem er allt í senn: ástarsaga, fræðibók og spennusaga. \ Kolbrún Sveinsdóttir þýddi. ^ [ Fyndin og furðuleg skáldsaga eftir einn af þeim stóru á öldinni. Unglingspilturinn Karl er sendur til Ameríku eftir að hafa barnað þjónustustúlkuna. Hann er ákveðinn að standa sig í nýja heiminum en blanda af bláeygu sakleysi og öfgafullri samviskusemi leiðir hann út í óíyrirséð ævintýri. Einstök lýsing á þeirri Ameríku sem Kafka leit aldrei augum. Eysteinn Þorvaldsson og Ástráður Eysteinsson þýddu. Fjórir menn fara frá kránni sinni í London til vinsæls strandbæjar á Suður- Englandi til að uppfylla hinstu ósk vinar síns. Höfúndur hlaut hin eftirsóttu Booker-verðlaun árið 1996 fyrir þessa margslungnu og vel fléttuðu skáldsögu i sem dregur fram allar þær litlu harmsögur hversdagslífsins sem búa undir \ kyrrlátu yfirborði. Frfða Björk Ingvarsdóttir þýddi. Kjell Askildsen: Hundamir í Þessalóníku Nýjasta smásagnasafn hins kunna norska höfundar sem talinn er einn fremsti smásagnahöfundur í Evrópu. Einar Kárason þýddi. „öndir rólegu og yfirborðskenndu andrúmslofti textans ríkir [þannigf gífurleg spenna sem heldur bæði persónum og Iesanda í heljargreipum. Sigríður Albertsdóttir / DV Þessi metsölubók hefur vakið hneykslun og hrifningu víða um lönd enda segir hér frá ungri stúlku sem smám saman breytist í gyltu, bókstaflega, enda koma allir karlmenn l fram við hana eins og svfn. Adolf Friðriksson þýddi. \ „Að mínu mati er Gylting með merkari bókum sem komið hafa út undanfarin \ ár. Hún er vel skrifað og vandað bókmenntaverk sem grípur á ýmsum , \ málefnum. Þar að auki er hún fjörleg og skemmtileg. Þetta er bók sem ástæða >1 er öl mæla með. Skafti Þ. Halldórsson / Morgunblaðið Fimmtán ára piltur á í leynilegu ástarsambandi við konu á fertugsaldri. Einn góðan veðurdag hverfúr hún og hann sér hana ekki aftur fyrr en mörgum árum síðar þegar hann er ungur laganemi og hún er sakborningur, ákærð fyrir stríðsglæpi. Mögnuð saga og uppgjör við óþægilega fortíð Þjóðverja. Arthúr Björgvin i Bollason þýddi. I „...spennandi og vekjandi saga sem situr eftir hjá manni að lestri f loknum.“ JónYngvi Jóhannsson / DV I August Strindberg: Infemo Ein frægasta skáldsaga fyrr og síðar og meginverk í heimsbókmenntunum eftir þennan mikla sænska höfúnd. Mögnuð rannsókn á geðveiki og hrollvekjandi óvægin sjálfsskoðun sem hefur haft ómæld áhrif á aðra höfunda, meðal annars i Halldór Laxness. Þórarinn Eldjárn þýddi. \ „Það er háspenna lífshætta í bókinni...“ Hermann Stefánsson / Morgunblaðið Lulu Wang: Liljuleikhúsið Bók sem vakið hefur athygli víða um heim um stéttaskiptinguna á tímum menningarbyltingarinnar í Kína. Hér er á ljóðrænan og sérstæðan hátt lýst vináttu tveggja stúlkna, önnur er menntamannsdóttir en hin af lægstu stétt. Sverrir Hólmarsson þýddi. og menmng www.mm.is • Laugavegi 18 s. 515 2500 • Síðumúla 7-9 s. 510 2500 .þÁVÁ'CÚS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.