Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 31
LISTIR
BÆKUR
Fræðirit
„RING OF SEASONS. ICELAND -
ITS CULTURE & HISTORY"
eftir Terry G. Lacy. Ann Arbor,
The University of Michigan Press.
297 bls.
ÍSLENDINGUM fer sem öðrum
að þeim þykir lofið gott. Þegar út-
lendingai- skrifa um íslendinga
leggja þeir yfirleitt við hlustir og
stundum verður fréttamönnum svo
brátt í brók þegar útlendingar stíga á
íslenzka jörð að það fyrsta sem þeim
dettur í hug er _að spyrja þá hvað
þeim finnist um Island. Það er eins
og álit annan’a skipti Islendinga
miklu máli og er óljóst af hverju,
sennilegasta ástæðan er hefðbundin
minnimáttai'kennd smáþjóðar.
En það er sérstök ástæða til að
leggja við hlustir þegar útlendingur
hefur kynnt sér vel innviði þjóðarinn-
ar og sögu hennar, raunar svo vel að
það er ekki lengur hægt að kalla
hana útlending því að hún hefur
gleggri skilning á þjóðai'vitundinni
og sögunni en flestir Islendingar
sjálfir. Terry G. Lacy er bandarísk
fræðikona sem hefur búið hér á landi
sl. 25 ár og stundað
kennslu í mannfræði,
félagsfræði og ensku.
Hún hefur nú tekið sér
fyrir hendur að skrifa
bók um athuganir sínar
á Islendingum eða
reynslu sína af Islend-
ingum því að bókin er
ekki bara skipulegar at-
huganir á Islendingum
heldur lýsir hún sam-
skiptum . sínum við
dæmigerða íslenzka
fjölskyldu. Þeirri lýs-
ingu er blandað saman
við lýsingu á sögu Is-
lendinga, norrænni
goðafræði og þjóðtrú
ýmislegri. Ur þessu verður hin
skemmtilegasta blanda sem er fróð-
leg fyi-ir alla áhugamenn um íslenzkt
samfélag og sögu þess.
Bókin skiptist í fimm kafla. Sá
íyrsti er almenn greinargerð um ís-
lendinga og íslenzkt samfélag.
Höfundm' spyi' hvað móti þetta sam-
félag og hvernig það líti út. Hún lýsir
ýmsum einkennum sem
blasa oft við útlending-
um en innbyggjarar
taka ekki eftir. Hún
nefnir hlut eins og þann
að ei’fitt er að fá ís-
lenzka stúdenta til að
spyrja spuminga og átt-
ar sig á að það er ekki
vegna þess að þeir hafi
ekki eitt og annað að
segja um hváðeina sem
um er rætt heldur vegna
óframfærni og óvana við
að halda eigin skoðunum
fram. Hún nefnir líka
framtakssemi og
dugnað. Það eru hlutir
sem íslendingar upp-
götva stundum í útlöndum að er öðru-
vísi farið þar en heima hjá þeim, það
sem þeim finnst eðlileg framtakssemi
einstaklings í eigin lífi er ekki sú
sama og talin er eðlileg í útlandinu.
Slíkar uppgötvanir segja oft langa
sögu. I þessari bók er einnig fjallað
um einstaklingshyggju sem ristir
djúpt í þjóðarsálina en mér virðist
hún vera óhjákvæmilegur hluti fram-
taksseminnar. En höfundm- gleymir
ekki að lýsa öðrum mikilvægum stað-
reyndum um þjóðina eins og tung-
unni og staðsetningu landsins á
hnettinum og þar með veðrinu, gróðri
og að íslendingar hafa verið sæfarai' í
gegnum tíðina. I þessum kafla og öðr-
um er síðan sagt frá íslenzki'i fjöl-
skyldu sem er dæmigerð og í þessum
fyrsta kafla er lýst þorrablóti.
Þeir fjórir kaflar sem eftir eru eru
allir kenndir við árstíðirnar. Sá fyrsti
nefnist vor. Atburðirnir sem látnir
eru gerast í fjölskyldunni tengast
flestir vori: fæðing, gifting, ferming.
En þar er líka lýst dauða og útfór.
En í kaflanum er farið yfir sköpunar-
sögu norrænnar goðafræði úr Völu-
spá, goðsögnina um Þór og upphaf
Islandsbyggðar og kristnitökuna.
Annar kafli nefnist sumar og er
samsettur úr frásögnum af sumardeg-
inum fyrsta, siglingum Eiríks rauða og
Leifs heppna til Grænlands og Norð-
ur-Ameríku, lokum þjóðveldisins,
frásögnum af Loka og íslenzkri af-
mælisveizlu. Þriðji kafli er haustið.
