Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 35
LISTIR
Málþing um
Jón Ólafs-
son úr
Grunnavík
GÓÐVINIR Grunnavíkur-Jóns
efna til málþings um Jón Ólafsson
úr Grunnavík og verk hans laugar-
daginn 28. nóvember nk. kl. 14 í
fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar á 2.
hæð.
Jón Ólafsson úr Grunnavík
(1705-1779) ólst að mestu upp í
Víðidalstungu hjá Páli Vídalín lög-
manni en fór ungur til Kaup-
mannahafnar og vann þar sem
skrífari Arna Magnússonar hand-
ritasafnara. Eftir brunann í Kaup-
mannahöfn og dauða Arna sá Jón
um handritasafn hans og var fyrsti
styrkþegi Arnasjóðs. Eftir hann
liggm- mikið magn ritsmíða um
margvísleg efni, svo sem málfræði,
orðskýringar, rúnafræði, fom-
kvæðaskýringar, skáldskapar-
fræði, náttúrufræði og margt
fleira. Aðeins fáein verka hans hafa
verið gefin út.
Félagsskapurinn Góðvinir
Grannavíkur-Jóns hefur það að
markmiði að standa vörð um fræði-
mannsheiður Jóns Ólafssonar úr
Grunnavík og kynna fræðistörf
hans, segir í fréttatilkynningu.
Erindi flytja Guðrún Asa Gríms-
dóttir fræðimaður; Már Jónsson
lektor; Þórann Sigurðardóttir,
MA; Sigurður Pétursson lektor og
Pétur Gunnarsson rithöfundur.
---------------------
Aðventusýning í
Galleríi Kletti
AÐVENTUSÝNING á vinnustofum
í Gallerí Kletti, Helluhrauni 16,
Hafnarfirði (efri hæð Húsasmiðjunn-
ar), verðui- opnuð í dag kl. 16.
Þar verða til sýnis og sölu vatns-
litamyndir, olíumyndir og glermunir.
Sýningin stendur til laugardags-
ins 12. desember og er opin alla
daga frá kl. 13-18, laugardaga frá
kl. 10-18
Að galleríinu standa; Erla Sigurð-
ardóttir, Guðrán Sigurðardóttir
Katrín Pálsdóttir, Sigrún Sveins-
dóttir og Steindóra Bergþórsdóttir.
------♦-♦-♦----
Nýjar bækur
• BÍTTU ájaxlinn Binna nn'n er
sjálfstætt framhald bókarinnar
Élsku besta Binna mín sem kom út
á síðasta ári og
er eftir Kristínu
Helgu Gunnars-
dóttur.
í kynningu
segir: Brynhild-
ur Bera fer sínar
eigin leiðir,
stundum óttaleg-
ar krókaleiðir,
og oft verður
hún að bíta á
jaxlinn, til dæmis þegar pabbi
hennar lendir í lífsháska og þegar
hún verður íyrir einelti í skólanum.
En Binna sigrast á hverjum vanda
og upplifir hvert ævintýrið öðru
ótrúlegra.
Utgefandi er Mál og menning.
Margrét E. Laxness myndski-eytti
söguna. Bókin er215 bls., prentuð
hjá Grafík. Verð: 1.980 kr.
Kristín Hclga
Gunnarsdóttir
■
Morgunblaðið/Karl
Jólalögin
æfð
GrundarQörður. Morgunblaðið.
NÚ standa yfir æfingar Lúðra-
sveitar Grundarfjarðar á jóla-
lögunum. I Lúðrasveitinni, sem
stofnuð var í fyrra, eru 14
manns á öllum aldri. Yngsti
meðlimurinn er ellefu ára en sá
elsti er á sjötugsaldri. Friðrik
Vignir Stefánsson, tónlistar-
skólastjóri í Grundarfírði, er
stjórnandi. Lúðrasveit Grundar-
fjarðar mun spila á fjölskyldu-
degi kvenfélagsins Gleym mér
ey og einnig þegar kveikt verð-
ur á jólatrénu í Grundarfirði og
við önnur tækifæri sem gefast á
jólaföstunni.
