Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Samuel Jesús Juarez Casado, yfírmaður sjávarutvegsmála á Spáni
Breytingar á fiskveiðistj órn
ESB eru löngu tímabærar
Islenskum
farmönn-
um fækk-
ar enn
YFIRMAÐUR sjávarútvegsmála á
Spáni, Samuel Jesús Juarez
Casado, kom í þriggja daga opin-
bera heimsókn til Islands í boði
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra í vikunni. Casado bindur
vonir við nánara samstarf Spán-
verja og Islendinga á sviði hafrann-
sókna í framtíðinni. Hann segir
tímabært að endurskoða staðnað
fískveiðistjómunarkerfí Evrópu-
sambandsins og leyfa frjálsa versl-
un með veiðiheimildir.
„Aðalmarkmið ferðai' minnar er
að styi’kja samskipti Spánar og Is-
lands á sviði sjávarútvegsmála,“
segir Juarez Casado. „Vægi sjávar-
útvegsins er ótvírætt í efnahagslífi
íslands. Á Spáni er því ólíkt farið en
þó ekki, því að í nokkrum héruðum
á Spáni byggist atvinnuhf nær al-
gjörlega á sjávarútvegi. I því tilliti
svipar aðstæðum á Spáni til Islands.
Við erum einnig mesta útgerðar-
þjóð innan Evrópusambandsins og
það hefur áhrif á stöðu okkar innan
þess.“
Spænsk útgerð er umsvifamest í
Galisíu-héraði á norðvesturodda
Pýreneaskagans og svo í Andalúsíu,
syðst á Spáni. En lítið brot vinnuafl-
ans starfar við útgerð þegar á heild-
ina er litið. Casado áætlar að um
300.000 manns starfí í sjávarútvegi,
þar af séu um 70.000 sjómenn, en
alls eru 14 milljónir manna á vinnu-
markaði á Spáni.
Um 18.000 skip eru í fiskiskipa-
flota Spánar. Stærstur hluti þeirra
ei-u strandveiðiskip, sem eru um
15.000 talsins. Að sögn Casados
hefúr fiskiskipastóllinn minnkað
um 10% á síðastliðnum áratug en
afkastageta skipanna hefur minnk-
að mun meira, eða um 30%. „Við
reiðum okkur í miklum mæli á út-
hafsveiðar á fjarlægum fiskimið-
um. Stærstu togararnir sækja á
mið í Suður-Atlantshafi, á Ind-
landshafi og nú er farið að sækja á
Kyrrahafsmið. Um 250 skip eru á
sverðfiskveiðum utan lögsögu í Atl-
antshafi og um 800 skip stunda
veiðar undan ströndum Afríku í
Atlantshafi samkvæmt samkomu-
lagi Evrópusambandsins við
strandþjóðir þar. Að auki sækja
okkar skip á mið við Svalbarða og í
Barentshafi," segir Casado. „Fyrr
utan það sem ég hef talið hér að
framan þá stunda um 200 skip
veiðar í landhelgi annarra ESB-
ííkja, svo sem Irlands, Englands
og Frakklands." Á síðasta ári nam
sjávarafli Spánverja um 1.150.000
tonnum en eldisfiskur gaf um
250.000 tonn.
Tímabært að endurskoða
sjávarútvegsstefnu ESB
Aðspurður um sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins segir
Casado hana vera staðnaða og
þarfnast breytinga: „Það er löngu
tímabært að gera breytingar á
fískveiðistjórnunarkerfi ESB, en
til stendur að endurskoðun þess
ljúki árið 2002. Þær breytingar
verða að mínu áliti í fyrsta lagi að
tryggja rétt íbúa sjávarbyggða til
Dagskráin þín er komin út
26. nóv.-9. des.
/ allri sinni mynd!
