Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 64
84 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Grensáskirkja.
Morgunblaðið/RAX
Safnaðarstarf
- Kynningar-
kvöld á
Alfa-biblíu-
námskeiðum
ÍSLENSKA Kristskirkjan heldur
kynningarkvöld á Alfa-biblíunám-
skeiðum á morgun, laugardaginn
28. nóvember, í húsnæði sínu á
Bíldshöfða 10, 2. hæð.
Aifa-námskeið var fyrst haldið í
anglíkönsku kirkjunni Holy Trinity
Bromton í London fyrir ÍO árum.
Það er nú haldið í fjölda mörgum
löndum og er áætlað að á þessu ári
hafi það verið á yfir 10 þúsund
stöðum.
Á Alfa-námskeiðinu er fjallað um
grundvallaratriði kristinnar trúar á
einfaldan og aðgengilegan hátt.
Þetta er tilvalið tækifæri til að rifja
upp fyrri kynni af boðskap Biblí-
unnar.
Á Alfa-kynningarkvöldinu verð-
ur létt skemmtun í bland við
fræðslu. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
Bók þessi er mikill fengur fyrir
þá sem hafa yndi af opinberun
Guðs. Þýðandi bókarinnar er rit-
höfundurinn góðkunni, Isak Harð-
arson.
Hallgrímskirkja. „Orgelandakt"
kl. 12.15-12.30. Orgelleikur, ritn-
ingarlestur og bæn.
Langholtskirkja. Opið hús kl. 11-
13. Kyrrðar- og bænastund kl.
12.10. Eftir stundina verður boðið
upp á súpu, brauð og salat.
Laugarneskirkja. Mömmumorg-
unn kl. 10-12.
Hvitasunnukirkjan Ffladelfía.
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Ræðumaður ívar ísak Guðjónsson.
Allir velkomnir. Karlasamvera í
neðri sal kirkjunnar kl. 20.30. Allir
karlar velkomnir.
Sjöunda dags aðventistar á Is-
landi: Á laugardag:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19:
Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón-
usta kl. 11.15. Ræðumaður Björg-
vin Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla að lokinni
guðsþjónustu.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl.
11. Ræðumaður Eric Guðmunds-
son.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla
kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Finn F. Eckhoff.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Samkoma kl. 11. Ræðu-
maður Ester Ólafsdóttir.
Bókamessa í
Krossinum
Utgáfu bókarinnar „Ofurkraftur
auðmýktar Krists“ eftir B.R. Hicks
verður fagnað á samkomu í Kross-
inum nk. sunnudag kl. 16.30.
3*E
Sjöl frá kr. 1.290
Tötikur frá kr. 990
SKARTHÚSIÐ
Líiugav'cgi 12, s. 562 24(>().
Viðhorf til
öryrkja
ÉG VARÐ fyrir undar-
legri reynslu um daginn
en ég var ein af þeim er
stóð fyrir utan Hótel
Sögu þegar Framsókn-
arflokkurinn var að setja
þing sitt. Var þarna hóp-
ur af öryrkjum saman-
kominn til að mótmæla
lágum örorkubótum og
einnig að minna Fram-
sóknarflokkinn á eitt af
loforðum sínum fyrir síð-
ustu kosningar „fólk í
fyrirrúmi". Maður spyr,
hvaða fólk?
En það sem vakti að-
alundrun mína var
hversu illa upplýstir
þingmenn eru um orðið
öryrki. Þarna dreif að
þingmenn og fleiri fram-
sóknarmenn og tóku þeir
við blaði sem öryi’kjar
létu þá hafa. Síðan var
það sérstaklega einn
þingmaður sem vildi að
hópurinn kæmi inn, þar
sem hópurinn hafði stað-
ið úti í 7 vindstigum og
rigningu og einnig vildi
hann að við myndum
þiggja kaffi og vínar-
brauð. Þetta er virðing-
arvert af þessum til-
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
tekna þingmanni. En síð-
an vindur hann sér að
konu úr hópnum og seg-
ir: Þú ert ekki öryrki. En
þessi kona er öryrki þó
að hún beri það ekki ut-
an á sér. Ég held að við
eigum þó nokkra þing-
menn og jafnvel ráð-
herra sem ekki gera sér
grein fyrir því að öryrkj-
ar bera ekki alltaf mein
sitt utan á sér og er þá
nokkuð einkennilegt þó
að bætur hækki ekki
þegar viðhorfið er eins
og hjá þessum þing-
manni?
