Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
höoj viMHt/'-fvOu TS:»uaA<iiraHðs
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 45
RAOAUGLÝSINGAR
ATVIIMIMU-
A U G LÝ SIIMGAR
Tilraunastöð Háskóla íslands í
meinafræði að Keldum
Meinatæknir
Laust er til umsóknar fullt starf meinatæknis
við Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
Honum er einkum ætlað að aðstoða við þjón-
ustu og rannsóknir í veiru- og bakteríufræði
fiska. Reynsla á sviði bakteríu- og veirufræði
er því mjög æskileg. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi Meinatæknafélags íslands og
fjármálaráðherra dags. 5. júlí 1997 og aðlögun-
arsamningi við Tilraunastöðina dags. 3. apríl
1998. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf eigi síðar en 1. janúar 1999.
Umsóknarfrestur er til og með 11. desember
nk. í skriflegum umsóknum skal greina frá
menntun og starfsreynslu og skulu þær stílað-
ar á Guðmund Georgsson, Tilraunastöð HÍ í
meinafræði að Keldum v. Vesturlandsveg, 112
Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Sigurður Helgason
og Guðmundur Georgsson í síma 567 4700.
TILKYNNINGAR
Svæðisskipulag
miðhálendis íslands 2015
Samvinnunefnd um svæðisskipulag mið-
hálendis íslands hefursamþykkt Svæðisskipu-
lag miðhálendis íslands 2015. Tillagan var
auglýst skv. 17. og 18. gr. skipulagslaga nr.
19/1964 frá 6. júní til 10. desember 1997 og
lá hún frammi til kynningar á 16 stöðum víðs
vegar um landið. Fresturtil að skila athuga-
semdum rann út 10. desember 1997 og bárust
95 umsagnir eða athugasemdirfrá einstakling-
um, félagasamtökum, sveitarfélögum, stofnun-
um og ráðuneytum.
Samvinnunefndin fjallaði um innsendar
athugasemdir og lagði í ágúst 1998 fram
sérstaka umsögn sem einkum nærtil þeirra
athugasemda sem áttu við sjálfa tillögugerð-
ina. Þó að mikið tillit hafi verið tekið til athuga-
semda við lokafrágang skipulagsins hafa þær
ekki breytt meginhugmynd auglýstrartillögu
að mati nefndarinnar. Meginbreytingar sem
gerðar hafa verið lúta að nánari útfærslu skil-
greininga á landnotkunarflokkum og að skil
milli nýtingar og verndunar hafa verið skerpt
nokkuð. Auk þessa hefur nokkrum skýringar-
kortum verið bætt inn í inngangskafla til að
styrkja niðurstöður nefndarinnar.
Skipulagstillagan ásamt umsögnum samvinnu-
nefndar um athugasemdirnar var send sveitar-
félögunum 38 sem stjórnsýslu hafa á svæðinu
skv. 3. mgr. 13. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 og gerðu þau ekki athugasemdir
og teljast því hafa samþykkt tillöguna.
Samþykkt svæðisskipulag hefurverið sent
Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverf-
isráðherra um lokaafgreiðslu.
Þeir sem óska eftir nánari upplýsingum um
tillöguna eða niðurstöðursamvinnunefndargeta
snúið sértil ritara samvinnunefndarinnar hjá
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166 í Reykjavík.
Samvinnunefnd
um svæðisskipulag miðhálendisins.
Auglýsendur athugið
skilafrest!
Auglýsingatexta og/eðatilbúnum atvinnu-,
rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast
í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12
á föstudag.
auglýsingadeild
sími 569 1111
símbréf 569 1110
netfang: augl@mbl.is
Handverksmarkaður
Handverksmarkaðurverður á Garðatorgi laug-
ardaginn 21. nóvember, frá kl. 10—18. Milli
60 og 70 aðilar sýna og selja muni sína. Kven-
félagskonur sjá um kaffisölu.
NAUE3UNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Austurmörk 14, Hveragerði, ehl. 0101,182,4 fm, 33,68% eignar, þingl.
eig. Röra- og stífluþjónustan efh., gerðarbeiðendur Guðmundur Þór
Kristjánsson, Hekla hf., (slandsbanki hf., höfuðst. 500, sýslumaðurinn
á Selfossi, Tryggingamiðstöðin hf. og Vélsmiðja KÁ hf., fimmtudaginn
3. desember 1998 kl. 10.45.
Heiðmörk 22h, Hveragerði, þingl. eig. Óskar Welding Snorrason,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og húsbréfadeild Húsnæð-
isstofnunar, fimmtudaginn 3. desember 1998 kl. 11.00.
Lóð nr. 10 í Öndverðarnesi, Grímsneshreppi, þingl. eig. Þorsteinn
Sveinsson, gerðarbeiðendur Grímsnes- og Grafningshreppur og
Múrarafélag Reykjavíkur, fimmtudaginn 3. desember 1998 kl. 15.00.
