Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÓÐUR TIL ÓPERUNNAR Sinfóníuhljómsveit Islands og Kór ■7----------------- Islensku óperunnar gangast fyrir tónleik- um í Háskólabíói í kvöld kl. 20. A efnis- Traustsins verður Ekki eins og Garðar hafi þurft að berjast fyrir því, kórinn hefur margoft komið fram með Sinfóní- unni á undanfomum hálfum öðrum áratug, og ætti því að þekkja vel til í Háskólabíói. „Sinfóníuhljómsveit- in hefur margoft fengið kórinn til liðs við sig í stærri verkefnum enda hefur hann reynst traustsins verður. Þarf svo sem engan að undra því margt af fremsta söng- fólki okkar í dag hefur haft viðdvöl í Kór Islensku óperunnar.“ Meðal gesta á tónleikunum verða tveir einsöngvarar - Olöf Kolbrán Harðardóttir sópransöng- kona og ítalski tenórsöngvarinn Renato Fransesconi. Ólöfu Kolbránu þarf vart að kynna fyrir íslenskum óperuunn- endum. Hún hefur um árabil verið ein ástsælasta söngkona þjóðar- innar. „Ólöf hefur verið okkar að- alsöngkona í Islensku óperunni nánast frá upphafi og einn helsti drifkrafturinn í starfsemi hennar. Við erum ótrálega heppin að hún skyldi gera Islensku óperuna að sínum starfsvettvangi, því hún gat sem best farið utan - til þess gáfust mörg tækifæri. Sem betur fer hefur okkur haldist á henni.“ Renato Fransesconi er þraut- reyndur tenórsöngvari. Garðar kveðst raunar sjaldan hafa séð aðra eins afrekaskrá. Hann hefur sungið með söngvurum á borð við Margaret Price, Katiu Ricciai-elli og Grace Bumbry og starfað með hljómsveitarstjórum eins og Metha, Abbado, Levine og Maazel. Þá hefur Francesconi hlotið fjölda Flutt verður tónlist úr mörgum óperum: Tannhauser og Hollend- ingnum fljúgandi eftir Wagner, La Traviata, Ótelló og Aida eftir Verdi, Evgení Onegin eftir Tsja- jkovskíj, Prins Igor eftir Borodin, Cavalleria Rusticana eftir Mascagni, Tosca eftir Puccini, Carmina Burana eftir Orff og Galdra-Lofti og Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson. Eftirlætisverk Garðar segir þetta allt eftirlæt- isverk kórsins. „Þetta eru verk sem við höfum flutt mörg hver í Is- lensku óperunni og viljum gjarnan flytja. Við höfum reyndar hvorki flutt Wagner-óperumar né Prins Igor áður og ekki heldur Þrymskviðu Jóns. Úr því verður vonandi bætt!“ Garðar segir sérstaklega ánægjulegt að geta flutt efni úr óperum Jóns Asgeirssonar, ekki síst þar sem tónskáldið hélt upp á sjötugsafmæli sitt á dögunum. „Svo eru þetta bara svo góðar óp- erur hjá Jóni - óperur sem eiga eftir að lifa góðu lífi um ókomna tíð.“ Undirbúningur kórsins fyrii’ tónleikana hófst þegar í haust en hann æfir jafnan tvisvar í viku. Nýverið fór hann svo í æfingabúðir í Reykholti yfir eina helgi, þar sem menn unnu að hætti berserkja. „Það var vel tekið á í Reykholti og eftir þá dvöl stóðu, leyfi ég mér að segja, allir klárir á sínu. Kórinn er alveg ótrálega viljugur. I þessari viku hefur svo endahnúturinn ver- ið hnýttur á æfingum með hljóm- sveitinni." Morgunblaðið/Ásdís GARÐAR Cortes stjórnar áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í fyrsta sinn í kvöld. SÖNGVARARNIR Renato Fransesconi og Ólöf Kolbrún Harðardóttir verða gestir á tónleikunum í Háskólabíói. viðurkenninga um dagana. Karlakórinn Fóstbræður verður einnig í gestahlutverki á tónleikun- um, bregða þeir félagar sér meðal annars í gem presta í Aida eftir Verdi. „Ætli þetta sé ekki einn voldugasti prestakór sem um get- ur - yfir sjötíu manns!“ Garðar ranghvolfir augunum þegar hann er spurður hvort það hafi ekki verið þrautin þyngri að setja saman efnisskrá. „Imyndaðu þér,“ segir hann eftir stund. „Af nógu er að taka. Auðvitað komst ekki allt fyrir sem við hefðum vilj- að flytja og stundum var rekið upp vein þegar efni var hent út. En svona er þetta þegar fasta efnis- skráin er orðin svona viðamikil." LANDK) OG ORKAN á Egilsstöðum Sýndar eru myndir Ragnars Axelssonar Ijósmyndara Morgunblaðsins af svæðum sem gætu farið undir virkjanir, samkvæmt áætlunum, sem gerðar hafa verið. Einnig eru sýndar saman- burðarmyndir þar sem fyrirhuguð uppistöðulón og mannvirki hafa verið teiknuð inná. Sýningin stendur til mánaðamóta og eru myndirnar til sölu. /§> mbl.is -ALLTAT eiTTHVAO NÝTT skrá er innlend og erlend óperutónlist en gestir verða Karlakórinn Fóstbræður og ------------------7--------------------- einsöngvararnir Olöf Kolbrún Harðar- dóttir og Renato Fransesconi. Tónsprot- inn verður í höndum Garðars Cortes. Orri Páll Ormarsson ræddi við Garðar en tónleikarnir hafa sérstaka þýðingu fyr- ir hann þar sem hann lætur senn af starfi óperustjóra. UTI í hinum stóra heimi heyra þeir til viðburða, óperutónleikar sinfóníu- hljómsveita. Engu er til sparað, hátíð ríkir, bæði í hljóð- rænum og sjónrænum skilningi. Óperuhefðin er að vísu styttri hér á landi en víðast hvar annars stað- ar, í það minnsta í Evrópu, en það breytir því ekki að þegar Sinfóníu- hljómsveit Islands og Kór Is- lensku óperunnar sameina krafta sína, með liðsstyrk góðra gesta, sperra tónlistarunnendur eyrun. Vísast verður setinn Svarfaðardal- ur í Háskólabíói í kvöld. Múgur og margmenni kemur að tónleikunum, um það bil tvö hund- ruð manns, en maðurinn á bak við þá er Garðar Cortes, sem sveiflar nú tónsprotanum í fyrsta sinn á áskriftartónleikum Sinfóníunnar. Áður hefur hann stjórnað hljóm- sveitinni við ýmis tækifæri. „Þegar ég var beðinn um að stjóma þessum tónleikum og velja efnisski’á fannst mér eðlilegast að taka verkefni sem tengjast óper- unni,“ segir Garðar sem um árabil hefur verið óperustjóri Islensku óperannar. Hann lætur reyndar senn af því starfi, eins og fram kemur annars staðar í blaðinu. „Auðvitað fannst mér líka við hæfi að hafa kórinn, sem ég stofnaði fyrir bi-áðum aldarfjórðungi og hefur fylgt. mér óslitið síðan, Kór íslensku óperannar, með mér.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.