Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður Framsóknarflokksins boðar sáttagerð f sjávarútvegsmálum (
VIÐ erum í djúpum skít hæstvirtur sægreifi. Dóri er frelsaður og ætlar að metta fimm þúsund.
Morgunblaðið/Ásdís
NEMENDUR Kvennaskólans í Reykjavík færðu Aðalsteini Eiríkssyni gjöf og þökkuðu honum áralangt sam-
starf en hann er nú í tveggja ára leyfi sem skólameistarí meðan hann sinnir sérverkefnum í menntamála-
ráðuneytinu.
Nemendur kvöddu Aðalstein Eiríksson
NEMENDUR Kvennaskólans í
Reyly'avík kvöddu á dögunum
skólameistara sinn til margra
ára, Aðalstein Eiríksson, en liann
hóf fyrr í haust tímabundið störf
í menntamálaráðuneytinu þar
sem hann mun sinna sérstökum
verkefnum fyrir framhaldsskóla.
Ingibjörg Guðmundsdóttir hefur
verið ráðin skólameistari í
tveggja ára Ieyfí Aðalsteins.
Nemendafélagið Keðjan stóð
fyrir göngu frá Kvennaskólanum
og yfír að aðsetri menntamála-
ráðuneytisins þar sem Aðalsteinn
var kallaður út og honum færð
gjöf. Þannig þökkuðu nemendur
honum fyrir ánægjulega sam-
fylgd gegnum árin en Aðalsteinn
hefur verið skólameistari
Kvennaskólans frá árinu 1982 er
hann tók við af Guðrúnu Pálínu
Helgadóttur. Hann á hins vegar
mun lengri feril að baki hjá skól-
anum þar sem hann hefur sam-
tals kennt og gegnt embætti
skólameistara í 85 ár.
BKI Extra 400 g
Musm
LAND ALLT
Alnæmissamtökin 10 ára
Fjölgun nýsmita
í hópi ungra
gagnkynhneigðra
Alnæmissamtökin á
íslandi eiga 10 ára
afmæli 5. desember
næstkomandi. Markmið
félagsins er að styðja við
bakið á smituðum og að-
standendum þeirra, efla
og standa fyrir forvarna-
starfi um land allt. Fé-
lagsmenn eru um 300
talsins. Stærsti hlutinn
eru HlV-jákvæðir og að-
standendur þeri'a og því
til viðbótar eru þónokkrir
velunnarar í samtökun-
um. Samtökin hétu áður
Samtök áhugafólks um al-
næmisvandann.
Ingi Rafn Hauksson,
formaður samtakanna,
segir að gefið hafi verið út
veglegt afmælisrit í tilefni
tíu ára aftnælisins. Af-
mælisritinu er dreift til allra fé-
laga, í skóla, heilbrigðisstofnan-
ir og til stuðningsaðila í gegnum
árin.
Aðalafmælisdagskráin fer
fram í Ráðhúsi Reykjavíkur-
borgar á morgun - laugardaginn
28. nóvember. „Opnuð verður yf-
irlitssýning um sögu alnæmis á
Islandi í máli og myndum í
Tjamarsal Ráðhússins kl. 13.30.
Rauði þráðurinn í gegnum sýn-
inguna er hversu mikið hefur
breyst írá því sjúkdómurinn kom
íyrst fram hér á landi.
Efnt verður til málþings undir
yfirskriftinni „Málþing um al-
næmi í nútíð og framtíð" í tengsl-
um við opnunina í hliðarsal Ráð-
hússins kl. 14 sama dag. A mál-
þinginu ætlum við að velta því
íyrir okkur hvaða breytingar
hafi orðið og eigi eftir að verða í
framtíðinni. Á meðal framsögu-
manna verður Ólafur Ólafsson
landlæknh’ og baráttumaður
gegn alnæmi. Séra Jón Bjar-
mann flytur ávarp, einn ungling-
ur lýsir viðhorfi unglinga, HIV-
jákvæður og móðir HTV-smitaðs
einstaklings segja frá eigin
reynslu. Málþingið er öllum opið
og aðgangur ókeypis.“
- Andinn í félaginu hlýtur að
hafa gjörbreyst frá upphafi?