Morgunblaðið/Þorkell
YFIRMAÐUR sjávarútvegsmála á Spáni, Samuel Jesús Juarez
Casado, vill efla samstarf í hafrannsóknum við Islendinga.
veiða undan ströndum sínum. í
öði-u lagi þarf að veita þjóðum
meira ft-jálsræði í úthafsveiðum. í
því sambandi þaif einnig að koma
á kvótakerfi í úthafsveiðum Evr-
ópuþjóða og leyfa sölu og leigu
veiðiheirniida," segir Casado og
bætir við: „Við verðum að hafa í
huga að fiskveiðar eru ekki ólymp-
íuíþrótt, en við núverandi kerfi er
hætta á að svo verði.“
Deilur um svokallað „kvóta-
hopp“ Spánverja og í breskri lög-
sögu hafa markað samskipti ríkj-
anna tveggja innan ESB á undan-
förnum árum. Bretar hafa sakað
Spánverja um að kaupa bresk
fiskiskip til þess eins að geta veitt
innan bresku landhelginnar og
landað aflanum svo á Spáni. Um
þau mál segir Juarez Casado: „Áð-
ur en Spánn fékk aðild að Evrópu-
sambandinu árið 1986 veiddum við
í breskri lögsögu og höfðum lengi
haft umsvif þar. Eg vil vekja at-
hygli á því að þær tegundir sem
við veiddum á þessum slóðum voru
vannýttar af Bretum og, það sem
meira er, fyrir tegundir eins og
lýsing er markaður á Spáni en
ekki á Bretlandseyjum. Það er á
þessum sögulega rétti sem við höf-
um byggt veiðar okkar við Bret-
landsstrendur.“
Efla samstarf þjóðanna
tveggja í hafrannsóknum
„Við höfum fullan hug á að auka
sölu sjávarafurða til Islands,“ seg-
ir Casado, „til dæmis sölu á
smokkfiski og niðursoðnum fiski,
en við framleiðum mikið af niður-
soðnum sjávarafurðum, á Spáni.
Þó held ég að vaxtarbroddurinn í
samskiptum okkar sé í samvinnu á
sviði vísinda og rannsókna og í
þróun fiskveiðistjórnunar. Við
gætum einnig unnið nánar saman í
samskiptum við þriðja land, t.d.
Noreg, þegar kemur að því að
sækja rétt okkar á heimshöfunum.
Svæðisbundnar stjórnstofnanir
veiða í Atlantshafi, NAFO og
NEAFC, eru ákjósanlegur sam-
starfsgrundvöllur Islands og
Spánar í sjávarútvegsmálum."
HLUTDEILD íslenskra sjómanna
í heildarmönnun kaupskipa fer í
fyrsta sinn niður fyrir 60% í könnun
sem Skipstjóra- og stýrimannafé-
lags íslands gerði í sumar. Formað-
ur Farmanna- og fiskimannasam-
bands Islands segir að ef svo haldi
áfram sem horfir verði fleiri útlend-
ingar en íslendingar í störfum hjá
íslenskum kaupskipaútgerðum.
Guðjón A. Ki-istjánsson sagði í
setningarræðu sinni á formannaráð-
stefnu FFSÍ sem hófst á Höfn í
Hornafirði í gær að stjómvöld
hefðu ítrekað_ verið vömð við þess-
ai-i þróun. íslenska þjóðin væri
hægt og bítandi að missa þessi störf
úr landi og með þeim tapaðist þekk-
ing og verulegir fjármunir. Hann
sagði það áhyggjuefni fyrir stjórn-
völd og útgerðarfélögin hve lítinn
áhuga ungir íslendingar sýndu
þessum störfum.
„Það verða aldrei til íslenskir
skipstjórnarmenn kaupskipa án
þess að þeir menn sem í Stýri-
mannaskólann koma hafi fyrst verið
hásetar á skipunum. Eftir því sem
íslenskum sjómönnum fækkar mun
skipstjórnarmönnum fækka einnig.
Þeir sem ættu að fara í stýrimanna-
nám era einfaldlega ekki í störfum
um borð. Þar hafa tekið við þegnar
láglaunalandanna. Með þessu lagi
era útgerðirnar að grafa undan
framtíð sinni.
