Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 34
34 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Laxnessvika í Mosfellsbæ VIKA tileinkuð Halldóri Kiljan Lax- ness verður dagana 28. nóvember til 5. desember í kaffíhúsinu „I túninu heima“, Þver- holti 2, Kjarna, Mosfellsbæ. Dagskráin hefst á morgun, laug- ardag, kl. 16, með því að lesið verður úr ævi; söguhlutanum „I túninu heima“. Bjarki Bjarna- son segir frá ævi og störfum skáldsins; Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur og Jón Þorsteinsson flytur hugvekju. Frá mánudagi til föstudags, kl. 17-18, verður „orðið laust“. Þá eru Mosfellingar og aðrir gestir vel- komnir í ræðupúlt og lesa uppá- halds kaflann sinn, uppáhalds ljóð, segja gamansögur af skáldinu o.s.frv. Mosfellingar hefja lestur öll kvöldin, m.a. Salóme Þorkelsdóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir, Jón M. Guðmundsson á Reykjum og Magn- ús Sigsteinsson. Kl. 17.30 alla dag- ana stiga svo í púlt unlingar úr gagnfræðaskólanum í Mosfellsbæ. Laxnessvikunni lýkur 5. desember með leikþáttum úr verkum skálds- ins sem Leikfélag Mosfellsbæjar flytur. ------------- Arni Björnsson setur samkomuna með stuttu spjalli um rithöfundinn. Glerlistarsýning Glerlistarsýning Heiðrúnar Jens- dóttur verður opin 28. og 29. nóvem- ber frá kl. 14-18 í Haukshúsum. Heiðrún lærði glerbræðslu hjá Jónasi Braga glerlistarmanni, einnig nam hún leirmótun og leir- rennslu við Myndlistaskóla Reykja- víkur og var nemandi í leirmótun í Myndlistaskóla Kópavogs. -------♦-♦♦------- Samdrykkja um Njálu STOFNUN Sigurðar Nordals gengst fyrir samdrykkju um Brennu- Njáls sögu í Norræna húsinu, laugar- daginn 28. nóvember kl. 14. Þar flytja Jón Karl Helgason, bók- menntafræðingur, Kristján Jóhann Jónsson rithöfundur og Þorsteinn Gylfason heimspekingur erindi um Njáls sögu, Njálurannsóknir og áhugann á fornsögunum og ræða saman um söguna. Jón Yngvi Jó- hannsson bókmenntafræðingur stjórnar umræðunum. Jón Karl Helgason hefur nýlega sent frá sér bókina Hetjan og höf- undurinn, sem fjallar um viðhorf Is- lendinga til Islendingasagna. Krist- ján Jóhann Jónsson hefur skrifað bókina Lykillinn að Njálu og Þor- steinn Gylfason ritar formála að nýrri útgáfu á enskri þýðingu á Njáls sögu eftir Carl F. Beyerschmidt og Lee M. Hollander. Fyrirlestur í Listasafni Islands ÓLAFUR Gíslason, sérfræðingur við Listasafn Islands, flytur fyrirlestur um sýninguna 80/90 Speglar samtímans í Listasafni Islands, laugardaginn 21. nóv- ember kl. 16. -♦-♦-♦--- Haustsamkoma í Haukshúsum DÆGRADVÖL, félag um listir og menningarmál á Alftanesi, efnir til haustsamkomu í Haukshúsum sunnudaginn 29. nóvember kl. 20.30. Rithöfundurinn Einar Már Guð- mundsson mun lesa valda kafla úr bókum sínum. Inni á milli verða flutt tónlistaratriði eftir Tryggva Baldursson. Hann mun sjálfur kynna verk sín og leika á píanó. Honum til fulltingis verður sópran- söngkonan Signý Sæmundsdóttir. ------♦-♦-♦---- Málverka- uppboð á Hótel Sögu GALLERÍ Fold heldur listmuna- uppboð á Hótel Sögu sunnudaginn 29. nóvember kl. 20.30. Boðin verða upp verk af ýmsum toga, þar á meðal fjöldi verka gömlu meistaranna. Hægt er að skoða upp- boðsverkin í Galleríi Fold, Rauðarár- stíg 14, fóstudag kl. 10-18, laugardag kl. 10—17 og sunnudag kl. 12-17. Upp- boðshaldari verður Magnús Axelsson. ------♦♦-♦----- Leitað eftir verkum á sýningu FORRÁÐAMENN Hafnarborgar, menningar- og listastofnun Hafnai- fjarðar, leita eftii- ábendingum um verk Sóleyjar Eiríksdóttur (1957-1994), sem mögulegt væri að fá lánuð á sýningu sem fyrirhugað er að setja upp í Hafnarborg á næsta ári á verkum listakonunnar. mmmmmmmmmmmmmmmBmmmmmmMmmfflmMmmMmmmmmmmmmmmmMmmm Diego Bellini Nýkomin sending ■ 1 •Á I Litir: Svartir, brúnir og d.bláir Stærðir: 35-42 