Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðventa á
Akureyri
Frá Wolfgang Frosta Sahr:
LÁNSAMUR er ég. Ég bý rétt við
norðurpólinn. Þegar ég flutti til Is-
lands, fyrst til Reykjavíkur og síðan
til Akureyrar, gerði ég mér ekki
grein fyrir því, hversu mikil sú ná-
lægð átti eftir að verða.
Nú er sem sagt svo komið að ég
get sest í bílinn og ekið beint að
pólnum, þar sem jólasveinarnir hafa
nú haldið til frá því.um miðjan nóv-
ember, börnunum mínum og öðrum
á Akureyri til ómældrar gleði.
Ég var í fyrstu svolítið efins, jafn-
vel smeykur um að ég yrði leiður á
þessu jólastandi ef það varaði í svo
langan tíma.
En ef ég skil rétt þær skýringar á
íslenskum jólasiðum sem ég hef
fengið síðan, þá lýsir allt þetta um-
stang upp myrkasta tíma ársins og
verður til þess að lífga upp á skamm-
degið, samkvæmt fornnorrænni,
jafnvel samgermanski-i hefð og er
það vel.
En þá vaknaði ein spurning hjá
mér, er ekki forsætisráðherrann ný-
búinn að lýsa því yfir, að ekki sé þörf
á að líta til baka á það, sem vel hefur
tekist, heldur að beina nú sjónum
fram á við, að þeim tækifærum, sem
bjóðast íslensku þjóðinni í framtíð-
inni? Ég er þá að hugsa um eftirfar-
andi möguleika.
Skammdegið er mest í desember
og janúar, en það byrjar að örla á því
í nóvember og sér ekki fyrir endann
í febrúar. Því ekki að stíga skrefið til
fulls og hafa uppi jólalýsingar og
skreytingar á þeim tíma líka? Jólin
eru bara einu sinni á ári, og lengi má
hlakka til þeirra. Það er líka hugsan-
legt að hætta alveg við að taka
skreytingarnar niður, enda mikið
augnayndi af þeim. Og kannski eins
gott að erlendu ferðamennirnir sem
flykkjast til Islands á sumrin geri
sér grein fyrir því hvert þeir eru
komnir.
Hugsanlega mætti líka halda
áfram að spila jólalög í útvarpinu all-
an ársins hring, og að birta jólaaug-
lýsingar í blöðum og sjónvarpi. Af
þessu hlýtur að stafa talsverð hag-
ræðing, og svo segir mér hugur, að
rekstrarsjónarmið séu ekki ómikil-
vægust í þessu samhengi.
En svo er um að gera að finna aðr-
ar ástæður til frekari markaðshalda
og söluherferða sem væntanlega
mundu bæta andlegt ástand iandans
enn fremur.
Byrjun jólafóstunnar er t.d. grá-
upplagður tími til að reyna að auka
sölu á alls konar megi'unarkúrum og
fæðubótai’efnum og best væri að
benda fólki á þetta þegar í septem-
ber.
Um páskana væri vel hægt að
bjóða upp á föndurvikur, þar sem
blómaverslanir myndu auglýsa allt
til þyrnikórónugerðar og byggingar-
vöi’uverslanir færu ekki lengur var-
hluta af jólasölunni ef þær gætu fal-
boðið gæðavið og nagla í krossasmíð-
ar.
Flugfélögin ættu að nýta sér upp-
stigningardag til sértilboða í flug-
ferðum, og málaskólar hefðu nóg að
gera um hvítasunnuna þegar postul-
arnir fóru að tala tungum.
I þessum sannkristilega anda
hefðu líka gjarnan tiltekin atriði í
fræðsluátaki útvegsmanna á ári
hafsins mátt vera. Hvað er meira
viðeigandi á tímum minnkandi afla
en að minna á það, hvernig Jesús
brauðfæddi þúsundir á þremur fisk-
um og fimm brauðum? Bakarar, tak-
ið eftir!
Þannig mætti lengi telja. Leggjum
öll eitthvað af mörkum. Akureyri er
svo sannarlega Mekka jólasveinanna.
Skrifað í nóvember ‘98 í sönnu
jólaskapi.
WOLFGANG FROSTI SAHR,
Marbakka, Svalbarðsströnd.
