Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Skiptar skoðanir um úrskurð bresku lávarðadeildarinnar 1 máli Pinochets
Hvaða þjóðarleiðtogi
verður handtekinn næst?
AFRYJUNARDOMSTOLL lá-
varðadeildar breska þingsins úr-
skurðaði í fyrradag að Augusto Pin-
ochet, fyrrverandi einræðisherra í
Chile, nyti ekki friðhelgi sem fyrr-
verandi þjóðhöfðingi og hnekkti þar
með dómi undirréttar í Lundúnum
sem hafði úrskurðað að handtaka
hans í síðasta mánuði hefði verið
ólögleg. Afrýjunardómstóllinn
komst að þeirri niðurstöðu að laga-
leg friðhelgi fyrrverandi þjóðhöfð-
ingja næði ekki til þeirra glæpa, sem
Pinochet er sakaður um.
Pinochet var hershöfðingi þegar
hann tók völdin í sínar hendur í
valdaráni árið 1973 og hefur verið
sakaður um að hafa látið ræna,
pynta og myrða þúsundir pólitískra
andstæðinga sína á 17 ára valdatíma
sínum.
Nýtur takmarkaðrar
friðhelgi
Urskurður áfrýjunar-
dómstólsins byggist eink-
um á því að Pinochet hefur
látið af embætti þjóðhöfð-
ingja. Lávarðamir fímm,
sem fjölluðu um áfrýjunina,
sögðu að lagaleg friðhelgi
fyrrverandi þjóðhöfðingja
væri minni en ríkjandi
ráðamanna. Niðurstaðan er
því sú, eins og lögfræðing-
ar Pinochets bentu á, að
aðeins er hægt að sækja
einræðisherrann fyrrver-
andi til saka vegna þess að
hann lét af embætti til að
greiða fyrir því að lýðræð-
isleg stjóm gæti komist til
valda í landi sínu árið 1990.
Allir dómararnir fímm
vora sammála um að væri
Pinochet enn forseti Chile
yrði ekki hægt að sækja
hann til saka. Hann nyti
aðeins takmarkaðrar frið-
helgi sem fyrrverandi þjóð-
höfðingi; ekki væri hægt að
lögsækja hann fyrir „lög-
mætar stjórnarathafnir“ en
öðru máli gegndi um at-
hafnir sem væra álitnar
ólögmætar samkvæmt þjóðarétti.
Straumhvörf í baráttunni gegn
mannréttindabrotum
Talsmenn mannréttindasamtaka
sögðu að þessi úrskurður markaði
tímamót á sviði mannréttindalaga
og sögðu að áhrif hans myndu ekki
einskorðast við Pinochet eða Chile.
„Þetta era skilaboð til allra ráða-
manna sem gerast sekir um morð,“
sagði David Bull, yfirmaður Bret-
landsdeildar Amnesty Intemational.
„Skilaboðin era: „hættið strax.
Hægt er að sækja ykkur til saka.“„
Geoffrey Bindman, lögfræðingur
Amnesty Intemational og fjöl-
skyldna nokkurra fórnarlamba Pin-
ochets, lýsti úrskurðinum sem „mik-
ilvægasta mannréttindadómsmáli
aldarinnar". Geof Gilbert, prófessor
í þjóðarétti við Essex-háskóla, sagði
að úrskurðurinn væri mjög mikil-
vægur vegna þess að ensk lög væru
„meðal íhaldssömustu laga heims á
þessu sviði“. „Þetta bendir því til
þess að straumhvörf hafí orðið á
sviði alþjóðlegra glæpalaga."
Marc Weller, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri alþjóðamálastofnunar
Cambridge-háskóla, lýsti úrskurðin-
um sem „sigri skynseminnar yfir
kreddufestunni" og miklum ósigri
fyrir þá sem héldu því fram að fyrr-
verandi þjóðhöfðingjar ættu að
njóta algjörrar friðhelgi.
