Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 29
Landslagið í tónlistinni
TONIJST
Hafnarborg
SÖNGTÓNLEIKAR
Sólrún Bragadóttir sópran og píanó-
leikarinn Margaret Singer fluttu ís-
iensk sönglög, ítalskar óperuaríur og
fleira. Miðvikudagskvöid kl. 20.30.
ÞEGAR söngkonan fræga Elly
Ameling var með námskeið hér á
iandi vorið 1997 fyrir íslenska
söngvara, lagði hún mikla áherslu á
að söngvararnir tileinkuðu sér það
sem hún kallaði „the principle of
landscaping" eða lögmálið um
landslagsarkitektúr tónlistarinnar
eins og hægt er að kalla það. I
þessu felst að söngvari verður að
vera sér meðvitaður um „landslag"
tónlistarinnar og gera sér grein
fyrir því hvernig hann ætlar að
móta það, þegar berum nótunum
sleppir. Þetta snýst um frumþætti
tónlistarinnar, form, styrk, blæ,
hraða, lengd og fleira, og það
hvernig söngvarinn notar greind
sína til úrvinnslu þessara frum-
þátta til að gefa tónlistinni líf með
túlkun. Það er meginverkefni
söngvara alla tíð að tileinka sér
landslagslögmál tónlistarinnar. Allt
frá því að Sólrún Bragadóttir fór að
syngja opinberlega hefur hún haft
þetta lögmál á valdi sínu, - algjör-
lega. Aldrei hefur hún sungið öðru
vísi en fullkomlega músíkalskt. Það
var haft eftir henni í fjölmiðlum um
daginn að góð rödd væri ekki nóg í
hörðum bransa sönglistarinnar.
Góðar raddir eru þó ekki á hveiju
strái. En hvflík gæfa að hafa hvort
tveggja, - frábæra rödd og einstakt
músíkinnsæi. A sama tíma er það
ógæfa okkar að hafa ekki fengið að
heyra oftar í Sólrúnu Bragadóttur;
- söngvarar með þessa veislu í far-
angrinum eru nefnilega heims-
söngvarar.
Tónleikar Sólrúnar Bragadóttur
og ameríska píanóleikarans Marg-
aret Singer í Hafnarborg á mið-
vikudagskvöldið voru listviðburður.
Söngur Sólrúnar var stórkostlegur
frá upphafi til enda, og sama var að
segja um píanóleik Margaretar Sin-
ger. Allt frá píanóinngangi Margar-
etar í Exultate jubilate eftir Mozart
til lokatóna Sólrúnar í síðasta auka-
laginu, Ái’niðinum eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, var mikil músík-
nautn. Exultate jubilate er ein
kunnasta konsertaría Mozarts, -
þrískipt í formi, þar sem hraðir og
flúraðir þættir umlykja Ijóðrænan
millikafla. Þetta glæsiverk Mozarts
var flutt með einstökum glæsibrag.
Valið á íslensku sönglögunum var
mjög gott, og gaman að heyra lög,
sem sjaldan heyrast, í svo framúr-
skarandi flutningi. Þar bar hæst
Sofðu, sofðu góði eftir Sigvalda
Kaldalóns, sem þó er ekki svo
sjaldheyrt, og lög afmælistónskáld-
anna Jóns Asgeirssonar: Vor hinsti
dagur er hniginn og Þótt form þín
hjúpi graflín; lag Atla Heimis
Sveinssonar: Dalvísu og þjóðlaga-
útsetningar Þorkels Sigurbjörns-
sonar Gimbillinn mælti og Krummi
svaf í klettagjá. Fjögur lög eftir Jó-
hannes Brahms voru flutt af miklu
listfengi og næmi fyrir „landslags-
lögmálinu". Mikið væri gaman að fá
að heyra Sólrúnu syngja heila tón-
leika með Brahmslögum. I laga-
flokki Leonards Bernsteins, Four
Recipies, þar sem sungnar eru upp-
skriftir að fjórum ljúffengum rétt-
um, sýndi Sólrún hæfíleika sína til
gamanleiks. I tveimur ítölskum arí-
um, Tu che le vanita úr Don Carlo
eftir Verdi og Tu, che di gel sei
cinta úr Turandot eftir Puccini,
sýndi Sólrún hæfileika sína til
dramatíski-ar túlkunar. Þar með
hlaut þeim að verða ljóst sem ekki
vissu þegar, hvers vegna Sólrún
hefur átt velgengni að fagna í er-
lendum óperuhúsum.
Það er ánægjulegt að heyra að
söngrödd Sólrúnar Bragadóttur er
enn að þroskast og dafna. Röddin
situr framar í andlitsmaskanum og
hljómar enn meira út en áður; - er
reyndar orðin ótrúlega voldug á
mesta styrk, en hefur samt þann
hæfíleika að geta sungið hvað sem
er, jafnt flúraðan kóloratúr sem
langar, hægar hendingar á veikasta
styrk og það er mikil kúnst.
Þrátt fyrir það yndi sem gagn-
rýnandinn hafði af þessum tónleik-
um, þá ætlar hann þó að leyfa sér
að finna á þeim löst. Lösturinn sá
er samsetning efnisskrárinnar.
Verkefnavalið var of sundurleitt og
ósamstætt og vantaði sárlega svip-
mót. Það vantar svo átakanlega í
söngtónleikaflóruna hér á landi að
fá að heyra tónleika með vel völdu
efni, sem hefur einhvern heildar-
svip. Og hverjir ættu að syngja
slíka tónleika hér aðrir en okkar
allra bestu söngvarar? Það er því
fróm ósk að fá að heyra til dæmis
efnisskrá með amerískum lögum;
Ives, Barber, Rorem, Bernstein og
fleiri, - en Sólrún hefur áður sýnt
að hún hefur ameríska sönglaga-
hefð betur á valdi sínu en aðrir; -
nú eða Brahms eins og áður var
nefnt, - eða bara hvað sem er. Það
verður ævinlega tilhlökkunarefni
að heyra í henni aftur.
Bergþóra Jónsdóttir
matur, skemmtun, dans
Jólastemning í Súlnasal
öll fóstudags- og laugardagskvóld
Glæsilegt jólahlaðborð og fjölbreytt skemmtiatriði:
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Örn Árnason og nemendur úr
Suzuki tónlistarskólanum.
Hljómsveitin Saga Klass ásamt Reyni Guðmundssyni og
Sigrúnu Evu Ármannsdóttur leikur fyrir dansi eftir kl. 23.30.