Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Jack Kevorkian ákærður fyrir morð að yfírlögðu ráði Ekki fleiri liknardráp Waterford, Detroit. Reuters. Dini vill ekki að Ocalan fái hæli Ankara. Reuters. BANDARISKI meinafræðingurinn Jack Kevorkian, sem er einn þekkt- asti talsmaður líknardrápa í heimin- um, var á miðvikudagskvöld handtek- inn í Michigan í Bandaríkjunum og ákærður fyrir morð. Var Kevorkian sleppt lausum eftir að hafa komið fyr- ir dómara en fékk þá fyrirskipun að taka ekki þátt í frekari líknardrápum. Hét Kevorkian því að fara að þessum fyrinnælum. Kom handtakan í kjölfar þess að lögreglan hafði skoðað myndband sem bandaríska sjónvarpsstöðin CBS féllst á að afhenda, en á myndbands- upptökunni sést Kevorkian sprauta banvænum skammti af lyfí í dauð- vona sjúkling. Dauðarefsing er ekki til í refsilöggjöf Michigan-ríkis en Kevorkian, sem er sjötugur, gæti þurft að horfa fram á lífstíðarfangels- isdóm, án þess að geta sótt um náðun. CBS sýndi meginhluta upptökunn- ar í þættinum „60 mínútur“ á sunnu- dag og Kevorkian sést þar sprauta banvænum skammti af lyfi í 52 ára sjúkling, Thomas Youk, sem var haldinn ólæknandi sjúkdómi, hliðar- strengjahersli (ALS). Kevorkian sagði að sjúklingurinn hefði verið svo þróttlaus að hann hefði óttast að hann myndi kafna í eigin munnvatni. Youk kinkaði kolli þegar hann var spurður hvort hann vildi binda enda á líf sitt og sást skrifa undir yfirlýsingu um að hann samþykkti banvæna lyfjagjöf. Kevorkian hefur lengi barist fyrir því að líknardráp verði heimiluð með lögum og eftir sjónvarpsþáttinn skor- aði hann á lögregluna að handtaka sig. Hann kvaðst annaðhvort vilja að deilan um líknardrápin yrði leidd til lykta fyi-ir dómstólunum eða að lög- reglan léti hann í friði. MESUT Yilmaz, sem gegnir emb- ætti forsætisráðherra á Tyrklandi til bráðabii'gða eftir að ríkisstjórn hans féll í fyi'radag, sagðist í gær sjá merki þess að afstaða Itala, sem hafa neitað að framselja Kúr- daleiðtogann Abdullah Öcalan til Tyrklands, væri að mýkjast og einnig að Þjóðverjar virtust ætla að sýna meiri sveigjanleika. Hafði Lamberto Dini, utanríkis- ráðherra Italíu, fyrr um daginn sagt að hann teldi að ekki ætti að veita Öcalan hæli sem pólitískur flóttamaður á Italíu og að Þjóðverj- ar ættu að fara fram á framsal hans, því þar í landi hefur verið gefin út handtökuskipun á Öcalan - eða stefna ella í voða alþjóðlegri baráttu gegn hryðjuverkum. Þjóð- verjar óttast hins vegar að með því að fá Öcalan til Þýskalands væru þeir að bjóða heim hættu á átökum milli Tyrkja og Kúrda búsettra í Þýskalandi. Sagði Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, í gær að hann myndi gera grein fyr- ir afstöðu Þýskalands í viðræðum sem hann á í dag, föstudag, við Massimo D’Alema, forsætisráð- herra Italíu. Það olli miklu uppnámi á Italíu þegar Ramon Mantovani, meðlimui' í nýja Kommúnistaflokknum, sagði frá því á miðvikudag að hann hefði fylgt Öcalan frá Moskvu til Rómar, þar sem Öcalan var síðan handtek- inn. Flokkur Mántovanis á aðild að ítölsku ríkisstjórninni en hann kveðst ekki hafa sagt stjórninni frá komu Öcalans. ítalska stjórnai'and- staðan lýsti hins vegar hneykslan sinni í gær og sagði Silvio Berlusconi, leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, að ríkisstjómin yrði að segja af sér ef það kæmi í ljós að meðlimir hennar hefðu haft frumkvæði að komu Kúrdaleiðtogans til Ítalíu. Þrautin þyngri að mynda nýja stjórn í Tyrklandi Suleiman Demirel, forseti Tyrk- lands, átti í gær í viðræðum