Það eru kosningar í
vor og vonast ég til að
orðið öryrki verði út-
skýrt fyrir alþingis-
mönnum fyrir þann tíma
því öryrkjar eiga at-
kvæðisrétt.
Sigrún G.
Sigurðardóttir.
Auglýst eftir þing-
mönnum Reykvíkinga
SPURNINGIN er, ætla
þingmenn Reykvíkinga
að láta Pál og Guðmund
flytja alla stofnanir og
sjóði út á land eingöngu í
atkvæðasmölun því þeir
vita sem er að Sjálfstæð-
isflokkurinn verður ein-
ráður eftir næstu kosn-
ingar og fer þá lítið fyrir
Framsókn.
Veit ég að eldri borg-
arar og öryrkjar bíða
spenntir eftir hvað verði
gert í þeirra málum og
verður því svarað í kjör-
klefanum. Mér hefur
virst þingmenn Reykvík-
inga ósýnilegir og gera
lítið af því að verja hag
Reykvíkinga. Kannski
Jörundur hafi gert eitt-
hvað?
Skúli Einarsson,
Tunguseli 4.
Tapað/fundið
Filma týndist
í Blómavali
ÁTEKIN filma í boxi
týndist í Blómavali sl.
sunnudag 22. nóvember.
Skilvís finnandi hafi
samband í síma 554 4557.
Dýrahald
Hvolpur fæst
gefins
HVOLPUR, fallegur
þriggja mán. skosk-ís-
lenskur, fæst gefins.
Upplýsingar í síma
565 0353.
ÞESSI ljúfi og góði fress
á myndinni er í óskilum í
Þingholtinu. Hann er
rauðbröndóttur og hvit-
ur, ómerktur og ekki
eyrnamerktur en með
far eftir ól. Ef einhver
veit hvar hann á heima
eða kannast við hann
vinsamlega hafið sam-
band í síma 551 0539 eða
552 3750.
Snúlla er týnd
SNÚLLA sem er 5 mán-
aða gömul læða týndist
frá Nesvegi. Hún er hvít
á feldinn með dökk-
bröndótt skott, dökk-
bröndótta húfu á höfði
og með þrjár dökkbrönd-
óttar doppur á bakinu.
Hún er með svarta ól
með rauðu merki. Þeir
sem hafa orðið hennar
varir eða séð hana hafi
samband í síma 552 7830.
SKAK
llmsjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp í
sex skáka einvígi sem
þeir Aleksei Shirov
(2.720) og stigahæsti
skákmaður Tékka,
Zbynek Hracek (2.615)
háðu í Ostrava í Tékk-
landi nú í nóvember.
Þessi staða kom upp í
annarri skákinni. Shirov
hafði hvítt og átti leik.
Be6 _ Rc6 23.
Bxd5 _ Rxd4 24.
Dxe4 og svartur
gafst upp.
Shirov vann yf-
irburðasigur í
einvíginu, hlaut
fimm vinninga
gegn einum.
Hann vann sér
áskorunarrétt á
Gary Kasparov í
vor, en úr einvígi
þeirra hefur ekki
HVITUR leikur og vinnur. orðið þar sem
fjármögnun sem
19. Hxf7! _ Kxf7 20. Bg4 Kasparov taldi sig hafa
_ Dc7 21. Df3+ _ Ke8 22. útvegað brást.
Skákklúbbakeppni Tafl-
félags Reykjavíkur fer
fram í kvöld kl. 20 í fé-
lagsheimili TR, Faxafeni
12. Keppt verður í fjög-
urra manna sveitum og er
öllum rótgrónum skák-
klúbbum sem og tilbúnum
sveitum heimil þátttaka.
Tefldar verða 2x7 umferð-
ir eftir Monrad-keifl með
5 mín. umhugsunartíma.
Veitt verða verðlaun fyrir
þrjú efstu sætin en auk
þess er keppt um vegleg-
an farandbikar. Þátttöku-
gjald á hverja sveit er
1000 kr.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI var rétt sestur við
matborðið kvöld eitt í liðinni
viku þegar síminn hringdi óvenju
frekjulega. Á línunni heyrðist djúp
rödd, sem greindi frá einstöku láni
Víkverja dagsins. Nafn Víkverja
hefði verið dregið út og var sagt að
hann ætti von á vinningi frá
ónefndu bókaforlagi og ekki bara
það, heldur „veglegum" bókavinn-
ingi, sem honum yrði afhentur í eig-
in persónu á heimili hans. Síðan var
spurt: „Er þess nokkur kostur að
sölumaður geti heimsótt þig um
helgina?" Reyndar kom einnig í ljós
að sölumaðurinn ætlaði einnig að
taka sér tíu mínútur í að kynna
bækur forlagsins.
