Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 53
námi Arnfríði Ingu Arnmundsdótt-
ur frá Aki-anesi og þau eignuðust
tvo syni, Gísla sóknarprest og Arn-
mund skrifstofustjóra. Barnabörn
þeirra eru nú tíu talsins.
Ég vil með þessum orðum þakka
Jónasi áratuga vináttu og við Guð-
rún biðjum Öddu, sonum þeirra,
tengdadætrum og barnabömum
blessunar Guðs.
Páll Sigurðsson.
Þar sem kærleikurinn býr, verð-
ur sorgin ekki umflúin. Mér þótti
afar vænt um Jónas. Þess vegna eru
fyrstu viðbrögð mín við andláts-
fregn hans sorg. Samtímis get ég
glaðst yfir að hann hefur nú fengið
hvfld frá sjúkdómum og hrörnun.
Jónas var ungur prestur í Vík,
þegar ég hitti hann fyrst. Hann
hafði þá fræðslustundir á biblíu-
námskeiði í Vatnaskógi og kenndi
okkur um trúarjátninguna. Það var
engin lognmolla! Hann teiknaði og
útskýrði og fékk Lúther sjálfan til
hjálpar, því hann pantaði „Fræði
Lúthers hin minni“ úr bænum, þeg-
ar honum varð ljóst, að flest okkar
vissu ekkert um þau fræði. Hann lét
okkur, unglinga og fullorðna, læra
skýringar Lúthers utan bókar og
hlýddi okkur yfir! Þá öfundaði ég
þau fermingarbörn, sem áttu svo lif-
andi og skemmtilegan prest.
Síðar kynntist ég Jónasi og konu
hans, Arnfríði Arnmundsdóttur,
persónulega. Það urðu dýrmæt
kynni. Við áttum fjölbreytt sam-
starf í Kristilegu skólahreyfingunni,
KFUM og KFUK og í kirkjustarf-
inu. Ég dáðist að dugnaði og skarp-
skyggni Jónasar. Hann hafði ein-
staka hæfileika til að taka þátt í
mörgu samtímis, var fljótur að setja
sig inn í málin, mynda sér skoðun
og taka ákvarðanir. Mér þótti mjög
gott að hafa hann til ráðlegginga, og
hann sýndi mér virðingu og kær-
leika í samstarfinu.
Persónulegu kynnin sýndu mér
líka að undirstaðan í lífi Jónasar,
var Arnfríður. Hún stóð sem stólpi
að baki honum og átti drýgstan þátt
í að hann blómstraði svo fagurlega
og varð svo afkastamikill.
Haustið 1975 átti ég eftirminni-
lega samveru með þeim hjónum,
þegai' þau buðu mér sem „litlu syst-
ur“ með í ökuferð frá Austumki til
Lúxemborgar, þó að það væri raun-
verulega silfurbrúðkapsferð þein-a!
I minningunni stendur Jónas fyr-
ir mér sem einlægur, áræðinn boð-
beri fagnaðarerindisins. Hann talaði
tungumál sem áheyrendur skildu,
og oft sýndi hann eitthvað áþreifan-
legt, sem jók skilning orðanna. I því
sambandi er mér efst í huga, þegar
ég eitt sinn var stödd með honum í
Finnlandi á námskeiði fyrir stafs-
menn kristilegu stúdentahreyfingar-
innai' þar. Hann talaði um að við
værum verkfæri Drottins. Síðan dró
hann upp hanska, veifaði honum
framan í hina lærðu starfsmenn,
slengdi honum á ræðupúltið - og
þurfti ekki mörg orð um, að
hanskinn gæti ekki neitt! Síðan setti
hann hanskann á hönd sér - og þá
kom líf! Þannig værum við eins og
hanskinn - aðeins verkfæri, sem Guð
gæti notað, ef hann fengi að fylla
okkur!
Þegar ég prestvígðist í janúar
1988, óskaði Jónas eftir að fá að vera
vígsluvottur minn. Því er vandsvarað
hvort okkar var ánægðara með það.
Jónas átti svo ríkan þátt í að gera
mig að nothæfum starfsmanni í
kirkju Krists. Hann varð mér far-
vegur blessunar Guðs.
Guði séu þakkir fyrir Jónas Gísla-
son.
Við hjónin sendum einlægar sam-
úðarkveðjur til Amfríðar og til son-
anna og fjölskyldna þeima. Það er
erfitt að geta ekki verið með ykkur
við útfórina, en bænin og blessun
Guðs er óháð vegalengdum.