við leiðtoga helstu flokka á tyrkneska þinginu í því augnamiði að skipa nýjan forsætisráðherra eftir að ríkisstjórn Mesuts Yilmaz féll á miðvikudag. Gæti orðið þrautin þyngri að finna stjórnmálaleiðtoga sem getur fylkt hinum mörgu öfl- um á þingi á bak við sig í sam- steypustjórn en í gærkvöldi hitti Demirel Tansu Ciller, leiðtoga Sannleiksstígsins, og Bulent Ecevit, leiðtoga Lýðræðislega vinstriflokksins, sem gegnt hefur embætti aðstoðarforsætisráðherra undir Yilmaz. Persónuleg óvild og öfund milli leiðtoga flokkanna í Tyrklandi þyk- ir gera verk Demirels afar erfitt. Takist ekki stjórnarmyndun innan 45 daga getur hann leyst upp þing og skipað sína eigin stjórn sem sitja myndi uns kosningar, sem ráðgerð- ar eru í apríl á næsta ári, hafa farið fram. Ljóst er hins vegar að verði skipaður nýr forsætisráðherra á næstu dögum mun sá hinn sami erfa deiluna við Itali um Öcalan. Japanir þrjóskast við að biðjast afsökunar vegna heimsstyrjaldarinnar síðari Tókýó v Reuters. Japan harmar hernám Kína Mannskætt lestarslys AÐ MINNSTA kosti hundrað og átta fórust og um hundrað og fimmtíu særðust illa þegar tvær farþegalestir skullu saman seint á miðvikudagskvöld í Punjab- héraði á Indlandi. Var haft eftir Nitish Kumar, ráðherra lesta- samgangna í Indlandsstjórn, að tengi milli tveggja vagna í lest Frontier Golden Mail hefði brost- ið með þeim afleiðingum að hún fór út af spori sínu yfir á annað spor. Kom þar að lest Sealdah Express með fyrrgreindum af- leiðingum. Aðstæður á slysstað þóttu hræðilegar og tók langan tima að draga látna og særða úr lesta- brakinu. Munu Iangflestir farþeg- anna hafa verið sofandi þegar áreksturinn átti sér stað, að sögn þeirra sem lifðu slysið af. Söfnuð- ust um þúsund manns saman á slysstaðnum til að fylgjast með björgunaraðgerðum, margir þeirra ættingjar fórnarlambanna. ÞRJOSKA Japana við að verða við kröfum um afsökunarbeiðni við gjörðum japanska hersins í heims- styrjöldinni síðari, var greinilegri en nokkru sinni í gær. Þá sendu japönsk og kínversk stjórnvöld frá sér yfirlýsingu þar sem Japanir „harma“ þá þjáningu sem japanski herinn hafi valdið er hann hersat Kína um miðja öldina. Náðist sam- komulag um þetta orðalag eftir langan átakafund fulltrúa þjóðanna þar sem Kínverjar fengu ekki fram- gengt kröfu sinni um að Japanir bæðust afsökunar á framferði her- manna sinna. Skömmu áður hafði héraðsdómur í Tókýó fellt þann úr- skurð að vestrænum stríðsfóngum Japan í stríðinu bæru ekki bætur. Krafan um afsökunarbeiðni er í brennidepli vegna opinberrar heim- sóknar Jiang Zemin, forseta Kína, sem nú stendur yfir í Japan. Það vakti athygli í gær að hvorki Jiang né Keizo Obuchi, forsætisráðherra Japans, undirritaði yfirlýsinguna þar sem Japanir lýsa því yfir að þeir „beri sársaukafulla ábyrgð á því að hafa kallað miklar þjáningar og eyðileggingu yfir kínversku þjóðina með því að ráðast inn í Kína á einu tímabili í sögunni og lýsa Japanir yfir djúpum harmi vegna þessa“. Japanir auka lánveitingar Yfirlýsing þessi var birt sex stundum síðar en áætlað var vegna deilna Kínverja og Japana um orða- lagið. Þá deildu þjóðimar einnig um hvernig afsökunin yrði sett fram, Japanir höfðu boðist til þess að biðja forseta Kína afsökunar munn- lega en Kínverjar kröfðust þess að það yrði gert formlega. Japanskir stjómmálaskýrendur segja málið til marks um veika stöðu Obuchis. Hann sé reiðubúinn að leggja fram afsökunarbeiðni en hafi látið undan þrýstingi embættis- manna sem þrjóskist við. I síðasta mánuði báðu Japanir Kóreubúa