Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 12

Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fríálslyndi flokkurinn stofnaður í gær og hyggur á framboð í öllum kjördæmum Sverrir Her- mannsson for- maður Frjáls- lynda flokksins Sverrir Hermannsson og stuðningsmenn hans stofn- uðu Frjálslynda flokkinn í gær og afboðuðu auglýstan stofnfund á laugardag. Pétur Gunnarsson var á blaða- mannafundi með forsvarsmönnum flokksins í gær. SVERRIR Hermannsson er formað- ur Frjálslynda flokksins. Gunnar Ingi Gunnarsson er varaformaður. Margrét Sverrisdóttir er meðstjórn- andi og framkvæmdastjóri. Jón Sig- urðsson er hugmyndafræðingur, einkum í sjávarútvegsmálum. Þessir stofnendur Frjálslynda flokksins skýrðu í gær frá því að verið sé að undirbúa formlegt landsþing um miðjan janúar í stað stofnfundarins, sem auglýstur hafði verið á laugar- dag, en hefur verið frestað. „Okkur mun takast að ná höndum saman til samstarfs og átaka í tíma fyrir komandi alþingiskosningar ótruflaðir af vandræðamönnum. Þá óværu varð að verka af okkur strax,“ segir í yfirlýsingu, sem Sverrir af- henti á blaðamannafundinum. Fram kom að með þessu væri hann að vísa til Bárðar Halldórssonar, og stuðn- ingsmanna hans. „Það er mikið lán að þetta kom upp nógu snemma, áð- ur en farið var að dragnast með þessa menn í flokki,“ sagði Sverrir um samstarfsslit sín og þeirra Bárð- ar, Valdimars Jóhannessonar og Péturs Einarssonar. Sverrir sagði að samstarf sitt við Bái-ð og aðila tengda Samtökum um þjóðareign hefði hafist þegar Bárður kom í vor, „á fyrsta degi uppreisnar minnar“, á heimili Sverris í fylgd ljósmyndara DV og bað um að fá Morgunblaðið/Þorkell SVERRIR Hermannsson, formaður hins nýstofnaða Frjálslynda flokks, greindi m.a. frá því á blaðamannafundi í gær að hann væri eigandi nafnsins Frjálslyndi flokkurinn, sem hefur skráða kennitölu Sverris sjálfs. ur hvernig hann vildi fjármagna þau framlög sagði hann að það væru til nægir fjármunir í þjóðfélaginu, sem hefði gefið kvótaeigendum 25 millj- arða í auknum kvóta og aðalstuðn- ingsmönnum Sjálfstæðisflokksins 6,5 milljarða verðmæti í SR-mjöli á sama tíma og rekstur sjúkrastofnana væri látinn lamast vegna 300 millj- óna króna. Hann sagði einnig að þjóðfélaginu væri nær að láta ein- hverjar framkvæmdir bíða framtíðar en að skilja sjúklinga, öryrkja og aldraða eftir afskipta í þjóðfélaginu. „Við boðum breytingar,“ sagði Sverrir Hermannsson. Fram kom að stefnuskrá flokksins í einstökum málaflokkum yrði birt á heimasíðunni www. centrum.is/~svh jafnóðum og hún væri fullmótuð. Formaður hugi að stærsta kjördæminu Aðspurður um framboðsmál sagði Sverrh' að á næstunni yrði gengið öt- ullega fram í því að leita eftir hæfí- leikafólki til framboðs í öllum kjör- dæmum fyrir Frjálslynda fiokkinn. Hann sagði að margt hæfileikafólk hefði þegar gengið til liðs við sig. Eigin framboðsáform sagði hann óráðin en lýsti því jafnfram yfir að „það væri ekki ólíklegt að það sneri að formanni flokksins að huga að framboði í stærsta kjördæminu“. tekna mynd af sér með Sverri. Hann sagði útilokað að hann gæfi kost á því að láta kjósa milli sín og Bárðar Halldórssonar. Bárður hefði ekki fengið umboð til annars á aðalfundi Samtaka um þjóðareign en að leita eftir samstarfi við Sverri Hermanns- son um stofnun stjómmálasamtaka. Krefjast forystu manna, sem enga forystu gátu veitt í yfirlýsingu Sverris kveðst hann vænta þess að óbreyttir liðsmenn Samtaka um þjóðareign átti sig á af- glöpum forystunnar, sem hefði „mis- notað umboðið herfilega með því að krefjast forystu manna, sem enga forystu gátu veitt“. Gunnar Ingi Gunnarsson, læknh- og varaformaður hins nýstofnaða flokks, lýsti því á blaðamannafundin- um, að ágreiningurinn við Bárð og félaga hefði komið upp á yfirborðið snemma í málefnavinnu vegna fyrir- hugaðrar flokksstofnunar þegar þeir hefðu hafnað Sverri sem