Verið Guði falin.
Stína Gísladóttir,
Ola Aadnegard.
Kveðja frá Landssanibandi
KFUM og KFUK á íslandi
Með þakklæti til Guðs viljum við
minnast séra Jónasar Gíslasonar
sem á langri ævi tók þátt í starfi
KFUM og KFUK af ósérhlífni og
dugnaði.
Jónas kynntist KFUM sem ung-
ur drengur og varð fljótt virkur í
starfi þess sem leiðtogi í æskulýðs-
starfi félaganna og starfsmaður í
sumarbúðunum í Vatnaskógi.
Námsár erlendis, prestsskapur í
Vík í Mýrdal og starf hans sem
sendiráðsprestur íslendinga í
Kaupmannahöfn gerðu það að verk-
um að tengslin við KFUM og
KFUK voru i lágmarki um tíma, en
þegar heim kom fengu félögin aftur
að njóta krafta hans. Jónas var vin-
sæll ræðumaður og predikari af
Guðs náð. Hið miðlæga í predikun
hans var ævinlega Jesús Kristur.
Hann talaði auðskiljanlegt mál og
dró upp myndir og líkingar til að
skýra mál sitt. Það var kannski þess
vegna sem hann átti svo auðvelt
með að ná eyrum ungs fólks og var
oft ræðumaður á samverum þess.
Jónas var formaður Landssam-
bands KFUM og KFUK á árunum
1982-1990. Sem stjórnarmaður var
hann ákveðinn, en ljúfur í öllu sam-
starfi og ósérhlífinn. Hann var
óhræddur við að taka afstöðu í erf-
iðum málum og var hamhleypa til
verka. Nefndar- og stjómarstörf
áttu vel við hann, en þar nutu sín
skipulagsgáfa hans og óbilandi
áhugi. Jónas var mjög félagslyndur
að eðlisfari og átti auðvelt með að
mynda tengsl við fólk. I erlendu
samstarfi félaganna búum við enn
að tengslum sem hann stofnaði til
og hafa þau skapað meiri víðsýni og
fleiri raddir boðunar í starfinu.
Landssamband KFUM og
KFUK á íslandi kveður séra Jónas
Gíslason með virðingu og þakklæti
fyi'ir þá miklu vinnu sem hann lagði
af mörkum til félagsstarfsins. Eig-
inkonu hans og öðrum aðstandend-
um sendum við samúðarkveðjur og
biðjum Guð að styrkja þau í sorg
þeirra.
F.h. Landssambands KFUM og
KFUK,
Björgvin Þórðarson, formaður,
Gyða Karlsdóttir,
framkvæmdasljóri.
Kveðja frá Prestafélagi
Islands
„Sæll er sá er situr í skjóli hins
hæsta, sá er gistir í skugga hins al-
máttka, sá er segir við Drottin:
„Hæli mitt og háborg, Guð minn er
ég trúi á.“ ... „Akalli hann mig mun
ég bænheyra hann, ég er hjá honum
í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri
hann vegsamlegan.",,
í dag kveðjum við prestarnir sr.
Jónas Gíslason, félaga okkar og vin,
guðfræðiprófessor og vígslubiskup í
Skálholti. Mér er sem ég heyri hann
sjálfan hafa yfir ofanrituð orð úr 91.
Davíðssálmi og öll hin úr sálminum
sem vitna um lífið sem hefur sigrað
dauðann. Hér er það Gamla testa-
mentið sem talar og flytur orð
manns sem lifði og starfaði eins og
hver annar maður. Hann tókst á við
lífið, notaði hendur og fætur til að
komast áfram, velti fyrir sér
skuggahliðum tilverunnar og sá að
víða var pottur brotinn. Höfundur
Davíðssálma horfir á með augum
þess manns sem þekkir lífið, veit að
það geymir svo margt viðsjált, erfitt
og slítandi. Hann horfir á atburði
dagsins og lífið í heild með þá stað-
reynd í huga að maðurinn stendur
einn andspænis örlögum sínum og
að „engi má sköpum renna“. Sálma-
skáldið veit þetta - að nóttin ógnar
með myrkrinu og drepsóttin geisar
að deginum - en hann veit þó hitt
enn fremur að Guð leggur ást á
hann og að hann er hjá honum í
neyðinni.