„Ástandið er auðvitað svart og
hvítt. Starfið hefur þar af leið-
andi breyst alveg hreint svaka-
lega. Starfsemin gekk mikið út á
sorgina og stuðning við aðstand-
endur til að byrja með. Núna
felst stai-fið mun fremur í að
styðja HlV-jákvæða í
að fara aftur út á
vinnumarkaðinn. Eins
stöndum við í stöðug-
uri baráttu við að leið-
rétta að lækning hafi
fundist við sjúkdómn-
um.“
- Hverjar eru líkurnar á því
að geta lifað eðiilegu lífí eftir al-
næmissmit?
„Ég býst við að líkur HIV-
smitaðra á því að ná meðalævi
séu á bilinu 85 til 95%. Lyfjataka
er nauðsynleg allan tímann. Enn
þola hins vegar ekki allir lyfin og
eiga því minni von.
Ég er sjálfur smitaður og hef
tekið lyf til þess að halda sjúk-
dómnum niðri í sex ár. Heppnin
er með mér því að aukaverkan-
irnar hafa verið litlar sem eng-
ar. Líf mitt er því ekkert frá-
brugðið lífí annarra Islendinga
sem þurfa að taka lyf við ein-
hverjum ákveðnum kvilla."
- Stefnir félagið að því að
verða óþarft?
„Já, í rauninni er eitt af mark-
► Ingi Rafn Hauksson er
fæddur 10. september árið
1962 í Skagafírði. Ingi Rafn
er garðyrkjufræðingur frá
Garðyrkjuskóla ríkisins árið
1982 og stundaði nám í Hótel-
og veitingaskólanum. Hann er
framkvæmdastjóri veitinga-
staðarins á Laugavegi 22 og
formaður Alnæmissamtak-
anna á íslandi til tveggja ára.
Áður sat hann í sljórn félags-
ins.
Ingi Rafn er fráskilinn og á
sextán ára dóttur.
miðum félagsins að gera starf-
semina óþarfa. Einn liður í því er
víðtækt forvarnastarf á meðal
ungs fólks í skólum landsins.“
- Hvernig gengur boðskapur-
inn íkrakkana?
„Hann gengur því miður
óskaplega stirt í krakkana. Ég á
sjálfur 16 ára dóttur og hún seg-
ir mér að í hennar hópi sé ein-
faldlega hallærislegt að nota
smokk. Ef einhver dragi upp
smokk í miðjum klíðum heyrist:
„Oj, ertu með kynsjúkdóm?
- Hefur útbreiðsla alnæmis
verið að minnka?
„Nei, því miður ekki. Jafn
margir hafa smitast í ár og á
sama tímabili í fyrra. Reglan hef-
ur verið að um það bil einn grein-
ist með nýsmit í hverjum mán-
uði. Mest áberandi er fjölgun í
hópi gagnkynhneigðra undir 25
ára aldri.
Lengi vel hélt almannarómur
þvi ft'am að alnæmi
væri hommasjúkdóm-
ur. Nú hefur andinn
verið að breytast og
athyglisvert að sjá að
af 120 smituðum frá
upphafi hafa álíka
stórir hópar verið sam- og gagn-
kynhneigðir.“
- Er alltaf vitað hvort fólk er
sam- eða gagnkynhneigt?
„Jú, læknarnir reyna að spyi'j-
ast fyrir um hvernig viðkomandi
hafi smitast, t.d. með sprautum
eða með því að sofa hjá smituð-
um einstaklingi af sama kyni eða
hinu kyninu. Landlæknir safnar
saman tölum og gefur út heildar-
yfirlit."
- Hvert verður helsta baráttu-
mál samtakanna í nánustu fram-
tið? _
„Ég býst við að baráttan eigi
eftir að tengjast slagorði Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar
fyrir 1. desember, þ.e. Alþjóðleg-
an baráttudag gegn alnæmi, að
þessu sinni „Ungt fólk gegn al-
næmi.“
85-95% HIV-
smitaðra geta
búist við að
ná meðalævi
,r
v
II
I