Urskurðurinn gæti einnig styrkt
Alþjóðaglæpadómstólinn, sem ráð-
gert er að koma á fót í Haag til að
taka á verstu mannréttindabrotun-
um og veita lögsögu í málum þjóð-
höfðingja. Stjómvöld í Bandaríkjun-
um og Kína hafa þó lagst gegn dóm-
Mannréttindasamtök hafa fagnað úrskurði
æðsta dómstóls Bretlands um að Augusto
Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile,
njóti ekki friðhelgi sem tímamótum í bar-
áttunni gegn alvarlegum mannréttinda-
--------------------7-----------------
brotum í heiminum. Urskurðurinn getur
einnig haft mjög víðtækar og ófyrirsjáan-
legar afleiðingar í samskiptum ríkja heims
og varað hefur verið við því að hann geti
skapað hættulegt fordæmi.
DEILAN um handtöku Augustos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hefur leitt
til götumótmæla í landinu og óttast er að átök blossi upp. Andstæðingur Pinochets er hér
handtekinn í Santiago.
stólnum þar sem þau óttast að hann
kunni að verða til þess að menn
verði lögsóttir af pólitískum ástæð-
um.
„Sögulegt fordæmi"
Spænska dagblaðið E1 País fagn-
aði niðurstöðu bresku dómaranna og
sagði daginn „hátíðisdag í lífí
margra lýðræðissinna". Urskurður-
inn væri mikilvægur þar eð gamlir
harðstjórar gerðu sér nú ljóst að
þeir gætu þurft að sæta ábyrgð
gerða sinna færa þeir frá föðurlandi
sínu. Þótt enn væri ekkert alþjóð-
legt skipulag til í þessu viðfangi
þýddi niðurstaðan í Bretlandi að
landslög ásamt alþjóðlegum sátt-
málum hefðu lagt drög að nýrri al-
þjóðlegri skipan dómsmála.
Dagblaðið ABC, sem þykir einna
lengst til hægri á Spáni, sagði í for-
ystugrein að niðurstaða bresku
dómaranna fæli í sér „sögulegt for-
dæmi“ í hinni alþjóðlegu mannrétt-
indabaráttu. Aður viðtekin viðmið í
þessum efnum hefðu nú breyst.
E1 País tók fram að of snemmt
væri að segja til um hvort Pinochet
yrði framseldur til Spánar. Blaðið
lætur í ljós þá skoðun að framsal
verði til þess að styrkja lýðræðið í
sessi í Chile þar eð Pinochet hefði
áður verið „ósnertanlegur", ekki síst
í krafti þeirrar stöðu að vera öld-
ungadeildarþingmaður til lífstíðar,
sem hann sjálfur tryggði sér. Nú sé
hann það ekki lengur.
„Innrás í dómskerfi Chile“
Dagblaðið E1 Mercurío í Chile var
á öndverðum meiði og sagði í for-
ystugrein að úrskurðurinn spillti
mjög stjórnmálaástandinu í landinu.
„Akvörðun bresku dómaranna felur
í sér innrás í dómskerfi Chile og op-
inbera vantrú á fullveldi þjóðarinn-
ar. Fram að þessu hafa rök ríkis-
stjórnar Chile ekki einu sinni verið
tekin til greina.“
Blaðið segir að enginn vafí leiki á
því að Pinochet hafi notið friðhelgi
diplómata þegar hann kom til Bret-
lands en þau rök hafí verið hundsuð
með öllu. „Þessir atburðir era mjög
alvarlegir fyrir Chile. I fyrsta skipti
í sögunni hefur það gerst að erlend-
ur dómari hefur dæmt fyrrverandi
þjóðarleiðtoga þvert á vilja ríkis-
stjórnar hans og þjóðar. Með þessu
móti hefur dómarinn hundsað mikil-
vægi og merkingu laga í okkar eigin
landi.“
Forystugreininni lýkur með full-
yrðingu þess efnis að friður og stöð-
ugleiki kunni að vera í hættu í Chile.
Thatcher gæti átt á hættu
að verða handtekin
Nokkur bresk dagblöð gagnrýndu
einnig úrskurðinn og vöruðu við því
að hann gæti haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar í samskiptum ríkja
heims.
