Morgunblaðið - 27.11.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 59
FRÉTTIR
Ráðstefna
um kjör
einstæðra
foreldra
FÉLAG einstæðra foreldra heldur
um helgina ráðstefnu um kjör ein-
stæðra foreldra undir yfirskriftinni
„Við þurfum líka að lifa“. Ráðstefn-
an verður haldin á Hótel Örk í
Hveragerði. Hún hefst klukkan 10 á
laugardag og stendur fram á sunnu-
dag.
Eftir setningu mun Sigríður
Jónsdóttir félagsfræðingur flytja
fyrirlestur undir heitinu „of margir
geta ekki séð fyrir sér sjálfir" og
síðan talar Sigrún Júlíusdóttir, fé-
lagsráðgjafi og dósent við Háskóla
Islands, um sameiginlega forsjá -
foreldrastarf um velferð barna. Jó-
hanna Sigurðardóttir alþingismaður
fjallar um kjör einstæðra foreldra á
Islandi, og Katrín Theodórsdóttir
um spuminguna hvort löggjöfin
gagnist hinni nýju fjölskyldu. Þá
talar Oktavía Guðmundsdóttir fé-
lagsráðgjafi um vanda barna -
stuðning við fjölskyldur og Þóra
Guðmundsdóttir um spurninguna til
hvers og fyrir hvern Félag ein-
stæðra foreldra sé.
Á sunnudag verða niðurstöður
vinnuhópa kynntar og aðalfundur
félagsins haldinn.
--------------
Ráðstefna um
ferðaþjónustu
í Reykjavík
árið 2000
ATVINNU- og ferðamálanefnd
Reykjavíkurborgar heldur ráð-
stefnu í Iðnó í dag, föstudaginn 27.
nóvember, undir yfirskriftinni:
Ferðaþjónusta í Reykjavík árið
2000.
Þarna taka til máls auk borgar-
stjóra sem setur fundinn, Svanhild-
ur Konráðsdóttir, kynningarfulltrúi
Reykjavíkur menningarborgar
2000, sem segir frá undirbúningi og
dagskrárliðum í tengslum við menn-
ingarborgarárið, Júlíus Hafstein,
framkvæmdastjóri Kristnihátíðar-
nefndar, greinir frá hátíðarhöldum í
tilefni af 1.000 ára kristni í landinu
og Hallgrímur Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
hestamanna, segir frá fyrirhuguðu
landsmóti hestamanna sem haldið
verður í Reykjavík árið 2000.
Eftir kaffihlé mun Hanne Sond-
ergaard, yfirmaður verkefnisþróun-
ardeildar Wonderful Copenhagen,
segja frá áhrifum menningarborg-
arársins á ferðaþjónustu í Kaup-
mannahöfn. Loks mun Steinn Logi
Bjömsson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Flugleiða hf., fjalla al-
mennt um ferðaþjónustu um alda-
mót.
Ráðstefnustjóri er Jóhanna Vig-
dís Hjaltadóttir. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill en áhuga-
samir eru beðnir að skrá þátttöku
til Gestamóttökunnar. Ráðstefnan
verður eins og áður segir í Iðnó í
dag og hefst kl. 13.30.
------♦-♦“♦---
VIK heldur
kynningarfund
VINÁTTUFÉLAG íslands og
Kúbu heldur almennan kynningar-
fund laugardaginn 28. nóvember kl.
14 að afloknum aðalfundi félagsins.
Ingibjörg Haraldsdóttir rithöf-
undur segir frá Kúbuheimsókn ný-
lega. Fundarstaður er kaffihúsið
Vegamót við Vegamótastíg í
Reykjavík á 2. hæð.
------♦“♦-♦---
Stjórnin í
Kjallaranum
HLJÓMSVEITIN Stjórnin leikur
föstudags- og laugardagskvöld í
BRIÐS
Umsjén: Arnór G.
Ragnarsson
Reykjavíkurmót í tvímenningi
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í tví-
menningi fer fram laugardaginn 28.
nóvember. Mótið hefst kl. 11 og
spilaður verður Barómeter (allir við
alla) eða Monrad Barómeter og
ræðst það eftir þátttöku. Keppnis-
gjald er 3.000 kr. á par.
Reykjavíkurmeistarar 1997 eru
Sverrir Armannsson og Magnús
Eiður Magnússon.
Spilarar eru vinsamlegast beðnir
um að skrá sig fyrírfram og tekið er
við skráningu hjá BSÍ, s. 587 9360.
Bridsfélag Hreyfils
Eins og fram hefir komið í þætt-
inum sigraði sveit Vina í aðalsveita-
keppni félagsins, sem lauk sl. mánu-
dagskvöld. í sveitinni spiluðu Gísli
Tryggvason, Leifur Kristjánsson,
Heimir Tryggvason og Árni Már
Björnsson.
Á mánudaginn kemur hefst 5
kvölda Butler-tvímenningur. Spila-
dagar eru 30. nóv., 7. des. og 4., 11.
og 18. janúar. Spilað er í Hreyfils-
húsinu við Grensásveg.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Þegai-17 umferðum er lokið í haust
barómeter er röð efstu para eftirfar-
andi:
Geirlaug Magnúsd. - Torfl Axelsson 118
Þorsteinn Jóensen - Unnar A Guðmundss. 96
Magnús Sverriss. - Guðlaugur Sveinss. 91
Jón Stefánss. - Ragnar Þoivaldss. 75
Amgunur Jónsd. - Jakob Kristinss. 71
Besta skor hinn 23. nóvember sl.
Birna Stefnisd. - Aðalsteinn Steinþórss. 93
Þorsteinn Jóensen - Unnar A Guðmundss. 80
Jón Stefánss. - Ragnar Þorvaldss. 45
Amgunnur Jónsd. - Jakob Kristinss. 43
Hver yrðu
áhrif aðildar
að ESB?
Svarið fæst
í þessari bók
Ómssacif& ritiyvir
álmgamesrai nm
sfjónasnál
ÁSKÓLAÚTGÁFAN
525-4003 • hu@hi.is
Hvað er á
Ö
f
jgcitur jólaleikur
í Dagskrá
Morgunblaðsins
Taktu þátt í léttum jólaleik í Dagskrá
Morgunblaðsins í hverju blaði til jóla og
þú gætir unnið glæsileg verðlaun.
Það er einfalt að vera með: Á blaðsíðu 44 í Dagskránni 25. nóvember eru nokkrar léttar
spurningar um efni blaðsins. Ef þú sendir inn rétt svar fyrir 1. desember átt þú kost á að
vinna TAL 12 Slimlite GSM-síma og TALkort eða matarkörfu frá verslunum 11-11.
Fyrir rétt svör í barnaþrautinni er hægt að vinna Sony Playstation-leikjatölvu frá Skífunni.
Nöfn allra þátttakenda fara í jólapott þar sem dregið er um glæsilega
iMac-tölvu frá Aco-Applebúðinni.
Einnig er hægt að taka þátt í ieiknum á mbl.is á hnappnum jólaleikur.
Taktu þátt í léttum leik og hver veit nema þú vinnir!
Aco •Applebúðin