Tegund: 12080 Litir: D.bláir og brúnir Stærðir: 36-43 Tegund: 7525 Mikið úrval af dömuskóm D0MUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík Sími 551 8519 STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12 • Reykjavík Síml 568 9212 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR I : I ■ : Ole Kock og Stór- sveitin okkar TONLIST Káðhús Kcykjavfkur STÓRSVEITARDJASS Stórsveit Reykjavíkur: Snorri Sig- urðsson, Andrés Björnsson, Einar Jónsson, Jóhann Stefánsson og Birkir Freyr Matthfasson, trompetar; Ed- ward Fredriksen, Björn R. Einars- son, Einar Jónsson, Helgi Jónsson og David Bobroff, básúnur; Jóel Pálsson, Ólafur Jónsson, Stefán S. Stefánsson, Sigurður Flosason og Kristinn Svavarsson, saxófónar, klarinettur og flautur; Ástvaldur Traustason, pí- anó, Edvard Lárusson, gítar, Gunnar Hrafnsson, bassi, Jóhann Hjörleifs- son, trommur. Stjórnandi Ole Kock Hansen. Verk og/eða útsetningar eft- ir Ole Kock Hansen. Miðvikudagur 25. nóvember. „í FORNÖLD á jörðu var frækorni sáð,“ orti sálmaskáldið sæla Valdimar Briem á síðustu öld. Það frækorn var að vísu guðsríki, en frækomið sem hér er til um- fjöllunnar er Stórsveit Reykjavík- ur er Sæbjöm Jónsson sáði til iyrir rúmum áratug. I fyrstu var mikill áhugamannabragur á sveitinni og brassið sérí lagi veikt en síðan hafa orðið mikil umskipti. Nú stendur brassið söxunum lítið að baki; hrynsveitin kannski veikasti hlekk- ur sveitarinnar, en þar hafa mannaskipti verið tíð. Sæbjöm hefur komið sveitinni til manns, en undanfarið hefur hún orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá til liðs við sig þrjá úrvals stjórnendur og flutt verk þeirra og/eða útsetningar. Á RúRek í fyrra stjórnaði gamli Count Basie-meistarinn Frank Foster sveitinni og vora öll lögin á efnisskránni eftir hann utan tvö. Á Jazzhátíð Reykjavíkur í haust stjómaði Svíinn Daniel Nolgárd sveitinni og lék hún útsetningar hans á verkum eftir Thad Jones og Sigurð Flosason og á miðvikudags- kvöldið var stjórnaði danski stór- sveitarmeistarinn Ole Kock Han- sen sveitinni og vom öll lögin á efn- isskránni útsett af honum; öll nor- ræn utan eitt: Day Dream eftir Billy Strayhorn. Ole gafst aðeins kostur á tveimur æfíngum með hljómsveitinni og annami í styttra lagi og má því segja að árangurinn hafi verið allgóður. Að vísu vora hnökrar hér og þar. Innkomur ekki hnífskarpar og örendið þraut stundum í löngum tónhendingum, enda útsetningarnar ekki af létt- ustu gerð. Flest sem máli skipti var þó vel gert og ekki væri ekki ónýtt að fá einhvern djassstjórn- anda í svipuðum gæðaflokki og þeir þremenningar era til að vinna með sveitinni í eina eða tvær vikur og væru hljóðfæraleikararnir á launum þann tíma, en þeir leika jafnan launalaust. Verðugt verk- efni fyrir menningarborgina Reykjavík árið 2000. Tónleikarnir í Ráðhúsinu hófust á Grand Slam eftir Ole. Létt upp- hitun þar sem Jóel blés tenórsóló og svo kom Mimulus, Apatréð. Það lék Samnorræna stórsveitin undir stjórn Jukka Linkola í Borgarleik- húsinu á Norrænum útvarpsdjass- dögum 1990 og Ole á píanó. Þar blés Bosse Broberg trompetsóló- inn en Snorri Sigurðsson í Ráðhús- inu. Snorri blés líka í öðru verki eftir Ole sem Samrorræna stór- sveitin lék í Borgarleikhúsinu: Forespil til en dansk folkesang, sem er langur inngangur að Det haver s& nyeligen regnet, en þar var Markku Johannsen einleikari á flygilhorn. Snorri er efnilegur og blés þetta vel þó hann sé ekki kominn í flokk hinna norrænu stórstjarna, en Stórsveitin spilaði verkin betur en sú samnorræna 1990 og hefði engan granað þá að sú yrði raunin. Sveitin lifnaði öll eftir trompetsólóin í Mimulus og Gunnar Hrafnsson var íslenskur NH0P í þjóðvísunni. Það var hann líka í Natten er sá stille eftir Weyse, sem Ole útsetti sérstak- lega fyi-ir