Allii' í nágrenni okkar Evrópu-
megin hafa fellt niður í einhverju
formi skatta á farmennsku til þess
að gera eigin þegna landanna sam-
keppnisfærari í hörðum heimi vöra-
flutninga með skipum. Það er mikill
misskilningur íslenskra stjórnvalda
ef þau sjá hag sínum betur borgið í
því að missa störfin úr landi. Því
hefur verið haldið fram að við verð-
um að vera samkeppnisfærir við
önnur lönd í atvinnurekstri og
kostnaður fyrirtækja yrði að vera
sambærilegur hér og í helstu við-
skiptalöndum. Ég hlýt að spyrja
hvers vegna það á ekki við um um-
gjörð farmennskunnar eins og álver
og járnblendi," sagði Guðjón.
Nýtt frá Gatineau
Súrefnis afslöppunarmeðferð með ensím andlitsmaska
Hreinsivatn 50 ml.
24 stunda lúxuskrem 15 ml.
2 stk. súrefnisampúlur.
Snyrtistofa Hönnu Kristínar,
Laugavegi 40, Rvík.
Snyrtistofan Ágústa, Hafnarstræti 5, Rvik.
snyrtistofa Dekurhomið, Hraunbergi 4, Rvík.
Snyrtistofa Díu, Bergþórugötu 5, Rvík.
Snyrtistofan Gimfi, Miðleiti 7, Rvik.
Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82, Rvik.
Snyrtistofan Saloon Ritz, Laugavegi 66, Rvik.
Gatineau snyi uotuiui.
Snyrtistofan Rós, Engihjalla 8, Rvík.
Snyrtihöllin Garðatorgi, Garðabæ
Snyrtistofan Lipurtá, Staðarbergi 2-4, Hfj.
Snyrtistofan Pema, Reykjavlkurvegi 64, Hfj.
Landsbyggðin:
Snyrtistofu Rósu Guðna, Sandgerði
Snyrtistofa Huldu, Njarðvik
Snyrtistofa Jennýjar Lind, Borgamesi
Streita og mengun eru fylgifiskar nútímans. Margar störfum hlaðnar
konur lifa kyrrsetulífi og fá ekki nægilega ferskt loft, borða hádegismat
á hlaupum... og reykja þar að auki.
Allt er þetta slæmt fyrir húðina og hún verður líflaus og grá.
Framvegis geta snyrtifræðingar á vegum Gatineau boðið þessum
viðskiptavinum upp á frábæran árangur OXYGENATING -
AFSLÖPPUNARMEÐFERÐINA. Innan 50 mínútna gerist þetta:
- Ásýnd húðarinnar öðlast ferskleika og útgeislun.
- Andlitsdrættirnir verða afslappaðir
Virkir þættir:
Þessi nýja meðferð virkar eins vel og raun ber vitni vegna ensímanna
og AHA efnanna.
1. Enslmin koma úr náttúrulegum efnum (ananas) og líftæknilegum.
Þau leitast við að rjúfa tengsl milli fruma og hreinsa í burtu dauðar
frumur sem óhreinka húðina.
2. AHA (Alpha-hydroxy-acid) gerir húðina mýkri, tryggir flögnun
dauðra fruma og örvar endurnýjun fruma. Samverkan þessara efna
bætir súrefnisflæðið til frumanna og gerir yfirbragð húðarinnar
geislandi og bjart.
Núna eru Gatineau snyrtistofurnar með kynningartilboð á nýju
súrefnismeðferðinni.
Hverri meðferð fylgir frábær kaupauki úr Electelle lúxuslínunni á
meðan brigðir endast
Snyrtistofa Boggu, Sauðárkróki
Snyrtistofa Dómhildar, Blönduósi
Snyrtistofan Betri iiðan, Akureyri
Snyrtistofa Ragnheiðar, Egilsstöðum
Snyrtistofa Ágústu Guðna, Vestmannaeyjum
Snyrtihúsið, Selfossi
Snyrtistofa Löllu, Hveragerði