Lóð úr landi Miðfells, Þingvallahreppi, Asparlundur 2, þingl. eig.
þb. Ólafur Benedikt Þórðarson, gerðarbeiðandi Þingvallahreppur,
fimmtudaginn 3. desember 1998 kl. 14.00.
Strandgata 11, Stokkseyri, þingl. eig. Kristrún Ósk Kalmansdóttir,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins, íslandsbanki hf., höfuðst.
500 og sýslumaðurinn á Selfossi, fimmtudaginn 3. desember 1998
kl. 11.30.
Sunnuvegur 14, Selfossi, neðri hæð, 58,9%, þingl. eig. Karl Ómar
Ársælsson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og íslandsbanki
hf., höfuðst. 500, fimmtudaginn 3. desember 1998 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
26. nóvember 1998.
FUIMOIR/ MANNFAGNAÐUR
®FÉLAG
ELDEI
BORGARA
Almennur félagsfundur
Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni,
verður haldinn í félagsheimili félagsins í
Ásgarði, Glæsibæ, laugardaginn 28. nóv.
1998 kl. 13.30.
Gestur fundarins: Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra.
Dagskrá:
1. Avarp formanns FEB, Páls Gíslasonar.
2. Almannatryggingar. Margrét H.
Sigurðardóttir, varaform. FEB.
3. Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde fer
yfir þá málaflokka í frumvarpi til fjár-
laga, sem snerta hagsmuni aldraðra.
4. Kaffihlé. í kaffihléi verða kynnt lög af
geisladiskinum „Maður lifandi" sem kom
út fyrir skömmu til styrktar þroskaheftum.
Þeir söngvarar sem koma fram eru:
André Backmann, Guðrún Gunnarsdóttir
og Sævar Sverrisson. Kynnir: Þorgeir
Ástvaldsson útvarpsmaður.
5. Umræður um erindi fjármálaráðherra
og fyrirspumir.
6. Félagsstarfið, nútíð — framtíð.
7. Um kl. 17.00 koma þau Ómar Ragnarsson
og Sigrún Hjálmtýsdóttir og syngja dúett
af geisladiskinum „Maður lifandi".
8. Önnur mál.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Framkvæmdastjórn FEB.
FÉLAGSSTARF
VJólahlaðborð í
Valhöll
Félög sjálfstæðismanna standa fyrir
jólahlaðborði í nýjum og glæsilegum salar-
kynnum sjálfstæðismanna í Valhöll, Háaleitis-
braut 1, laugardaginn 28. nóvemfoer.
Húsið opnað með fordrykk kl. 19.00 og
borðhald hefst kl. 20.00. Undir borðum verður
sungið og Hjálmar Jónsson, alþingismaður
minnist á jólin. Veislustjóri er Ari Edwald. Verð
fyrir matinn er 2.200 kr. á mann. Gestir
kvöldsins verða frú Rut Ingólfsdóttir og
Bjöm Bjamason menntamálaráðherra.
Vinsamlegasttilkynnið þátttöku til skrifstofu
sjálfstæðisflokksins í síma 515 1700 fyrir kl.
16.00 föstudaginn 27. nóvember.
Allir velkomnir.
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík og hverfafélögin í
Reykjavík.
VFélag sjálfstæðis-
manna í Laugarnesi
Aðalfundur — Jólafundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hótel Esju
hinn 3. desember kl. 19.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Gestur fundarins verður Geir Haarde, fjármála-
ráðherra. Eftir aðalfund verður jólafundur með
hefðbundnu jólahlaðborði.
Stjómin.
V Árbæingar
Morgunverðarspjall verður með Ingu Jónu Þórð
ardóttur, borgarfulltrúa, I félagsheimili sjálfstæð
ismanna, Hraunbæ 102b, (við hliðina á Skalla),
laugardaginn 28. nóv. kl. 10.30—12.00.
Ailir velkomnir.
Félag sjálfstædismanna í Árbæ,
Selási og Ártúnsholti.
SMÁAUGLVSIIMGAR
í kvöld kl. 21 heldur Ari Halldórs-
son, erindi: „Hvað er Veda?" í
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið
hús, kl. 15.30 í umsjón Jóns L.
Arnalds, sem ræðir um hug og
hugljómun. Á sunnudag kl. 17—
18 er hugleiðingarstund með
leiðbeiningum fyrir almenning.
Á fimmtudögum kl. 16.30—18.30
er bókaþjónustan opin með
miklu úrvali andlegra bók-
mennta. Starfsemi félagsins er
öllum opin endurgjaldslaust.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ijigólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
FELAGSLIF
Landsst. 5998112719 VII
I.O.O.F.12 = 17911278’/2 = 9.III*
I.O.O.F. 1 = 17911278 = Dn.
Hjálpræóís-
herinn
Kirkjustræti 2
I kvöld kl. 20.00: Samverustund
fyrir alla herfjölskylduna.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit f*j
Lr Li
\J www.mbl.is/fasteignir