Lögfræðingar Pinochets héldu því
fram að yrði hann framseldur til
Spánar gæti það orðið til þess að
George Bush, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, yrði handtekinn og
sendur til Iraks vegna mannfallsins
í Persaflóastyrjöldinni. Ronald
Reagan, forveri hans í embættinu,
kynni einnig að eiga á hættu að
verða sóttur til saka í Panama vegna
hernaðaríhlutunar Bandaríkja-
manna þar á valdatíma hans.
Argentínumenn gætu einnig kraf-
ist þess að Margaret Thatcher, fyrr-
verandi forsætisráðherra Bretlands,
yrði framseld til Argentínu vegna
árásarinnar á herskipið Belgrano í
Falklandseyjastríðinu 1982. Hún
gæti því átt á hættu að verða hand-
tekin í Argentínu eða ríkjum sem
hafa gert framsalssamninga við
landið.
Breska dagblaðið The Daily Tel-
egraph tók undir þetta sjónarmið og
varaði við því að úrskurður áfrýjun-
ardómstólsins gæti skapað hættu-
legt fordæmi. The Times sagði að
úrskurðurinn gæti leitt til „hol-
skeflu“ lögsókna vegna mannrétt-
indabrota.
Breski áfrýjunardómstóllinn var
þó ekki fyrstur til að skapa þetta
fordæmi. Hæstiréttur
Spánar hafði áður úrskurð-
að að spænskir dómstólar
hefðu lögsögu í málum
manna, sem sakaðir eru
um pyntingar og hópmorð,
á þeirri forsendu að Spán-
verjar hefðu staðfest sátt-
mála Sameinuðu þjóðanna
um slíka glæpi.
Svissneskir og franskir
dómstólar hafa kveðið upp
sams konar úrskurði.
Stjórnlagadómstóll Þýska-
lands hefur einnig tekið
málið fyrii' og sænsk og
ítölsk yfirvöld hafa tekið
það til athugunar. Svo gæti
því farið að innan nokkurra
mánaða hafi flest ríki Evr-
ópu áskilið sér rétt til að
lögsækja þá, sem bera
ábyrgð á pyntingum og
hópmorðum, hvar sem
glæpirnir voru framdir.
Kissinger framseldur
til Spánar?
Leiðtogar margra Evr-
ópuríkja fögnuðu úrskurði
breska áfrýjunardómstóls-
ins en viðbrögðin í Banda-
ríkjunum voru varfærnis-
leg. Bandaríska utanríkis-
ráðuneytið sagði að láta
ætti breska og spænska dómstóla
um að útkljá mál Pinochets og The
New York Times sagði varfærnisleg
viðbrögð Bandaríkjastjórnar benda
til þess að hún væri ekki allskostar
sátt við þá hugmynd að erlendir
dómstólar gætu sótt fyrrverandi
þjóðhöfðingja til saka.
Alfred Rubin, prófessor í þjóð-
rétti við Fletcher-lagaskólann í
Boston, sagði það geta haft mjög al-
varlegar afleiðingar ef dómari á
Spáni gæti sótt fyrrverandi ráða-
menn í öðram ríkjum til saka. „Hvað
hindrar þá að Spánverjar fái Henry
Kissinger [fyrrverandi utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna] framseldan
þar sem hann var viðriðinn
valdaránið [í Chile]? Hvað á að
hindra að Spánverjar stjórni heim-
inum? Þetta virðist leiða til glund-
roða, þar sem hvaða ríki sem er geti
kveðið upp dóma vegna byltinga í
öðrum ríkjum. Ég tel að þetta sé
ólýðræðislegt.“
Bandarískar fjölskyldur fórnar-
lamba Pinochets fognuðu hins vegar
úrskurðinum. Þjóðaröryggisráð
Bandaríkjanna hefur rætt við emb-
ættismenn dómsmálaráðuneytisins
um möguleikann á því að óska eftir
framsali Pinochets til Bandaríkj-
anna vegna sprengjuárásar í Was-
hington árið 1976, þegar útlagi frá
Chile og bandarískur samstarfsmað-
ur hans biðu bana. Talið er að leyni-
þjónustan í Chile hafí staðið fyrir til-
ræðinu.