Fjölskyldan mætir í síðdegiskaffi og
tekui' slátur, sagt er frá álfum og tröll-
um og Eyvindi og Höllu. Islandssagan
er sögð frá upphafi sambands við Nor-
egskonung, ft-am að siðaskiptum og til
1830. Síðasti kaflinn, vetur, lýsir jóla-
haldi og áramótum, torfkofum og sál-
inni hans Jóns míns, íslandssögunni
frá 1830 og fram á þennan dag og
ragnarökum og nýjum tíma.
Þetta er vönduð bók og vel unnin.
Frásögnin er byggð á traustri þekk-
ingu á Islandi og Islendingum.
Höfundurinn hefur kannað flest af
því bezta sem hefur verið skrifað um
Island og Islendinga og vinnur vel úr
því. Textinn er auðlesinn og gefur
góða mynd af viðfangsefni sínu. Það
er að vísu ekki verið að segja frá því
þjóðfélagshrati sem maður rekst á í
fréttum eftir hverja helgi ársins held-
ur þeim hluta þjóðarinnar sem teljast
verður öllu markverðari. Litmyndir
eru á afmörkuðum myndasíðum á
einum stað í bókinni og tengjast því
ekki textanum vel en þær eru viðeig-
andi og góðar. Einnig era svarthvítai'
myndir sem falla vel inn í textann.
Þetta er bezta bók á enskri tungu
sem ég hef rekizt á um íslenzkt
nútímaþjóðfélag, sögu þess og sér-
kenni.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
Góð lýsing á þjóð
Terry G. Lacy
GARÐLJÓÐ
BÆKUR
Ljóö
í GARÐI KONU MINNAR
eftir Guðjón Sveinsson.
Mánabergsútgáfan. 1998 - 94 bls.
GARÐRÆKT og skógrækt yerður
mönnum enn að yrkisefni á Islandi.
Margt er ógert í jteim efnum og ekk-
ert nema gott eitt um
það að segja þegar
ljóðabók er gefin út
með ræktun sem meg-
inefni. I garði konu
minnar eftir Guðjón
Sveinsson er eins konar
óður til náttúrunnar og
gróðursins og ekki síst
til skógarins.
Ljóðmál Guðjóns
mótast af þessu við-
fangsefni, er ljóðrænt
og á stundum grósku-
mikið í bókstaflegri
merkingu þess orðs.
Hann á þannig til að
hlaða saman persónu-
gervingum þar sem
hann blandar saman
heimi jurta og manna:
Undirveggjumávorin
standa páskaliljur
prúðar sem drottningar
djásnum prýddar.
Háleitur riddaraspori
(sem ábyrgur heimilisfaðir
fyrir stríð)
gerir hosur sínar grænar
fyrir blásólinni
er drepur kankvís
til þín tittlinga
svo lítið beri á.
Hér er haganlega unnið með
myndmál.
Guðjón á einnig til að flétta
þjóðfélagsádeilu inn í þennan gi'óð-
urheim sinn og tekst bærilega stund-
um. Hann yrkir til að mynda um álm
í garðinum sem er smár og kræklótt-
ui' „sem verkalýðshreyfingin / en
man fífil sinn fegri“.
I einstaka kvæði finnst mér þó
skáldinu vera fullmikið niðri fyrir
þannig að listgildið fellur í skugga
áróðurins eins og í kvæðinu Til skóg-
arins:
Framtíð vors heims er falin í skóganna vernd
feigð býr í hugvitsins gálausu, drottnandi
feikn.
Hið ósvífna vald meö dramblæti, daga og ár,
dregur á bláhvelin ógnþrungin voðateikn.
Erfitt er að sjá bein tengsl milli
skóganna vernd og voðateikna á
bláhveli, enda þótt ber-
sýnilega sé hér verið að
fjalla um náttúravernd í
báðum tilvikum. Hér
ber hugsjónin skáldið af
leið. Þess utan hefrn'
orðalag eins og „drottn-
andi feikn“ og ógn-
þrungin voðateikn“ í
mínum huga löngu
dagað uppi. Ómstríðar
eru líka hendingar eins
og þessar:
Finna nálægð þína
heita lófa
ljúfs bross
undir sólarlag.
Þarna færi betur að
forðast tvöfalt eignarfall, „ljúfs
bross“.