Þetta er viskan. Sr. Jónas Gísla-
son átti þessa trú sem hér er vitnað
um, trú sem hjálpar okkur til að
horfast í augu við erfiðleika, ósigi'a
og misfellur á hverjum degi. Hann
átti þessa spakvitru og einlægu trú
sem horfist í augu við stundina með
þá sýn framundan að Guð hefur
hlutina í hendi sér og að hann hefur
síðasta orðið.
Sr. Jónas var alla tíð mjög áhuga-
samur um kirkju og samfélag. Hann
fann sinn starfsvettvang innan vé-
banda Kristilegra skólasamtaka og
KFUM. Það átti við hann að lögð
var áhersla á að hver og einn í sinni
stétt og stöðu þyrfti að taka sína
eigin afstöðu til fagnaðarerindisins
og axla þá ábyrgð og köllun sem eft-
irfylgdin við Jesúm Krist fól mönn-
um á herðar. Af þessum sökum m.a.
lét hann stjórnmál til sín taka.
Hann var mjög pólitískur á tíma og
tókst á við viðfangsefni pólitíkurinn-
ar af sama eldmóði og annað sem
hann fékkst við.
Starfsreynsla sr. Jónasar í
prestsskap var mjög margvísleg.
Hann var prestur í íslenskri sveit, í
höfuðborginni og í útlöndum. Marg-
háttuð viðkoma hans í kirkju og
samfélagi leiddi til þess að hann átti
vini og kunningja víða. Sr. Jónas
kom við sögu okkar margra presta
þegar við stunduðum nám við guð-
fræðideild Háskóla íslands. Þar var
á ferð kennari sem bar persónuleg-
an hag okkar fyrir brjósti. Kennari
sem vildi vita hvernig okkur leið,
hvaða vonir við bundum við námið
og hverjar væntingar okkar væru
gagnvart prestskapnum. Og þótt
við kynnum e.t.v. ekki að meta
kirkjusöguna að verðleikum, þá
kunnum við að meta umhyggju
hans og velvilja.
A síðari árum átti sr. Jónas við
mikla vanheilsu að stríða sem dró
úr honum allan mátt. En viljinn var
jafn mikill og fyrr, jafnvel meiri -
oft sáum við hann takast á við verk-
efni sem hann sinnti meira af vilja
en mætti. En á þessum ögurstund-
um kynntumst við betur mannkost-
um hans og persónuleika og oftar
en ekki reis virðing hans hvað hæst
í veikindum hans. Hann var um-
hyggjusamur og natinn, hann kunni
að samgleðjast innilega með öðram
og síðast en ekki síst þá bar hann
kirkjuna áfram á bænarörmum. Á
sr. Jónasi urðu orð postulans sér-
stök opinberun: „Náð mín nægir
þér því að mátturinn fuilkomnast í
veikleika.“
Nú kveðjum við sr. Jónas með
þökk fyrir liðna tíð og biðjum góðan
og miskunnsaman Guð að taka hann
að sér og varðveita hann hjá sér um
alla eilífð. Prestafélag íslands vott-
ar frú Amfríði, sr. Gísla, Arnmundi
og fjölskyldum þeirra innilegustu
samúð.
Helga Soffía Konráðsdóttir.
Við andlát séra Jónasar reikar
hugurinn til okkar fyrstu kynna
sem vora í sendiráði íslands í Kaup-
mannahöfn. Jónas var þá sendiráðs-
og sjúkrahúsprestur og átti ég það
erindi að biðja hann að skíra bam
vinafólks míns. Frá þessum fyrstu
kynnum tókst vinátta við Jónas og
Öddu sem haldist hefur óslitið síð-
an. Séra Jónas varð strax mikill ör-
lagavaldur í lífi okkar hjónanna því
óbeint leiddi hann okkur saman. Ég
trúði honum fyrir því að ég ætti í
miklu hugarstríði þar sem ég hefði
heillast af ungri stúlku heima á ís-
landi og ég gæti ekki einbeitt mér
að nokkrum hlut því hún viki ekki
úr huga mér. Gallinn væri sá að hún
væri bæði miklu yngri en ég, vart af
unglingsaldri, og varla leyfilegt að
fella til hennar ástarhug og svo
héldi ég að hún hefði ekki minnsta
gi-un um hug minn til hennar. Jónas
hlýddi á frásögn mína og eins og
honum var eiginlegt svaraði hann
að bragði og sagði mér að skrifa
henni strax og tjá henni tilfinningar
mínar. Þetta gerði ég og um það bil
ári seinna settum við upp hringa
einn fagran sumardag á yndislegu
heimili Jónasar og Oddu í Holte
skammt utan Kaupmannahafnar.