forystu- manni í flokknum. Gunnar Ingi sagði, um framlag Bárðar og félaga hans til málefnavinnunnar, að þar hefði m.a. verið að finna mesta rugl sem hann hefði rekist á í sínu stjórn- málastarfi, svo sem hugmyndir um hvemig gera mætti gjaldþrot að arð- bærum lífsstfl og hvernig eignast mætti íbúð án þess að greiða hana. Margi-ét Sverrisdóttir, kennai-i, meðstjórnandi og framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, sagði að lýð- ræðislegast væri að Bárður og félag- ar stofnuðu sína hreyfingu „og við stofnum okkar og fólk velji á milli hvorum það treystir". Hún sagði að með þessu væri stuðningsmönnum Svems einnig tryggður vinnufriður með sínum hópi en Sverrir upplýsti að fjöldi manns hefði skráð sig til þátttöku í samtökum undir hans for- ystu. Þau Bárður Halldórsson og Gunn- þórunn Jónsdótth’ auglýstu í Morg- unblaðinu í gær að þau gæfu kost á sér til forystu í Frjálslynda flokkn- um á stofnfundi hans í Borgartúni 6 á laugardag. Jafnframt hvöttu þau fundarmenn til að skrá sig í síma Samtaka um þjóðareign. Sverrir hefur húsið á leigu og kennitölu flokksins A blaðamannafundi Sverris í gær var því lýst yfir að auglýstum fundi í Borgartúni 6 á laugardaginn væri frestað. Sverrir sagðist hafa húsið á leigu um helgina og tók því aðspurð- ur fjarri að þai- innandyra færi fram fundur á vegum Bái’ðar Halldórsson- ar og stuðningsmanna hans á laugar- dag. Sjálfur sagðist Sverrir hins veg- ar ekki hafa ákveðið hvort „hann slægi þar upp dansiballi“ um helgina. Elías Einarsson, veitingamaður í Borgartúni 6, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að Sverrir hefði húsið á leigu um helgina og hefði ráðstöfunarrétt á því á þeim tíma. Sverrir greindi jafnframt frá því í gær að hann hefði skráð nafn Frjáls- lynda flokksins á sitt nafn og greitt skráningargjald. Kennitala Frjáls- lynda flokksins er kennitala Sverris Hermannssonar. Við boðum breytingar I baráttunni vegna alþingiskosn- inganna í vor mun Frjálslyndi flokk- urinn leggja höfuðáherslu á þrjá málaflokka, að því er Sverrir segir. Auk sjávarútvegsmála er þar um að ræða umhverfismál og samfélags- þjónustu. I umhverfismálum er flokkurinn fylgjandi staðfestingu Kyoto-bókunarinnar og verndunar- stefnu í málefnum hálendisins. Gunnar Ingi kom fram sem tals- maður flokksins í heilbrigðismálum og kvaðst vilja beita sér fyrir út- flutningi heilbrigðisþjónustu með því að hefja t.d. hjartaaðgerðir á útlend- ingum. Gunnar Ingi sagði að ná mætti miklum árangri í heilbrigðismálum með aukinni skilvirkni án aukinna fjárframlaga en Sverrir Hermanns- son játti því að hann boðaði aukin framlög til heilbrigðismála. Aðspurð- Morgunblaðið/Þorkell BOÐVAR Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, fylgist með gangsetn- ingu öryggismyndavélanna. Sá heiður hlotnaðist Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra. Kveikt á öryggis- myndavélunum Sverrir Hermannsson Yfírlýsing afhent fjölmiðlum á fundi 26. nóvember 1998 ÖRYGGISMYNDAVÉLAR lög- reglunnar í miðborg Reykjavíkur voru formlega teknar í notkun í gær. Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, kveikti á vélunum, sem stjórnað er úr stjórnstöð lögreglunnar við Hverfisgötu. Myndavélarnar sem settar hafa verið upp eru átta talsins og markmiðið með þeim er að fækka afbrotum og skemmdarverkum á almannafæri, svo sem líkams- árásum, innbrotum, þjófnuðum úr bifreiðum og áreitni við ak- andi og gangandi vegfarendur. Öryggismyndavélar gera lög- reglu kleift að meta aðstæður og gera strax réttar ráðstafanir þeg- ar tilkynnt er um afbrot, slys eða jafnvel eldsvoða á svæði þar sem ötýggismyndavélar eru til staðar. I samningi um starfrækslu myndavélanna sem Reykjavíkur- borg, dómsmálaráðuneytið, Landssúninn og lögreglustjórinn í Reykjavík eiga aðild að, er kveðið á um að starfrækja skuli myndavélamar sem tilraunaverk- efni í 12 til 18 mánuði. NOKKRIR menn