Talsmaður Þjóðaröryggisráðsins
sagði að ekki hefði verið tekin
ákvörðun um framsalsbeiðni en mál-
ið yrði kannað frekar í ljósi úrskurð-
ar breska áfrýjunardómstólsins.
Reuters
Banana
forseti á
flótta
Gaborone. Reuters.
CANAAN Banana, fyrrverandi for-
seti Zimbabve, sem fyiir skemmstu
var dæmdur fyrir ósiðlegt athæfi, er
flúinn úr landi.
Hélt Banana til
nágrannaríkisins
Botsvana og
bendir ýmislegt
til þess að hann
hafi haldið áfram
flóttanum en eng-
inn veit hvert.
Dómstóll í
heimalandi forset-
ans gaf út hand-
tökuskipun á hendur honum er frétt-
ir bárast af því að hann hefði sótt um
pólitískt hæli í Botsvana. Banana vai'
fyrir skemmstu, eftir fimm mánaða
réttarhöld, fundinn sekur um ellefu
ákæraatriði er varða ósiðlegt athæfí,
tilraun til slíks og kynferðisárás.
Forsetinn er sakaður um samkyn-
hneigð, sem er bönnuð bæði í
Zimbabve og Botsvana, og því er
talið að hann hafi ákveðið að halda
áfram fór sinni. Á meðal þein-a landa
sem nefnd era sem líklegur áfanga-
staður er Suður-Afríka, þar sem lög-
gjöfin er frjálslyndari.
Stjórnvöld í Botsvana neita því að
Banana hafi sótt þar um hæli. Hann
er vegabréfslaus, þar sem hann varð
að láta það af hendi er málarekstur-
inn á hendur honum hófst.
-----------------
Slegist um
gjafír í IKEA
TÖLUVERT af húsgögnum eyði-
lagðist og flytja þurfti unga konu
á sjúkrahús eftir að slagsmál
brutust út við opnun nýrrar
IKEA-verslunar í Ósló í gærmorg-
un. 100 fyrstu viðskiptavinunum
höfðu verið boðin gjafakort að
verðmæti um 10.000 ísl. kr. og er
óhætt að segja að færri fengu en
vildu, að því er fram kemur í
Aftenposten.
Mikill ijöldi beið við dyr versl-
unarinnar í gærmorgun og þegar
þær voru opnaðar var troðningur-
inn svo mikill að ung kona slasað-
ist og margir hlutu pústra. Áttu
Iögregla og öryggisverðir í versl-
uninni í mesta basli með að halda
aftur af mannskapnum meðan á
ræðuhöldum stóð og svo tók við
mikið verk að skilja fólk og róa
niður þegar átökin um gjafakort-
in hófust.
I versluninni var hins vegar
engin kort að hafa, því þeim hafði
verið dreift til þeirra sem komið
höfðu sér fyrir í röð kvöldið áður
til að draga úr hættunni á troðn-
ingi. Þetta jók hins vegar einung-
is á öngþveitið og reiðina og
hyggjast nokkrir sárir og reiðir
viðskiptavinir kæra verslunina
fyrir ólöglega viðskiptahætti.
-------♦-♦-♦-----
Ranariddh
prins kjörinn
þingforseti
Flinoni Penh. Reutera.
NORODOM Ranariddh prins var í
fyrradag kjörinn forseti þjóðþingsins
í Kambódíu en fyrir skömmu náðist
samkomulag milli hans og Huns
Sens, forsætisráðherra landsins, um
stjórnarsamstarf eftir meira en
þriggja mánaða stjórnarkreppu í
landinu. Er kjör Ranariddhs liður í
samningi sem þessir fyrram and-
stæðingar náðu 13. nóvember síðast-
liðinn en Hun Sen verður áfram for-
sætisráðherra.
Hun Sen vann nauman sigur í
þingkosningum í júlí síðastliðnum en
fékk ekki nægan stuðning til að geta
myndað starfhæfa ríkisstjóm. Tók
þá við stjórnarkreppa allt þar til Hun
Sen og Ranariddh náðu samningum.
Banana
I
í
I
i