Niels. Hljómsveitin hljómaði fallega norræn í þessu lagi ekki síður en í sænska sjó- mannavalsinum Sömanden elsker havets vag, en útsetning Ole var frumflutt á þessum tónleikum. Utsetningarnar á dönsku þjóð- vísunni um riddarann Ebbe Skammelson og Day Dream eftir Billy Strayhom skrifaði Ole fyrir Dönsku útvarpsstórsveitina þegar Thad Jones stjórnaði henni og urðu þær frægar af skífunni: By Jones, I think we’ve got it. Að sjálfsögðu náði Stórsveitin ekki Thad Jones-fluginu frekar en þeg- ar Daniel eða Frank stjórnuðu henni, en Birkir Freyr átti fínan trompetsóló í Ebbe og Sigurður Flosason var einleikari á altósaxó- fón í Day Dream. Billy skrifaði þetta verk fyrir Ellington-bandið og Johnny Hodges og Jesper Thilo blés það með dönsku stórsveitinni. Hann var Hodgeslegri en Flosa- son, sem er bíboppmaður af lífí og sál. Sigurður er mikil ballöðu- meistari, en það er erfítt verk að standa upp og blása sóló eins og þennan þegar maður verður að blása með hljómsveitinni á fjölda hljóðfæra; allt frá pikkalóflautu til bassaklarinetts. Tamma er lag sem Ole tileinkaði hundinum sínum. Þar voru einir tíu sólistar og margir góðir, en bestur fannst mér Ólafur Jónsson, sem tókst að ná fönkbopp-tilfínningunni hárréttri. Það er meira spunnið í Ólaf en oft virðist við fyrstu heyrn. Ole Kock lék einleik á flygilinn á tónleikunum, en mikið finnst mér Ole skemmtilegri píanisti með Ni- els og Alex en einn á báti. Hann lék dönsk þjóðlög og barrokk og end- aði á barnagælunni alkunnu, Fílamarsinum, og þá tók hljóm- sveitin undir og Eddi Láruss. lék blúsaðan sóló af tilfínningu. Aukalag var að sjálfsögðu ekkert til eftir tæplega tveggja kvölda æf- ingu, en fólk stóð upp og klappaði og klappaði svo síðustu taktarnir úr Ebbe Skammelspn voru blásnir aftur. Vernharður Linnet Hættir hjá Vínar- drengja- kórnum Vín. Reuters. FYRSTI kvenstjórnandi hins heimsþekkta Vínardrengjakórs hefur sagt starfi sínu lausu, vegna deilna um vinnuálag á kórfélaga. Sljóraandinn, Agnes Grossmaim, hefur barist fyrir því að fækka tónleikum kórsins til að draga úr álagi á drengina, sem eru á aldrinum 10 til 13 ára, en það hefur fengið dræmar undirtektir í sljóm kórsins. Grossmann taldi nauðsynlegt að styrkir hins opinbera til Vínardrengjakórsins yrðu hækkaðir svo að kórinn væri ekki eins háður tekjum af tónleikahaldi. Það fékkst ekki í gegn og kvaðst Grossmann „ekki geta, með góðri samvisku, borið ábyrgð á velferð og listrænum þroska baraanna“. Sumir drengjanna eru allt að fjóra mánuði á ári á ferðalögum í útlöndum. Grossmann tók við stjórn kórsins í janúar 1997, fyrst kveima. Á þeim tæpum tveimur árum sem iiðin eru hefur hún dregið úr hinum stranga aga sem rikt hefur í kórnum varðandi æfingar og tónleikahald og fyrr á þessu ári tilkynnti hún að stúlkum yrði leyft að stunda tónlistarnám í sama skóla og drengjakóriim. Stúlkumar fengju liins vegar ekki inngöngu í kórinn, sem varð 500 ára fyrr á þessu ári. J Morgunblaðið/Margrét Ágústsdóttir SIGRUN Jónsdóttir, listakona, ásamt Erlu Gunnarsdóttur, umsjónarmanni sýningarinnar. Islensk list á Capitol Hill Washinj^ton. Morgunblaðið. NYLEGA var haldin sýning á verkum Sigrúnar Jónsdóttur, listakonu, í Cannon-byggingu fulltrúadeildarþingmanna á Capitol Hill í Washington DC. Sigrún sýndi vefnað og verk úr steindu gleri. Einnig voru á sýn- ingunni ljósmyndir Mats Wibe Lund og útskurður eftir Gunnar Gunnarsson. Gestir sýningarinn- ar fengu þarna innsýn í þann mikilleik sem einkennir ísland og íslenskt landslag, þar sem meiri- hluti verkanna skírskotuðu til ís- lenskrar sögu og náttúru. Sendiherrahjónin, Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram, buðu til móttöku í sendi- herrabústaðnum í tilefni sýning- arinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.