Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Elísabet Pét- ursdóttir sýnir í MÍR ELÍSABET Pétursdóttir opn- ar sína fyrstu málverkasýningu á morgun, laugardag kl. 14 í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10. Sýningin stendur til 6. des- ember og er opin alla daga frá kl. 14-18. Sýningum lýkur Gallerí Listakot SÝNINGU Hrannar Vilhelms- dóttur á þrykktum krossum lýk- ur á morgun. Sýningin er opin virka daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-16. Fyrirlest- ur í MHÍ KRISTINN E. Hrafnsson myndlistarmaður heldur íyrir- lestur um eigin myndlist mánu- daginn 30. nóvember kl. 12.30 í fyrirlestrarsal MHI í Laugar- nesi. Fyrirlesturinn nefnir Kristinn Raunsannir atburðir. : INA Salóme við veggklæðin í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju KÓR Hallgrímskirkju flytur Messías á sunnudag. Messías og vegg- klæði í Hafnar- fj ar ð ar kir kj u KÓR Hafnarfjarðarkirkju flytur Messías eftir Handel sunnudaginn 29. nóvember kl. 16 í tónleikasal safnaðarheimilis Hafnaríjarðar- kirkju. Ennfremur verða vegg- klaeði helguð í salnum sama dag. I kórnum eru 35 félagar, undir stjóm Natah'u Chow. Undirleik annast fimmtán manna kammer- sveit. Konsertmeistari er Hhf Sig- urjónsdóttir. Einsöng flytja Signý Sæmundsdóttir, Ahna Dubik, Garðar Cortes og Loftur Erlings- son. Auk þeirra munu nokkrir félagar úr karlakórnum Þresti leggja kómum lið. Messías er í þremur þáttum og fjalla þeir um fæðingu, þjáningu og upprisu Jesú Krists, en kórinn mun á tónleikunum flytja fyrsta þáttinn. I Hásölum safnaðarheimihsins fer fram helgun veggklæða sama dag kl. 13. Prestar safnaðarins munu taka þátt í athöfninni og Eyjólfur Eyjólfsson leikur á þvei-flautu. Veggtjöldin em myndskreytt af , myndlistarkonunni Inu Salóme, i sem hefur, ásamt Stefáni Einars- I syni hljóðsérfræðingi og arkitekt- | um hússins, þeim Sigríði Magnús- dóttur og Hans Olav Andersen, hannað veggklæðin og umgjörð þeirra með tilliti til hljómburðar og útlits salarins. Veggklæðin eru samtals 20 dreglar sem eru 1,5 x 3 m hver og mynda saman eina heild í salnum. Ina vinnur með liti kirkjuársins í j þessu verki og form eru sótt í hinn I hafnfírska hamar. Morgunblaðið/Anna Ingólfs KAMMERKÓR Austurlands æfir Jólaóratoríu Bachs. Kammerkór Austurlands flytur Jólaóratoríu Bachs Egilsstöðum. Morgunblaðið. ÆFINGAR eru í fullum gangi hjá Kammerkór Austurlands, en kór- inn hyggst flyfja Jólaóratoríu eftir Jóhann Sebastian Bach nú fyrir jólin. Fluttar verða þrjár fyrstu kantötumar en Jólaóratorían er samansett úr sex kantötum. Um 30 söngvarar taka þátt og em þeir flestir frá Austurlandi. Hljómsveit- in er skipuð um 30 manns og koma þeir víða af Iandinu. Sumir þeirra hafa verið í námi Tónlistarskólans á Egilsstöðum og em í frekara námi í Reykjavík en koma austur til þess að taka þátt í þessu verk- efni. Einsöngvarar Jólaóratoríunn- ar eru Laufey Geirsdóttir, Þor- björn Rúnarsson, Muff Warden og Manfred Lemke. Kammerkór Austurlands var stofnaður á vor- dögum 1997 og flutti kantötuna Ich hatte viel Beckiimmernis eftir Bach fyrir páskana sama ár. Sl. vetur flutti kórinn Messías eftir G.F. Hándel og kantötuna Christ lag in Todesbanden eftir Bach. Stjómandi Kammerkórs Austur- lands er Keith Reed. Allt í plati í Stykkishólmi Stykkishólmi. Morgunblaðið. LEIKFÉLAGIÐ Grímnir í Stykk- ishólmi frumsýndi leikritið Allt í plati föstudagskvöldið 20. nóvem- ber. Leikstjóri og höfundur leik- ritsins er Þröstur Guðbjartsson. Leikritið er bamaleikrit og byggt á þekktum persónum úr þekktum bamaleikritum eftir Thorbjöm Egner og Astrid Lindgren. Þar koma fram persónur úr Kardimommubænum, ræningj- amir og Soffía frænka og dýrin í Hálsaskógi. Einnig má nefna Níels apa og Karíus og Baktus. Lína Langsokkur er á sviðinu mest allan tímann og tengir verkið saman. Mikið er um söngva sem löngu em þekktir og lifa með þjóðinni og margur maðurinn hef- ur sungið þegar hann var barn. Söngurinn setur sterkan svip á sýninguna. Það er mikið líf og fjör á sviðinu út alla sýninguna. Leik- endur era fímmtán. Með aðalhlut- verk fara Erna Björg Guðmunds- dóttir sem leikur Línu langsokk og Jóhann Ingi Hinriksson sem leikur Mikka ref. Athygli vekur hve búningamir falla vel að leikpersónunum og sama má segja um forðunina. Alla leikbúninga hannaði og saumaði Jóhanna Guðbrandsdóttir og er það mikið verk og vel gert. Alls koma 25 manns að sýning- Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason ATRIÐI úr leikritinu „Allt í plati“. unni og gekk vel hjá leikfélaginu töku. Leikritið verður sýnt í Stykk- Grímni að virkja bæjarbúa til þátt- ishólmi næstu vikur. Bækur og bio MÁL og menning, Forlagið og Háskólabíó efna til fjölskyldu- dags í Háskólabíói sunnudaginn 29. nóvember kl. 13. Sýning á bamamyndum verður á hálftíma fresti milli kl. 13 og 17 og lesið verður úr nýjum bama- bókum fyrir hverja sýningu. Á göngum og í anddyri verður ýmislegt um að vera, m.a. mun hljómsveitin Rússíbanar flytja lög af plötunni Elddansinn, og Anna Pálína Árnadóttir og Aðal- steinn Ásberg Sigurðsson flytja lög af plötunni Berrössuð á tán- um. Heilbrigðisnefnd Sjálfstæðisflokksins Heilbrigðismál á nýrri öld Opinn fundur í Valhöll laugardaginn 28. nóvember kl. 10.00-12.00. Gestur fundarins er Geir H. Haarde, fjármálaráðherra. Allir velkomnir. Stjómin. Umhverfís- og skipulagsmálanefnd Sj álfstæðisflokksins Arður/arðsemi umhverfisnefndar á nýrri öld Opinn fundur í Valhöll laugardaginn 28. nóvember kl. 10.00-12.00. Gestur fundarins er Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri Umhverfisráðuneytisins. Allir velkomnir. Stjómin. Bar-Tender’s kokkteílblöndur í míklu úrvali LAXMANN Fax: 568 2187 Skartgripir Gæðavara á góðu verði Heildsölubirgðir EINCO EHF. Skúlagötu 26. sími 893 1335
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.