Morgunblaðið - 27.11.1998, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1998 67
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Stjörnubíó sýnir gamanmyndina Can’t Hardly Wait, Partíið, en hún fjallar um hóp krakka sem
kemur saman til að skemmta sér eftir brautskráningu frá skólanum þar sem þau hafa stundað nám í fjögur ár.
Líf og fjör að
leiðarlokum
LEIKSTJÓRARNIR Harry Elfont og Deborah Kaplan skrifuðu
saman handritið að myndinni Can’t Hardly Wait.
Frumsýning
AÐ lokinni brautskráningu
nemenda í Huntington Hill
skólanum er komið að
lokapartíinu þar sem hin skraut-
lega nemendaflóra sem þrifist hef-
ur í skólanum undanfarin fjögur
ár sleppir fram af sér beislinu og
fær útrás fyrir allar þær tilfinn-
ingar sem legið hafa bældar þenn-
an tíma. Hinn efnilegi rithöfundur
Preston Meyers (Ethan Embry)
hefur verið ástfanginn af fegurð-
ardís bekkjarins, Amöndu Beckett
(Jennifer Love Hewitt), allt frá
því hann sá hana fyrst þegar þau
voru að hefja nám við skólann, og
með hverju árinu hefur hin kvala-
fulla ástríða hans farið stigvax-
andi. I partíinu nær þetta svo há-
marki og hann verður að grípa
þetta síðasta tækifæri til að tjá
henni ást sína áður en hann heldur
til Boston daginn eftir. Preston er
ákveðinn að láta til skarar skríða í
partíinu, en hann veit ekki að það
getur ekki staðið verr á því kær-
asti Amöndu, glæsimennið Mike
Dexter (Peter Facinelli), er
einmitt nýbúinn að segja henni
upp til þess að hann geti leikið
lausum hala og farið á kvennaveið-
ar að vild. í slagtogi við þennan
ástarþríhyrning er svo hin hæg-
láta Denise Fleming (Lauren
Ambrose) sem er trúnaðarvinur
Prestons, en í partíinu lendir hún í
heldur óvæntu ástarævintýri með
fyrrverandi æskuvini sínum;
Kenny Fisher (Seth Green). I
hópnum er einnig gáfnaljósið
William Lichter (Charlie Corsmo)
sem soðið hefur saman stórkost-
lega áætlun til að niðurlægja Mike
og vini hans í hefndarskyni fyrir
einelti síðustu fjögurra ára og
einnig er á sveimi stúlkan sem vill
láta alla árita minningabókina
sína. Síðast en ekki síst er það svo
stelpan sem heldur partíið en hún
þarf að takast á við bletti í gólf-
teppinu, þjófnað af heimilinu og
veggjakrot. Allt reynir þetta unga
fólk að koma á framfæri skilaboð-
um um fortíð sína og ráðgera
næsta leik í óvissri framtíðinni
sem bíður þess.
Leikstjórar myndarinnar Can’t
Hardly Wait eru þau Deborah
Kaplan og Harry Elfont, en þau
eru jafnframt höfundar kvik-
myndahandritsins. Þetta er fyrsta
kvikmyndin sem þau leikstýra, en
þau hafa skrifað nokkur kvik-
myndahandrit saman. Fyrsta verk-
efni þeirra var handrititð The Fa-
mily Way sem Jenno Topping,
framleiðandi Can’t Hardly Wait,
keypti en síðan skrifuðu þau fyrir
hana handritið að A Very Brady
Sequel. Þau áttu síðan þátt í gerð
handritanna að myndunum
Homeward Bound 2 og Jingle AU
the Way.
Aðalleikararnir í Can’t Hardly
Wait hafa allir áður getið sér gott
orð á hvíta tjaldinu. Ethan Embry
lék aðalhlutverkið í myndinni
Dutch sem John Hughes leik-
stýrði og aðrar myndir sem hann
hefur leikið í eru m.a. A Far Off
Place, White Squall, That Thing
You Do! og Vegas Vacation.
Charlie Korsmo hefur m.a. leikið í
myndunum Hook, Dick Tracy,
Men Don’t Leave og Heatwave.
Lauren Ambrose lék síðast í
gamnanmyndinni In & Out, sem
Kevin Kline fór með aðalhlutverk-
ið í, Peter Facinelli hefur m.a.
leikið í myndunum Touch Me,
Foxfire og Angela og Seth Green
hefur leikið í myndunum Austin
Powers: International Man of My-
stery, Airborne, My Stepmother
is an Alien og Big Business. Loks
má nefna Jennifer Love Hewitt
sem fer með eitt aðalhlutverkanna
í sjónvarpsþáttunum Party of Fi-
ve, en hún hefur leikið í myndun-
um I Know What You Did Last
Summer og I Still know What You
Did last Summer, sem sýnd verð-
ur hér á landi síðar í vetur.
PRESTON Meyers (Ethan Embry) gerir klaufalega tilraun til þess
að ná athygli fegurðardísarinnar Amöndu Beckett (Jennifer Love
Hewitt).
DAGINN eftir partfið heldur Mike Dexter (Peter Facinelli) áfram að
stríða William Lichter (Charlie Corsmo) eins og hann hefur gert alla
tíð í skólanum.
HIN hægláta Denise Fleming (Lauren Ambrose) lendir í óvæntu
ástarævintýri með Kenny Fisher (Seth Green).
EKKI LÁTA ÞIG VANTA B
Klóbburinn
Frábær gamanmynd, frábær partýmynd. Komið og upplifið partý ársins.
Með Jennifer Love Hewitt (I Know What You Did Last Summer).
Geggjuð tónlist. Nördar, töffarar, glanspíur, klíkur, íþróttageggjarar, pabbastelpur,
fegurðardrottningar o.fl. fólk í partýinu
www.vortex.is/st|ornubio/
DAG
FRUMSYND
„Hröð og fyndin."
GÆRDAGURINN
HEYRIR
SÖGUNNI TIL.
Á MORGUN ER
FRAMTÍÐIN.
í KVÖLD ER
PARTÝIÐ
Kevin Thomas/
LOS ANGELES TIMES
„Grípandi lónlisl og
leikandi léllur húrnor."
Janet maslin/
NEW YORK TIMES
„Kallið á lögguna. Þetta
parlý skekur húsið. Farið
með kærustuna og upplifið
villt fjör. Tónlistin sér um
að halda partýinu
gangandi."
\Á/ooih
David Noll/
VH-1, NEW YORK
„Partý sem þú gleymir
seinl. Allir munu falla fyrir
Jennifer Love Hewifi (I
Know What You Did Last
Summerl."
Jeanne Wolf/
JEANNE WOLF'S
HOLLYWOOD
ATH!
:Ý‘ :
muuðc
nmocER
raucuai
mm
B I
ffldlffl
II
NHIliNVI!ll
mam kskt
www.sony.com
Allir þeir sem kaupa
sig innó sýninguna
kl. 21.00 íkvöld
er boðið í
CAN'T HARDLY
WAIT
partý sem haldið
verður í klúbbnum
eftir sýningu.
VEITINGAR I BOÐI.