Morgunblaðið - 27.11.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 27
Klofningur innan þýzku stjórnarinnar um innflytjendamál
Græningjar gagnrýna
Schröder og Schily
HÖRÐ deila er komin upp milli
þýzku stjórnarflokkanna, jafnað-
armanna og Græningja, sem snýst
um innflytjendamál.
Græningjar beindu í gær spjót-
um sínum að Gerhard Schröder
kanzlara fyrir ummæli sem höfð
voru eftir honum í vikublaðinu Die
Woche á miðvikudag. Þar sagði
hann að Þýzkaland þyldi ekki frek-
ari straum innflytjenda og stóð
fast að baki innanríkisráðherran-
um Otto Schily, sem kom deilunni
af stað með svipuðum ummælum í
blaðaviðtali fyrir nokkrum dögum.
Schröder sagði Schily aðeins hafa
fært staðreyndir í orð.
Frammámenn í Græningja-
flokknum og fulltrúar hagsmuna-
samtaka útlendingahópa í Þýzka-
landi gagnrýndu bæði Schröder og
Schily; ummæli þeirra væru ekki
til annars fallin en að ýta undir út-
lendingaandúð. „Hver sem segir
að mörkin hafi verið sprengd er
aðeins að ýta undir ótta og gerir
sig, óviljandi, að lykilvitni útlend-
ingaandúðar framtíðarinnar,“
sagði græninginn Rupert von
Plottnitz, sem er dómsmálaráð-
herra sambandslandsins Hessen, í
viðtali við dagblaðið Bild.
Innflytjendaland
eða ekki?
Kerstin Múller, sem á sæti í
flokksstjórn Græningja, sagði í
gær að það lægi í augum uppi að
Þýzkaland væri innflytjendaland í
raun. „Sem þjóð í Evr-
ópu miðri getum við
ekki einfaldlega lokað
okkur af,“ sagði hún.
Sehily ítrekaði hins
vegar fyrri ummæli sín
í sjónvarpsviðtali; að
sínu mati væri það
ekki á Þýzkaland
leggjandi að taka við
fleiri innflytjendum. í
fyrra hefðu 750.000
manns komið inn í
landið, það er mun
fleiri en hið dæmigerða
innflytj endaland
Bandaríkin hefði tekið
á móti. Þess vegna
verði að setja innflytjendakvótann
í ár á núll. Þessu svaraði græning-
inn Marieluise Beck, sem er opin-
ber talsmaður ríkisstjórnarinnar í
útlendinga- og innflytjendamálum,
með því að segja að Þýzkaland
þurfi á innflytjendum að halda.
Þess vegna hafi flokkur hennar
lagt til að ákveðinn yrði árlegur
innflytjendakvóti upp á 440.000
manns.
Að sögn Der Spiegel, sem gerði
deiluna að forsíðuefni nýjasta heft-
is tímaritsins, eru Græningjar
harðir á því að gefa sig hvergi
varðandi stefnuna í útlendinga- og
innflytjendamálum, þar sem þeir
hefðu þurft að gefa eftir á svo
mörgum öðrum sviðum við gerð
stjómarsáttmálans. Kjarnastuðn-
ingsmenn græningja væri að finna
í röðum meðlima
mannréttindasamtaka
og slíkra, sem sæu
hlutverk sitt í að tala
máli minnihlutahópa,
og ekki þykir koma til
greina að valda þess-
um stuðningsmönnum
vonbrigðum.
En þótt Schily, sem
á áttunda áratugnum
varð þekktur sem lög-
verjandi hryðjuverka-
manna RAF og tók
þátt í stofnun Græn-
ingjaflokksins á sín-
um tíma, segðist
standa við orð sín,
minnti hann gagnrýnendur sína á
að það væri á hans verksviði að
framfylgja loforði stjórnarflokk-
anna um að veita milljónum út-
lendinga, sem búa í Þýzkalandi,
ríkisborgararétt.
Hægrimenn ánægðir
Talsmenn hægrimanna, þar á
meðal Gúnther Beckstein, innan-
ríkisráðherra Bæjarlands, fögnuðu
ummælum Schilys. Beckstein hef-
ur að undanförnu verið sérstakur
skotspónn gagnrýni úr röðum
Græningja og hagsmunasamtaka
útlendinga í Þýzkalandi vegna
brottvísunar síbrotaunglings, sem
á tyrkneska foreldra en er uppal-
inn í Múnchen. Hann var fluttur
nauðugur til Istanbúl um þarsíð-
ustu helgi.
Otto Schily
Lá látinn heima
hjá sér í fimm ár
WOLFGANG Dircks, sem bjó í
einsherbergis leiguíbúð í fjölbýl-
ishúsinu að DieselstraBe 56 í
Hamborg, lá andaður á sófanum
heima hjá sér í fimm ár, unz hann
fannst þar nú á dögunum, án
þess að nokkur saknaði hans.
Direks, sem var fráskilinn og
atvinnulaus málmsmiður á fimm-
tugsaldri, dó sennilega hinn 5.
desember 1993. Sjónvarpsvísir,
sem lá á borði við hlið líksins, var
opinn á þessari dagsetningu. A
borðinu stóð einnig opin bjórdós.