afsökunar á framferði sínu í heimsstyrjöldinni síðari. Benda stjórnmálaskýrendur á að undirbúningur þess hafi farið svo leynt að nær enginn hafi vitað af af- sökuninni fyiT en hún hafi verið borin fram. Hvað Kínverja varðaði hafi verið vitað löngu fyrirfram að rætt væri um afsökunarbeiðni og því hafi tekist að koma í veg fyrir hana. Það gerir Kínverjum ennfremur erfitt fyrir að þeir þiggja mikla íjár- hagsaðstoð frá Japan, Japanir em stærstu fjárfestarnir í Kína og hafa stutt við umsókn Kínverja um aðild að Heimsviðskiptastofnuninni. I gær sömdu Jiang og Obuchi um að Japanir myndu hækka lán til Kín- verja upp í 390 milljarða jena, um 223 milljarða ísl. kr. Hrækti á tröppur dómshúss Hópur fyi'rverandi stríðsfanga frá Bretlandi, Astralíu, Nýja-Sjá- landi og Bandaríkjunum fór til Jap- an til að leggja áherslu á kröfur sín- ar og vera viðstaddir dómsúrskurð- inn í máli sem þeir höfðuðu á hend- ur japanska ríkinu. Bnigðust þeir ókvæða við úrskurðinum og einn þeirra hrækti á tröppur dómshúss- ins. Þá sagði annar fyirverandi stríðsfangi að niðurstaðan væri til skammar fyrir Japani samanborið við þá niðurstöðu Breta að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðis- herra í Chile, myndi ekki njóta frið- helgi í Bretlandi. Stríðsfangarnir hafa þegar áfrýjað málinu. Silguy segir Breta munu Lundúiium. Reuters. YVES-Thibault de Silguy, sem fer með peningamál í framkvæmda- stjóm Evrópusambandsins (ESB), sagðist í gær telja að Bretar myndu fyrr en slðar ganga til liðs við Efna- hags- og myntbandalag Evrópu (EMU), vegna þess að brezka rfkis- stjórnin gerði sér grein fyrir kostn- aðinum sem því fylgdi að gera það ekki. „Þegar Bretai' ákveða að ganga í bandalagið, sem ég trúi að þeir geri, munu fyrirtæki geta keppt á jafn- réttisgrundvelli við fyrirtæki á svæðinu sem notar hinn sameigin- lega gjaldmiðil," sagði de Silguy er hann ávarpaði franska verzlunar- ráðið í Lundúnum. Hann tók fram ganga 1 að helmingur allra utanríkisvið- skipta Breta væru við myntbanda- lagssvæðið. Ellefu af fimmtán aðild- arríkjum ESB munu taka upp hinn sameiginlega Evi'ópugjaldmiðil um áramótin. Tony Blair forsætisráðherra ít- rekaði fyrr í vikunni að sú stefna sem stjórn hans hefði markað varð- andi hugsanlega aðild Bretlands að EMU EMU væri óbreytt; af inngöngu landsins yrði eingöngu ef efnahags- legar aðstæður þróuðust þannig að hún yrði landinu ótvírætt til hags- bóta. Iðnjöfrar hvelja til inngöngu Með ummælum sínum var Blair að bregðast við áskorunum frá iðn- jöfrum í landinu um að evran, hinn sameiginlegi gjaldmiðill, verði tek- inn upp í Bretlandi. A mánudaginn birtist heilsíðuauglýsing í Financial Times, sem eitthundrað þekktir fyr- irtækjarekendur skrifuðu undir, en í auglýsingunni voru útlistuð rök fyrir því að Bretlandi væri hollt að ganga í EMU. Schröder í Brussel Reuters GERHARD Schröder, kanzlari Þýzkalands, og Jacques Santer, forseti framkvæmda- stjórnar Evrópusam- bandsins (ESB), heils- ast í Brussel, þangað sem Schröder kom í sína fyrstu opinberu heimsókn í gær. Þjóð- veijar taka við for- mennsku í ráðherra- ráði ESB um áramót- in og því snerust við- ræður þeirra Santers aðallega um verk- efnadagskrá sam- bandsins fyrri hluta næsta árs. Schröder notaði þó tækifærið t.il að ítreka óskir Þjóðveija um að við end- urskoðun Ijárlaga sambandsins verði greiðslur Þjóðveija til sameiginlegra sjóða þess lækk- aðar. Eins og er leggja Þjóðveij- ar fjárlögum ESB langmest til, eða allt að 70%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.