Ég sé ennþá fyrir mér hlýlegt og
glettnislegt bros vinar míns þegar
við tilkynntum honum trúlofunina.
Jónas og Adda héldu áfram að vera
miklir örlagavaldar í lífi okkar hjón-
anna því Jónas gaf okkur saman í
Akureyrarkirkju og skírði þrjú af
börnum okkar. Síðar kom svo yngri
sonur þeirra og varð mín hægri
hönd í fyrirtæki okkar og höfum við
starfað saman um áratuga skeið.
Á þessum tíma var algengt að
mikið veikir sjúklingar væru sendir
í læknisaðgerðir til Kaupmanna-
hafnar. Nánustu aðstandendur sem
fylgdu sjúklingunum áttu þá marg-
ar erfiðar stundir í ókunnu landi.
Öllu þessu fólki sinnti sr. Jónas af
einstakri kostgæfni, eiginlega svo
mikilli að mér var þá þegar ljóst að
það hlyti um síðir að ganga út yfir
heilsu hans. í bókstaflegri merk-
ingu þess orðs fór hann um Kaup-
mannahöfn eins og stormsveipur til
að sinna sjúklingum og ættingjum
þeirra, vitja íslendinga sem lent
höfðu í fangelsum og undirbúa at-
hafnir á vegum kirkjunnar svo að-
eins það helsta sé nefnt. Jónas var
einstaklega lipur og fær bflstjóri og
þegar mest lá við fór hraðamælirinn
stundum yfir 150 km hraða á Lyng-
by-hraðbrautinni, en þá vora hraða-
takmarkanir ekki eins strangar og
nú er. Ég reyndi að láta sem ekkert
væri, þótt oft væri mér um og ó.
Ekkert mannlegt var sr. Jónasi
óviðkomandi. Hann hafði fyrir utan
áðurgreind störf einlægan áhuga og
mikla þekkingu á málaralist, stjórn-
málum og viðskiptum svo fátt eitt sé
talið. I frístundum glímdi hann við
að raða saman stórum og flóknum
púsluspilum, en sú iðja fannst hon-
um afslappandi og lýsir það honum
vel. Atorka Jónasar við að veita öðr-
um lið jaðraði oft við hið ofurmann-
lega og fyrir okkur hin sem stóðum
honum nærri, ekki síst Öddu, var á
stundum erfitt að vera í takt við
hann og fylgja honum eftir.
I stað þess að reyna að gera ævi
sr. Jónasar skil í stuttri minningar-
grein ætla ég að bregða upp hvers-
dagslegu atviki frá Kaupmannahöfn
sem ég tel að lýsi vel einni af mörg-
um hliðum hans. Það var barið
ákveðið að dyram á herbergi mínu
og ég heyrði strax að þar var Jónas
kominn. Hann vatt sér inn, leit á
klukkuna og sagði að eftir ör-
skamma stund hæfist uppboð á bók-
um úr dánarbúi íslensks læknis sem
hefði starfað í Danmörku í áratugi
og við yi'ðum að hafa hraðann á. Ég
hafði aldrei farið á uppboð áður og á
leiðinni í bílnum sagði Jónas að ég
mætti bjóða í læknisfræðibækur en
hann myndi sjálfur bjóða í ljóða-
bækur. „Mundu bara að þú átt að
bjóða fimm krónur sem fyrsta boð“.
Þar sem bfll Jónasar var með merki
stjórnarerindreka gat hann lagt
honum upp á gangstétt beint fyrir
framan uppboðsstaðinn. Uppboðið
var byrjað þegar við komum inn.
Ég heyrði Jónas bjóða í ljóðabæk-
urnar og einhver landi okkar aftar í
salnum bauð stíft á móti og yfirbauð
hann. Þá tók Jónas til sinna ráða,
reis snöggt á fætur og fór til manns-
ins. Eftir það skiptust þeir á skyn-
samlegum boðum. Þegar röðin kom
að læknisfræðiritunum og fyi’stu ár-
gangar Læknablaðsins í fögru
bandi vora boðnir upp varð mér svo
mikið um að ég bauð tíu krónur sem
fyrsta boð. Mér til mikillar furðu
bauð enginn betur og ég fékk verkið
á tíu krónur danskar! Ég kom svo
sigrihrósandi með feng minn til
Jónasar, en hann sagði aðeins: „Þú
áttir að fara að mínum ráðum og
bjóða fimm krónur sem fyrsta boð.“
Á eftir fórum við saman á kínversk-
an veitingastað sem Jónas hafði
mikið dálæti á og héldum upp á
vellukkuð og skemmtileg viðskipti.