„Gestaboð“ Ingu Elínar
INGA Elín opnar sýningu á verkum
sínum á pallinum í Álafossbúðinni,
Álafossvegi 23 í Mosfellsbæ, í dag,
föstudag.
Heiti sýningarinnar er tilvitnun í
skáldsögu, „Babettes gæstebud".
I kynningu segir m.a.: „Á Gesta-
boði getur að líta uppdekkað borð
með öllum borðbúnaði eftir Ingu
Elínu. Auk þess ýmis eldri verk sem
tengjast slíkum gestaboðum, og loks
ný verk. “
Inga Elín útskrifaðist úr MHI og
stundaði nám í keramik- og gler-
deild Danmark Design í Kaup-
mannahöfn. Þetta er 9. einkasýning
Ingu Elínar, en auk þess hefur hún
tekið þátt í fjölda samsýninga bæði
heima og erlendis. Hún var kjörin
bæjarlistamaður í Mosfellsbæ
1997.
Sýningin stendur til 6. janúar
1999, og er opin virka daga kl. 10-18
og laugardaga 10-14.
Nýjar bækur
• GÖNGIN til eilífðar er eftir Leon
Rhodes í þýðingu Jóhönnu E.
Sveinsdóttur. Gunnar Dal ritar for-
mála.
I kynningu segir: „Þýðandi bókar-
innar, Jóhanna E. Sveinsdóttir,
helgar útgáfuna minningu föður
síns, Sveins Ólafssonar. Sveinn var
ötull við útbreiðslu kenninga
Swedenborgar og þýddi mörg verka
hans á íslensku. I bókinni fjallar höf-
undur um reynslu fólks sem hefm’
látist, farið um göng sem virðast
liggja til eilífðar, ljóss og betri
heims, en snúið til baka því að tími
þess var ekki kominn. Höfundur
vitnar oft í bækur Swedenborgar
máli sínu til skýringar. Rök eru færð
fyrir því að dauðinn sé ekki óttaleg-
ur og hann marki upphaf hins raun-
verulega lífs mannsins.“
Sveinn Ólafsson lést 3. ágúst 1996.
Utgefandi er Islenska bókaútgáf-
an. Bókin er 156 bls., prentunnin í
Prentmet en Félagsbókbandið-Bók-
fell sá um band. Verð: 3.280 kr.
BARNAKÓR Biskupstungna er meðal þeirra sem fram koma á að-
ventutónleikum Kórs ML í Skálholti á sunnudag.
Aðventutónleikar
í Skálholti
KÓR Menntaskólans að Laugar-
vatni undir stjórn Hilmars Arnar
Agnarssonar heldur aðventutón-
leika í Skálholtsdómkirkju sunnu-
daginn 29. nóvember kl. 15.
Einsöngvari með Kór Mennta-
skólans að Laugarvatni að þessu
sinni verður Garðar Thor Cortes.
Einnig koma fram á tónleikunum
Barnakór Biskupstungna, Laug-
arvatnskórinn, Laugaráskvartett-
inn og strengjasveit undir stjórn
Lilju Hjaltadóttur. Meðal laga á
efnisskránni eru jólalög Ríkisút-
varpsins frá síðastliðnum tveimur
árum, Jól eftir Báru Grímsdóttur
við ljóð Gríms Lárussonar og lag
Tryggva M. Baldvinssonar við
ljóð Davíðs Stefánssonar, Jóla-
kvöld, auk fjölda sígildra jólalaga.
Efnisskrá tónleikanna verður
til sölu við innganginn og kaffi-
veitingar í Skálholtsskóla að tón-
leikunum loknum.
LISTMUNAUPPBOÐ
Á HÓTEL SÖGU SUNNUDAGINN 29. NÓVEMBER KL. 20.30.
KOMIÐ OG SKOÐIÐ VERKIN í GALLERÍ FOLD, RAUÐARÁRSTÍG 14, í DAG FRÁ KL.
10.00 - 18.00, Á MORGUN FRÁ KL. 10.00 - 17.00 OG Á SUNNUDAGINN FRÁ KL.
12.00 - 17.00.