Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 t MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Viljayfirlýsin^ um sölu á öllum hlutabréfum í Vífilfelli til CCNB undirrituð Eignast framleiðslu- rétt og verksmiðju EIGENDUR Vífflfells ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um sölu á öllum hlutabréfum í félaginu tU Coca-Cola Nordic Beverages A/S (CCNB)í Danmörku. Með væntan- legum kaupum mun CCNB eignast alla framleiðslustarfsemi Vífilfells og þar með talda verksmiðju þess í Reykjavík. Að sögn Þorsteins M. Jónssonar, framkvæmdastjóra Víf- ilfells, er kaupverðið ekki gefið upp. Samkvæmt lista Frjálsrar verslun- ar yfir 100 stærstu fyrirtækin var velta Vífilfells á síðasta ári 2.314 milljónir ki-óna. Samkomulagið um söluna er háð frekari frágangi og samþykki við- komandi aðila á endanlegum kaup- samningi svo og áskilinni meðhöndl- un hans innan Coca-Cola kerfisins að því er fram kom á blaðamanna- fundi í gær. Báðir aðilar vonast til þess að endanlega verði gengið frá kaupunum í byrjun árs 1999. A/S, sem var stofnað 1. október 1997, er í eigu Coca-Cola Company í Bandaríkjunum, sem á 49%, og Carlsberg A/S í Danmörku, sem á 51%. CCNB á nú Coca-Cola verk- smiðjur í Danmörku, Svíþjóð, Nor- egi og Finnlandi. Svend I. Peter- sen, forstjóri CCNB, segist vera mjög ánægður með að fá Vífilfell inn í fyrirtækið. Það njóti mikillar virðingar innan Coca-Cola keðjunn- ar fyrir góðan árangur í markaðs- og sölustarfi. Segir hann að góðan árangur Coca-Cola á íslandi megi síðast en ekki síst þakka frábæru starfi Péturs Björnssonar og fjöl- skyldu hans. Eins hafi Þorsteinn og starfsfólk hans staðið sig frábær- lega. Því sé CCNB ánægt með að Pétur hafi samþykkt að sitja áfram í stjórn félagsins og Þorsteinn að stýra startlnu á Islandi. Aðspurður sagði hann á blaða- mannafundinum að ekkert væri hæft í því að Vífilfelli hafi verið stillt upp við vegg og eigendur þess þvingaðir til þess að selja. „Vífilfell hefur haft framleiðsluréttinn í 56 ár. Hann hefur alltaf verið endur- nýjaður án nokkurra vífilengja og það hefði verið gert áfram.“ „Skrýtin tilfinning" „Góður samningur náðist“ Pétur Björnsson áfram í stjórn Vífilfells Pétur Björnsson, sem ásamt fjöl- skyldu sinni á meirihlutann í Víffl- felli, mun áfram eiga sæti í stjórn Vífilfells eftir fyrirhuguð eigenda- skipti. Þorsteinn M. Jónsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Víf- ilfells frá ársbyrjun 1996, mun halda áfram að stýra Coca-Cola starfseminni á Islandi. Coca-Cola Nordic Beverages Að sögn Þorsteins er það stefna Coca-Cola fyrirtækisins að eiga þau fyrirtæki sem hafa séð um átöppun fyrir það og er það helsta ástæðan fyrir því að allt hlutafé í Vífilfelli var selt. „Þetta hefur komið til tals í nokkur ár en það varð af því núna þar sem góður samningur náðist og var því ákveðið að láta slag standa á þessum tímapunkti," segir Þor- steinn en viðræður við CCNB hafi staðið yfir með hléum síðan í febrú- Pétur Björnsson segir að undan- farin sex ár hafi Vífilfell verið að undirbúa sig undir sameiningu meðal framleiðsluaðila Coca-Cola í Evrópu en það hafi verið stefna Coca-Cola fyrirtækisins allt frá ár- inu 1986 að svæðisskipta fram- leiðslufyi’irtækjum Coca-Cola í heiminum. Pétur segir að það sé dálítið skrítin tilfinning að eiga fyr- irtækið ekki lengur en þetta sé þró- unin í heiminum. „Eg sit áfram í stjórn félagsins og fylgist með rekstrinum. Eg hef nú gert lítið annað undanfarin ár en að fylgjast með og ég sé ekki að það breytist neitt. Þetta er breyting sem maður verður að gera upp við sig,“ segir Pétur. Vífilfell hefur verið með samning við Coca-Cola fyrirtækið í Banda- ríkjunum um einkarétt á fram- leiðslu á afurðum þess á Islandi frá árinu 1941. Pétur Björnsson tók við stjórn fyrirtækisins af foður sínum, Birni Ólafssyni, á árinu 1973. Morgunblaðið/Kristinn SVEND I. Petersen, forstjóri Coca-Cola Nordic Beverages, Pétur Björnsson, stjórnarformaður Vífilfells, og Þorsteinn M. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Vífilfells, kynntu sölu á öllu hlutafé í Vífilfelli til Coca- Cola Nordic Beverages í gær. J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.