Rök og
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
FLEST höfum við einhverja skoðun
á málum. Það er einmitt aðal hugs-
andi fólks að láta skoðun sína í ljós,
annaðhvort með eða á móti. Sé því
ekki til að dreifa, er sá hinn sami
markleysingi, honum er sama um
allt. Oft heyrum við sagt, er við
spyrjum fólk um álit þess á stjórn-
málaflokkum hérlendis, að sama sé,
hver þeirra sé kosinn; allir séu þeir
slæmir og fremur til ógagns en
gagns. Eru líkur til, að slíkt fólk
skipi sér í baráttusveit landi og lýð
til heilla? - Tæpast. Það er svo auð-
velt að deila á aðra, en aðhafast
sjálfur ekkert. Ég gæti t.d. látið
eiga sig að skrifa þessa grein. Eng-
inn hefur beðið mig um að gera það.
Ég læt mig samt hafa það, og von-
ast til að greinin birtist sem bréf,
því þá sér hún fyrr dagsins ljós en
ef um venjulega aðsenda grein væri
mótrök
að ræða. Það er mín reynsla.
En nú er ég loksins að komast að
efninu, það er með rökin og mótrök-
in. Ég átti tal við kunningja minn
einn um greiðslukortin. Ég var og
er á móti þeim. Mín rök eru að þau
hvetji fólk oft til að kaupa meira en
góðu hófi gegnir, enda trúlega fund-
in upp til að fólk eyði meiru en ella
væri. Ég sagðist borga allt jafnóð-
um, og trúlega opna pyngjuna
nokkrurn sinnum á dag. Þá sagði
kunninginn, sem greiddi mest af
sinni úttekt með greiðslukorti: -
Fyndist þér ekki betra að greiða
þessa úttekt i einu lagi á hálfs ann-
ars mánaðar fresti? - Nei, sagði ég;
ég er ekki viss um, að ég yrði hýr á
svip yfir að sjá allt í einu rosalega
háa tölu yfir bæði þarft og óþarft,
sem ég hefði fýrir löngu tekið út.
Ég vil vita, hvað ég á eftir í veskinu
eða buddunni hverju sinni.
Borgar menntun sig? Sumir
segja, að skólanám sé aðeins tíma-
sóun, því að ekki sé víst, að mennta-
menn hljóti betri tekjur eða lífskjör
en þeir, sem spara sér skólagöngu á
framhalds- og háskólastigi. Mótrök
(mín): Menntun borgar sig ekki
alltaf fjárhagslega, en hún auðgar
ávallt líf hvers þess, sem hennar
nýtur.
Margt aldrað fólk segir, að laus
sparisjóðs- eða bankabók, gefi
bestu ávöxtunina. Sagt er, að bank-
arnir „lifi“ mikið á þessu fólki, því
að vextir, sem bækur þess gefa, eru
langt undir verðbólgustigi, eða inn-
an við 1%. Mótrök mín: Með því að
festa bækur um lengri tíma, má fá
langtum hærri vexti. Mér finnst, að
bankar ættu að benda öldruðu fólki
á þann möguleika. Það er til
skammar fyrir bankana að græða
þannig á fólki, vegna þess að það
veit ekki betur. Nóg að sinni.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
NY VERSLUN
LAUGAVEGI 38
ecco
OPNUNAR
TILBOÐ
Laugavegi 38 • sími 551 0765
Komnir aftur
Barna kuldaskór m/riflás
Ullarfóðaðir
Cóður gúmmísóli
PÓSTSENDUIVI SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Ioppskórinn
Veltusundi v/lngólfstorg, sími 552 1212
Teg.: 8178
Litur: Svartir m/rauðu
Stærðir: 22-35
Litur: Svartir m/bláu
Stærðir: 22-30
Verð:
kr. 3.995
http://www.simnet.is/
mannvernd
BLEKKING
& ÞEKKING
Almennur fundur 3. des
Norræna húsinu kl. 16:25
Hefur
©
hugleitt!
Nýir félagar velkomnir
8:881-7194 ailll 10:00 £ 13:00
Pósthólf 94 121 Rvk.
HOTEL SK3ALDBREIÐ, LAUGAVEGI 16
NÝTT HÓTEL Á BESTA
STAÐ í MIÐBORGINNI
VETRARTILBOÐ
Verðfrá kr. 2.700 á niann i2ja manna herbergi.
Morgunverðarhlaðborð innifalið.
Frir drykkur á veitingabúsinu Vegamótum.
Sími 511 6060, fax 511 6070
guesthouse@eyjar.is