Bestu kvæði Guðjóns eru raunar
þau kvæði bókarinnar þar sem hann
kastar laufskrúði málsins og spyi'
einfaldra, persónulegra spurninga:
Að lokinni heimsókn
fyllist ég tómleika
ogspyr
kem ég aftur?
Þöglir veggir
veita engin svör
þrestirnir hverfa
inn í limgerðið
flugurnar þagna.
- Er nema von
ég spyrji?
í garði konu minnar er ljóðrænn
óður til náttúrunnar. Skáldið fer oft
laglega með myndmál og á einnig til
að yrkja ljóst og einfalt. En því er
stundum mikið niðri fyrir og þá vill
listgildið líða fyrii’ það.
Skafti Þ. Halldórsson
Guðjón Sveinsson
• ORMURINN er eftir Kristínu
Steinsdóttur.
í kynningu segir: „Sagan greinii-
frá tveimur börnum, pifti og stúlku, í
íslensku
sjávarplássi sem
hafa miklar
áhyggjur af ormi
í maga móður
stúlkunnar og
hvernig þau
reyna að grafast
fyrir um það
hvers konar orm-
ur þetta gæti ver-
ið. Áhyggjur og
brennandi for-
vitni reka börnin í ferð á milli vinnu-
staða í bænum þar sem þau hitta
fólk til þess að komast að því hvers
konar ormar það eru sem helst geti
hrjáð fólk. Sagan lýsir á nærfærinn
hátt fjörugu ímyndunarafli barna og
Nýjar bækur
endurspeglar í leiðinni samfélag
vinnandi fólks sem ekki hefur mik-
inn tíma til að vera með börnum sín-
um.“
Útgefandi er Æskan. Bókin er 50
bls., myndskreytt af Aslaugu Jóns-
dóttur. Verð: 1.290 kr.
• SVANUR ogjólin er eftir Sören
Olsson og Anders Jacobsson í
þýðingu Jóns Daníelssonar.
I kynningu segir: Svanur er niðri í
bæ að fást við lífshættulegt verkefni;
að kaupa jólagjöf handa Soffíu.
Stelpudót! Samt er heil eilífð til jóla.
En það er margt að gerast og Svan-
ur er í essinu sínu.
Sænska sjónvarpið gerði fram-
haldsþætti eftir þessari bók.
Útgefandi er Skjaldborg. Bókin er
Kristín
Steinsdóttir
182 bls. Umbrot og frágangur:
Skjaldborg. Bókin erprentuðí
Singapúr. Verð. 1.630 kr.
• FRUMKVÆÐI er ljóðabók eftir
Ingólf Steinsson. Hún inniheldur
safn 77 Ijóða og kvæða frá 22 ára
tímabili. Bókin
skiptist í fjóra
kafla: Eldri deild,
Ameríkuljóð,
Yngri deild og
Kvæði.
Fyrh’ þremur
árum sendi
Ingólfur frá sér
söguna Undir
heggnum - upp-
vaxtarsaga
blómabarns.
Útgefandi er Tunga. Bókin er 124
síður. Bókaútgáfan Bjartur sér um
dreifingu. Verð: 1.680 kr.
Ingólfur
Steinsson
AUGLYSING UM UPPGREIÐSLU VERÐTRYGGÐRA SKULDABRÉFA
LANDSBANKI ÍSLANDS HF.
Auglýsing um uppgreiðslu verðtryggðra skuldabréfa útgefnum
af Lind hf. í 2. flokki B 1993, þann 20. ágúst 1993.
Landsbanki íslands hf. hefur ákveðið að nýta sér uppgreiðslu-
ákvæði skuldabréfa 2. flokks B 1993 og greiða þau upp þann
15. desember. Bréfin eru bundin lánskjaravísitölu
(nú neysluvöruvísitölu). Grunnviðmiðun verðtryggingar
var 3307 stig lánskjaravísitölu í ágúst 1993.
Greíðslustaður skuldabréfanna er í afgreiðslu bankans að
Laugavegi 77, 155 Reykjavík. Heimilt verður að framvísa
skuldabréfum í öllum afgrelðslum bankans sem aðstoða munu
vfð innlausnina.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá bókhaldsdeild
Viðskiptastofu Landsbankans á Laugavegi 77,
155 Reykjavík, eða í síma 560 3219.
Reykjavík nóvember 1998
Landsbanki íslands
Landsbanka íslands hf. - Viðskiptastofa
Laugavegi 77, 155 Reykjavík, sími 560 3100, bréfsíml 560 3199, www.landsbankl.is
Loáskin nsfóáraái r
jakkar
EGGERT
feldskeri
efst á Skólavörðustígnum,
sími 551 1121