Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 21 1 VIÐSKIPTI Mun minni hagvexti spáð í heiminum á næsta ári London. Reuters. HAGVÖXTUR í heiminum mun minnka um helming, í 1,7% 1999 úr 3,5% á þessu ári, og svo getur farið að samdráttur í heiminum verði verulega meiri en í ársbyrjun sam- kvæmt spám tveggja óháðra stofn- ana í Bretlandi. London Business School (LBS) og Oxford Economic Forecasting (OEF) segja að það sem muni aðal- lega stuðla að niðursveiflu á næsta ári verði minnkandi innanlandseft- irspurn í Japan og Bandaríkjunum, fremur en vandkvæði í viðskiptum við þróunarríki. Bandaríkin valda mestum áhyggjum „Innanlandseftirspurn í Banda- ríkjunum veldur okkur mestum áhyggjum,“ segir í skýrslunni." „Hætta er á því að heimili og fyr- irtæki verði ekki lengur fús að standa undir eyðslu með lánum og vilji reyndar endurgi-eiða lán - og valda þar með hreinum bandarísk- um samdrætti árið 1999, að því er fram kemur í skýrslunni." í skýrslunni segir að staðan í As- íu virðist vera að komast í jafnvægi. Astandið þar virðist vera að færast í stöðugra horf um leið og gengi gjaldmiðla virðist batna nokkuð, iðnaðarframleiðsla að ná botni og viðskiptastaða að styrkjast. Það sem aðallega háir bata í Asíu séu of háir raunvextir og stefnulöm- un Japana. An verulegrar fjárhagsörvunar og atlögu gegn óinnheimtanlegum skuldum kann verg landsfram- leiðsla Japans (GDP) að minnka í innan við 2% 1999 og það mun skaða Asíu og ógna kínverskum yu- an^ segir í skýrslunni. I Evrópu er sagt að hagvöxtur geti komizt í hættu ef nýr og sam- eiginlegur gjaldmiðill ESB, evra, eflist. Innanlandseftirspurn kunni að verða of lítil til að bæta upp minni útflutning. Stofnanirnar segja að aukning landsframleiðslu, GDP, í hinum 11 löndum evru-svæðisins muni minnka í 2,5% 1999 úr 2,9% í ár og geti minnkað meir, ef Bandaríkin verði samdrætti að bráð. Óbein áhrif frá ólgusvæðum Vandamál í Rússlandi, Brasilíu og á þróunarmörkuðum stofni heimsviðskiptum í hættu, en líklega muni bein áhrif á stærstu hagkerfi Vesturlanda verða tiltölulega lítil vegna tiltölulega lítils útflutnings vestrænna ríkja á þessa markaði. Það sem kemur Bandaríkjunum og Evrópu mest í koll er ekki minni verzlun, heldur neikvæð áhrif á greiðslumátt og fjárfestingu, segir í skýrslunni. Sem betur fer eru seðla- bankar vel í stakk búnir að ráða við slík vandamál, segir enn fremur. Stofnanirnar segja að verndar- stefna kunni að eflast, ef Bandarík- in verði íyiir samdrætti og það geti ógnað hagvexti þegar til lengri tíma sé litið. Tónlistarfyrirtæki ræða samvmnu ondon. Reuters. EMI Group Plc hefur staðfest að fyrirtækið hafi rætt við þýzka fjöl- miðlarisann Bertelsmann AG um hugsanlegt samstarf tónlistar- deilda fyrirtækjanna, en segir að hvorugur aðili hafi lagt fram til- boð. Að sögn talsmanns áttu fyrir- tækin óformlegar viðræður í síð- asta mánuði. Samkvæmt Sunday Telegraph gætu viðræðurnar leitt til sex milljarða punda samruna hinna tveggja tónlistarfyrirtækja. Fyrr á þessu ári sleit EMI við- ræðum við Seagi-am Co Ltd, sem síðan ákvað að kaupa PolyGram og verður PolyGram stærsta tónlist- arfyrii-tæki heims. Spice Girls og Rolling Stones EMI hefur meðal annars gert samninga við Spice Girls, Rolling Stones, Garth Brooks, Smashing Pumpkins og Bítlana, en Bertels- mann hefur Whitney Houston og Puff Daddy á sínum snærum. Bertelsmann á Artista hljóm- plötuútgáfuna, en meðal vöru- merkja EMI er Virgin. Verð bréfa EMI hækkaði um rúmlega 18% 13. nóvember þegar Los Angeles Times henndi að News Corp fyrirtæki Ruperts Murdochs hefði hug á að eignast hlut í fyrirtækinu. Seinna var sú frétt borin til baka. hartgri pi r SILFURBUÐIN Kringlunni • S: 568 9066 - aðeins betri - TS-400 handsími/bílasími 120 klst. NiMH rafhlaða Hraöhlcðslutæki 230 VAC Bilfesting m/12V hraðhleðslu Handfrjáls búnaður/hendur á lurftnetskapall með hraðtengi Islensk handbók 90ft Euro/Vi.sa raðgreiðslur www.istcl.is ÍKI Síóumúla 37-108 Reykjavik S. 588-2800 - Fax 568-7447 Tölvur og tækni á Netinu ^mbl.is /KLLTA/= 6/7T//UÍ4£7 NÝTl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.