Allan þennan tíma saknaði
hans greinilega enginn, ekki ætt-
ingjar, nágrannar, ekki einu sinni
yfiivöldin. Aldrei íyrr, að því er
Der Spiegel greinir frá, hefur
það gerzt í Þýzkalandi að maður
hafi legið svo lengi látinn heima
hjá sér án þess að umheimurinn
yrði þess var. Þykir Þjóðverjum
harmsaga þessa manns vera
dæmigerð fyrir þá nafnlausu firr-
ingu og skort á persónulegum
tengslum fólks sem einkennir líf-
ið í stórborginni. Um sautján
hundruð þúsund manns búa í
Hamborg og helmingur allra
íbúða borgarinnar hýsir einstak-
linga.
Eftir að Iík Dircks fannst undr-
uðust menn að nági-annarnir
skyldu ekki hafa orðið varir við
rotnunarlykt. Að sögn lögregl-
unnar skýrist þetta af því, að
maðurinn dó um miðjan vetur,
þegar kalt var í veðri, og mjög lít-
ið var skrúfað upp í miðstöðinni.
Þegar hlýnaði um vorið, mörgum
mánuðum eftir andlátið, var líkið
þegar orðið svo uppþornað, að
rotnunin varð mjög hæg.
Enginn hafði séð ástæðu tO að
athuga hvað orðið hefði um herra
Dircks. Hvorki fbúðareigandinn,
sem í þessu tilviki var fyrirtækið
HBH, né bankinn, síminn, raf-
veitan né pósturinn höfðu ástæðu
til þess. Öldruð móðir Dircks,
Wilma, sá alltaf um að borga
reikningana þótt hún hefði árum
saman ekkert samband haft við
son sinn.
Drakk sig í hel
Mæðginin höfðu ekki talast við
frá því Wilma heimsótti Dircks á
sjúkrahús árið 1992, þar sem
hann gekkst undir skurðaðgerð á
mjöðm, en upp frá því þurfti
hann að ganga við hækjur.
Dircks hafði heiminn æ meir á
hornum sér, hann dró sig í hlé í
sinni litlu íbúð og drakk. Hann
hafði verið alkóhólisti í fimmtán
ár þegar hann dó, eða frá því
slitnaði upp úr hjónabandi hans
árið 1977.
Meðal nágrannanna hafði
breiðzt út sú saga, að Direks
hefði flutt á hjúkrunarhæli, þar
sem hann hefði það miklu betra.
Það var fyrst þegar sambýlis-
maður móður hans dó, að málið
upplýstist. Af einfóldum eftir-
launum hafði hún ekki lengur
efni á að borga alla reikningana
fyrir soninn. Þegar greiðslur
hættu að berast fyrir leigunni lét
fyrirtækið sem átti íbúðina brjót-
ast inn í hana. Þá fann starfsmað-
ur þess loks skorpnað líkið.
Nauðugir í
þjdnustu
saudi-arab-
ísks prins
Kaíró. Reuters.
ÁSAKANIR um illa meðferð saudi-
arabísks prins á Egyptum í hans
þjónustu stefna nú stjórnmálasam-
skiptum Egyptalands og Saudi-Ara-
bíu í hættu.
Málið komst í hámæli í síðustu
viku eftir að tveir egypskir þjónar
voru lagðú- inn á sjúkrahús í Kaíró
eftir að þeir höfðu slasast alvai-lega
við flótta úr vist Turki bin Abdul
Aziz, eins af sex albræðrum Fahds,
konungs Saudi-Arabíu. Að sögn eg-
ypsku lögreglunnar hafði Ahmed
Noureddin og Ahmed Abdel-Satar
verið haldið nauðugum í tvö ár í vist-
arverum prinsins á 29. hæð Ramses
Hilton hótelsins í Kamó. Þeim tókst
loks að flýja með því að binda saman
rúmföt og láta sig síga niður á 26.
hæð hótelsins, en þeir slösuðust þeg-
ar þeir stukku þaðan niður á 24.
hæð. Tjáðu þeir lögreglunni að níu
öðrum þjónum væri haldið föngnum
af fílefldum lífvörðum prinsins.
Prinsinn verði rekinn úr landi
Nú hafa egypskir þingmenn kraf-
ist svara við því hvernig prinsinn gat
haldið Egyptunum nauðugum í þjón-
ustu sinni, og ættingjar þeirra þjóna,
sem enn eru í haldi prinsins, hafa
lagt fram formlega beiðni til sak-
sóknara um að þeir verði frelsaðir.
Ennfremur hefur lögmaður í Kaíró
krafist þess að dómstóll skipi fyrir
um að prinsinn verði rekinn úr landi.
Turki bin Abdul Aziz hefur búið í
Egyptalandi um árabil, síðan hann
komst upp á kant við konungsfjöl-
skylduna í Saudi-Arabíu vegna kvon-
fangs síns. Hann hafði fram að þeim
tíma safnað auði sem aðstoðarvarn-
armálaráðherra Saudi-Arabíu. Að
sögn egypskra blaðamanna hafa
stjórnvöld í Kaíró nokkrum sinnum
þaggað niður kvartanir um hrotta-
skap lífvarða prinsins.
I* 1 |
HAGKADP
» . tttmrxrt
LACERIWV
17 verslanir og þjónustuabilar
bjó&a frábært vöruúrval til
hátíbarundirbúnings og jólagjafa.
Næg bílastæbi.