Þegar þarna var komið sögu voru
farnar að renna tvær grímur á vinn-
ingshafann, en engu að síður lét
hann narra sig til að taka á móti
sölumanninum, sem birtist síðan um
helgina hlaðinn bókum.
Sumar þessara bóka voru vissu-
lega veglegar, en vinningurinn gaf
þessu lýsingarorði hins vegar nýja
merkingu. I orðabók Menningar-
sjóðs segir að veglegur merki glæsi-
legur, myndarlegur, gervilegur og
eigi við um eitthvað, sem heiður sé
að. Eftirvæntingin var því ekki lítil
þegar sölumaðurinn dró fram
glaðninginn. Hann reyndist vera
pappírskilja beint úr útsölubæk-
lingi, sem bar því veglegt vitni að
tilgangurinn væri sá að losa óseljan-
legar bækur af lagernum. Alténd
hugsaði Víkverji með sér að hann
gæti ekki verið þekktur fyrir að
endurnýta þessa „veglegu“ gjöf
með því að láta hana ganga um jól-
in, nema maður vildi láta gera sig
útlægan úr fjölskyldunni. Næsti
maður í strætó myndi sennilega
ekki taka við henni. Víkverji sér að
minnsta kosti ekki fram á að hafa
ástæðu til að taka bókina úr plast-
inu í náinni framtíð.
Þessi lærdómsríka reynsla af því
hvemig marklaus fagurgali er not-
aður til þess að þröngva sér inn á
heimili blásaklauss fólks verður
sennilega til þess að næst þegar
hringt verður um kvöldmatarleytið í
þeim erindagjörðum að snapa pen-
inga mun Víkverji spyrja um heima-
síma viðkomandi og fá að hringja til
baka seinna.
xxx
UMRÆÐAN um hálendið og
virkjanir heldur áfram og svo
virðist sem virkjunum og stóriðju
annars vegar og náttúruvernd hins
vegar sé alltaf stillt upp sem and-
stæðum. Þetta tvennt verður hins
vegar að geta átt nokkuð þolanlega
sambúð. Harla lítil framtíð verður á
byggðu bóli hjá Austfirðingum sem
öðrum íbúum nema menn hafi eitt-
hvað til hnífs og skeiðar.
Ýmsar spurningar koma í hugann
þegar þessi mál eru ígi'unduð og
vart er annar málstaðurinn með öllu
svartur og hinn hvítur. Er ekki of
mikil einföldun að segja: Annað-
hvort stóriðja eða ferðaþjónusta?
Hér verður nokkrum spurningum
varpað fram og gefa þær eflaust til-
efni til ennþá fleiri blaðagreina, at-
hugana og skoðanaskipta en von-
andi veita þær þó helst nýjum hug-
myndum og aðgerðum farveg:
Hefur verið fullreynt hvort önnur
nýsköpun í atvinnulífi en stóriðja
gæti komið Austfirðingum til bjarg-
ar og forðað þeim frá því að flytja
allir á mölina? Geta ekki Fjárfest-
ingabanki atvinnulífsins og Nýsköp-
unarsjóður lagt fram ærlegt
áhættufé til að koma einhverju í
gang og dregið aðra með sér? Má
ekki selja vatn úr jökulsánum? Er
ekki hægt að selja aðgang að Hér-
aðsflóa eða Njarðvíkurskriðum?
Getm' fjarkennslumiðstöð landsins
ekki haft aðsetur á Egilsstöðum?
Getur Árnastofnun ekki starfað á
Fáskrúðsfirði? Getur verið að Aust-
firðingar hafi ekki sjálfir sýnt nógu
mikla heimtufrekju eða dug eða
frumkvæði til að halda uppi
stemmningu fyrir blómlegri byggð í
sínum góðu heimahögum? Er ekki
hugsanlegt að eitthvert gagn sé að
niðurstöðum í þriggja milljarða
króna undirbúningsvinnu og rann-
sóknum Landsvirkjunar á þessu
svæði síðasta áratuginn sem nota
mætti til eflingar byggð?