í stjóm Samtaka um þjóðareign hafa hafið aðfór að þeim, sem náð hafa forystu í bai’átt- unni gegn núverandi fiskveiðistjóm. Við þeirri aðfór hefur verið brugðizt með þeim hætti sem talinn er líkleg- astur til að minnka skaðann, sem af þessu upphlaupi gæti annars leitt. En eins og málum er háttað eiga hin- ir óbreyttu og einlægu liðsmenn þessara samtaka og allur almenning- ur í landinu kröfu á að vita, hvers er að vænta í framhaldi þess starfs, sem þeir vilja styðja, en borið hefur af leið með þeim hætti, sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum, að frumkvæði upphlaupsmanna. Markmið þeirra verður sjálfsagt aldrei upplýst, en augljóslega er þar á ferðinni tilraun til að veikja andstöðuna gegn fisk- veiðistjórninni og skelfilegum afleið- ingum hennar, og geta fyrirsvars- menn þeirra sérhagsmuna varpað öndinni léttar ef tilraunin tekst. Hjá þessari hættu hefir nú verið sveigt um sinn. Þess er jafnframt vænzt, að hinir óbreyttu liðsmenn Samtakanna um þjóðareign átti sig á afglöpum forystunnar. A aðalfundi Samtakanna fékk hún það umboð eitt, að leita samstarfs við mig um stofnun nýs stjórnmálaafls en mis- notaði það umboð herfilega með því að krefjast forystu manna, sem enga forystu gátu veitt og gengið hefði af þessari tilraun dauðri þegar í upp- hafi. Þetta var einmitt sú niðurstaða sem fyrirsvarsmenn sérhagsmun- anna í sjávarútvegi hefðu helzt kosið sér, hvort sem þeir áttu hér hlut að máli eða ekki. Ég mun ekki bregðast öllu því fólki, sem haft hefur samband við mig og lítur til mín sem foiystu- manns í þehri baráttu, sem framundan er. Frjálslyndi flokkur- inn hefir þegar verið stofnaður og honum valin þriggja manna bráða- bfrgðastjórn. Fyrir því er ákveðið að aflýsa þeim stofnfundi, sem auglýst- ur hafði verið um næstu helgi. Flokksstjórnin og stuðningsmenn hennar munu vinna að undirbúningi formlegs landsþings, sem boðað verður til um miðjan janúar nk. með þeim sem þá hafa gerzt formlegir fé- lagar. Gengið verður ötullega fram í að leita efth’ hæfileikafólki, sem nýtt stjórnmálaafl þarf á að halda til framboða, ef árangur á að nást. Fundið verður fólk, sem vill og getur lagt því lið að móta stefnu flokksins og þekkir þau vandamál, sem brenna á almenningi og kalla efth' úrlausn- um á hinum pólitíska vettvangi. Þetta er allt önnur tegund af fólki en það lið, sem ætlaði sér inn á þing óverðugt og óhæft með skikkju Sam- taka um þjóðareign á herðum. Á örfáum árum hefur orðið slík misskipting auðs og efna að ekki verður við unað. Þessi misskipting á sér margvíslegar rætur, en kvóta: kerfið á þar stærstan hlut að máli. I Alþingiskosningum að vori verður þjóðin að skera úr um það, hvort sú þróun á að halda áfram eða hvort blaðinu verður snúið við. Að tryggja slíka niðurstöðu er eina markmið mitt með því að taka til starfa á vett- vangi stjómmálanna á nýjan leik. Ég vil taka það skýrt fram, að ég er ekki að beita kröftum mínum í baráttunni vegna persónulegs metn- aðar. Ég hefi hinsvegar ákveðið að freista þess að hnekkja þehri þjóð- hættulegu kvótaúthlutun, sem nú er við lýði og ég hef sannfærzt um að leiða mun þjóð okkar að óbreyttu til ófarnaðar. Um leið vil ég búa til póli- tiskan grundvöll fyrir þá, sem líkt er farið og mér, sem Sjálfstæðisflokk- urinn yfirgaf með skarpri hægri beygju, sem engan veginn samrým- ist pólitískum skoðunum mínum. Mitt hlutverk í þessu efni er það eitt að hrinda þessu nýja stjórnmálaafli úr vör. Strax og fram er komið ungt og öflugt forystulið, sem flokksmenn viðurkenna, mun ég draga mig I hlé, enda væri þá hlutverki mínu lokið. Ég bið því alla, sem þessi sjónar- mið höfða til, að halda ró sinni. Okk- ur mun takast að ná höndum saman til samstarfs og átaka í tíma fyrir komandi Alþingiskosningai’ ótruflað- ir af vandræðamönnum. Þá óværu varð að verka af okkur strax.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.