Þannig var séra Jónas, ekki aðeins
andlegur leiðtogi og einlægur trú-
maður, heldur hafði hann einnig
gaman af að taka þátt í því sem
menn flokka undir veraldlega hiuti,
en er í raun hluti af eðlilegu lífi og
samofið því sem andlegt kallast.
Fyrir hamhleypu eins og séra
Jónas var afar erfitt að þurfa að
takast á við sjúkdóm sem hamlaðj
athafnaþrá hans á öllum sviðum. I
þeira baráttu bannaði hann sér
aldrei. Fyrir okkur, sem fylgdumst
með því stríði, var það þyngra en
tárum taki.
Nú hefur okkar kæri séra Jónas
fengið langþráða hvfld og frið, sem
hann trúði einlæglega á og boðaði
ætíð kröftuglega að við myndum
öðlast fyrir trú á Drottin vorn Jesú
Krist. Við biðjum að sú trú megi nú
styrkja Öddu og fjölskyldu þeirra í
sorginni. Óvenjulegum lífsferli er
lokið og við sem eftir stöndum
þökkum af alhug kynnin og vinátt-
una sem var óbrigðul. Guð blessi
minningu séra Jónasar Gíslasonar
vígslubiskups.
Guðmundur Hallgrímsson og ^
Anna Guðrún Hugadóttir.
Ég hitti Jónas Gíslason fyi'st
meðan ég var enn á unglingsaldri. Á
þeim tíma heyrði ég hans líka oft
getið vegna vináttu náinna skyld-
menna minna við hann.
Persónuleg kynni mín af Jónasi
hófust þó fyrst er ég byrjaði nám í
guðfræðideild haustið 1972. Ég
halla ekki réttu máli þótt ég játi að í
upphafi óttaðist ég þennan nýja
læriföður minn. Atorkan, áhuginn,
starfsgleðin og athafnasemin var
langt umfram það sem hugmyndir
mínar um „hina andlegu stétt“ rúm-
uðu. Jónas Iíktist í mínum huga
meira athafnasömum framkvæmda-
stjóra eða stjórnmálamanni, enda
var hann í raun hvort tveggja ævi-
langt þótt hann gegndi slíkum hlut-
verkum opinberlega aðeins um
skamman tíma og á ungum aldri.
Fljótt virðist veraldlegur frami hafa
orðið honum hjóm eitt og lengst af
leitaði hann kröftum sínum útrásar
á kirkjulegum vettvangi.
Þegar fram liðu stundir áttum við
Jónas eftir að elda mörg járn sam-
an: Hann var faðir Gísla sem var
mér líkt og fóstbróðir öll árin í Há-
skólanum. Hann varð fyrsti kennari
minn í kh'kjusögu, en sú fræðigrein
átti síðar eftir að verða lifibrauð
mitt. Hann var andmælandi við
doktorsvörn mína. Um árabil störf-
uðum við saman á vegum Alþingis í
ritstjórn Sögu kristni á íslandi í
1000 ár og þegar Jónas var kjörinn
vígslubiskup í Skálholti varð ég eft-
irmaður hans við guðfræðideildina.
Smám saman rann óttinn af mér og
ég tók að meta aðra eðliskosti
Jónasar en þá sem fyrst blöstu við.
í persónulegum samskiptum komst
ég í kynni við umhyggjusemi hans
og vilja til að stuðla að framförum
og framgangi þeirra „unglinga“ sem
hann eyddi miklum hluta tíma síns
með. í kennslunni kynntist ég yfir-
sýn hans og næmum skilningi á við-
fangsefnum kirkjusögunnar. í rit-
stjórninni kom oft í ljós hve úrræða-
góður Jónas var og fundvís á hag-
nýtar lausnir á sérhverjum vanda.
Því miður nutum við krafta hans of
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
P UTFARAH
Stofnað 1990
Persónuleg þjónusta
Sími: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@itn.is
CC
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri